Morgunblaðið - 24.11.2018, Page 10

Morgunblaðið - 24.11.2018, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 Allir velkomnir! ALDREI AFTUR! - FUNDARÖÐ SAMTAKA SPARIFJÁREIGENDA Magnús Sveinn Helgason Sagnfræðingur Kristrún Heimisdóttir Lögfræðingur Björn Rúnar Guðmundsson Hagfræðingur Opinn fundur í Veröld -húsi Vigdísar þriðjudaginn 27. nóvember kl. 12-13.15 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Framboð á farþegaflugi til Austur- Evrópu hefur aukist mikið síðustu ár. Átta flugfélög hafa flogið til þessa heimshluta frá Keflavíkurflug- velli frá ársbyrj- un 2016. Ung- verska flugfélagið Wizz Air er með langmestu um- svifin. Guðjón Helga- son, upplýsinga- fulltrúi Isavia, segir framboðið hafa aukist á flugi til Austur-Evrópu. „Við höfum á síðustu tveimur ár- um séð nokkra aukningu í framboði á flugferðum til og frá ríkjum Austur- Evrópu. Það á eftir að koma í ljós hvort aukning verður þar á. En rétt er að benda á að ungverska lág- gjaldaflugfélagið Wizz Air er orðið einn af stærstu viðskiptavinum Keflavíkurflugvallar,“ sagði Guðjón. Þúsundir flugferða Samkvæmt upplýsingum frá Isavia voru alls um 4.600 hreyfingar flugvéla frá Keflavíkurflugvelli, til Austur-Evrópu og frá, á tímabilinu frá janúar 2016 til október 2018. Það þýðir um 2.300 komur og jafnmargar brottfarir frá Keflavík á tímabilinu. Um 53% þessara hreyfinga (flug- ferða), eða um 2.500, voru til Pól- lands. Næst kom Ungverjaland með um 600 hreyfingar og svo Lettland með um 500. Tékkland var í fjórða sæti með um 450 hreyfingar og Litháen í því fimmta með um 430 hreyfingar. Flestar hreyfingar til einstakrar borgar á tímabilinu voru farnar á vegum Wizz Air til Varsjár í júlí síð- astliðnum, alls 36 hreyfingar. Það þýðir að flogið var 18 sinnum fram og til baka frá Keflavíkurflugvelli til höfuðborgar Póllands í umræddum mánuði. Hefur Wizz Air flogið til pólsku borganna Gdansk, Katowice, Pozn- an, Varsjár og Wroclaw á tímabilinu. Jafnframt hefur WOW air flogið til Varsjár. Sýnist óhætt að fullyrða að aldrei í sögu Íslands hafi verið jafn greiðar og tíðar flugsamgöngur til Póllands. Wizz Air hefur jafnframt verið með beint flug til höfuðborga Lett- lands (Riga), Litháens (Vilníus) og Ungverjalands (Búdapest). Lettneska flugfélagið Air Baltic hefur verið með nokkuð tíðar flug- ferðir til Riga, höfuðborgar Lett- lands, hluta úr árinu. Þá hefur tékk- neska flugfélagið Czech Airlines flogið reglulega til Prag yfir sumar- ið. Wizz Air hætti beinu flugi til Prag í sumar sem leið. Slóvenska flug- félagið Adria Airways hefur verið með beint flug til Ljubljana í Slóven- íu og einu sinni til Zagreb í Króatíu. Það var í júní 2017 en íslenska karla- landsliðið í knattspyrnu tók þá á móti Króötum á Laugardalsvelli. Flogið til Rússlands út af HM Icelandair, WOW air og rússneska flugfélagið S7 Airlines flugu til Moskvu í júní síðastliðnum, ásamt því sem WOW air flaug til Rostov og Volgograd, vegna HM í knattspyrnu. Ferðir Icelandair og WOW air til Mosvku voru vegna HM. WOW air flaug til Vilníus, höfuðborgar