Morgunblaðið - 24.11.2018, Síða 49

Morgunblaðið - 24.11.2018, Síða 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 ASA FERRO Jólatré Verð frá 1.990,- IITTALA KAASA Kertastjaki 115mm Verð frá 12.700,- KÄHLER NOBILI Kramarhús f/sprittkerti Verð frá 4.190,- Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is Glæsileg jólavara KAY BOJESEN Jólasveinn og sveinka Verð 11.990,- stk. KAY BOJESEN Söngfugl Ravn Verð frá 10.990,- ROSENDAHL Karen Blixen aðventukrans Silfur 11.750,- Gull 14.750,- JUST RIGHT STOFF Kertastjaki Verð frá 5.100,- stk. KÄHLER OMAGGIO Jólakúlur 3 stk. Verð 6390,- HOLMEGAARD Jólaskraut Verð 1.900,- stk. KÄHLER HAMMERSHOI STELLA hangandi Verð 5.590,- ROSENDAHL KAREN BLIXEN jólaóróar Verð frá 2.190,- ICQC 2018-20 Hip hop-sveitin Reykjavíkurdætur er ein tólf hljómsveita og tónlistar- manna sem hljóta munu MMETA- tónlistarverðlaunin á Eurosonic- tónlistarhátíðinni í Groningen í Hollandi í janúar á næsta ári. Verðlaunin hétu áður EBBA og eru á vegum Evrópusambandsins. Þau hlýtur tónlistarfólk sem þykir hafa náð frábærum árangri í því að koma tónlist sinni til annarra landa, þ.e. utan heimalandsins og vera fulltrúar fyrir það besta sem er að gerast í evrópskri samtíma- tónlist. Reykjavíkurdætur munu koma fram á Eurosonic og auk þeirra tónlistarkonurnar Bríet, og Hildur og hljómsveitirnar Kælan Mikla, Hugar, Hatari og Un Mis- ére. Af fyrri verðlaunahöfum má nefna Adele, Damien Rice, Mum- ford & Sons, Ásgeir Trausta og Of Monsters and Men. Verðlaununum fylgir verðlaunafé, 5.000 evrur eða jafnvirði um 700.000 króna, fyrir kostnaði við tónleikaferðir og kynningu á hljómsveitinni. Reykjavíkurdætur hljóta MMETA-verðlaunin Morgunblaðið/Eggert Hressar Reykjavíkurdætur á Iceland Airwaves 7. nóvember síðastliðinn. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ég skrifaði síðast umþessa mektarsveit fyrirtveimur árum og var hún þá farin að vekja verðskuldaða at- hygli fyrir list sína og ýmiss kon- ar virkni á menningarsviðinu (hönnun, safnplötuútgáfa o.fl.). Leiðin hefur, í sem skemmstu máli, legið beint upp á við síðan þá, æ fleiri tónleikaferðalög, um- fjallanir, athygli o.s.frv. Má segja að einum toppi hafi verið náð í sumar, hið minnsta, þegar sveitin lék á tvennum tónleikum í London, annars vegar í Hyde Park og svo á Meltdown-hátíð- inni en um list- ræna stjórn þar sá Robert Smith, forsprakki The Cure og handvaldi hann Kæluna inn á hátíðina (The Cure lék og í Hyde Park og var aðalnúmerið þar, nema hvað). Fyrir hljómsveit sem leggur sig eftir svipuðum hljóðheimi og The Cure, gotneskum drunga og mel- ankólísku skuggaflökti, er einfald- lega ekki hægt að hlotnast meiri heiður. Kælan Mikla hefur vaxið jafnt og þétt í gegnum árin enda slípa þær stöllur steininn frá morgni til kvölds (og fram á nótt) en sveitina skipa þær Sólveig Matthildur, Margrét Rósa og Laufey Soffía. Plötusafnarinn í mér hvíslar nú hátt í eyrað á mér að útkljá all- an hugsanlegan misskilning um útgáfur Kælunnar Miklu til þessa. Árin 2013-2015 komu út prufu- upptökur eða „demó“ og árið 2014 hljóðritaði sveitin plötu, Mána- dans, ásamt Alison MacNeil (Kim- ono) en platan var sett á ís. Fyrsta eiginlega platan kom svo út 2016 en Mánadans leit dagsins ljós í Að næturþeli fyrra – og aftur í ár, en Artoffact Records í Kanada gefur út, sem og plötuna nýju, Nótt eftir nótt. Samnefnda platan (2016) var til muna fókuseraðri en fyrirliggj- andi demó, skuggabylgjan svo- kallaða („darkwave“) kirfilegur grunnur, öll tónlistin hjúpuð drungalegum, gotarokkslegum blæ með sterkri skírskotun til upphafs níunda áratugarins, og