Morgunblaðið - 24.11.2018, Page 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018
www.gilbert.is
VELDU ÚR MEÐ SÁL
101 Afmælisútgáfa
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Sannur vinur er sá sem gengur inn
þegar aðrir ganga út. Láttu hverjum degi
nægja sína þjáningu. Félagslífið tekur kipp
næstu vikurnar.
20. apríl - 20. maí
Naut Gleymdu öllum skyndilausnum í bili.
Breyttur lífsstíll er langhlaup og í því ertu
góð/ur. Skeyttu ekki um kjaftasögur, það er
nóg að þú vitir sannleikann.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert full/ur af orku og veist ekki
alveg hvernig þú átt að vera. Einhver kemur
þér að óvörum. Þú leitar logandi ljósi að
ferðafélaga, hann finnst að lokum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Láttu ekki hugfallast þótt allt virðist
á móti þér þessa dagana. Sinntu vinum þín-
um og gefðu þér tíma til að hlusta á þá.
Sýndu kjark og talaðu út um vandamálin.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Fólk ber virðingu fyrir heilindum og
heiðarleika í dag. Farðu á staði sem þú hefur
lengi ætlað að skoða. Hvers vegna að bíða?
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Fólk veitir þér svo sannarlega eft-
irtekt í dag. Einhver er með óhreint mjöl í
pokahorninu, reyndu að finna út hver það er.
Taktu til óspilltra málanna í bílskúrnum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gleði, rómantík, ánægja og hvers kyns
skemmtanir ráða ríkjum í dag. Leggðu
áherslu á að þér líði sem best og þeim sem í
kringum þig eru.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það þarf ýmislegt að leggja á
sig til þess að halda sambandi við annað fólk
gangandi. Leyfðu rómantíkinni að blómstra í
lífi þínu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft ekki að óttast að leggja
starf þitt undir dóm annarra. Hreinskilni þín
afvopnar alla sem í kringum þig eru. Kvef-
pest gæti gert þér lífið leitt næstu daga.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú verður þú að setjast niður og
skrifa lista yfir þau verkefni sem þú hefur
látið hrúgast upp að undanförnu. Svartsýni
er ekki til í þinni orðabók. Þú ert góð fyr-
irmynd.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er ekki alltaf svo að besta
lausnin sé sú sem liggur í augum uppi. Ein-
hver innri órói gerir vart við sig. Jólastress?
Mundu að það er hægt að kaupa smákökur,
þær þurfa ekki að vera heimabakaðar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert ekki til stórræðanna fyrri part
dags en munt bæta það upp seinnipartinn.
Ástvinir þínir auka bara á styrkleika þinn,
staðfestu og kraft.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Fræknastur í flokknum er.
Fer sér jafnan hægt á reitum.
Á sér konu kæra ver.
Kallast bústólpi í sveitum.
Sigrún Hákonardóttir á þessa
lausn:
Kónginn fremst í flokki tel.
Fetar hægt á taflsborðsreitum.
Drottningu sér velur vel.
Vist er kóngur fjalls í sveitum.
Guðrún Bjarnadóttir svarar:
Sýnd er kóngi ljúfsár lotning.
Hann lætur kónginn einn reit fara,
en frúin hans er frækin drottning.
Fjallkóngshlutverk vill’ún bara.
Helgi Seljan leysir gátuna þann-
ig:
Kóngur í taflinu fremstur fer.
færist þó gjarnan lítt úr stað,
Í sveitinni fjallkóng finnum vér,
en flott er drottningin víst um það.
„Lausnin vill fá að vera svona,“
segir Helgi R. Einarsson:
Þvílík mæða, oft ég er
aumri glóru rændur,
á vappi hér þó virðist mér
vera nokkrir bændur.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Bóndi í glímu bestur er.
Bóndi fer sér hægt á reitum.
Bónda nefnum brúðar ver.
Bóndi er drifkraftur í sveitum.
Þá er limra:
Eyjabændurnir átu
eggin sem mest þeir gátu
og léttir í lundu
að loknu því fundu
svo eyjakonurnar kátu.
