Morgunblaðið - 24.11.2018, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 24.11.2018, Qupperneq 20
Kostnaðarþáttaka í heilbrigðiskerfinu ESB- og EES-lönd Heimild: OECD – Health at a Glance: Europe Albanía 56,9% Meðaltal ESB/EES 18,2% Ísland 16,9% Frakkland Minnst: 9,8% Mest: inni á sjúkrahúsum og heilbrigðis- stofnunum hafi verið áberandi mik- ill á Íslandi og Danmörku allt frá árinu 2009 og hvað mestur hér á landi eða 9,7% að jafnaði á ári og 5,5% í Danmörku. Í tólfta sæti yfir útgjöld til heilbrigðismála í Evrópu Heildarútgjöld til heilbrigðismála á Íslandi voru 8,5% af landsfram- leiðslu í fyrra og voru þau nokkuð undir meðaltalinu í löndum innan Evrópusambandsins. Alls voru útgjöldin hærra hlutfall Beinn hlutur heimilanna í kostnaði við heilbrigðisþjónustuna hér á landi er tæp 17% af heildarútgjöld- unum í heilbrigðismálum sam- kvæmt samanburði OECD á stöðu heilbrigðismála í Evrópulöndum, Health at a Glance: Europe 2018, sem birt var í vikunni. Er Ísland örlítið undir meðaltal- inu í löndum Evrópusambandsins en þar greiða íbúar að jafnaði 18,2% úr eigin vasa fyrir heilbrigðisþjón- ustu. Hlutur einstaklinga er lægri í 14 Evrópulöndum en hærri í 21 sem samanburður OECD tekur til. Lyfjaútgjöld í lausasölu um 39 þús. kr. á mann hér á landi Ef eingöngu er reiknaður lyfja- kostnaður í Evrópulöndum kemur í ljós að öll lyfjaútgjöld í smásölu á hvern íbúa á Íslandi voru að jafnaði sem samsvarar 275 evrum á árinu 2016 eða um 39 þús. krónum á mann á núverandi gengi. Er Ísland í hópi þjóða þar sem þessi útgjöld eru lægst. Að meðaltali voru þau 417 evrur á hvern íbúa í löndum Evrópusambandsins. Hið opinbera fjármagnaði 36% af lyfjaútgjöldum í lausasölu en ein- staklingar 59% á árinu 2016. Tekið er fram í umfjöllun OECD að árlegur vöxtur lyfjakostnaðar af landsframleiðslu í 16 öðrum Evr- ópulöndum samkvæmt samanburði í skýrslu OECD. Ef reiknuð eru útgjöld til heil- brigðismála á íbúa kemur í ljós að þau námu 3.309 evrum á hvern Ís- lending eða sem svarar til 466 þús- und króna á hvern íbúa. Þau námu að jafnaði 2.773 evrum á hvern íbúa að jafnaði í Evrópu á þessum sama tíma og voru útgjöldin á íbúa hærri en hér á landi í 11 Evrópulöndum. Útgjöld til heilbrigðismála reikn- uð á mann hafa vaxið að jafnaði um 3,3% á ári á Íslandi allt frá árinu 2013, sem er mun meiri aukning en að jafnaði í löndum ESB þar sem árlegur vöxtur hefur verið um 1,7%. 3,9 læknar á þúsund íbúa Hér á landi eru 3,9 læknar á hverja þúsund íbúa. Það er yfir meðaltalinu í ESB en fleiri lækna á hvern íbúa er þó að finna í tíu öðr- um Evrópulöndum. Þá eru 14,2 hjúkrunarfræðingar á hverja þús- und íbúa hér á landi en 8,4 að með- altali í löndum Evrópusambandsins. Í Noregi eru mun fleiri hjúkr- unarfræðingar á hverja þúsund íbúa en hér á landi eða 17,5 og sömu sögu er að segja frá Danmörku þar sem þeir eru 16,9 á hverja þúsund íbúa. Greiða 16,9% úr eigin vasa  Lyfjakostnaður á sjúkrahúsum