Morgunblaðið - 27.11.2018, Blaðsíða 23
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2018
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
ses.xd.is
Samtök eldri
sjálfstæðismanna, SES
Hádegisfundur SES
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra
verður gestur á hádegisfundi SES á morgun,
miðvikudaginn 28. nóvember kl. 12:00, í
Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Húsið opnað kl. 11:30.
Boðið verður upp á
súpu gegn vægu gjaldi,
1000 krónur.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður haldið á henni
sjálfri sem hér segir:
Hvammkot, Svfél. Skagafjörður, fnr. 214-1109, þingl. eig. Db. Guðný
Þórðardóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn
3. desember nk. kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
26. nóvember 2018
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Stólajóga kl. 9.30. Göngu-
ferð kl. 10.15. Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun kl. 13. Bíó á miðrými
kl. 13.20. Kaffi kl. 14.30-15.20. Jólahlaðborð Aflagranda er fimmtudag-
inn 6.desember, húsið opnað kl. 19. Skráning í s. 411-2701 / 411-2702
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Botsía með Guðmundi kl. 10. Opið hús, t.d. vist og brids kl. 13-16.
Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leið-
beinanda kl. 12.30-16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 13. MS fræðslu- og
félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45.
Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 535-2700.
Áskirkja Spilum félagsvist í EFRI sal kirkjunnar í dag, þriðjudaginn
27. nóvember. En NEÐRI sal þriðjudaginn11. desember Byrjum að
spila kl. 20. Allir velkomnir. Safnaðarfélag Áskirkju.
Boðinn Botsía kl. 10.30. Fuglatálgun kl. 12.30. Brids og kanasta kl. 13.
Bólstaðarhlíð 43 Yngingar jóga kl. 9-9.50, allir velkomnir. Opin
handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Botsía kl. 10.40-
11.20. Bónusrútan kemur kl. 14.40. Leshópur kl. 13. Lilja Sigurðardóttir
les úr bók sinni SVIK. Opið kaffihús kl. 14.30-15. Qigong kl. 17.30.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl.14.
Fella- og Hólakirkja Við byrjum með kyrrðarstund kl. 12 í kirkjunni.
Eftir stundina er boðið upp á súpu og brauð. Við fáum rithöfundinn
Önnu Rögnu Fossberg Jóhönnudóttur til okkar. Hún les upp úr bók-
inni Auðna en hún er fyrsta bók höfundar og hefur fengið mjög góða
dóma. Hún byggir söguna á raunverulegum atburðum í lífi íslenskrar
fjölskyldu og teiknar upp atburðarás sem er lyginni líkust. Hefðbund-
ið starf að öðru leyti.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Opin handverkstofa kl. 13. Landið
skoðað með nútímatækni kl. 13.50. Kaffiveitingar kl. 14.30. Velkomin!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi kl. 9-10, bútasaumur kl. 9-
12, hópþjálfun með sjúkraþjálfara kl. 10.30-11.15, bókband kl. 13-17,
frjáls spilamennska kl. 13-16, opin handverksstofa kl. 13-16, félagsvist
kl. 13.30-16. Verið velkomin í Samfélagshúsið á Vitatorgi, Lindargötu
59. Síminn er 411-9450.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Qi gong Sjálandi kl. 9.
Karlaleikfimi Ásgarði kl. 12. Botsía Ásgarði kl. 12.45. Gönguhópur fer
frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Bónusrúta fer frá Jóns-
húsi kl. 14.45. Tréskurður / smíði kl. 9 / 13 í Kirkjuhvoli. Línudans í
Kirkjuhvoli kl. 13.30 / 14.30.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik málun kl. 9-
12. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13-16. Línudans kl. 13-14.
Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.30 Qigong kl. 10.30-11.30. Gönguhópur
um hverfið kl. 10.30. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 10 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna, kl.
13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og jafn-
vægisæfingar, kl. 15 dans.
Grensaskirkja Kyrrðarstund kl. 12.
Gullsmári Myndlist kl. 9, botsía kl. 9.30, málm- og sifursmíði,
kanasta / tréskurður kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11, 500 kr. skiptið eða 1305 kr.
mánuðurinn, allir velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl.
12.15. Spjallhópur kl 13, allir velkomnir. Félagsvist kl. 13.15.
Kaffi kl. 14.15.