Og síðan kemur ný gáta eftir
Guðmund:
Þrumuveður úti er,
eldingarnar leika sér,
einni laust á gluggans gler
og gáta kom í huga mér:
Svefnpurka nú hrýtur hér.
Hreðjamikill þessi ver.
Heiti á bekra annað er.
Einnig leikþraut nefnum vér
Guðmundur Pétursson bók-
bindari orti:
Óðum harðna í ári tók
– enginn þvílíkt mundi –
þá var Satans sveitarbók
sett í skinn af hundi.
Að lokum eftir Guðmund Guðmundsson
bóksala:
Hér er nóg af andans auð
engin þurrð á kvæðum.
Drottinn gefur daglegt brauð,
dögg og skin af hæðum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Mikill er bóndans réttur
Í klípu
„Fyrst skaltu velja textann sem
þú vilt minnka. annars minnkar hún
allt.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„þar sem Þetta var villuboÐ ætla ég
bara aÐ sprauta lítillega á þig.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... eftirvænting!
ÉG VELTI ÞVÍ FYRIR MÉR HVAÐ
LÍSA SÉR VIÐ MIG, GRETTIR …
GÆTI ÞAÐ VERIÐ HRJÚFT EN JAFN-
FRAMT VIÐKVÆMT ÚTLIT MITT?
HÆTTU AÐ BÍTA Í
VÖRINA Á ÞÉR!
ÞVÍ FYRR SEM ÞIÐ OPNIÐ
HLIÐIÐ, ÞVÍ FYRR LOSNIÐ ÞIÐ
VIÐ OKKUR!
BEST AÐ HLÝÐA HONUM … ÉG
NENNI EKKI AÐ MOKA!
Merkin um að styttist í jól eru afýmsum toga. Ljósunum fjölgar
í bænum og jólatónleikar eru aug-
lýstir um allar trissur. Þá spreyta
margir sig á útgáfu jólalaga og kenn-
ir þar ýmissa grasa.
x x x
Víkverji er á því að eitt furðuleg-asta jóladúóið hafi verið þegar
Bing Crosby og David Bowie komu
saman og sungu Peace on Earth og
Little Drummer Boy. Söngurinn er
reyndar bráðfallegur, en spjall
þeirra áður en þeir hefja upp raust
sína með skrítnara móti.
x x x
Plata Bobs Dylans, Christmas inthe Heart eða Jól í hjarta, er líka
frekar kynleg, ekki vegna þess að
hún sé vond, heldur vegna þess að
síst átti maður von á jólaplötu úr
þeirri átt.
x x x
Nú hefur leikarinn William Shat-ner, sem gerði garðinn frægan í
geimþáttunum Star Trek, gefið út
jólaplötu þar sem hann fær tónlistar-
menn úr ýmsum áttum til liðs við sig.
Þar koma fram Rick Wakeman, sem
lék á hljómborð í Yes, og Ian Ander-
son úr Jethro Tull. Víkverja lék þó
mest forvitni á að heyra ólátabelginn
Iggy Pop syngja Heims um ból. Átti
hann von á að flutningurinn myndi
skera í eyru og jafnvel ganga fram af
honum, en það var öðru nær. Pop
syngur lagið af hógværð og virðingu
og var ekki laust við að Víkverji yrði
fyrir vonbrigðum.
x x x
Eric Clapton er einnig kominn íjólaskap. Hann var að gefa út
plötuna Happy Xmas og leikur þar
fjölda jólalaga þar sem hann auk
þess að syngja mundar gítarinn og
laumar blúsnum inn í laglínurnar.
Þar má líka finna Heims um ból og er
tilraunagleðin öllu meiri en hjá Pop
þótt útgáfa Claptons sé mild og
mjúk.
x x x
Það verður því hægt að hlusta ájólalögin mörg hver í nýjum bún-
ingi þegar hafist verður handa við
jólabaksturinn í ár. vikverji@mbl.is
Víkverji
En ég mæni í von til Drottins, bíð eftir
Guði hjálpræðis míns. Guð minn
mun heyra til mín.
(Míka 7.7)