hefur vaxið meira hér á landi frá 2009 en í öðrum Evrópulöndum samkvæmt OECD 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 H a u ku r 0 1 .1 6 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is • Fyrirtæki sem sérhæfir sig í innflutningi, samsetningu og sölu á heimsþekktum og þrautreyndum vörum sem notaðar eru í útbyggingar, svalalokanir, glugga, rennihurðir og fleira. Velta 250 mkr. og mikil verkefni framundan. • Ungt og hratt vaxandi veitingastaður (2 staðir) þar sem áhersla er lögð á hollan skyndibita í hádeginu og á kvöldin. Veltan í ár áætluð 280 mkr. og EBITDA 20 mkr. Miklir möguleikar á að fjölga stöðum undir vörumerkinu sem hlotið hefur góðar viðtökur. • Lítið framleiðslufyrirtæki sem framleiðir sérhæfða vöru fyrir heimili og fyrirtæki. Velta um 40 mkr. nokkuð stöðug. Afkoma jöfn og góð. • Arðsamt fyrirtæki með langa reynslu sem flytur inn og selur véltækni- búnað aðallega tengdum sjávarútvegi, fiskeldi, en einnig öðrum iðnaði. Velta undanfarin ár hefur verið á bilinu 150-200 mkr. og EBITDA 25-40 mkr. • Rótgróið iðnfyrtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á vörum úr plasti. Ársvelta á bilinu 250-300 mkr. • Ein þekktasta hárvöruheildverslun landsins með mjög þekkt merki fyrir fagaðila. Góð velta og afkoma. • Fyrirtæki sem sérhæfir sig í greiðslulausnum á afmörkuðu en þekktu sviði leitar eftir auknu hlutafé. Spennandi fjárfestingakostur með miklum möguleikum á arðsemi, gangi áætlanir eftir. • Mjög gott fyrirtæki sem sérhæfir sig í lagningu á þakdúk sem það flytur sjálft inn. Veltan á bilinu 150-200 mkr. og afkoman mjög góð. Eigendur tilbúnir að vinna áfram eins og þörf krefur. Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Þórarinn Arnar Sævarsson fasteignaráðgjafi, thorarinn@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hæstaréttarlögmaður, sigurdur@kontakt.is ÚR BÆJARLÍFINU Albert Eymundsson Höfn Dagur íslenskar tungu var hald- inn hátíðlegur með fjölbreyttri dag- skrá í Nýheimum. Þar afhenti mennta- og menningarmálaráð- herra, Lilja Alfreðsdóttir, Eiríki Rögnvaldssyni, prófessor emeritus, verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2018 fyrir framlag hans að tryggja þróun og framtíð tungumálsins. Sömuleiðis afhenti ráðherra sér- staka viðurkenningu vegna verkefn- isins „Skáld í skólum“, sem Aðal- steinn Ásberg Sigurðsson veitti viðtöku fyrir hönd Rithöfunda- sambands Íslands. Sérstaka ánægju vakti þátttaka grunnskólanemenda í dagskránni með upplestri og hljóð- færaleik. Þá kynntu nemendur í 6. bekkjar nýyrði sem þeir höfðu smíð- að í tilefni af opnun nýyrðabankans á vefsíðu Stofnunar Árna Magnús- sonar.    Nýr leikskóli, Sjónarhóll, var tekin í notkun á Höfn eftir sumar- leyfi og hýsir hann öll leikskóla- börnin í einum skóla sem voru áður í tveimur húsum. Skólinn er um 1.000 fermetrar og rúmar sex deildir og 150 nemendur. Mikil ánægja er með nýja húsnæðið, lóðina og umhverfið enda vandað til verka við að gera að- stöðu barnanna og starfsmanna sem besta.    