Morgunblaðið - 27.11.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2018
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Íslensk hönnun og framleiðsla
/solohusgogn
Ásgeir Einarsson
hönnuður Sindrastólsins
(1927 – 2001)
SINDRASTÓLLINN
Sindrastóll
185.000,-
Sófaborð
79.700,-
(hægt að fá í nokkrum
viðartegundum).
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
P
ípuorgelið er eins og heil
sinfóníuhljómsveit,“
segir Hrönn Helgadótt-
ir organisti í Guðríðar-
kirkju í Grafarholti í
Reykjavík. „Möguleikarnir sem
þetta hljóðfæri skapar eru miklir og
fyrir mig hafa verið forréttindi að
fylgjast með smíði þess og vera með
í ráðum. Það er líka að koma á dag-
inn að orgelið hæfir þessu húsi vel
vel. Hjómburðurinn hér er góður og
raddir orgelsins fylla kirkjuna.“
Pípurnar eru 1.112
Þessa dagana er verið að leggja
lokahönd á uppsetningu nýs nítján
radda pípuorgels í Guðríðakirkju,
sem verður svo vígt við hátíðlega at-
höfn þann 9. desember næstkom-
andi. Það er annar sunnudagur í að-
ventu og þá er jafnframt tíu ára
vígsluafmæli kirkjunnar. Formlegur
vígsludagur var 7. desember 2008,
en í september það ár var samið við
Björgvin Tómasson orgelsmið á
Stokkseyri um hljóðfæri í kirkjuna.
Hann var aðeins kominn af stað
þegar bankakerfið á Íslandi hrundi
svo allt fór í baklás svo setja þurfti
smíðina á ís. Nokkrum árum síðar
gat Björgvin svo tekið aftur upp
þráðinn; að smíða orgelið með sínu
flókna gangvirki og pípum bæði úr
tré og málmi sem eru 1.112 talsins.
Sjálfur vann hann mikið að smíði
ogelsins í Guðríðarkirkju en aðrir
sem að verkinu komu eru Jóhann
Hallur Jónsson, Guðmundur Gestur
Þórisson, Júlíus Óttar Björgvinsson
og Margrét Erlingsdóttir.
Hefur smíðað 38 orgel
Safnað hefur verið fyrir orgel-
inu með frjálsum framlögum, tón-
leikahaldi og ýmsum öðrum leiðum.
Safnast þegar saman kemur, eins
og máltækið hermir, og allt hafðist
á endunum þótt hægt miðaði um
hríð.
„Mozart sagði að pípuorgelið
væri drottning hljóðfæranna og
hafði sjálfsagt nokkuð til síns máls
þar. Þetta eru stórkostleg hljóðfæri,
en vissulega nokkuð flókin að allri
gerð. Í svona verkefni fara þúsundir
vinnustunda,“ segir Björgvin. Hann
hefur með sínu fólki smíðað 38 orgel
af ýmsum stærðum og gerðum sem
eru í kirkjum vítt og breitt um land.
Tónlistarstarf í Guðríðarkirkju
hefur frá fyrstu tíð verið öflugt. Þar
eru tveir barnakórar og svo kirkju-
kór sem Hrönn Helgadóttir stjórn-
ar, en hún kom til starfa við Grafar-
holtssöfnuð talsvert löngu áður en
kirkjan var reist, en áður var salur í
þjónustublokk aldraðra við Þórðar-
sveig nýttur til helgi- og samkomu-
halds. „Þegar kirkjan var tekin í
gagnið fengum við Estonia-flygil;
frábært hljóðfæri sem er í miklu
uppáhaldi hjá mér. En orgelið nýja
er sem allt önnur veröld. Með því
hægt að kalla fram ótrúlegustu
hljóma og skapa margt skemmti-
legt,“ segir Hrönn Helgadóttir að
síðustu.
Hljóðfæri mikilla möguleika
Orgelið í öllu sínu veldi.
Nú er verið að fínstilla
nýtt orgel í Guðríðar-
kirkju í Grafarholti, sem
er vinsæl til tónleika-
halds. Hljóðfærið hæfir
húsinu vel og raddirnar
fylla hvert rými þess.
Tónlistarfólk Björgvin Tómasson orgelsmiður og Hrönn Helgadóttir organist við altari Guðríðarkirkju með orgelið
í baksýn. Það verður vígt við hátíðlega athöfn á öðrum sunnudegi í aðventu, sem er eftir tæpar tvær vikur.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hljóðfærið Kirkjan ómar öll, er sungið í sálmi eftir Stefán frá Hvítadal.
