Morgunblaðið - 28.11.2018, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2018
Afar vel varðveitt freska sem túlkar hina goðsögulegu
frásögn af Ledu og svaninum, fannst við uppgröft í hinni
fornu ítölsku borg Pompeii í liðinni viku. Leda var
drottning Spartverja en guðinn Júpíter, í svanslíki,
nauðgaði henni. Freskan fannst á svefnherbergisvegg
við umfangsmikinn uppgröft og framkvæmdir sem hóf-
ust í hinni niðurgröfnu borg í fyrrasumar, fyrir tilstilli
rausnarlegs styrks frá Evrópusambandinu. Auk þess að
grafa upp fleiri vistarverur er markmiðið með fram-
kvæmdunum að styrkja og tryggja suma viðkvæmustu
hluta borgarinnar en enn eru tugir hektara af borginni á
kafi í gjóskuni sem gróf hana við sprengigos í eldfjallinu
Vesúvíusi árið 79.
Spennu létt af gröfnum rústum
Uppgröfturinn og framkvæmdirnar eru við götuna Via
del Vesuvio í svokölluðum Regio V-hluta borgarinnar en
samkvæmt upplýsingum frá verkefnisstjórninni stendur
til að grafa upp nær þrigga kílómetra rennu við borgar-
mörkin, og létta þar með spennu af þeim svæðum sem
enn eru hulin jarðvegi og koma í veg fyrir að regn og
aurskriður skemmi meira af rústum en orðið er.
Í samtali við The New York Times segir Massimo Os-
anna, sem fer með framkvæmdastjórn í borgarrústunum
sem eru á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna, að
fundur freskunnar sem sýnir Ledu sé bara sá nýjasti af
merkum uppgötvunum undanfarið. Í ágúst hafi til að
mynda fundist þar í næsta herbergi freska sem sýnir
frjósemisguðinn Riapus vega reður en erótísk myndverk
voru mjög vinsæl í Pompeii á fyrstu öld.
Fyrr á árinu voru grafin upp tvö íbúðahús við sömu
götu með „einstökum mósaíkmyndum og freskum,“ að
sögn Osanna.Í einu húsinu voru beinagrindur og þá
fundust á vegg skrif sem gerð höfðu verið með kolum og
þykja styðja þá kenningu, sem nýtur sífellt meiri stuðn-
ings, að gosið í Vesúvíusi hafi verið í október en ekki í
ágúst eins og talið hefur verið um aldir. Uppgröfturinn
heldur áfram fram á vorið en þá verður farið í að tryggja
svæðið og byggingar sem grafnar hafa verið upp svo al-
menningur geti fengið aðgang og skoðað.
Vel farnar freskur og mósaík-
verk koma í ljós í Pompeii
AFP/ Cesare Abbate/The Pompeii Archaeological Park
Vel farin Fornleifafræðingur hreinsar freskuna sem
sýnir Ledu og svaninn en hún fannst á svefnherbergis-
vegg við uppgröft í rústum Pompeii á dögunum.
Heiti nýrrar ljóðabókarLindu Vilhjálmsdóttur erSmáa letrið og hún fjallarum konur; myndina af
konum í samfélaginu, ímynd kvenna
og stöðu, um formæður og það er
kallað ákveðinni röddu á breytingar.
Ljóð bókarinnar eru án titla og ótölu-
sett, líka án upphafsstafa og punkta,
en bókin er í fjórum hlutum. Fyrst
kemur þó einskonar ákall til kvenna
sem hefst með
þessum orðum: „í
stað þess / að
stilla okkur upp /
á stallinum // köll-
um við saman /
allar fjallkonur
landsins“ – og
þær streyma nið-
ur á völlinn, „þær
fremstu / með kla-
kakrónuna / eins og erfðasynd á höfð-
inu“, og svo koma þær hver af ann-
arri, sumar með hattkúf, aðrar í
drappaðri dragt eða aðskornum kjól;
„síðastar / koma druslurnar“ og er
lýst frekar, og svo
… þegar við höfum helgað okkur
hverja torfu á vellinum
stígum við fram
allar fjallkonur landsins
fullvalda og sjálfstæðar
Það er frísklegur baráttutónn í
þessari bók, og hún er nokkuð rökrétt
framhald af hinni áhrifamiklu bók
Lindu Frelsi sem kom út fyrir þrem-
ur árum og fjallar um efnahagshrunið
og áhrif þess. Þessi bók er þó ójafnari
að gæðum; þessum lesara finnst sem í
miðhlutunum tveimur hafi blanda
baráttuanda, reiðitóns og íróníu (ætli
það megi tala þar um hið skorinorða
ljóð?) ljóðin nánast undir og fyrir vik-
ið lifni þau ekki fyllilega á síðunum,
ólíkt hinum góðu framar og aftar.
Lesandanum er ekki gefið sama svig-
rúmið þar til að meta og melta.
