Morgunblaðið - 27.11.2018, Qupperneq 22
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og
tengdamóðir,
HLÍF GUÐJÓNSDÓTTIR,
Lýsubergi 13,
Þorlákshöfn,
andaðist miðvikudaginn 21. nóvember.
Útför fer fram frá Kotstrandarkirkju, Ölfusi,
þriðjudaginn 4. desember klukkan 14.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Líknarfélagið Alfa.
Tómas B. Guðmundsson
Pálína I. Tómasdóttir Sigurjón Bergsson
Sigríður Tómasdóttir Árni I. Sigvaldason
Víðir Tómasson Elísabet Guðmundsdóttir
Guðmundur S. Tómasson Sigríður Ósk Zoega Sigurðard.
Ragnheiður Tómasdóttir Brynjólfur Magnússon
J. Brynja Tómasdóttir Helgi Helgason
og fjölskyldur
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2018
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Innilegustu þakkir færum við öllum sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug
vegna fráfalls ástkærrar eiginkonu, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÍÐAR LILLÝJAR
GUÐBJÖRNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
deildar 11 G á Landspítalanum við Hringbraut fyrir
aðdáunarverða umhyggju og hlýhug.
Gunnar Þór Þórhallsson
Margrét Gunnarsdóttir
Vilborg Gunnarsdóttir
Þórhallur Gunnarsson Brynja Nordquist
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri faðir, afi, bróðir og mágur,
SIGBJÖRN JÓNSSON
byggingarverkfræðingur,
lést 1. nóvember. Útför hans verður gerð
frá Neskirkju við Hagatorg föstudaginn 30.
nóvember klukkan 15.
Arna Sigbjörnsdóttir Jacob Magnell
Kasper Magnell Örnuson
Jón Sigbjörnsson
Anna Vigdís Jónsdóttir Jörundur Guðmundsson
Sigurlaug Jónsdóttir
Sverrir Jónsson Danfríður Kristjónsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
SIGRÍÐUR NÚMADÓTTIR,
Miðgarði,
lést á krabbameinsdeild LSH föstudaginn
23. nóvember. Útför hennar fer fram
laugardaginn 1. desember klukkan 12 frá
Reykholtskirkju. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki LSH,
deild 11E, sem annaðist hana af alúð.
Guðrún Arnardóttir Sigurður Kr. Sigurðsson
Þórdís Arnardóttir Sigurþór Kristjánsson
Einar Örn Arnarson Dagmar M. Harðardóttir
Sigríður Arnardóttir Davíð Sigurðsson
og barnabörn
Ástkær pabbi minn, tengdapabbi og afi,
BENEDIKT GUNNARSSON,
listmálari og fyrrum dósent
í myndlist við KHÍ,
Kastalagerði 13, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans
fimmtudaginn 22. nóvember.
Útför hans fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 4. desember
klukkan 15.
Valgerður Benediktsdóttir Grímur Björnsson
Gunnar Grímsson
Sóley Grímsdóttir
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi
og bróðir,
BENEDIKT HARÐARSON,
Arahólum 4,
Reykjavík,
lést fimmtudaginn 8. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Magnús Benediktsson Rakel Ýr Björnsdóttir
Baltasar Breki Magnússon
Una Harðardóttir Pétur Hansson
Brynjar Harðarson Guðrún Árnadóttir
Hörður Harðarson Guðrún Hrund Sigurðardóttir
og systkinabörn
Ástkær móðir og tengdamóðir okkar,
ELLEN LÍSBET PÁLSSON,
Mosateigi 7,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð laugardaginn 24.
nóvember 2018.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 30. nóvember klukkan 10.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Sjúkrahússins á
Akureyri.
Sigríður Sverrisdóttir Brandur Búi Hermannsson
Lárus Sverrisson
Inga Björg Sverrisdóttir Torfi Ólafur Sverrisson
Páll Sverrisson Guðbjörg Ingimundardóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
MARGRÉT ÁGÚSTA
HALLGRÍMSDÓTTIR
íþróttakennari,
Suðurhlíð 38b, Reykjavík,
lést laugardaginn 24. nóvember á hjúkrunarheimilinu Boðaþingi.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju mánudaginn 3. desember
klukkan 13.
Ríkharður Sverrisson Kristín Anna Ingólfsdóttir
Árni Árnason Lára Sigríður Jónsdóttir
Andrés Björgvinsson
Ingveldur Björgvinsdóttir Eyþór Eggertsson
barnabörn og barnabarnabörn
Nú þegar ég kveð
elskulega vinkonu
mína í hinsta sinn
verð ég að viðurkenna að það er
erfitt. Ég hugsa til baka um ævi
mína og vináttuna við Lillý.
