Morgunblaðið - 24.11.2018, Side 37

Morgunblaðið - 24.11.2018, Side 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 ✝ Magnús Bergs-son var fæddur í Ásnesi, Vest- mannaeyjum, 3. október 1942. Hann lést á sjúkra- húsinu í Vest- mannaeyjum 15. nóvember 2018 eft- ir erfið veikindi. Foreldrar hans voru Ragnhildur Magnúsdóttir hús- móðir í Vestmannaeyjum, f. 17. október 1903, d. 7. ágúst 1992 og Jóhann Bergur Loftsson vél- stjóri í Vestmannaeyjum, f. 27. október 1911, d. 25. janúar 1985. Systkini Magnúsar eru Karl, f. 1939 og tvíburasystir hans Þór- ey, f. 1942. Fjölskyldan fluttist síðar að Hjalteyri við Vesturveg 13b, þar sem Magnús ólst upp með systkinum sínum. Síðar byggði hann sér hús við Vesturveg 11b. Hann gekk í skóla í Vestmanna- eyjum og lauk þar gagnfræðaprófi. Hann vann meðal annars í fiski, hjá Símanum í Vest- mannaeyjum og við lagningu vatnsveit- unnar frá Eyjafjöll- um til Vestmanna- eyja. Magnús lauk námi í rafvirkj- un, en starfsvettvangur hans var lengst af hjá Þórarni Sig- urðssyni í Geisla, Vestmanna- eyjum. Magnús var ókvæntur og barnlaus. Útför hans fer fram frá Landakirkju í dag, 24. nóvem- ber 2018, klukkan 14. Það var alltaf gaman að hitta Magga frænda. Við kynntumst honum vel sem börn enda dvöldum við gjarnan nokkrar vikur á sumrin hjá ömmu, afa og Magga í Vestmannaeyjum. Maður var alltaf frekar lítill innan um þennan hávaxna frænda okkar sem naut hádeg- issólarinnar í bakgarðinum á Hjalteyri með svart kaffi í stóru mjólkurglasi, blandað óhóflegu magni af sykri. Við lit- um upp til hans. Hann þekkti öll heimsins skip fannst manni, enda mikill áhugamaður um þau. Maður skyldi heldur aldrei kalla skip bát í hans eyru. Það var snarlega leiðrétt. Það sem einkenndi Magga í okkar aug- um var: Volvo, V-311, Adidas, gallabuxur og bolur, bílskúrs- hurðaopnari, VHS-vídeótæki á undan flestum, örbylgjuofninn sem við sáum fyrst hjá honum, Stöð 2 og myndavélar. Hann var sko með tæknina á hreinu, og smitaði okkur laglega. Bílskúrinn hans þótti okkur mjög merkilegur. Við fengum auðvitað ekki að fara þangað inn nema með honum. Eitt sinn fékk hann okkur yngri systk- inin með sér í smá verkefni, við áttum að losa hann við flösk- urnar sem höfðu safnast fyrir í bílskúrnum. Það var mikið verk og skemmtilegt, við þræddum sjoppurnar, seldum glerin og keyptum nammi. Í minningunni áttum við heilt fjall af nammi eftir daginn. Þó að Maggi væri alltaf til í að hjálpa okkur systkinabörnunum við ýmis uppátæki eins og að veiða lundapysjur gat það eflaust tek- ið á taugarnar t.d. þegar þær sluppu úr kassanum og skitu út um allt í skúrnum eða þegar við vorum sérstaklega dugleg að spila á rafmagnsorgelið hans án þess að kunna á það. Hann hafði húmor fyrir því. Maggi hafði gaman af því að taka myndir. Myndasafnið hans hleypur á þúsundum. Hann tók mikið af landslags- og náttúru- myndum enda mikið náttúru- barn. Hann þekkti Eyjar eins og handarbakið á sér. Hann kunni öll örnefni og kennileiti og var duglegur að sýna okkur þau og segja frá. Ef einhver gat kennt kúrsinn Vestmannaeyjar 101 þá var það Maggi frændi. Kennslustofan hans var bíllinn og hann bauð okkur gjarnan á rúntinn á kvöldin til að skoða eyjuna. Þá þurfti auðvitað að kanna hvaða bátar/skip lægju við bryggju og að taka á móti Herjólfi og jafnvel koma við á flugvellinum. Kennslustundinni lauk svo oft með sjoppustoppi í Tótaturni, þar sem verðlaun voru veitt fyrir glæstan náms- árangur. Ís í brauði, þvílík veisla. Eftir að hann veiktist fylgd- ist hann með í gegnum vini sína. Honum voru færðar myndir og myndbönd af lífinu á Heimaey. Hann var rúmfastur og komst ekki lengur á rúntinn sinn. Okkur þótti mjög vænt um það nú á haustdögum að langþráður draumur hans varð að veruleika og hann komst í bíltúr um eyjuna með aðstoð dyggra vina sinna. Alltaf tók Maggi á móti okk- ur á bryggjunni þegar við kom- um til Eyja og kvaddi okkur þar þegar við fórum. Það verð- ur tómlegt að sjá hann ekki á bryggjunni eins og við erum vön. Í þetta sinn er það okkar að kveðja kæran frænda. