Morgunblaðið - 28.11.2018, Side 2

Morgunblaðið - 28.11.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins lögðu til á aukafundi borgar- stjórnar í gær að Reykjavíkurborg hyrfi frá arðgreiðslukröfum í eig- endastefnu Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og lækkaði fremur gjald- skrár. Hildur Björnsdóttir, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði að með þessu myndi OR færast nær því að vera fyrirtæki í al- mennaeigu því raunverulegir eig- endur OR, borgarbúar, væru að fá búbót vegna þess hversu vel gengi. Fór Hildur í máli sínu yfir ástæður þess að hún teldi rétt að lækka gjaldskrá borgarbúa en það voru m.a. borgarbúar sem greiddu fyrir rekstrarvanda OR með hækkun á gjaldskrá. Því ættu þeir að njóta góðs af því þegar rekstur gengi vel. Gjaldskrá væri eins og útsvari í Reykjavík haldið í hámarki. Sagði hún þetta ekkert annað en dulbúna skattheimtu því síðan væri greidd- ur út arður inn í sjóði borgarinnar. Dagur B. Eggertsson borg- arstjóri lagði til að tillagan yrði felld. Stóðu umræður um málið í næstum tvo tíma en svo fór að til- lagan var felld af meirihlutanum með 12 atkvæðum gegn 9, tveir borgarfulltrúar greiddu ekki at- kvæði. Felldu tillögu um að hverfa frá arðgreiðslum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Borgarstjórn Fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins fluttu tillöguna sem svo var felld af meirihlutanum. Afar slæmu veðri er spáð næstu tvo daga og hefur Veðurstofan gef- ið út viðvörun fyrir stóran hluta landsins eftir hádegi í dag. Spáð er norðaustan hvassviðri eða stormi með snjókomu eða hríð- arveðri norðan- og austanlands fram á föstudag og eru ferðamenn hvattir til að fylgjast vel með veðurspám og -viðvörunum. Gul viðvörun er í gildi fyrir Faxaflóasvæðið frá klukkan 17 í dag til miðnættis á fimmtudag. Samkvæmt Veðurstofu Íslands gengur í norðaustan 15-23 m/s, hvassast verður á Snæfellsnesi og við Hafnarfjall þar sem vindhviður geta náð 45 m/s. Slíkt er varasamt ökutækjum sem eru viðkvæm fyrir vindi. Slæmu veðri spáð næstu tvo daga Magnús Heimir Jónasson Jóhann Ólafsson Gylfi Magnússon, formaður banka- ráðs Seðlabanka Íslands, segir að bankaráðið muni vinna úr því sem kom fram á fundi þess með fulltrúum Samherja í gær ásamt fjölmörgum gögnum og skila forsætisráðherra skýrslu. „Forsætisráðherra bað okkur um að svara ekki síðar en 7. desember og við stefnum auðvitað að því að standa við það,“ segir Gylfi. Bankaráð boðaði Þorstein Má Baldvinsson, forstjóra Samherja, og aðra fulltrúa til fundar í Seðlabankanum í gær. Fundurinn var rúmlega tveggja tíma langur og sagði Þorsteinn að Samherjafólk hefði komið sínum sjónarmiðum á framfæri við bankaráð. Hæstiréttur staðfesti dóm héraðs- dóms nýlega um að fella úr gildi ákvörðun SÍ frá 1. september 2016 um að Samherji skyldi greiða 15 milljónir kr. í stjórnvaldssekt vegna brota á reglum um gjaldeyrismál. „Fulltrúar Samherja fengu tæki- færi til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og svara spurningum frá bankaráðsmönnum,“ segir Gylfi sem upplýsir að frekari fundahöld með fulltrúum Samherja séu ekki ráð- gerð. Þorsteinn sagði eftir fundinn að skoðun hans á því að Már Guðmunds- son seðlabankastjóri ætti að víkja úr embætti hefði ekki breyst. Samherji er að undirbúa skaða- bótamál á hendur Seðlabanka vegna rannsóknar á meintum brotum fyr- irtækisins á reglum um gjaldeyris- mál. „Það hefur verið unnið í þeim málum en við munum doka við og sjá hvað kemur út úr þessari skýrslu. Þessu máli verður einn daginn að ljúka.“ Efast um orð seðlabankastjóra Þorsteinn kvaðst efast um orð Más seðlabankastjóra um að hann hefði viljað fara með málið í sáttaferli. Samherjafólk hefði óskað eftir því lögfræðiáliti sem Már segir skoðun sína byggða á. „Okkur var svarað af hálfu aðstoðarseðlabankastjóra að við hefðum fengið þessa skýrslu, ef við skildum rétt, sem var vitnað í. Þar segir að það sé ósennilegt að málið vinnist fyrir dómstólum en skýrslan er frá 2014,“ segir Þorsteinn Fundargögnum skilað til ráðherra  Fulltrúar Samherja fóru á fund með bankaráði Seðlabanka Íslands Morgunblaðið/Hari Samherji Forstjóri Samherja. Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrir miðri mynd, og fulltrúar Samherja mæta á fund með bankaráði Seðlabanka Íslands. Húsið á Laugavegi 73 var í gær flutt þaðan í heilu lagi. Því var komið fyrir til bráðabirgða á lóðinni á Hverfisgötu 92 en til stendur að koma því fyrir á lóðinni á Hverfisgötu 86a. Ætlunin er að húsið verði flutt á framtíðarstað sinn í dag. Lokað var fyrir bílaumferð milli Barónsstígs og Vitastígs um tíma í gær vegna þessa en sjálfur flutningurinn tók aðeins um klukkustund, mun skemmri tíma en ráðgert var. Umrætt hús var byggt árið 1903. Síðustu ár hafa verið reknir veitingastaðir í húsinu. Hús á Laugaveginum híft í heilu lagi yfir á Hverfisgötu Morgunblaðið/Árni Sæberg Mannanafnanefnd hafnaði nýlega kvenkyns nafninu Ladý og er það í annað sinn sem nefndin hafnar nafninu. Í úrskurði mannanafna- nefndar frá 6. júní 2013 kemur fram að eiginnafnið Lady uppfylli ekki öll skilyrði 5. gr. laga um mannanöfn og því sé ekki mögulegt að fallast á það. Í úrskurði nefndarinnar frá síð- ustu viku er tekið fram að Ladý er dregið af enska orðinu lady sem er ávarpsorð og ekki er hefð fyrir því að ávarpsorð eins og frú, fröken eða herra séu notuð sem eiginnöfn. Önnur nöfn sem mannafnanefnd hafnaði voru Leonardo (kk), Yrena (kvk), Gleymérei (kvk) og Myrká (kvk). Þá voru eiginnöfnin Reyla (kvk) og Mortan (kk). samþykkt. Eiginnafninu Ladý hafnað í annað sinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.