Morgunblaðið - 24.11.2018, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 24.11.2018, Blaðsíða 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 Jóhanna Þór- hallsdóttir mynd- listarkona opnar í dag, laugardag, klukkan 16 sýn- ingu á verkum sínum í Galleríi Göngum, sýning- arrými í safn- aðarheimili Há- teigskirkju. Sýninguna kallar hún „Ég hef augu mín til fjallanna“. Við opnunina taka 3Klassískar og 1Prúðbúinn lagið kl. 17. Jóhanna lauk tveggja ára mynd- listarnámi hjá Markúsi Lüpertz ár- ið 2017 og hóf nám hjá Heribert Ot- tersbach í haust. Einnig stundar hún nám hjá Stephen Lárus Steph- en. Aðrir kennarar hennar hafa m.a. verið Jón Axel Björnsson og Bjarni Sigurbjörnsson. Jóhanna Þórhalls- dóttir sýnir Jóhanna Þórhallsdóttir Útskriftarsýning nemenda list- náms- og hönn- unarbrautar VMA verður opn- uð í Ketilhúsi Listasafnsins á Akureyri í dag, laugardag, klukkan 15. Sýningin í ár er kölluð Taugar og á henni eru verk eftir Berglindi Björk Gísladóttur, Guðbjörgu Helgu Aðalsteinsdóttur, Maríu Lind Oddsdóttur, Söru Líf Huldudóttur, Sesselíu Agnesi Ingvarsdóttur, Sig- þór Veigar Magnússon og Tinnu Rut Árnadóttur. Nemendurnir fá eina önn til að vinna að lokaverkefnunum og gef- ur sýningin góða innsýn í námið við listnáms- og hönnunarbraut VMA. Nemendasýning VMA á Akureyri Verk eftir Guð- björgu Helgu. Jólasýningin Jólaflækja verður aftur tekin til sýninga á Litla sviði Borgarleik- hússins í dag en hún fjallar um Einar sem er allt- af einn, líka á jól- unum. Hann finn- ur alltaf upp á einhverju til að gera einveruna áhugaverða. Sýn- ingin var tilnefnd til Grímuverð- launa með Berg Þór Ingólfsson í að- alhlutverki en hann er einnig höfundur og leikstjóri sýningar- innar. Að þessu sinni hefur Björgvin Franz Gíslason tekið við hlutverk- inu. Þess má geta að báðir koma við sögu í væntanlegri jólasýningu, Matthildi, sem Bergur Þór leikstýrir einnig og Björgvin leikur í. Björgvin Franz leikur í Jólaflækju Björgvin Franz Gíslason Ólafur Davíðsson (1862-1903)er í hópi merkisbera ís-lenskra fræða. Viðamikiðþjóðsagnasafn, útgáfa á riti um galdur og galdramál og hlutdeild hans í Íslenskum gátum, skemmt- unum, vikivökum og þulum halda nafni hans á lofti, að ógleymdum fjör- legum bréfum og hispurslausri dag- bók sem þó spannar einungis örfá ár og með hléum; hann hefur sýnilega verið skemmti- legur maður með býsna beitt skop- skyn. Dagbókin varpar ljósi á líf pilta í lærða skól- anum, bæjarbrag- inn í Reykjavík og slúðrið svo nokkuð sé nefnt og Ólafur lýsir vel þeim við- brigðum sem það voru ungum mönnum að koma til Kaupmannahafnar og lýsir lífi Hafnar- stúdenta með bráðlifandi hætti; frá- sögnin af skógarferð þeirra er kostu- leg! Samskipti pilta við kennara og yfirvöld Lærða skólans eru furðuleg, að ekki sé nú fastar að orði kveðið, og eiga sér ekki hliðstæðu; deilur Jóns Þorkelssonar við Björn M. Ólsen eru makalausar. Orðalag í samræðum nemenda og kennara er ekki til eftir- breytni: „Jón Finnsson bað Sigurð kennara um heimfararleyfi. S. sagði honum að fara til fjandans. Jón fór heim“ (91). Dagbókin fjallar ekkert um veður eins og alsiða var á þessum árum, en bregður birtu á hugmyndalíf ungs manns. Ólafur er greinilega mjög þrosk- aður miðað við aldur og áform hans eru metnaðarfull. Hann liggur í bók- menntum, Brandesarsinni eins og straumur tímans lá þá, skráir hjá sér skrýtlur og sagnir, er ein af drif- fjöðrum Bandamannafélagsins í skól- anum og hann skemmtir sér, sýpur áfengi, rembist við að læra að reykja; borðar súkkulaði og annað „bonum“ (sælgæti). Bréf hans til föður síns eru öllu hófstilltari en dagbókin en þó afar hreinskilin; milli þeirra feðga var kært. Í dagbókinni eru eftirtektarverðar hugleiðingar um ástir, bæði milli karls og konu og milli aðila af sama kyni. Ólafur hrífst af