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. (Bubbi Morthens) Tómas, Ragnhildur, Bergur og Kristín. Eyjan mín kæra, ég óska hjá þér að eigi ég faðmlögin vís. (Ási í Bæ) Þessar ljóðhendingar ramma inn hugrenningarnar þegar fregnin um andlát Magga frænda okkar í Hjalteyri berst okkur og söknuðurinn er eins og samofin rökkurstundum haustsins. Leiftur löngu liðinna ára leita á hugann og kalla fram endurminningar frá bernsku- og unglingsárunum sem við áttum saman. Lítill hópur frændsystkina sem flétt- uðu saman líf og leiki í faðmi samhentra fjölskyldna systr- anna frá Dyrhólum í Mýrdal. Þó að stundum væri þungt og erfitt í þeirra ranni lifðum við krakkarnir nokkuð áhyggju- lausu lífi og nutum þess sem Eyjarnar okkar höfðu upp á að bjóða. Þegar svo unglingsárum sleppti dró að breytingum á högum og háttum og smám saman fundum við hvert okkar farveg á lífsins göngu. Eyjarnar sem höfðu verið draumaland uppvaxtaráranna urðu áfram vettvangur sumra okkar en önnur viku til annarra ver- stöðva. Maggi frændi var í hópi þeirra sem völdu að eiga sitt skjól og tilveru í heimabyggð og var ef svo mætti segja eig- inlega heitbundinn Eyjum alla tíð, svo rækilega að hann vildi varla dvelja þar sem ekki sæist til þeirra. Hann valdi sér starfs- vettvang, lagði gjörva hönd á margt gegnum tíðina en starf- aði lengstum sem rafvirki og var vandaður og góður fagmað- ur. Í kjölfar gossins í Heimaey kvarnaðist enn úr frændgarði og aðeins hluti sneri aftur. Maggi var þeirra á meðal. Þá breyttist margt, samverustund- ir helst á stórhátíðum og sam- eiginlegum mannfundum. Þá leituðu umræðuefnin gjarnan í þá gömlu góðu daga, fremur en í hringiðu samtímans. Maggi var ávallt frekar fá- skiptinn en gat verið hrókur alls fagnaðar þegar þannig stóð á. Hann gaf lítið fyrir skjall og hrós og gat verið nokkuð afund- inn ef hann fann að ekki fylgdi hugur máli. Hann unni náttúru eyjanna, kunni skil á tilbrigðum hennar og þekkti þar hvern stein og þúfu. Lengi bjó hann með foreldrum sínum í Hjalt- eyri en síðan byggði hann sér reisulegt hús við hlið æsku- heimilisins og þar bjó hann til margra ára. Síðustu árin voru Magga þungbær. Hann varð fyrir al- varlegu áfalli og missti við það mátt og alla starfsorku. Dvaldi æ síðan á Sjúkrahúsi Vest- mannaeyja. Á þeirri vegferð sýndi hann æðruleysi, ávallt bjartsýnn og neitaði að vor- kenna sjálfum sér þótt smám saman drægi til þess er verða vildi. Nú er lífsljós hans slokkn- að, jarðvist lokið og bjarmar af nýjum degi hins eilífa lífs. Minningin merlar í sál og sinni. Komið að kveðjustund og við kveðjum með söknuði og biðj- um algóðan Guð að veita ástvin- um og fjölskyldum þeirra, huggun og styrk á sorgarstund. Blessuð sé minning Magnúsar Bergssonar. Fyrir hönd systkinanna frá Gerði og fjölskyldna, Magnús B. Jónsson. Elsku Maggi. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Minning þín lifir um ókomna tíð. Sendi systkinum og fjöl- skyldum innilegar samúðar- kveðjur. Erna Friðriks. Magnús Bergsson ✝ Jón Einar Val-geirsson fædd- ist 30. júlí 1939. Hann lést á heimili sínu 18. nóvember 2018. Foreldrar hans voru Halldóra Pál- ína Þorláksdóttir, f. 28. sept. 1913, d. 16. jan. 1989, og Val- geir Kristján Svein- björnsson, f. 29. sept. 1906, d. 26. ág. 1976. Systk- ini hans: Sigríður Þ. Valgeirs- dóttir. f. 21. sept. 1932, d. 16. okt. 1984. Guðríður S. Valgeirsdóttir, f. 4.11. 1986, Ómar Ástþór Óm- arsson, f. 9.12. 1988, dóttir Em- ilía Rut, f. 6.12. 2007. Kristján Örn Ómarsson, f. 13.12. 1988. Halldór Kristján Jónsson, f. 12.9. 1969. Eiginkona Alina Kerul, f. 8. jan. 1976. Börn: Erik Daníel, f. 17.8. 2002, Alexander Lúkas, f. 15. sept. 2008. 2) Þórkatla, f. 7.9. 1971. Eiginmaður Vakhtang Gabroshvili, f. 26.9. 1987. Börn Þórkötlu eru Elísabet Karen Magnúsdóttir, f. 26.8. 