Við Lillý mín kynntumst fyrir
meira en 40 árum. Við hittumst
upphaflega sem listamenn og hún
varð fljótt ein af bestu vinkonum
mínum, lífsglöð, gefandi, hvetj-
andi og alltaf tilbúin að rétta
hjálparhönd. Fljótlega eftir að við
kynntumst kom hún heim til mín
til að hjálpa til við fermingu dótt-
ur minnar þar sem allt var nýtt
fyrir mér því ég þekkti ekki þessa
trúarlegu athöfn og veisluhöld.
Það vissi hún þótt ég þekkti
hana ekki mikið þá. Þannig stóð
hún svo oft við hlið mér í erfiðri
lífsbaráttu hér á Íslandi.
Lillý var hugrökk. „Rætur far-
sældar liggja í hugrekki,“ segir
Ennius – hún var það. Hún var
leikkona, ljóðskáld og kennari.
Hún kenndi líka ekki í neinum
venjulegum skóla – umönnun
andlegra veikra barna við Dal-
Guðríður Lillý
Guðbjörnsdóttir
✝ Guðríður LillýGuðbjörns-
dóttir fæddist 25.
febrúar 1940. Hún
lést 14. nóvember
2018.
Útför Guðríðar
Lillýjar fór fram
22. nóvember 2018.
braut þar sem við
unnum samtímis um
tíma. Í slíkri
kennslu reynir á
hugrekki og andleg-
an styrk. Oft lágu
leiðir okkar saman.
Lillý eignaðist
stóra, fallega og
duglega fjölskyldu:
góðan mann, Gunn-
ar, dugleg börn,
Margréti, Vilborgu
og Þórhall, og yndisleg barna- og
langömmubörn.
Ég og börnin mín sendum fjöl-
skyldunni okkar innilegustu
samúðarkveðjur með þakklæti
fyrir að hafa fengið að kynnast
þeim gegnum trausta vinátta
okkar Lillýjar. Við gleymum
aldrei brosandi faðmlagi og
væntumþykju hennar í okkar
garð.
Ég vil enda þessa kveðju með
erindi úr einu af ljóðum hennar,
„Ferðalok“:
jörðin grætur
nóttin tekur í fang sér
lítinn kuðung
sem eitt sinn lagði upp í ferð
með brimhljóð í hjartastað
en hafaldan skolaði aftur
að sömu strönd.
Guð geymi hana og varðveiti
minninguna.
Kjuregej Alexandra
og börnin.
✝ ValgerðurHöskuldsdóttir
fæddist í Reykjavík
5. maí 1935. Hún
lést á Landspítal-
anum í Fossvogi eft-
ir stutt veikindi 27.
september 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Höskuldur
Baldvinsson raf-
magnsverkfræð-
ingur, f. 1895, d.
1982, og Þórdís Björnsdóttir hús-
móðir, f. 1906, d. 1971. Systkini
Valgerðar voru Gunnar, f. 1929,
d. 1972, Björn, f. 1933, d. 2011,
Bjarni, f. 1940, d. 1941, Hrafn-
hildur, f. 1942, d. 2012.
Örn, f. 1942, er eina eftirlif-
andi systkinið.
Valgerður ólst upp í Reykja-
vík, á Bergstaðastræti 72, ásamt
fjölskyldu sinni og móðurfor-
Viktor, f. 2.8. 2007, og þau eru
búsett í Frakklandi.
Valgerður og Úlfar settust að í
Kópavogi þar sem Úlfar var með
tannlæknastofu. Árið 1971 fór
Valgerður í nám við Háskóla Ís-
lands og lærði þar bókasafns-
fræði og sálfræði.
Hún fór síðan að vinna sem
bókavörður á bókasafni Mennta-
skólans við Hamrahlíð og varð
þar svo forstöðumaður þar til
hún hætti störfum 2001. Hún átti
mörg áhugamál, og fór í fleiri
greinar í HÍ meðan hún vann í
MH, meðal annars þjóðfræði.
Hún hafði sérstaklega mikinn
áhuga á sagnfræði og tónlist.
Þegar hún fór að vinna í MH
fluttu þau hjón til Reykjavíkur í
Þingholtin á æskuslóðir Val-
gerðar og þau bjuggu frá 1981 á
Eiríksgötu.
Hún og Úlfar ferðuðust víða,
fóru til margra Evrópulanda, t.d.