unglingi, Geir Sæ- mundssyni, sem varla var nema 15 ára þegar þeir kynnast, kallar hann unn- ustu sína og þeir kela stundum, lúra saman uppi í rúmi eða ein- hvers staðar í laut, kyssast. En hann talar líka um ást til kvenna og hugsar sér að kvænast. Þetta er sérstakt því tíðarandinn bannaði um- fjöllun um ástamál, samkyn- hneigð var hneyksli í huga þorra fólks, óguðleg uppá- koma. Ólafur er greinilega leitandi en hann er af- brýðisamur þegar Geir lætur blítt að öðrum. Þetta er enda „tíma- mótaverk í íslenskri hinsegin sögu“ segir út- gefandi (11). Hvað sem öðru leið kvæntist Ólafur aldrei. „Jeg dregst, að kvennholdinu, því jeg er sannlega kvennsamur maður, en jeg hrindist þó e-n veginn jafnframt frá því“ (184). Í fyrri útgáfu dagbókarinnar (Finn- ur Sigmundsson 1955) eru öll opinská skrif Ólafs um þessi mál felld niður sem og klúrt orðalag sem á nokkrum stöðum birtist þar sem Ólafur greinir frá því sem hæst ber í umræðu bæjar- búa, slúðrinu, aukinheldur lostugar vísur. Þorsteinn auðkennir þessa kafla í sinni útgáfu. Ekki er ljóst af hverju Finnur hafði uppi þessa ritskoðun, kannski hefur hann talið sig sverta Ólaf með því að birta þessa kafla, en jafnvel er hugsanlegt að hann hafi ein- faldlega talið þá ögrandi fyrir samtíð sína. Altént er útgáfa Finns alls ekki í samræmi við ritstjórnarstefnu skrifar- ans: Ólafur ætlaði dagbók sinni að koma fyrir almenningssjónir. Hann er hreinskilinn. „Jeg get hjartanlega sko- pazt að vinum mínum bæði á brjóst og á bak. Svona er jeg“ (98). Ólafur fer oft í langa göngutúra, nið- ur að sjó að sjá brimið bylta sér eða um bæinn: „Gekk upp að skólavörðu. Það er að þjer stormur að þú þeytir sandi og óþverra upp í augun á okkur. Annars ertu ágætur. Þú sópar deyfð- arrykinu og mannleysisdordinglunum úr hugskotum vorum. Vjer verðum svo hressir og ljettir“ (122). Óneitan- lega kallast þetta á við Storm Hann- esar Hafstein, enda urðu þeir góðir vinir á Hafnarárum. Margar skemmi- legar færslur eru um bæjarbrag. Þeir félagar eru á göngu: „Jeg taldi upp fyrir þeim þær ógiptar stúlkur, er jeg tæki ofan fyrir hjer í bænum. Þær eru milli 10 og 20. Þorsteinn tekur ofan fyrir öllum sæmilega búnum stúlkum, hvort sem þær eru griðkur eða ekki. Hver veit nú annars nema þessar fínu frökenar sjeu verri og spilltari en margar griðkur í raun rjettri“ (149). Orðalag hans er víða sérstakt. Að út- andskota e-m er ekki blíðlega gert (184), að liggja skansanakinn, ber- strípaður (187); einn kunningi Ólafs er „hárugur“ í merkingunni tvöfaldur (190) og mætti víðar bera niður. Þorsteinn skrifar hnitmiðaðan for- mála að útgáfunni og lýsir þar vel bak- sviði bókarinnar og veröld skólapilta og til hægðarauka helstu persónum og leikendum í stuttu máli. Neðanmáls eru góðar skýringar á ýmsum orðum og skammstöfunum og þar birtast nöfn þeirra sem getið er í textanum og fæðingar- og dánarár, þar sem því verður við komið. Auk þess er þar sýnt hvar mislesið var í fyrri útgáfu dag- bókarinnar. Myndir eru vel valdar og lýsa upp textann. Þorsteinn hefur unn- ið mjög gott verk við þessa útgáfu. Bókin er í fremur litlu broti og fallega úr garði gerð af hálfu forlags. Hún er bráðskemmtileg, hressilegur aldar- spegill. Ólafur Davíðsson sneri próflaus heim frá Kaupmannahöfn eftir 15 ára dvöl við sundin. Það voru mikil von- brigði fyrir prófastshjónin á Hofi í Hörgárdal. Hulda Stefánsdóttir segir skemmtilega frá heimkomu hans; að sumu leyti var Ólafur eins og týndi sonurinn þótt elstur væri í röð tólf systkina. Sr. Davíð leiddi hann til stofu og sagði: „„Úr því að þú ert kominn, Óli minn, ættum við þá ekki að fá okk- ur einn gráan?“ En Ólafur svaraði: „Aldrei skyldi það skemma.