Lithá- ens, sumarið 2016 en svo lagðist sú flugleið af. Þá hefur tékkneska leigu- félagið Travel Service flogið til Bratislava í Slóvakíu, Dubrovnik í Króatíu og Prag í Tékklandi. Loks flaug litháíska flugfélagið Small Planet Airlines nokkrar ferðir til Burgas í Búlgaríu sumarið 2017. Rætt var við Jaroslav Knot, sendi- herra Tékklands á Íslandi með að- setur í Ósló, og Denisu Frelichová, sendiherra Slóvakíu á Íslandi með aðsetur í Ósló, í Morgunblaðinu í gær. Lýstu sendiherrarnir yfir áhuga sinna ríkja á auknum viðskipt- um við Íslendinga. Sáu þeir meðal annars tækifæri í ferðaþjónustu. Kann þessi áhugi ríkjanna að birt- ast í auknu framboði á flugi til þess- ara landa á næstu árum. Aukið framboð af flugi til A-Evrópu  Átta flugfélög hafa flogið frá Keflavíkurflugvelli til Austur-Evrópu frá ársbyrjun 2016  Ungverska flugfélagið Wizz Air er langumsvifamest  Það er orðið einn stærsti viðskiptavinur Keflavíkurflugvallar Fjöldi koma og brottfara í beinu flugi til borga í Austur-Evrópu 300 250 200 150 100 50 0 janúar 2016 október 2018 2016 2017 2018 Samtals allar borgir frá jan. 2016 til okt. 2018 2016, 2017 og 2018* samtals fjöldi Hlutdeild flugfélaga 2016-2018* samtals Skipting eftir löndum 2016-2018* samtals Wizz Air WOW air Air Baltic Czech Airlines Önnur flugfélög Pólland 2.482 53% Ungverjaland 595 13% Lettland 496 11% Tékkland 448 10% Litháen 427 9% Eistland 125 2,7% Slóvenía 56 1,2% Rússland 34 0,7% Slóvakía 27 0,6% Búlgaría 13 0,3% Króatía 4 0,1% 81% 781 1.689 2.134 *Fyrstu 10 mán. 2018 *Fyrstu 10 mán. 2018 6% 5% 4% 4% Heimild: Isavia Guðjón Helgason Aðflutningur fólks frá Austur- Evrópu til Íslands kann að eiga þátt í auknu framboði á flugi til austur- hluta álfunnar á síðustu árum. Samkvæmt tölum Hagstofu Ís- lands bjuggu rúmlega 18 þúsund innflytjendur frá níu ríkjum Austur- Evrópu hér á landi 1. janúar 2017. Tölur fyrir þetta ár hafa ekki verið birtar á Hagstofuvefnum. Þá bjuggu hér á fjórða hundrað innflytjendur frá Rússlandi í byrjun síðasta árs. Til einföldunar eru Eystrasalts- ríkin Eistland, Lettland og Litháen hér flokkuð undir A-Evrópu. Þá er Rússland hér tekið með í samhengi við flugtölurnar hér á opnunni. Samtals hafa 5.630 fleiri erlendir ríkisborgarar flutt til landsins á fyrstu níu mánuðum ársins en fluttu þá frá landinu. Með því er árið 2018 komið fram úr þensluárunum 2006 og 2007. Pólverjar eru þar fjölmenn- asti hópurinn. Innflytjendum hefur því fjölgað mikið milli ára. Morgunblaðið/Eggert Aukin umferð Flugvélar á Keflavíkurflugvelli í byrjun mánaðarins. Straumur frá A-Evrópu til Íslands  Innflytjendum fjölgar ár frá ári Innflytjendur frá nokkrum ríkjum A-Evrópu 2017* Búlgaría 342 1,9% Króatía 229 1,2% Lettland 874 4,7% Litháen 1.880 10,2% Pólland 13.771 74,6% Rússland 337 1,8% Slóvakía 338 1,8% Slóvenía 33 0,2% Tékkland 331 1,8% Ungverjaland 315 1,7% *T öl ur fr á 20 18 li gg ja e kk i f yr ir H ei m ild : H ag st of a Ís la nd s Samtals 18.450 Flug milli Íslands og Austur-Evrópu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.