Morgunblaðið - 24.11.2018, Síða 28

Morgunblaðið - 24.11.2018, Síða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 Nú fer sá tími í hönd þegar viðmælendur fréttamanna eru spurðirum jólaundirbúninginn. Sannið þið til: Helmingur viðmælenda áöllum aldri mun segja: „Ég er jólabarn.“ Slíkir fastir liðir í tilver-unni stytta skammdegið og fylla okkur öryggiskennd. „Jóla- hvað?“ var sagt hér á árunum og þótti fyndið. Og nú að öðru. Nýjasta kenning sjálfskipaðs eiganda íslenskunnar er sú að börn skilji ekkert nema barnabækur. Þetta ber vott um sérkennilegt skop- skyn. Hitt eru gömul sannindi að hjálpa þurfi börnunum af stað við lesturinn og lestraráhugann. Það þarf að lesa fyrir þau þær bækur sem eru aðeins fyr- ir „ofan“ lestrarstig þeirra sjálfra. Sama getur átt vel við í kennslustofunni um þá texta sem teknir eru fyrir í kennslubókunum. Tökum textabrot sem stendur þó sjálfstætt í skáldsögu. Kennari les upp- hátt frammi fyrir bekknum, vitandi m.a. það að börn skilja fleira en barna- bækur: „Það eru heitir pottar við hin húsin. Húsið sem ég dvelst í er eina húsið þar sem er enginn pottur nema sá sem er á eldavélinni hjá mér. Ósjálfrátt minna þessir heitu pottar mig alltaf á gömlu mannætubrandarana úr Æskunni. Trúboðarnir sitja í sívaxandi hlýjunni meðan eldur logar undir. Það styttist í kvöldmatinn.“ (Suðurglugginn (2012). Gyrðir Elíasson, bls. 29.) Og svo er hitt, sem er reyndar erfiðara: að segja börnunum sögur, í nestis- tímum eða fyrir svefninn, og einfalda frásögnina eftir þörfum. Ég nefndi eitt sinn í pistli að ein af okkar vanmetnu Íslendingasögum, Finnboga saga ramma, hefði „svínvirkað“ sem framhaldssaga í fjögur kvöld í barnaherbergi (sjá netútgáfu Skólavefsins ásamt skýringum, leiðbeiningum til kennara og upplestri; skolavefurinn.is). Önnur Íslendingasaga, Hávarðar saga Ísfirðings („skemmtilegasta Íslendingasagan“), stóð sig ekki síður í endursögn (einnig í fjögur kvöld!). Þetta krefst æfingar, og við getum auðvitað aldrei gert okkur vonir um að verða nýr Steinþór á Hala í Suðursveit, sbr. snilldarfrásögn hans í Ríkis- útvarpinu undanfarnar vikur. Það var Stefán Jónsson, sá stórsnjalli útvarps- maður og rithöfundur, sem stóð á bak við þessar upptökur árið 1969. Frásögn Steinþórs á Hala var tilgerðarlaus, engin milliorð eins og „héddna“ og „heyrðu“. Og svo þessi safaríki orðaforði og fróðleikur um sam- félag milli jökulfljóta við upphaf síðustu aldar. Það vakti athygli mína við frásögn Steinþórs á Hala að hann hefur verið með snert af hinu indæla „flámæli“ (flögur f. flugur; sker f. skyr o.s.frv.); að ógleymdum hinum fallega skaftfellska rn-framburði: örn f. ördn; stjarna f. stjardna o.s.frv., og einhljóðunum á undan gi: Bragi f. Bræi; stigi f. stíji o.s.frv. Allt breytist. Þegar ég var ungur var hlegið að metnaðargjörnum mennta- skólanema sem sagðist í ræðustól gera þetta upp á sitt „einsdæmi“. Nú hlær enginn að slíku – en samt er gaman að gera greinarmun á eindæmi og eins- dæmi. Mannætubrandarinn Baldur Hafstað hafstad.baldur@gmail.com Tungutak Bóklestur Það þarf að lesa fyrir börn, þau kunna vel að meta slíka stund. Sjávarútvegurinn á Íslandi hefur á tveimur áratug-um orðið alveg ný atvinnugrein. Þetta er niður-staða greinarhöfundar eftir að sitja sjávar-útvegsráðstefnuna, sem stóð í tvo daga fyrir rúmri viku í Hörpu. Það er magnað að sjá þá breytingu sem hefur orðið á þessari grundvallaratvinnugrein þjóð- arinnar í aldir á skömmum tíma. Að mörgu leyti voru hug- hrifin þau sömu og þegar gengið var um landbúnaðar- sýninguna í Laugardalshöll fyrir skömmu og fjallað var um hér á þessum vettvangi þá. Þessar tvær gömlu