““ (Minn- ingar 1985, 177.) Ólafur drukknaði í Hörgá 6. sept- ember 1903, einungis 41 árs. Geir Sæ- mundsson söng yfir moldum hans, þá prestur á Akureyri. Minningar Hundakæti – Dagbækur Ólafs Davíðssonar 1881-1884 bbbbn Þorsteinn Vilhjálmsson annaðist útgáfuna. Mál og menning 2018. Innbundin, 224 bls., nafnaskrá, myndaskrá. SÖLVI SVEINSSON BÆKUR Ólafur Davíðs- son Bókin er „hressileg- ur aldarspegill,“ skrifar rýnir. Vottorð um lífskjör Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Samþykki (Stóra sviðið) Fim 29/11 kl. 19:30 8.s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s Fös 7/12 kl. 19:30 10.sýn Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu. Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Mið 26/12 kl. 19:30 Frums Fös 11/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn Fim 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 12/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn Fös 28/12 kl. 19:30 3.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Lau 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Fly Me To The Moon (Kassinn) Lau 1/12 kl. 19:30 21.sýn Fös 7/12 kl. 19:30 20.sýn Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Leitin að jólunum (Leikhúsloft) Lau 24/11 kl. 11:00 315.s Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Sun 16/12 kl. 13:00 335.s Lau 24/11 kl. 13:00 316.s Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 14:30 336.s Lau 24/11 kl. 14:30 317.s Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Lau 22/12 kl. 11:00 337.s Sun 25/11 kl. 11:00 318.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s Lau 22/12 kl. 13:00 338.s Sun 25/11 kl. 12:30 319.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Fös 14/12 kl. 19:00 330.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Lau 15/12 kl. 11:00 331.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Lau 15/12 kl. 13:00 332.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 14:30 333.s Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Sun 16/12 kl. 11:00 334.s Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum. Insomnia (Kassinn) Lau 24/11 kl. 19:30 3.sýn Fim 29/11 kl. 19:30 5.sýn Sun 25/11 kl. 19:30 4.sýn Fös 30/11 kl. 19:30 6.sýn Brandarinn sem aldrei deyr Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 28/11 kl. 20:00 Mið 5/12 kl. 20:00 Mið 12/12 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Elly (Stóra sviðið) Sun 25/11 kl. 20:00 174. s Fim 6/12 kl. 20:00 178. s Sun 30/12 kl. 15:00 aukas. Fim 29/11 kl. 20:00 175. s Fös 7/12 kl. 20:00 179. s Sun 30/12 kl. 20:00 aukas. Lau 1/12 kl. 20:00 176. s Sun 9/12 kl. 20:00 180. s Sun 2/12 kl. 20:00 177. s Fim 13/12 kl. 20:00 181. s Stjarna er fædd. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Fös 30/11 kl. 20:00 22. s Fös 7/12 kl. 20:00 23. s Fös 14/12 kl. 20:00 24. s Gleðileikur um depurð. Kvenfólk (Nýja sviðið) Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Sun 30/12 kl. 20:00 14. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Sun 6/1 kl. 20:00 15. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fim 20/12 kl. 20:00 aukas. Fös 11/1 kl. 20:00 16. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Fös 21/12 kl. 20:00 aukas. Lau 12/1 kl. 20:00 17. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Tvískinnungur (Litla sviðið) Sun 25/11 kl. 20:00 5. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Ást er einvígi. Jólaflækja (Litla sviðið) Lau 24/11 kl. 13:00 1. s Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Lau 15/12 kl. 13:00 7. s Sun 25/11 kl. 13:00 2. s Lau 8/12 kl. 13:00 5. s Sun 16/12 kl. 13:00 8. s Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s Lau 22/12 kl. 13:00 9. s Aðeins sýnt á aðventunni. Rocky Horror (Stóra sviðið) Lau 24/11 kl. 20:00 68. s Lau 8/12 kl. 20:00 70.s Fös 30/11 kl. 20:00 69. s Fös 14/12 kl. 20:00 Lokas. Allra síðustu sýningar! BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.