Morgunblaðið - 24.11.2018, Side 26

Morgunblaðið - 24.11.2018, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Margt eríbúumBosníu- Hersegóvínu mót- drægt. Landið fór illa út úr borgara- styrjöldinni, sem braust út þegar Júgóslavía liðaðist í sundur. Friðarsamkomulagið, sem gert var þegar klæði voru loks borin á vopnin 1995, átti aldrei að vera til frambúðar, en landinu er enn stjórnað í krafti þess. Í október fóru fram forseta- kosningar í landinu. Kosnir eru þrír forsetar og skiptast þeir á að hafa forustu átta mánuði í senn. Bosníuserbinn, Milorad Dodik, ríður á vaðið. Hann hef- ur verið í forustu í þeim hluta landsins sem nefnist serbneska lýðveldið í rúman áratug, fyrst sem forsætisráðherra og síðan forseti, og hefur lýst yfir því að hann telji hugmyndina um Bosníu misheppnaða. Hann hefur einnig margfaldlega sagt að hann styðji þjóðaratkvæði um aðskilnað serbneska hlut- ans við Bosníu. Hann kallar Ratko Mladic, einn af for- sprökkum þjóðernishreins- ananna í landinu, serbneska hetju. Í kosningunum var einnig kjörinn fulltrúi Bosníu- múslima, Sefik Dzaferovic, og Bosníukróata, Zeljko Komsic. Dodik hefur mildað mál- flutning sinn og sagst ætla að starfa í allra þágu þótt hann segi einnig að hann hafi ekki skipt um skoðun, bara starf, eins og kemur fram í umfjöllun í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Stutt er í að ald- arfjórðungur verði liðinn frá því að vopnin þögn- uðu í Bosníu, en enn logar glóð. Í daglegu lífi virðist margt undirstrika að ekki búi ein þjóð í landinu heldur þrjár. Börn Bosníaka, eins og múslimarnir í Bosníu eru nefndir, Bosníu- serba og Bosníukróata ganga í skóla eftir því hvaða hópi þau tilheyra í stað þess að láta þau ganga saman í skóla og kynn- ast. Þessi aðskilnaður heldur sér með ýmsum hætti og blandast hóparnir ekki einu sinni á skemmtistöðum. Í borginni Mostar er Króata- slökkvilið og múslimaslökkvi- lið. Annað slekkur elda hjá Króötum, hitt hjá múslimum. Króataslökkviliðið fer ekki einu sinni á vettvang þótt eld- urinn í múslimska borgar- hlutanum sé nær þeirra slökkvistöð en slökkvistöð múslimaslökkviliðsins. Það er ekki keppikefli að spá upplausn landa, en í Bosníu- Hersegóvínu eru aðstæður þannig að það er eins og lögð sé áhersla á að skerpa línurnar á milli múslima, Serba og Króata og ala á tortryggni frekar en byggja upp traust og erfitt að sjá hvernig þeirri þróun verði snúið við án rót- tækra breytinga, sem enginn virðist berjast fyrir eins og sakir standa. Í Bosníu breikkar bilið milli múslima, Serba og Króata} Á leið til upplausnar? Sú gagnrýni hef-ur lengi verið við lýði að of mikil áhersla sé lögð á að beina ungu fólki í bóknám og jafnvel sé sú tilhneiging fullágeng að gera meira úr bók- inni en list- og verkgreinum. Samtök iðnaðarins telja vægi list- og verkgreina í grunn- skólum landsins sláandi lágt og vilja að úr því verði bætt. Í Sunnudagsblaði Morgunblaðs- ins er rætt við Ingibjörgu Ösp Stefánsdóttur, sviðsstjóra reksturs mennta- og mann- auðsmála hjá Samtökum iðn- aðarins. Þar segir hún að í við- miðunarstundaskrám eigi að verja fimmtungi kennslunnar í þessar greinar eða einni mín- útu af hverjum fimm. Þessu sé verulega ábótavant og í elstu bekkjunum fari hlutfallið niður í eina af hverjum þrettán mín- útum. Í 5. og 7. bekk fylli 80% skóla í Reykjavík ekki þessi viðmið. Hún segir einnig of mikla til- viljun ráða áherslum. Hafi skóli til dæmis góð- an textílkennara geti hann farið langt með að fylla kvótann á kostnað annarra greina, þótt þannig hafi þetta ekki verið hugsað. Ingibjörg Ösp bendir einnig á að í könnun, sem Samtök