atvinnugreinar íslenzku þjóðar- innar hafa gengið í endurnýjun lífdaga. Hvað vakti mesta athygli? Svarið er: Fólkið. Það er komin ótrúlega mikil breidd í það fólk, sem með einum eða öðrum hætti kemur að mál- efnum sjávarútvegsins þegar hér er komið sögu, ungt fólk og miðaldra með mikla menntun og þekkingu, sem hefur verið nýtt til þess að umskapa þessa atvinnugrein m.a. með tæknibyltingu, nýrri vöruþróun og auknu markaðs- starfi. Skýrt dæmi um þetta var söguleg yfirferð Gunnars Tómassonar, fram- kvæmdastjóra Þorbjörns í Grindavík, um breytingar á saltfiskverkun á liðinni öld og það sem af er þessari. Svo og lýsingar Sigurjóns Arasonar, prófess- ors við Háskóla Íslands, á þróun þeirra nýju fram- leiðsluaðferða, sem komið hafa til sögunnar. Það var líka mjög áhugavert að fylgjast með fyrir- lestrum um þróun og stöðu bolfiskmarkaða. Athygli vek- ur hvað Engilsaxar, þ.e. Bretland og Bandaríkin, eru enn mikilvægir bolfiskmarkaðir fyrir Ísland en ekki síður að Frakkland sérstaklega skuli vera orðið jafn stór mark- aður og raun ber vitni. Af hverju Frakkar frekar en Þjóð- verjar? Málstofa um þróun smábátaútgerðar og þær umræður sem þar fóru fram undirstrika mikilvægi þess að hlúa að þessum mikilvæga þætti sjávarútvegsins fyrir byggðir landsins. Lítil og meðalstór fyrirtæki í sjávarútvegi eiga undir högg að sækja. Það er rétt sem Pétur Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis, hafði á orði að það þarf að skil- greina betur hvaða fyrirtæki falla undir þessi stærðar- mörk. En það er ekki gott fyrir hvorki atvinnugreinina né samfélagið að meiri samþjöppun verði í sjávarútvegi en orðið er og að eftir standi bara nokkur mjög stór fyrir- tæki. Trillukarlinn er enn mikilvægasta táknmynd einka- framtaksins á Íslandi. Fyrirlestrar um uppsjávarveiðar á tímum loftslags- breytinga brugðu upp svolítið ævintýralegri mynd af því sem er að gerast í hafinu í kringum landið og hvað straumar og loftslagsbreytingar hafa mikil áhrif á lífið í sjónum. Eftir stóð þessi áheyrandi með spurninguna: Er hugs- anlegt að slíkar breytingar geti orðið til þess að fiskurinn hverfi af Íslandsmiðum? Það skiptir augljóslega gríðarlega miklu máli að veru- legum fjármunum sé varið til rannsókna á þessu sviði, svo að við vitum hvað er að gerast í kringum okkur. Þegar síldin kom og síldin hvarf á árum áður með miklum efna- hagslegum afleiðingum fyrir þjóðarbúið og lífskjör fólks var lítið vitað um það hvað olli því að eitt árið komu millj- ón tonn á land en það næsta 140 þúsund tonn og þar næst 60-70 þúsund tonn. Nú eru breyttir tímar og svona breytingar jafnvel hægt að sjá fyrir. Á síðasta áratug 20. aldar stóðu harkalegar deilur í samfélaginu um það, hvort taka ætti upp auðlindagjöld í sjávarútvegi og öðrum atvinnugreinum sem nýta tak- markaðar auðlindir í sameign þjóðar. Þegar gengið var um meðal ráð- stefnugesta og fólk tekið tali var aug- ljóst að skiptari skoðanir hafa verið meðal þeirra sem starfa í atvinnugreininni um þau mál á þeim tíma en fram komu opinberlega. Það skiptir ekki máli nú heldur hitt, að nú hafa slík gjöld fest sig í sessi og lítill ágreiningur um þau sem grundvallaratriði, þótt enn sé deilt um upphæðir og aðferðir við ákvörðun gjaldanna. Það eimir enn eftir af deilum fyrri tíðar en mikilvægt að sættir takist á milli samfélagsins og atvinnugreinarinnar. Það er umhugsunarefni í sjálfu sér, hvers vegna þessar tvær gömlu atvinnugreinar, landbúnaður og sjávar- útvegur, hafa báðar, þótt með ólíkum hætti sé, staðið í hálfgerðum barningi í samskiptum við fólkið í landinu og tími til kominn að þar verði breyting á. Það er líka áleitin