1991, sam- býlismaður Trausti Jóhannes- son, dóttir þeirra Isabella Una. Stephen Mitchell Magnússon, f. 3.3. 1998. Sambýliskona Ásrún Fanný Hilmarsdóttir, dóttir þeirra er Adríanna Rós. Sigur- laugur Oddur Jónsson, f. 2.8. 1974. Útför Jóns Einars fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag, 24. nóv- ember 2018, klukkan 11. f. 9. maí 1933, d. 28. nóv. 2003. Þor- steinn G. Freydal Valgeirsson, f. 6. apr. 1936, d. 23. apr. 1984. Jósef Valgeirsson, f. 25. okt. 1942. Eftirlifandi eig- inkona er Elísabet Kristjana Matthías- dóttir, f. 30. jan. 1947. Börn þeirra: 1) Jóna Matthildur, f. 4. nóv. 1967, eiginmaður hennar er Sig- urður V. Skarphéðinsson, börn Jónu eru Jón Snævar Ómarsson, Kæri vinur. Hún kom óvænt fréttin um andlát þitt, þótt svo að við vitum að þetta sé fram undan hjá okkur öllum. Margar ánægjustundir vorum við búin að eiga saman og spjalla um heima og geima. Þú varst mér góður vinur og vissir margt sem ég skildi ekki, svo sem um veðrið og spárnar. Þú hafðir einstaka tilfinningu um hvort spárnar gengju eftir eða ekki. Eins elskaðir þú vorið og þeg- ar þú heyrðir lóunnar dirrin-dí, þá brostir þú og fannst ilminn af komandi sumri. Þú opnaðir augu mín fyrir mörgu, sem ég verð af- ar þakklát fyrir alla mína daga. Já, ég mun sakna þess, að geta ekki strokið um kollinn þinn þeg- ar ég kem í morgunkaffið á morgnana og molann sem þú passaðir alltaf að væri til. Góðar voru líka stundirnar sem við áttum saman úti á bekkn- um og hlustuðum á fuglana syngja í trjánum ykkar. Lundin þín var svo létt og þú reyndist mér svo vel í mörgum kringum- stæðum sem voru þónokkuð margar. En nú hefur Drottinn tekið þig heim, (í gullvagni varstu sóttur), þar sem sólin sest aldrei til viðar og allar þrautir horfnar, Perlu- hliðið opið, og nú situr þú í faðmi Frelsarans. Þegar stjarna þín blikkar, þá vitum við, að þú manst eftir öllum sem elska þig og minnast af ævarandi þakklæti fyrir góðar minningar. Elsku vinkona, Elsa. Ég veit að mikill er söknuður þinn og missir. Við vottum ykkur öllum okkar innilegustu samúð á þessum erf- iðu tímamótum. Svava Friðrika og Júlíus Hraunberg. Jón Einar Valgeirsson Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, langamma, systir, mágkona og frænka, SIGRÚN FREDRIKSDÓTTIR, f. 11. júlí 1947, lést í Ålesund 21. nóvember. Útförin fer fram frá Krematoriet þriðjudaginn 4. desember klukkan 10.30. Jens Gunnar Fridrik Ingi Olaug †Sigridur Katrin Julius Heimir Tone Sandra, Kamilla, Caroline, Benedikte, Rebekka, Adéle, Benjamin, Gabrielle, Kevin, Sarah Emilie, Oliver, Sebastian, Torkil, Patrik Øvrige familie Hva du led det ingen visste, Tapper var du til det siste. Alltid kjærlig god og snill, aldri vi deg glemme vil. Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og bróðir, BENEDIKT HARÐARSON, Arahólum 4, Reykjavík, lést fimmtudaginn 8. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Magnús Benediktsson Rakel Ýr Björnsdóttir Baltasar Breki Magnússon Una Harðardóttir Brynjar Harðarson Guðrún Árnadóttir Hörður Harðarson Guðrún Hrund Sigurðardóttir og systkinabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN HJARTARSON, húsgagna- og húsasmíðameistari, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn 16. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Bjarnfríður Jóhannsdóttir Jóhann Jóhannsson Jóna Lúðvíksdóttir Málfríður Jóhannsdóttir Ragnar Snær Karlsson Hjörtur Magni Jóhannsson Ebba Margrét Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ARNÓRS HARALDSSONAR frá Þorvaldsstöðum, Langanesströnd, Víðilundi 24, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Aspar- og Beykihlíðar á Öldrunarheimilinu Hlíð fyrir hlýja og góða umönnun. Júlía Friðriksdóttir Þórunn Björg Arnórsdóttir Almar Björnsson Unnur Helga Arnórsdóttir Eydís Arnórsdóttir Ingimar Tryggvason afa- og langafabörn Davíð útfararstjóri 551 3485 - www.udo.is Óli Pétur útfararstjóri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.