Kirkjan við hitaveitutankana í
Grafarholti er í kassalaga stíl;
hagnýt bygging og stílhrein. Í
kirkjuskipinu sjálfu eru sæti fyrir
um 170 manns en með því að
opna fellihurðir inn í safn-
aðarsali tekur kirkjan allt að 270
gesti. Allar innréttingar í kirkj-
unni eru íslensk hönnun og
smíði. Helstu innanstokksmunir
eru úr beyki sem gefur kirkjunni
hlýjan og léttan blæ. Íslenskt
stuðlaberg er í altarisgarði,
gólfi, skírnarfonti og predik-
unarstól.
Guðríðarkirkja var hún látin
heita í höfuðið á Guðríði Þor-
bjarnardóttur landkönnuði og
pílagrím 11. aldarinnar. Er þetta
eina guðshús íslensku þjóðkirkj-
unnar sem heitir eftir konu. Nöfn
margra vistarvera í kirkjunni eru
sömuleiðis sótt í sögu Guðríðar,
en hugmyndin að því kom frá sr.
Sigríði Guðmarsdóttur sem var
sóknarprestur í Grafarholti
fyrstu ár safnaðarins. Núverandi
prestur er Karl V. Matthíasson.
Eina kirkjan
nefnd eftir konu
KASSI VIÐ TANKANA
Grafarholt Konan hét Guðríður.
Eins og löng hefð er fyrir á aðvent-
unni lesa rithöfundar upp úr sínum
nýju bókum nú á Gljúfrasteini – húsi
skáldsins í Mosfellsdal. Upplestrarnir
eru sunnudögum og hefjast stundvís-
lega klukkan 16:00. Aðgangur er
ókeypis. Næsta sunnudag, 2. desem-
ber, verða á Gljúfrasteini höfundarnir
Þórdís Gísladóttir sem les úr bókinni
Horfið ekki í ljósið, Sigga Dögg er
með bókina Sigga Dögg KynVera, Ein-
ar Kárason kynnir Stormfugla og
Arnar Már Arngrímsson Sölvasögu
Daníelssonar.
Aðventa á Gljúfrasteini
Fjögur lesa
Gljúfrasteinn Menningarstaður.
Í verslun Norræna hússins hefur ver-
ið sett upp jólaverkstæði þar sem
jólasveinar geta keypt plastlaust dót
í skóinn fram til 20. desember. Þann
2. desember verður landsmönnum
svo boðið á glæsilegan vistvænan
jólamarkað þar sem hægt verður að
kaupa umhverfisvænar vörur fyrir jól-
in og í jólapakkann. Bryddað verður
upp á ýmsu áhugaverðu þessu sam-
hliða.
Þann 7. desember kemur í hús
samíski meistarakokkurinn Maret
Ravdna Buljo sem heldur námskeið í
matreiðslu á hreindýrakjöti og sýnir
okkur hvernig hægt er að nýta allt af
dýrinu svo engin sóun verði. Næsta
dag verður svo námskeið þar sem
Málfríður Finnbogadóttir kennir m.a.
hvernig hægt er að breyta gamalli
bók í fallegt jólaskraut.
Norræna húsið
Vistvæn jól
Norrænt Vinsæll staður í Vatnsmýri.
Í tilefni af fullveldisdeginum 1. des-
ember efna Karlakórinn Fóstbræður
og Gamlir Fóstbræður til hádegistón-
leika í anddyri Hörpu, Hörpuhorni.
Á efnisskrá verða íslensk lög sem
hæfa tilefninu og hafa fylgt aldar-
gömlum kórnum í gegnum tíðina. Á
tónleikunum munu Gamlir Fóst-
bræður flytja lögin Yfir voru ættar-
landi, Skarphéðinn í brennunni og
Fyrstu vordægur. Karlakórinn Fóst-
bræður flytur síðan lögin Ísland ögr-
um skorið, Ár vas alda, Kirkjuhvoll,
Þótt þú langförull legðir, Sefur sól
hjá Ægi, Tíminn líður, Heyr himna
smiður og Á Sprengisandi. Í lokin
flytja kórarnir saman þjóðsöng ís-
lendinga „Ó Guð vors lands.
Harpan 1. desember
Fóstbræðralög