Morgunblaðið - 27.11.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2018
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
æli- & frystiklefar
í öllum stærðum
K
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Íslenska kokkalandsliðið kom heim í gær frá
Lúxemborg þar sem liðið hlaut gullverðlaun á
heimsmeistaramóti í matreiðslu. Móttaka var
haldin liðinu til heiðurs síðdegis í gær. Til vinstri
er Jóhannes Jóhannesson með syni sínum og til
hægri er Björn Bragi Bragason með syni sínum
en börnin voru að vonum glöð að hitta foreldr-
ana á ný. Fyrir miðju er Eliza Reid, forsetafrú og
verndari liðsins.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kokkalandsliðinu var vel fagnað
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
„Andinn í húsinu er ekki eins og
hann á að vera. Ég get bara ekki
þagað,“ segir Ingibjörg Finnboga-
dóttir, eldri borgari og íbúi í Selja-
hlíð í Reykjavík í samtali við Morg-
unblaðið. Þar eru nú 20 íbúðir af 79
ætlaðar geðveikum eða þeim sem
standa höllum fæti af öðrum ástæð-
um. Í hinum íbúðunum búa eldri
borgarar. Þannig eru samvistum
þessir tveir ólíku hópar, eldri borg-
arar og mun yngra fólk sem þarfn-
ast þjónustu af öðrum ástæðum.
Nú búa um 200 einstaklingar
undir 67 ára aldri á því sem áður
hét hjúkrunarheimili en er nú iðu-
lega kallað einu nafni félagslegar
íbúðir. Þetta er þróun sem gætir
víða um land og margir, eins og
Ingibjörg, lýsa yfir áhyggjum. Af
þessu tilefni standa Samtök fyrir-
tækja í velferðarþjónustu (SFV)
fyrir málþingi í dag, með yfirskrift-
ina „Hvar á ég heima?“ Í viðtali við
mbl.is í gær sagði Pétur Magnús-
son, formaður samtakanna og jafn-
framt forstjóri Hrafnistu, að blásið
væri til málþingsins af brýnni nauð-
syn, enda sögur eins og saga Ingi-
bjargar síður en svo einsdæmi.
Fíklar samvistum við eldri
borgara í þjónustukjarna
Svona var þetta ekki þegar Ingi-
björg flutti þarna inn fyrir 7 árum.
Hún flutti inn í Seljahlíð með manni
sínum, sem nú er látinn. Geðhjúkr-
unarrýmum í kjarnanum hefur
fjölgað mjög síðan og það hefur haft
töluverð áhrif, að sögn Ingibjargar.
„Áður voru þetta bara mestmegnis
eldri borgarar. Nú eru margir að
koma hérna inn sem eru alls ekki
með á nótunum og eru kannski
varla talandi. Þetta er yndislegt
fólk flest, en með þessu er samt
gengið á okkar rétt,“ segir Ingi-
björg.
Ingibjörg segir að nú sé að koma
fólk inn sem sé veikt á geði og sumt
sé fyrrverandi fíklar, „ja, eða nú-
verandi“. Þetta fer að vonum ekki
vel saman við andrúmsloft það sem
búast má við á hjúkrunarheimili.
„Þegar svona sjúklingar koma inn í
okkar samfélag getur það rústað
allri félagsstarfsemi. Við erum gam-
alt fólk og við sitjum mörg allan lið-
langan daginn og prjónum. Hér áð-
ur fyrr vorum við kannski 10-15
saman að því. Nú erum við tvö,“
segir Ingibjörg.
Að sögn fór Ingibjörg fyrir helgi
og lýsti yfir áhyggjum sínum af
þessari þróun við félagsráðgjafa á
velferðarsviði. Hún kveðst hafa
fengið svör á þá leið að þetta væri
ekki bara dvalarheimili fyrir aldr-
aða heldur héti kjarninn og þjón-
ustan í honum nú einu nafni fé-
lagslegar þjónustuíbúðir. Undir það
falla þá bæði aldraðir og geðveikir.
Geðveikum og öryrkjum fjölgar
sífellt á hjúkrunarheimilum
200 einstaklingar undir 67 ára búa á hjúkrunarheimilum „Rústar félagsstarfsemi“ eldri borgara
Morgunblaðið/Hanna
Seljahlíð Félagslíf eldri borgara er
meðal þess sem er sagt raskast við
blöndun þessara hópa.