spurning hvernig á því stendur að sjávarútveginum hefur ekki tekizt sem skyldi að miðla til þjóðarinnar þeim athyglisverðu breytingum sem orðið hafa á innviðum hans á tiltölulega skömmum tíma. Kannski hefur engin áherzla verið lögð á það? Ef svo er, hvers vegna ekki? Svo má auðvitað velta því fyrir sér, hvort fjölmiðlar hafi verið of uppteknir við að fjalla um ágreiningsefnin sem snúa að sjávarútvegi og landbúnaði og að breytingar og umbætur hafi einfaldlega farið fram hjá þeim og þar með fólkinu í landinu. Kannski eiga stjórnmálamenn hér einhvern hlut að máli líka. Þeir hafi verið of uppteknir við að tala til gam- alla hópa innan sjávarútvegsins til að veita athygli og styðja við það nýja sem er að gerast á þessu sviði. Alla vega er niðurstaðan sú, að það var bæði skemmti- legt og lærdómsríkt að kynnast þeim nýja sjávarútvegi, sem orðinn er til, á umræddri ráðstefnu, sem vekur bjart- sýni um framtíð lands og þjóðar. Og tímabært að „sögulegar sættir“ takist á milli sjávar- útvegs og samfélags. Sjávarútvegurinn er endurnýjuð atvinnugrein Tími kominn á „sögu- legar sættir“ á milli sjáv- arútvegs og samfélags. Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Árið 2006 kom út kennslubók ísögu Íslands og umheimsins, Nýir tímar, ætluð framhalds- skólum. Höfundarnir voru sagn- fræðingarnir Gunnar Karlsson og Sigurður Ragnarsson. Líklega eiga þeir vanmæli (understatement) allra tíma, þegar þeir segja á bls. 227, að Stalín hafi framkvæmt sam- yrkjustefnu sína „í óþökk mikils hluta bænda“. Sannleikurinn er sá, að Stalín knúði bændur til samyrkju með því að svelta til bana sex millj- ónir manns í Úkraínu og Suður- Rússlandi, og fjöldi bænda og skylduliðs þeirra var líka fluttur nauðugur til Síberíu. Þeir Gunnar og Sigurður segja á bls. 267 frá valdaráni kommúnista í Tékkóslóvakíu fyrir sjötíu árum: „Snemma árs 1948 viku fulltrúar samstarfsflokka kommúnista úr ríkisstjórn og kommúnistar mynd- uðu stjórn með nánum samherjum sínum. Þessi umskipti komu illa við marga á Vesturlöndum því að þau þóttu staðfesta að landið væri nú á óskoruðu áhrifasvæði Sovétmanna.“ Þetta er annað vanmælið. Komm- únistar fengu í samsteypustjórn eft- ir stríð í sinn hlut innanríkis- og varnarmálaráðuneytin og með því yfirráð yfir lögreglu og her lands- ins. Hófu þeir miklar hreinsanir í lögreglunni. Þegar þeir neituðu að fara eftir samþykkt meiri hluta rík- isstjórnarinnar um að ráða aftur ýmsa lögregluforingja, sem þeir höfðu rekið, og hótuðu valdbeitingu, sögðu samráðherrar þeirra af sér í febrúar 1948. Vopnaðar sveitir kommúnista lögðu þá í skyndingu undir sig ráðu- neyti hinna fyrrverandi ráðherra og hröktu burt embættismenn, sem þeir töldu sér ekki hliðholla. Komm- únistar mynduðu stjórn og tóku allt vald í sínar hendur, héldu áfram hreinsunum í lögreglu og öðrum op- inberum stofnunum og breyttu Tékkóslóvakíu á nokkrum mánuð- um í einræðisríki. Fjöldi manns flýði land. Í ævisögu Halldórs Kilj- ans Laxness segi ég frá dapurlegum örlögum tveggja tékkneskra Ís- landsvina, Zdeneks Nemeceks og Emils Walters. Sagt er að sigurvegararnir skrifi jafnan söguna. Það á ekki við á Ís- landi. Þótt kalda stríðinu lyki með sigri vestrænna lýðræðisríkja yfir kommúnismanum eru íslenskir kommúnistar látnir skrifa þá sögu sem framhaldsskólanemar læra. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Prag 1948 Góð heyrn glæðir samskipti ReSound LiNX Quattro eru framúrskarandi heyrnartæki Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Erum flutt í Hlíðasmára 19 Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin. Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.