iðn- aðarins létu gera meðal nem- enda í efstu bekkjum grunn- skóla, hafi margir sagst geta hugsað sér að vinna í skapandi umhverfi og í höndunum frekar en á skrifstofu, en vildu síðan helst fara í MR eða Verzlunar- skólann. „Þannig að börnin velja skóla en ekki nám,“ segir hún. Þetta er þörf gagnrýni og vert að taka mark á henni og skoða þær tillögur, sem Sam- tök iðnaðarins hafa lagt fram í því skyni að breyta þessu. Það er mikilvægt að skólakerfið sé þannig úr garði gert að það auðveldi nemendum að finna sinn vettvang. Ástæða er til að leggja meiri áherslu á verkgreinar í skólakerfinu} Vanræktar verkgreinar Þ að er mikilvægt að hér á landi sé til staðar þekking og reynsla þegar kemur að því að tryggja öryggi borgaranna, hvort sem er í hern- aðarlegu eða borgaralegu tilliti. Hluti af því er að ræða með reglubundnum hætti og af yfirvegun um öryggis- og varnarmál. Það eru þó fleiri mikilvægir þættir sem skipta máli. Þannig má nefna hugtök á borð við frið, lýðræði og viðskipti – sem öll eru nátengd þegar betur er að gáð. Sagan hefur sýnt okkur að lýðræðisþjóðir eru líklegri til að eiga frið- samlegri samskipti sín á milli og grípa síður til vopna hver gegn annarri. Það sama má segja um ríki sem eiga í frjálsum viðskiptum og eiga þannig sameiginlegra hagsmuna að gæta. Þannig má nefna að ein meginforsenda friðar í Evrópu sl. 70 ár er að ríkin sem áður börðust hvert við annað á vígvellinum eru hvort tveggja í senn orðin að lýðræðisríkjum og eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta í formi frjálsra viðskipta sín á milli. Það þarf stöðugt að leggja áherslu á mikilvægi frjálsra viðskipta á alþjóðavísu. Það má ætla að hvar sem við stöndum á vængjum stjórnmálanna getum við flest verið sammála um það að síðastliðin 200 ár eða svo hafa verið þau framsæknustu í mannkynssögunni. Um þetta fjallar sænski sagnfræðingurinn Johan Norberg í bók sinni Framfarir, sem til er í íslenskri þýðingu. Líf okkar hér á jörðinni hefur aldrei verið betra en einmitt nú. Það er ekki persónuleg skoðun höfundar heldur fullyrðing sem er rökstudd með staðreyndum. Þó vissulega megi finna margar skýringar á því þá eru aukin milliríkjaviðskipti algjör lykil- þáttur í að skapa aukna hagsæld. Aukin milli- ríkjaviðskipti skapa störf, ýta undir tækni- þróun, hjálpa fátækari ríkjum að komast í álnir og þannig mætti áfram telja. Þær þjóðir sem hafa náð hvað mestum árangri og fram- förum á síðustu árum, áratugum og öldum eru sömu þjóðir og hafa lagt áherslu á milliríkja- viðskipti og vinsamleg samskipti við aðrar þjóðir. Frjáls viðskipti eru þó ekki sjálfgefin og það er mikið fyrir þeim haft. Svo ótrúlegt sem það má vera árið 2018, þá heyrum við reglulega orðið tollastríð í fréttum. Það snýr að mestu leyti að þeim aðila sem nú ræður ríkjum í Hvíta húsinu – en á sama tíma verðum við ítrekað vör við vantrú og efasemdir um ágæti milliríkjaviðskipta meðal þjóðarleiðtoga eða einstakra stjórnmálaflokka í Evrópu og Asíu. Við erum stöðugt minnt á að frjáls viðskipti eru ekki sjálfsögð. Við Íslendingar eigum að halda uppi merkjum frjálsra viðskipta hvar sem við getum. Við vitum að þau leiða til hagsældar og framfara og við vitum að aukin viðskipti auka líkurnar á friði í heiminum. Það er því mikilvægt að við stöndum vörð um frjálsan flutning á vörum, þjónustu, fjármagni og fólki. Þannig viðhöldum við í senn hagsæld og friði. aslaugs@althingi.is Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Frjáls viðskipti viðhalda hagsæld og friði Höfundur er formaður utanríkismálanefndar og ritari Sjálfstæðisflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Staðan