Hæðargarður Hefjum daginn við hringborðið kl. 8.50, boðið upp á
kaffi. Thai chi kl. 9-10, myndlistarnámskeið hjá Margréti Z. kl. 9-12,
leikfimi kl. 10-10.45, hádegismatur kl. 11.30. Spekingar og spaugarar
kl. 10.30-11.30, Listasmiðja er öllum opin frá kl. 12.30, Kríur myndlist-
arhópur kl. 13, brids kl. 13-16, leiðbeiningar á tölvu kl. 13.10, enska I
kl. 13-14.30, kaffi kl. 14.30, enska ll kl. 15. U3A kl. 17. Uppl. s. 411-2790.
Korpúlfar Listmálun kl. 9 í Borgum og postulínsmálun. Botsía kl. 10
og 16 í Borgum. Helgistund kl. 10.30 í Borgum og leikfimishópur
Korpúlfa í Egilshöll kl. 11 í dag. Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl.
13.30 og heimanámskennsla kl. 16.30 í Borgum. Minnum á félagsfund
Korpúlfa á morgun, miðvikudaginn 28. nóvember kl. 13 í Borgum,
mjög áhugaverð dagskrá og vonumst til að sjá sem flesta.
Neskirkja Krossgötur kl. 13. Elínborg Sturludóttir, prestur í Dómkirkj-
unni: Pílagrímaferðir á Íslandi og víðar. Kaffiveitingar.
Seljakirkja Páll Magnússon, alþingismaður og fyrrverandi frétta-
maður og útvarpsstjóri, segir okkur sögur úr lífi og starfi. Þór Breið-
fjörð flytur okkur tónlistina við undirleik Vignis Stefánssonar. Að
dagskrá lokinni verður gengið til máltíðar sem verður með hátíðlegu
sniði, að hætti Lárusar Loftssonar. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í
síma 567 0110.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í krókn-
um kl. 10.30. Pútt í Risinu kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl.
11.30. Bridge í Eiðismýri 30 kl.13.30. Helgistund, dagskrá og veitingar í
kirkjunni kl. 14. Þórunn Valdimarsdóttir rithöfundur ræðir bók sína
Skúli fógeti - faðir Reykjavíkur. Ath. á morgun miðvikudag verður
gaman saman í Selinu kl. 20. Botsía-leikur. Allir velkomnir.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13. Bóka-
bíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til
sölu frá kl. 14.30–15.00. Allir velkomnir.
Síminn í Selinu er: 568-2586.
Stangarhylur 4, Skák kl. 13, allir velkomnir. Bókmenntir fimmtudag
29. nóvember kl. 14-15.30 mun Bjarni Harðarson halda fyrirlestur um
bók sína „Í skugga Drottins” um efni og baksvið sögunnar, umsjón
Jónína Guðmundsdóttir. Allir velkomnir.
Félagslíf
EDDA 6018112719 I
Félag sjálfstæðismanna
vestur- og miðbæ
Fundur
Sigríður Ásthildur Andersen
dómsmálaráðherra ræðir
stjórnmálaviðhorfið á opnum
fundi Félags sjálfstæðismanna
vestur- og miðbæ þriðjudaginn
27. nóvember kl. 17:00.
Fundurinn verður haldinn á Sólvallagötu 7a.
Allir velkomnir
Stjórnin
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
LOK
Á POTTA
HEITIRPOTTAR.IS
HÖFÐABAKKA 1
SÍMI 777 2000
Bókhald
NP Þjónusta
Býð fram liðveislu við bókanir, reikn-
ingsfærslur o.fl.
Hafið samband í síma 649-6134.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Bátar
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
✝ Sigrún Einars-dóttir fæddist
1. apríl 1929 á
Blönduósi. Hún
andaðist á Hrafn-
istu í Reykjavík 16.
nóvember 2018.
Faðir hennar var
Einar Skúlason
Eymann frá Hofi í
Vatnsdal, f. 1900, d.
1966, og móðir
hennar var María
Guðmundsdóttir frá Ísafjarðar-
sýslu, f. 1905, d. 1992. Samfeðra
bræður Sigrúnar voru Guð-
mundur Jóhann Húnfjörð Ing-
ólfsson, f. 1943, d. 1972, og Rún-
ar Baldur Eyjólfsson, f. 1948, d.
1966.
Sigrún ólst upp hjá fóstur-
fjölskyldu á Torfalæk frá unga
aldri og fram um tvítugt. Þaðan
lá leið hennar til Reykjavíkur
þar sem hún fór í Húsmæðra-
skólann í Reykjavík. Sigrún gift-
ist eiginmanni sínum, Ragnari
Haraldssyni frá Kolfreyjustöð-
um á Fáskrúðsfirði, f. 29. nóv-
ember 1925, húsgagnasmíða-
meistara, 29. desember 1951.