á köflum eins og eitt langt tilbrigði við Faith-plötu The Cure. Fínasti frumburður þó að lög væru sann- arlega misspennandi og í ófrum- legra lagi á stundum og eitt og annað sem þarfnaðaðist fínpússn- ingar, nokkuð sem kemur venju- lega með reynslu. Nótt eftir nótt er engan veg- inn stílbrot, það er haldið áfram með sama kúrs en svo gott sem allt hérna er betra, fumlausara og straumlínulagaðra. Lög eru betri, þéttari einhvern veginn, og rúlla áreynslulaust áfram. Hugsað er fyrir flæðinu á milli versa og við- laga og stelpurnar eru vakandi fyrir hvernig hægt er að nýta hljóðáhrif; hvort heldur sem er í inngangi laga eða innan um hljóðfæraganginn. Spilamennskan er líka orðin betri og gripurinn allur hinn stöndugasti. Ég heyri í The Cure, Siouxsie and the Bans- hees, Rammstein, NIN og jafnvel Depeche Mode, og þetta er ein- faldlega meira „fullorðins“ en hef- ur verið. Eðlilega. Ég er svona korter frá því að segja að bandið sé tilbúið fyrir leikvangana! Tökum lag eins og „Draumadís“, hvernig það rennur hnarreist áfram, lyft upp af yndis- legum, gamaldags hljóðgervli, melódískum, Joy Division-legum bassa og ákveðinni en um leið blæbrigðaríkri söngrödd (Laufey hefur vaxið mikið sem söngkona). Dómar, jákvæðir, eru farnir að birtast víða, í nafntoguðum neðan- jarðarmiðlum og sveitin er að verða þokkalegasta stærð í hinni alþjóðlegu skuggabylgjusenu. Þá hefur stórum nöfnum eins og Chelsea Wolfe og Myrkri verið kastað fram í dómum um sveitina. Það verður því spennandi að fylgj- ast með þessari harðduglegu sveit næstu misseri. »Kælan Mikla hefurvaxið jafnt og þétt í gegnum árin enda slípa þær stöllur steininn frá morgni til kvölds (og fram á nótt) en sveitina skipa þær Sólveig Matt- hildur, Margrét Rósa og Laufey Soffía. Platan Nótt eftir nótt er þriðja hljóðversplata hljómsveitarinnar Kælunnar Miklu. Sú síðasta, samnefnd henni, kom út fyrir tveimur árum og er mikið vatn runnið til sjávar síðan. Hulduverur Tríóið Kælan Mikla er nú á mikilli gandreið um tónlistarheima. Íslensk-pólska heimildarmyndin In Touch, eftir Pawel Ziemilski, hlaut dómnefndarverðlaun í aðalkeppni IDFA heimildarmyndahátíðarinnar í Amsterdam 21. nóvember sl. Ár- lega sækja höfundar yfir 3.000 mynda um að fá þær sýndar á hátíð- inni og eingöngu um 80 keppa til al- þjóðlegra verðlauna, skv. tilkynn- ingu. Myndin er fyrsta íslenska heimildarmyndin sem hlýtur verð- laun í aðalkeppni hátíðarinnar og er framleidd af Lukasz Dluglecki og Hauki M. Hrafnsyni fyrir NUR og meðframleiðandi er Anton Máni Svansson fyrir Join Motion Pictures. Fjölmargir Íslendingar komu að gerð hennar. Um umfjöllunarefni myndarinnar segir í tilkynningu: „Þorpið Stare Juchy í Póllandi tvístrast eftir að þriðjungur íbúa þess hverfur til starfa á Íslandi. Þeir sem eftir eru, flestir af eldri kynslóðinni, halda í vonina um að börn þeirra og barna- börn snúi einn daginn til baka þrátt fyrir að hafa hafið nýtt líf hinum megin í Evrópu. Fjarlægðin á milli þeirra er mikil og ferðin er dýr, svo fjölskyldur fá ekki að faðmast eins oft og þær kjósa. Það besta í stöð- unni er að vera í tíðu og áköfu sam- bandi í gegnum Skype. Í In Touch gerir Pawel Ziemilski, leikstjóri myndarinnar, tilraun til þess að færa þessar brotnu fjölskyldur sam- an á ný á sjónrænan hátt með endur- varpi hreyfimynda á bakgrunn sem hefur sérstakt gildi og merkingu fyrir þá sem eiga hlut að máli; á veggi æskuheimilisins, félagsheim- ilisins, úti í náttúrunni, á ástvini.“ Heiður Frá verðlaunaafhendingunni. In Touch hlaut verðlaun á IDFA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.