Morgunblaðið - 27.11.2018, Síða 26
Rúnar Már Þorsteinsson, prófessor í nýjatestamentisfræðum viðguðfræðideild Háskóla Íslands, fagnar 50 ára afmæli sínu ídag. Hann varð prófessor við háskólann árið 2015 en byrjaði
að vinna þar 2013. Þar áður vann hann við guðfræðideild Kaup-
mannarhafnarháskóla og við Lundarháskóla í Svíþjóð.
Ég kenni ýmis fög í háskólanum, til dæmis ritskýringu en þá er ver-
ið að skýra ýmis rit í Nýja testamentinu og ég kenni einnig sögu frum-
kristni og grísku Nýja testamentisins.“
Helsta áhugamál Rúnars er tónlist. Hann spilar á trommur og er í
bílskúrshljómsveit. „Við erum eitthvað að leika okkur saman við að
spila Deep Purple og fleira en við höfum aldrei spilað opinberlega
saman. Ég hlusta á allavega tónlist, en þungarokk er í miklu uppá-
haldi og Iron Maiden er líklega uppáhaldshljómsveitin mín. Svo hef
ég verið að stunda kajakróður með frúnni, byrjuðum á því síðasta
vor.“
Rúnar ætlar ekki að gera neitt sérstakt í dag í tilefni stórafmælis-
ins. „Ég eyði seinnipartinum í faðmi fjölskyldunnar, en seinna ætlum
við að taka okkur smá frí og förum til Balí.“
Eiginkona Rúnars er Sigurbjörg Rutardóttir, doktor í lífefnafræði
og vinnur hjá Alvotech, og börn þeirra eru Sigrún Rut, sem er búsett í
Ástralíu, og Dagur Hrafn, kokkanemi á Hótel Sögu.
Í Colosseum Rúnar staddur í Róm á ferðalagi með fjölskyldunni 2015.
Nýjatestamentis-
fræðingur og rokkari
Rúnar Már Þorsteinsson er fimmtugur í dag
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2018
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
MEATER +
ÞRÁÐLAUS KJÖTHITAMÆLIR
Stórsniðugur þráðlaus hitamælir sem vinnur með WiFi og Bluetooth.
Fylgst er með hitastigi og stillingum í appi í snjallsíma, tölvu eða spjaldtölvu.
VERÐ: 19.995KR
K
ristjana María Sig-
mundsdóttir fæddist í
Hveragerði 27.11.
1948 og ólst upp í
skjóli góðra foreldra í
Hveragerði og í Reykjakoti sem
liggur í dalnum ofan við Hveragerði.
Hún gekk í barna- og unglingaskóla
í Hveragerði.
Kristjana vann síðan við versl-
unarstörf um árabil og sá um börn
og bú: „Það var ekki fyrr en börnin
stálpuðust að ég ákvað að fara í nám,
lauk stúdentsprófi frá öldungadeild
FSU 1985, starfsréttindum í félags-
ráðgjöf frá HÍ 1990, var í meistara-
námi við Socialhögskolan í Stokk-
hólmi 1996-98 og lauk því námi síðan
við HÍ.“
Kristjana hefur sem félagsráð-
gjafi unnið m.a í félagsþjónustu
sveitarfélaga, í útskriftarteymi LSH
og í skólakerfinu. Á árunum 2011-
2018 var hún starfsmaður Velferðar-
ráðuneytisins sem réttindagæslu-
maður fatlaðra á Suðurlandi og í
Reykjavík og á Seltjarnarnesi:
„Störf mín við félagsráðgjöf hafa
einkum snúist um málefni aldraðra
og fatlaðra. Ég hef t.a.m. í mörg ár
sinnt kennslu um málefni aldraðra
og fjölskyldunnar í félagsliðanámi
hjá Mími – Símenntun og hjá
Fræðsluneti Suðurlands.“
Kristjana samdi skáldsöguna
Ósögð orð sem kom út 1997 og
fjallar hún um samskipti móður með
alzheimer við fjölskyldu sína. Árið
1998 var bókin tilnefnd sem framlag
Íslands til Norðurljósa sem er nor-
ræn lista- og bókmenntahátíð í
Normandí. Bókin hefur verið þýdd á
Kristjana María Sigmundsdóttir félagsráðgjafi – 70 ára
Í sólskinsskapi Kristjana og Þorlákur Helgi með börnum, tengda- og barnabörnum, í sumarbústað, sumarið 2008.
Málsvari aldraðra og
fatlaðra um árabil
Hjónin Hér eru þau Þorlákur og Kristjana á ferðinni í miðborg Berlínar.
Hafnarfjörður Kjartan Darri
Kjartansson fæddist 25. apríl
2018 kl. 1.50. Hann vó 3.648
g og var 51 cm langur. For-
eldrar hans eru Bryndís Ósk
Óskarsdóttir og Kjartan Val-
ur Guðmundsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.