Ítalíu og Rússlands, og fóru oft til
Parísar og fleiri staða í Frakk-
landi þar sem tvær af dætrum
þeirra hafa verið búsettar.
Útför hennar fór fram í kyrr-
þey.
eldrar hennar
bjuggu í kjallar-
anum.
Hún gekk í Mið-
bæjarskólann og fór
svo í Menntaskólann
í Reykjavík og lauk
stúdentsprófi þaðan
1954. Eftir það vann
hún hjá innflutn-
ingsfyrirtækinu Ell-
ingsen. Árið 1959
giftist hún eftir-
lifandi eiginmanni sínum, Úlfari
Helgasyni tannlækni, f. 2.4. 1930.
Þau eignuðust þrjár dætur sem
eru: Sigrún, f. 7.10. 1959, hún á
soninn Atla Vassili Roman, f.
5.11. 2000, Þórdís, f. 27.4. 1961,
maki hennar er Ragnar Hafstað
og þau eiga soninn Völund, f. 6.
11. 1994, og Bergþóra, f. 16.12.
1967, maki hennar er Christian
Bourdel, f. 1968, þau eiga soninn
Fyrstu kynni mín af Valgerði
voru þegar ég kom til Reykjavík-
ur, nýtrúlofuð Erni bróður henn-
ar. Hún bjó þá á æskuheimili sínu
ásamt eiginmanni og tveimur
dætrum. Þau höfðu hreiðrað um
sig á efri hæð í húsinu á Berg-
staðastrætinu. Húsi sem var svo
lítið að utan en ótrúlega stórt að
innan. Þá var hús þeirra í Kópa-
vogi í byggingu og þangað fluttu
þau á tilsettum tíma og þriðja
dóttirin bættist við fjölskylduna.
Það er ótrúlegt að liðin séu 56
ár síðan hún tók mig í sinn mjúka
og hlýja faðm og bauð mig vel-
komna í fjölskylduna.Við urðum
strax vinkonur og bar þar aldrei
skugga á.
Valgerður hafði allt til að bera
sem prýða má eina konu. Hún var
falleg, glaðlynd, hjálpsöm, greind
og réttlát. Og hún var femínisti.
Þegar hún hafði komið dætrun-
um á legg fór hún í Háskólann og
lærði bókasafnsfræði. Vann hún
lengstan hluta starfsævinnar á
bókasafni Menntaskólans í
Hamrahlíð.
Þar undi hún sér vel innan um
bækur og ungt fólk. Hún las
mikið. Hafði gaman af mann-
kynssögu og ekki síður söguleg-
um skáldskap sem fjallaði um
miðaldirnar og ekki sakaði ef
söguhetjurnar voru konur.
Hún hlustaði mikið á tónlist og
átti mikið safn diska. Efst í bunk-
anum var Skálmöld sem sýnir að
hún var alæta á tónlist. Valgerð-
ur sat löngum stundum heima við
handavinnu. Fór hún á Þjóð-
minjasafnið og tók upp gömul
mynstur og fékk hugmyndir,
saumaði eftir þeim veggteppi,
myndir og dúka af mikilli kúnst.
Mörg verk sem eftir hana liggja
eru helgimyndir en mest dálæti
hafði hún á Maríu mey.
Henni tókst meira að segja að
koma mér á sporið.
Allt lék í höndum hennar og
hafði hún næmt auga fyrir sam-
setningu lita sem nýttist vel við
útsauminn.
Æskuslóðirnar seiddu og þar
kom að hún flutti í gamla hverfið
sitt og settist að á Eiríksgötunni.
Það hús er stórt bæði að utan og
innan. Úlfar eiginmaður hennar
setti upp tannlæknastofuna á
neðri hæðinni og þar fengu
heimasæturnar þrjár sitt aðsetur
áður en þær hleyptu heimdrag-
anum en foreldrar þeirra bjuggu
á efri hæðinni.
Skyndilega og öllum að óvör-
um var mágkona mín burt kölluð
úr þessum heimi. Eftir situr
sorgmædd fjölskylda. Það er
mikill harmur að missa eiginkonu
sína og móður. Elsku Úlfar, Sig-
rún, Dísa, Begga og fjölskyldur.
Missir ykkar er mikill og ég syrgi
með ykkur. Örn er nú einn eftir
af systkinahópnum og sér nú á
eftir stóru systur sinni sem gætti
hans og sá til þess að hann færi
sér ekki að voða sem lítill
drengur.
Guð blessi minningu Valgerð-
ar mágkonu minnar og bestu vin-
konu.
Margrét Guðmundsdóttir.
Valgerður
Höskuldsdóttir