Morgunblaðið - 27.11.2018, Qupperneq 15
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Orkuveitan Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ON, Helga Jóns-
dóttir, forstjóri OR, og Brynhildur Davíðsdóttir, stjórnarformaður OR.
Uppsagnarfrestur þeirra Áslaugar
Thelmu Einarsdóttur og Bjarna Más
Júlíussonar, fyrrverandi starfs-
manna Orku náttúrunnar, verður
lengdur um tvo mánuði. Þetta var
ákveðið á fundi stjórnar fyrirtækis-
ins á föstudaginn. Þá var einnig
ákveðið að ekkert yrði aðhafst frekar
vegna bréfs sem Einar Bárðarson,
eiginmaður Áslaugar, sendi til Orku-
veitunnar vegna málsins.
Berglind Rán Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Orku náttúrunnar,
sagði í samtali við mbl.is í gær að
stjórn fyrirtækisins hefði talið sann-
gjarnt að lengja uppsagnarfrest
bæði Bjarna og Áslaugar í ljósi að-
stæðna. Miðað hefði verið við þann
tíma sem tók innri endurskoðun
Reykjavíkur að vinna skýrslu um
vinnustaðarmenningu og starfs-
mannamál fyrirtækisins.
Segir hún að uppsagnartími sé alla
jafna hugsaður sem sá tími sem fólk
hafi til að finna sér annað starf og að
meðan þessi vinna innri endurskoð-
unar hafi staðið yfir hafi verið ákveð-
inn óvissutími.
Spurð um hvort fyrirtækið ætli að
aðhafast eitthvað vegna bréfs sem
Einar sendi stjórnendum samstæð-
unnar segir Berglind að ekkert verði
gert. Í lok bréfsins segir Einar að
hægt sé að „klára málið okkar á
milli“ eða fleirum verði blandað í
málið og fer hann fram á svar innan
ákveðinna tímamarka. Berglind seg-
ir að stjórnin hafi ekki talið það
þjóna hagsmunum fyrirtækisins eða
öðrum að taka þetta mál lengra.
„Hann sendi þetta bréf í geðs-
hræringu eins og hann hefur sjálfur
sagt. Við virðum það.“
Eftir að niðurstaða innri endur-
skoðunar var kynnt var Berglindi og
Helgu falið að koma með tillögur að
úrbótum bæði hjá Orku náttúrunnar
og OR. Berglind segir þá vinnu vera í
gangi og hafi hún byrjað í síðustu
viku.
Lengja uppsagnar-
frest um tvo mánuði
Ákvörðun stjórnar ON opinberuð
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2018
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
alnabaer.is
Úrval af gluggatjaldaefnum, þykk, þunn,
blúndur, kappar og allt þar á milli.
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
GLUGGATJÖLD
Hvar á ég heima?
Málþing á Icelandair hótel Reykjavík Natura, Þingsal 2,
þriðjudaginn 27. nóvember kl. 13.30-15.30
Setning málþings
Pétur Magnússon, formaður Samtaka fyrirtækja í
velferðarþjónustu og forstjóri Hrafnistuheimilanna
Öldrunarheimili fyrir alla?
Björn Bjarki Þorsteinsson, varaformaður
Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu
og framkvæmdastjóri Brákarhlíðar
Allskonar fólk
Hrönn Ljótsdóttir, forstöðumaður
Hrafnistu í Garðabæ
Heimilið mitt og samfélagið þar
Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Öldrunarheimila Akureyrar
Einstaklingurinn í fyrirrúmi
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður
Öryrkjabandalags Íslands
Að fá örugga þjónustu – sýn sveitarfélags
Berglind Magnúsdóttir, skrifstofustjóri á
velferðarsviði Reykjavíkurborgar
Dagskrá:
13.30 – 13.40
13.40 – 13.55
13.55 – 14.10
14.10 – 14.25
14.25 – 14.45
14.45 – 15.05
Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.
Að framsögum loknum verða pallborðsumræður.
Fundarstjóri: Ellert B. Schram, fyrrv.
alþingismaður og formaður Félags
eldri borgara í Reykjavík og nágrenni.
Ellert B. Schram
Pétur Magnússon Björn Bjarki
Þorsteinsson
Hrönn Ljótsdóttir
Halldór
Guðmundsson
Þuríður Harpa
Sigurðardóttir
Berglind
Magnúsdóttir
Er það rétt stefna að ungt fólk flytji inn á hjúkrunarheimili fyrir aldraða og búi þar
áratugum saman? Eiga allir að geta búið á hjúkrunarheimilum óháð þjónustuþörf
og sjúkdómsástandi og hver eru þolmörk aldraðra íbúa þeirra?
Í umfjöllun í Morgunblaðinu um
nýja náttúruminjasýningu í Perlunni
var líkan af vatnsketti sagt í mynda-
texta vera mun stærra en það er í
raun. Hið rétta er að um er að ræða
tuttugufalda stækkun á dýrinu og
lengd líkansins er fjórir metrar.
Beðist er velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT
Vatnskötturinn
í Perlunni
Karlmaður á þrítugsaldri hefur
verið ákærður af embætti héraðs-
saksóknara fyrir að bíta lögreglu-
mann og að hóta að beita lögreglu-
konu kynferðislegu ofbeldi.
Maðurinn var handtekinn í Vest-
mannaeyjum í febrúar sl. Beit hann
lögreglumann meðan á handtök-
unni stóð og fékk lögreglumaður-
inn bitfar á handarbak.
Við komu á lögreglustöðina í
Vestmannaeyjum hótaði maðurinn
lögreglumanninum, sem hann hafði
bitið, og einnig lögreglukonu sem
var við störf. Í ákæru málsins kem-
ur fram að hann hafi hótað þeim
báðum lífláti og þá hafi hann hótað
konunni því að beita hana kynferð-
islegu ofbeldi og að „hún yrði
hvergi óhult,“ eins og það er orðað í
ákærunni.
Farið er fram á að maðurinn
verði dæmdur til refsingar og
greiðslu alls sakarkostnaðar.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vestmannaeyjar Til átaka kom við
lögreglumenn fyrr á þessu ári.
Hótaði lögreglu-
mönnum lífláti