Ómar Friðriksson
Snorri Másson
Góður gangur er sagður vera á við-
ræðum samninganefnda Samtaka
atvinnulífsins og Starfsgreinasam-
bandsins um endurnýjun kjara-
samninga og stór viðfangsefni nú
þegar komin upp á borðið í kjara-
viðræðunum. Í gær var haldinn
fjórði formlegi samningafundurinn
frá því að viðræður fóru í gang og sá
fimmti er fyrirhugaður í dag. Einnig
munu SA eiga í dag fund með VR.
„Mér finnst þetta ganga vel,“
sagði Halldór Benjamín Þorbergs-
son, framkvæmdastjóri SA, í gær.
Viðsemjendur hafi náð að komast yf-
ir mikið efni og séu farnir að ræða
stærstu viðfangsefnin í væntanlegri
samningagerð, þar með talið vinnu-
tímaskilgreiningar og um styttingu
vinnutíma. ,,Það eru þeir þættir sem
báðar fylkingar hafa lýst yfir að þær
vilji skoða. Þetta er ekki einfalt við-
fangsefni en mér finnst gangurinn
vera góður á þessum fyrstu fund-
um,“ segir Halldór
Alls er gert ráð fyrir þremur
samningafundum SA og SGS í þess-
ari viku en á föstudag bætast svo
iðnaðarmannafélögin við en þá hitt-
ast viðræðunefndir SA og iðnaðar-
manna á fyrsta formlega samninga-
fundinum. Samiðn, Rafiðnaðar-
sambandið, Grafía, Matvís, Félag
hársnyrtinema, Félag málmiðnaðar-
manna á Akureyri og FIT hafa með
sér náið samstarf í kjaraviðræðun-
um og ætla að kynna atvinnurek-
endum kröfugerð sína á fundinum á
föstudag.
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, segir í
samtali við Morgunblaðið ótímabært
að fullyrða nokkuð um gang mála en
að tíminn sé óneitanlega naumur.
„Maður verður samt að leyfa sér að
vera bjartsýnn þar til annað kemur í
ljós,“ segir hann. „Það er gríðarlega
mikil vinna framundan.“
Góður gangur er á kjara-
viðræðum SA og SGS
Stíf fundahöld í þessari viku Ræða styttingu vinnutíma
Varðskipið Þór dró línuskipið Núp
BA-69 af strandstað í Patreksfirði í
gærmorgun. Núpur var svo dreg-
inn í Patreksfjarðarhöfn. Við skoð-
un sem fór fram í höfninni þar kom
á daginn að skemmd hafði orðið á
skrúfu bátsins. Litlar skemmdir
urðu þó á botni skipsins.
Núpur verður að sögn eigenda
brátt dreginn til Hafnarfjarðar til
viðgerðar.
Enginn slasaðist við strandið og
voru aðstæður hinar bestu: logn og
sjólaust. Enn er ekki komið fram
hvað olli strandinu.
Skemmdir á skrúfu
Núps en botninn
lítið skemmdur
Landsréttur staðfesti í gær gæslu-
varðhaldsúrskurð Héraðsdóms
Reykjavíkur yfir karlmanni sem
grunaður er um fjölda innbrota í
bíla af gerðinni Dacia Duster, en
talsverðum verðmætum var stolið
úr bílunum. Er maðurinn grunaður
um innbrot í að minnsta kosti sex
slíka bíla á tímabilinu 12.-20. nóv-
ember en hann var handtekinn eftir
að brotist var inn í Dacia Duster-bíl
sem var undir eftirliti lögreglu.
Í varðhald fyrir inn-
brot í Dacia Duster
Skilgreiningar á hlutverki hjúkr-
unarheimila landsins eru að
breytast. Það er stefna stjórn-
valda að fjölga geðhjúkrunar-
rýmum eins og gert hefur verið í
Seljahlíð og víðar. Pétur Magnús-
son segir dæmi um að fólk yngra
en fertugt rati inn á hjúkrunar-
heimili. Það fólk er oft mjög veikt
á geði eða í neyslu. Þingað verð-
ur um málið í dag á Hótel Reykja-
vík Natura á milli klukkan 13.30
og 15.30.
„Heilar deild-
ir í gíslingu“
MÁLÞING