Mikil eftirspurn er eftir hús- næði og mikið er byggt jafnt í þétt- býli sem og í sveitunum. Á Höfn er 21 íbúð í byggingu, átta einbýlishús, tvö fjölbýlishús og parhús. Í Öræfum er sveitarfélagið að byggja þriggja íbúða raðhús í nýskipulögðu hverfi við Hof. Auk þess eru framkvæmdir við íbúðarhúsnæði og starfsmanna- húsnæði víða um héraðið.    Af öðrum framkvæmdum má nefna að búið er að samþykkja skipulagsbreytingar vegna lagn- ingar hitaveitu frá Hoffelli til Hafn- ar, byggingu flugskýlis við flugvöll- inn í Skaftafelli sem er að ljúka, viðbyggingu við Foss Hótel Jökuls- árlón og framkvæmdir við skólp- hreinsistöð í Óslandi. Þá er hafinn undirbúningur að stækkun hjúkr- unarheimilisins en áætlað að halda samkeppni um hönnun þess í byrjun næsta árs.    Af sjávarsíðunni er það að frétta að síldarvertíðin er í fullum gangi en veiðin hefur verið frekar treg það sem af er vertíð. Bolfisk- veiðin hjá tog- og línubátum hefur verið með allra besta móti, fiskur vænn og vel á sig kominn.    Mikil umræða hefur verið um slæma stöðu humarstofnsins við landið og auðvitað eru Hornfirðingar áhyggjufullir vegna þess en humar- inn er stór þáttur í veiðum Horna- fjarðarbáta og landvinnslu hjá Skinney-Þinganesi.    Vatnajökulsþjóðgarður var stofnaður árið 1968 og því 50 ár frá stofnun hans. Af því tilefni verður dagskrá í dag, laugardag, í Skafta- felli með fjölbreyttri dagskrá. Þjóð- garðurinn hefur með árunum orðið mikilvægari og skapað fjölmörg at- vinnutækifæri fyrir samfélagið í hér- aðinu. Morgunblaðið/Albert Orðasmiðir Nýyrðasmiðirnir ungu ásamt Lilju Alfreðsdóttur, Eiríki Rögnvaldssyni og verðlaunahöfum. Orð lögð í nýyrðabankann Nýja kaffibrennslan ehf. hefur fest kaup á kaffihúsakeðjunni Kaffitár ehf. Eru kaupin háð samþykki Sam- keppniseftirlitsins en kaupverðið er ekki uppgefið.Aðalheiður Héðins- dóttir, stofnandi Kaffitárs, mun starfa áfram með nýjum eigendum í kjölfar viðskiptanna. Aldarfjórðungur er liðinn frá stofnun Kaffitárs en fyrirtækið hef- ur selt kaffi sem keypt er beint frá kaffiræktendum, rekur kaffi- brennslu, pökkun og dreifingu sem þjónustar verslanir og fyrirtæki. Kaffihús Kaffitárs eru fjögur talsins og þá rekur fyrirtækið einnig Kruð- erí ehf. 18 ára gamalt fyrirtæki Nýja kaffibrennslan ehf. er 18 ára gamalt fyrirtæki og varð til við sam- runa Kaffibrennslu Akureyrar og Kaffibrennslu Ó. Johnson & Kaaber. Nýja kaffibrennslan er systurfyrir- tæki heildsölu Ó. Johnson & Kaaber ehf. og Sælkeradreifingar ehf., sem þjónusta bæði smásölumarkaðinn og veitingahúsamarkaðinn. Íslandsbanki var ráðgjafi seljanda og Fjármálaráðgjöf Deloitte var ráð- gjafi kaupenda. Nýja kaffibrennsl- an kaupir Kaffitár  Háð samþykki samkeppniseftirlitsins Morgunblaðið/Golli Kaffi Aðalheiður fyrrverandi eig- andi mun starfa áfram hjá Kaffitári. taka fi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.