Morgunblaðið - 28.11.2018, Side 36

Morgunblaðið - 28.11.2018, Side 36
Jólagjafabréf Kauptu núna! Veldu upphæð, prentaðu út og jólagjöfin er klár. airicelandconnect.is/gjafabref ÍS LE N SK A/ SI A. IS AI C 89 54 5 11 /1 8 Gefðu undir fótinn Bandaríska rokktímaritið Revolver birtir á vef sínum lista yfir 30 bestu plötur ársins og er plata Kælunnar miklu, Nótt eftir nótt, í 14. sæti listans. Heimskunnar hljómsveitir eru á meðal þeirra sem verma hin ýmsu sæti listans, m.a. Judas Priest sem er í fjórða sæti listans með nýjustu plötu sína, Firepower. Kælan er því í góðum félagsskap. Nótt eftir nótt á lista yfir bestu plöturnar MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 332. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. CSKA Moskva tapaði á heimavelli fyrir tékkneska liðinu Viktoria Plzen 2:1 í næstsíðustu umferð riðla- keppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gær og á fyrir vikið ekki mögu- leika á því að komast áfram í16-liða úrslit keppninnar. Arnór Sig- urðsson lék allan tím- ann með CSKA en Hörður B. Magnússon tók út leik- bann. »3 CSKA Moskva kemst upp úr riðlinum ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM „Aðalatriði er að fara reglulega í sjúkra- þjálfun. Frá í sum- ar hef ég unnið með Sævari Inga Borgarssyni. Með æfingum frá honum hef- ur tekist að komast að rót vandans. Í því felast meðal annars teygju- og styrktaræfingar. Mark- mið mitt er að æfa ekki of mikið en ná samt að gera æfing- arnar vel og á mark- vissan hátt, og um leið vera ferskur í lok hverrar æfingar,“ segir körfubolta- maðurinn Jón Arnór Stef- ánsson um gott líkamlegt ástand sitt í vetur. »1 Komst að rót vandans varðandi meiðslin Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Söngurinn hljómar frá safnaðar- heimili Háteigskirkju um þessar mundir á mánudags- og miðviku- dagskvöldum og þegar betur er að gáð er um að ræða tóna frá um 120 konum í Léttsveit Reykjavíkur, fjöl- mennasta kvennakór landsins. „Við erum að æfa fyrir árlega jóla- tónleika okkar,“ segir Rannveig Þor- valdsdóttir, formaður kórsins. Hún bætir við að þær taki sig ekki of al- varlega og því sé mikið lagt upp úr léttleika í bland við hátíðleikann. „Við leggjum áherslu á að hafa þetta skemmtilegt og ekki aðeins fyrir okkur heldur líka fyrir hlustendur,“ heldur hún áfram. „Við viljum gefa gestum okkar tækifæri til þess að syngja með okkur og erum því líka með samsöng inni í efnisskránni.“ Gísli Magna er stjórnandi kórsins, Tómas Guðni Eggertsson spilar á pí- anó og sér um hljómsveitarstjórn og Pálmi Gunnarsson verður gesta- söngvari á jólatónleikunum. Samheldnar og kraftmiklar Kórinn var stofnaður árið 1995 og starfaði fyrst undir merkjum Kvennakórs Reykjavíkur sem Létt- sveit Kvennakórs Reykjavíkur. Árið 2000 var ákveðið að allir kórar, sem störfuðu undir merkjum Kvenna- kórsins, skyldu verða sjálfstæðir kórar og var stofnfundur Kvenna- kórsins Léttsveitar Reykjavíkur haldinn 22. september sama ár. Rannveig bendir á að nokkrar konur hafi sungið í kórnum frá upp- hafi. „Það er svo gaman að syngja í svona kór. Ég sé ekki eftir að hafa valið Léttsveitina því það er alveg einstakt að vera hluti af svona sam- heldnum og kraftmiklum hópi.“ Jólatónleikarnir eru fastur liður í starfseminni. Auk þess hefur kórinn farið reglulega í söngferðir til út- landa, síðast til Þýskalands í vor sem leið, og árlega er farið í ferðir út á land. „Þá förum við í æfingabúðir og treystum böndin,“ segir Rannveig. Hún leggur áherslu á að konurnar hafi mismunandi bakgrunn, starfi eða hafi starfað á öllum sviðum og hafi ólíka sýn á menn og málefni, en séu samstiga í öllu því sem þær taki sér saman fyrir hendur. „Þetta er skemmtilega fjölbreyttur hópur en söngurinn sameinar okkur,“ segir hún og bendir á að nokkrir undir- hópar hafi orðið til út frá kórnum. „Það hafa til dæmis myndast göngu-, golf- og spilahópar innan kórsins.“ Kórinn æfir í Háteigskirkju en jólatónleikarnir verða í Langholts- kirkju laugardaginn 8. desember nk. og hefjast klukkan 14.00 og 16.30. Hægt er að kaupa miða á æfingum kórsins eða að senda tölvupóst á net- fangið lettmidar@gmail.com. Nán- ari upplýsingar um kórinn eru á heimasíðu hans, lettsveit.com. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Léttsveit Reykjavíkur Rannveig Þorvaldsdóttir og Gísli Magna standa fyrir framan aðra kórfélaga á æfingu. Léttsveitin skemmtir sér og öðrum með söng  Pálmi Gunnarsson gestasöngvari á jólatónleikunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.