í bolfiskinum ermjög erfið og ekki sísthér í Grindavík,“ segirPétur H. Pálsson, fram- kvæmdastjóri Vísis hf. í Grinda- vík. Útvegsfyrirtæki í Grindavík fengu Deloitte til að meta stöðuna í samanburði við það sem er í Vestmanna- eyjum og á Austfjörðum, en fyrirtæki þar höfðu áður feng- ið greiningu á stöðunni. Byggt er á stórri út- tekt fyrir landið allt, sem Delo- itte birti fyrr í haust. Fulltrúar fyrirtækja í Grindavík kynntu niðurstöðuna fyrir bæjarstjórn í vikunni og hafa rætt stöðuna við fleiri. Í niðurstöðum kemur fram að tekjur í sjávarútvegi drógust sam- an um 9% á milli áranna 2016 og 2017 . Á þremur fyrrnefndum svæðum var EBITDA samdráttur mestur í Grindavík. „Sé litið til EBITDA framlegðarhlutfalls á árinu 2017 þá nam það einungis 8% í Grindavík, samanborið við 24% á Austurlandi og 23% í Vestmannaeyjum,“ segir í sam- antekt Deloitte. Þá lækkaði hagn- aður á þorskígildi í fyrra á öllum svæðunum í úttektinni, um 82% í Grindavík, 62% í Vestmannaeyjum og 53% á Austurlandi. Reksturinn ólíkur Útgerð á svæðunum er með talsvert ólíkum hætti og þannig voru átta félög á Austfjörðum skoð- uð, fjögur í bolfiski og fjögur í blönduðum rekstri, það er bolfiski og uppsjávartegundum. Í Grinda- vík voru fyrirtækin fimm eingöngu í bolfiski en í Vestmannaeyjum voru 11 félög skoðuð, átta voru í bolfiski, tvö blönduð og eitt var ein- göngu í uppsjávarfiski. Pétur segir að nú vinni Delo- itte að sambærilegri úttekt fyrir Snæfellinga. Þar sé útgerð og vinnsla á margan með svipuðum hætti og í Grindavík og forvitnilegt verði að sjá niðurstöðuna. Verða að grípa til ráðstafana „Með því að skoða tölur Delo- itte um framlegð í bolfiski má vera ljóst að greinin er ósjálfbær og þá ekki bara í Grindavík,“ segir Pétur. „Það þýðir að menn verða að grípa til einhverra ráðstafana til að halda fyrirtækjunum á lífi. Ný lög um veiðigjöld eru væntanleg og svo er unnið að nýjum kjarasamningum. Í framhaldinu verða menn að setjast niður og reikna, en vissulega sjá menn nokkurn veginn hvert þetta stefnir. Svo er það gengið og það getur vissulega hjálpað okkur fram eftir næsta ári, en því er spáð að það styrkist næsta vor. Það er hins veg- ar byggt inn í kerfið að verði ein- hver ávinningur 2019 þá hækka veiðigjöldin 2020 og þar með er það farið.“ Spurður um hvaða aðgerðir hann sjái fyrir sér í greininni segir hann of snemmt að segja nokkuð um það. Menn séu að reikna hver í sínu horni og taki ákvarðanir út frá þeim niðurstöðum. Vinnsla á bolfiski ekki lengur sjálfbær Afkoma fyrirtækja í sjávarútvegi 2013 til 2017 EBITDA-framlegð eftir greinum 19% 19% 24% 17% 13% Heimild: Deloitte og VÍSIR 2013 2014 2015 2016 2017 20% 22% 26% 25% 20% 2013 2014 2015 2016 2017 Botnfiskútgerð Botnfiskútgerð og -vinnsla Blönduð uppsjávar- og botnfiskfélög 28% 27% 28% 27% 22% 2013 2014 2015 2016 2017 Pétur segir að margir í greininni hafi áhyggjur af útflutningi á ferskum fiski til útlanda. Dæmi séu um að erlendir viðskipta- vinir kaupi beint af bátum og aflinn fari þannig framhjá fisk- mörkuðum. Að óbreyttu gæti aukningin orðið um tíu þúsund tonn milli ára. Fari úr 36 þúsund tonnum í fyrra og gæti endað í 45-48 þúsund tonnum á þessu ári í heild. Hann segir að með útflutningi á ferskum, óunnum fiski tapist virðisauki. Samkeppnisstaða ís- lenskrar fiskvinnslu hafi verið að versna og fjárfestingageta fyrirtækjanna sé ekki til staðar lengur. Eina leiðin til að mæta þeirri stöðu sé að fjárfesta í markaðsmálum, tækni og rann- sóknum. Meira flutt út FERSKUR FISKUR Pétur H. Pálsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.