Þau voru gefin saman af föður
Ragnars, Haraldi Jónassyni
presti á Kolfreyjustöðum. Þau
byggðu framtíðarhúsið sitt,
Langagerði 58 í Reykjavík, um
svipað leyti. Árið 1959 eign-
uðust þau soninn Harald Ragn-
arsson, f. 15. nóvember 1959, d.
4. nóvember 2008, sem var
þeirra einkabarn. Börn Har-
aldar eru: 1) Ragn-
ar Haraldsson, f.
1981, dóttir hans er
Lára Rún, f. 2003.
2) Halla Ósk
Haraldsdóttir, f.
1984, eiginmaður
hennar er Jón Stef-
án Scheving, f.
1974. Dætur henn-
ar úr fyrra sam-
bandi eru, Embla
Nótt, f. 2004, Bjart-
ey Gyða, f. 2008, og Arney
Frigg, f. 2009. 3) Sigrún Elín
Haraldsdóttir, f. 1988, sambýlis-
maður hennar er Sveinn Þór
Sveinsson, f. 1981. Saman eiga
þau soninn Kristian Þór, f. 2014,
dóttir hennar úr fyrra sambandi
er Edda Þrá, f. 2006.
Eiginkona Haraldar er Perla
María Hauksdóttir, f. 1972, sam-
an eiga þau dæturnar Hörpu
Lind Haraldsdóttur, f. 1997,
eiginmaður hennar er Sabah
Bardhi, f. 1995, og Berglindi
Haraldsdóttur, f. 2001.
Ferðuðust þau hjónin mikið,
bæði innan- og utanlands. Sig-
rún prjónaði mikið og voru
vörur hennar fáanlegar lengi
vel hjá Handprjónasambandinu.
Sigrún sótti Bústaðakirkju mik-
ið, var í kórnum Glæðurnar, þau
hjónin fóru í viku hverri og tóku
í spil ásamt ýmsu öðru félags-
starfi.
Útför Sigrúnar fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, 27. nóvem-
ber 2018, klukkan 13.
Þó í okkar feðrafold
falli allt sem lifir
enginn getur mokað mold
minningarnar yfir.
(Bjarni Jónsson frá Gröf)
„Rúna mín“ eins og afi Jón
ávarpaði ævinlega Sigrúnu.
Hún var alin upp af ömmu
minni og afa á Torfalæk í A-
Húnavatnssýslu. Yngsta upp-
eldissystir sex sona þeirra
hjóna, Ingibjargar Björnsdótt-
ur og Jóns Guðmundssonar.
Sigrún hefur alla tíð verið
stór þáttur í lífi okkar frænd-
systkinanna. Ofarlega í huga
eru árin á Torfalæk, þar sem
hún og Imma frænka, önnur
uppeldisdóttir ömmu og afa,
þurftu ungar að árum að axla
ábyrgð með afa og þeim bræðr-
um sem heima voru eftir að
amma féll frá árið 1940. Síðan
kom Ásta hans Torfa frænda til
sögunnar og Torfalækur áfram
ættaróðalið. Þær þjóta fram
minningarnar. Söngur, hlátur,
gleði og ekki síst kærleikur.
Langagerðið þeirra Sigrúnar
og Ragnars, sem þeim þótti svo
undurvænt um. Allar góðu
stundirnar þar í gegnum árin.
Bræðrunum frá Torfalæk var
alltaf mjög umhugað um Sig-
rúnu og Ragnar og kærleikur
milli þeirra allra. Þegar ég óx
úr grasi urðum við Sigrún enn
nánari, ekki nema sjö ár voru á
milli okkar. Mér er eiginlega
orða vant, það er svo margs að
minnast og tryggð þeirra,
hennar og Ragnars, ómetanleg.
Minningar okkar frændsyst-
kinanna eru jafn margar og við
erum mörg. Erfið veikindi eru
að baki og eftir standa Ragnar
og barnabörnin, sem áður voru
búin að missa föður sinn, einka-
son Sigrúnar og Ragnars, og
sjá nú á eftir lífsförunaut og
ömmu.
Elsku Ragnar okkar og þið
öll. Við bræðrabörnin frá
Torfalæk höfum nú misst síð-
asta „systkinið“ sem alið var
þar upp. Þökkum fyrir gleðina,
væntumþykjuna, tryggðina og
allt sem við höfum átt saman í
gegnum árin, veit ég tala hér
fyrir hönd okkar allra.
Góða heimferð í Sumarlandið
elsku Sigrún okkar og blessi
ykkur öll elsku Ragnar og
afkomendur.
Blessuð sé minning Sigrúnar
Einarsdóttur.
Ingibjörg Björnsdóttir.
Sigrún
Einarsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs-
ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Minningargreinar