Í hluta II eru níu erindi af tíu með
sama hætti, fjórar línur, það fyrsta
svona: „stundum líður mér / eins og
síld í tunnu // og stundum / eins og
þorskígildi í gjafakvóta“; fyrsta lína
byrjar alltaf á orðinu „stundum“ og
sú þriðja á „og stundum“ og óþægi-
legar tilfinningarnar eru sóttar í lýs-
ingar á aðstæðum í samtímanum:
eins og varphæna á óvistvænu búi,
eins og pólskur leigumaður í steypu-
vinnu, eins og geldlax í sjókví (hér er
um misskilning að ræða, geldlaxar
eru því miður ekki í sjókvíum heldur
frjóir laxar), en í síðasta erindinu er
snúið að stöðu ljóðmælandans sem
konu, sem líður „stundum / eins og
nauðgara á skilorði // alltaf / eins og
stelpukrakka á bakleið í myrkri“.
Í hluta III er lýst hvítþvotti og
uppreisn fyrrverandi valdsmanns í
samfélagi, samfélagi karla, en „enn
og aftur / er hann reistur upp úr
haugnum // …// og settur á stall /
meðal hinna valinkunnu // framan við
/ aðrar og fínlegri mannverur“. En
eftir lýsingar á hreinsun karlsins,
með viðkomu í valdastofnunum, fylla
nú stelpurnar lungun af lofti, þær
draga djúpt andann þar til þeirra
„bælda rödd / öðlast hludeild í bylt-
ingarkantötu búrskvenna“.
Þessi rýnir bar Smáa letrið með
sér á löngu ferðalagi og naut þess að
lesa en hreifst aðallega af hlutum I og
IV. Í þeim fyrri er ljóðmælandinn
kona sem hefur verið „rangstæð í eig-
in lífi“, hefur „skrifað þúsund / sinn-
um þúsund ljúfsár ljóð í huganum“ til
að sanna fyrir sjálfri sér að hún sé
nokkuð gott skáld og það hefur tekið
hana langan tíma að öðlast sjálfs-
traust, trausta sjálfsmynd. Og þrýst-
ingurinn og kröfurnar hafa verið með
ýmsu móti, það finnur lesandinn vel,
meðal annars sá að þurfa að eignast
barn:
og þrýstingurinn
almáttugur minn
ég hefði getað fætt þetta barn
sem ég eignaðist aldrei
mánaðarlega að minnsta kosti
á árunum milli tvítugs og
þrjátíuogfimm
Og í næsta ljóði segir með þessum
tregafulla hætti um barnleysið:
finn missinn
og sorgina taka sér bólfestu
í miðaldra móðurlífinu
Í lokahluta bókarinar dregur ljóð-
mælandi upp myndir af langömmum
sínum, ömmum og móður, af lífsbar-
áttu þeirra og kjörum á liðinni öld, og
þar eru sögur af börnum sem þær
áttu, misstu og þurftu að sleppa af
hendinni. Það er tregi, skilningur og
jafnframt sátt í þessum góðu ljóðum,
þar sem ljóðmælandinn vildi hafa séð
móður sína meðan hún lifði, eins og
hún sér hana nú „í mildara ljósi sjálfs-
traustsins“.
Í lok bókar er minnst ruslatínslu-
dags með ömmu, framkvæmdar sem
var ekki saknað á unglingsárum, en
það hefur breyst með þeirri hlýju sátt
við lífið sem einkennir ljóðið og nú
óskar ljóðmælandinn þess oft á vorin
„að eiga svolítinn / garðskika og ekki
endilega uppkomin börn en / nokkur
barnabörn samt til að reyta með mér
arfa / og tína upp rusl svo gróðurinn
megi dafna“.
Morgunblaðið/Eggert
Skáldið Í Smáa letrinu yrkir Linda
Vilhjálmsdóttir um konur og stöðu
þeirra í samfélaginu fyrr og nú.
Stundum líður mér
eins og síld í tunnu
Ljóð
Smáa letrið bbbmn
Eftir Lindu Vilhjálmsdóttur.
Mál & menning, 2018. Kilja, 68 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn
Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn
Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn
Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn
Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn
Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn
Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn
Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn
Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn
Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Samþykki (Stóra sviðið)
Fim 29/11 kl. 19:30 8.s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s Fös 7/12 kl. 19:30 10.sýn
Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu.
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Mið 26/12 kl. 19:30 Frums Fös 11/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn
Fim 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 12/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn
Fös 28/12 kl. 19:30 3.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn
Lau 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Fokkað í fullveldinu (Stóra sviðið)
Lau 1/12 kl. 22:00
Frekar vandræðaleg kvöldstund á Stóra sviðinu
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Lau 1/12 kl. 19:30 21.sýn Fös 7/12 kl. 19:30 20.sýn
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s Sun 16/12 kl. 14:30 336.s
Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Lau 22/12 kl. 11:00 337.s
Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Fös 14/12 kl. 19:00 330.s Lau 22/12 kl. 13:00 338.s
Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 11:00 331.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s
Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Lau 15/12 kl. 13:00 332.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s
Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Lau 15/12 kl. 14:30 333.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s
Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 11:00 334.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s
Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Sun 16/12 kl. 13:00 335.s
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
Insomnia (Kassinn)
Fim 29/11 kl. 19:30 5.sýn Lau 12/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn
Fös 30/11 kl. 19:30 6.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn
Brandarinn sem aldrei deyr
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 28/11 kl. 20:00 Mið 5/12 kl. 20:00 Mið 12/12 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Elly (Stóra sviðið)
Fim 29/11 kl. 20:00 175. s Fös 7/12 kl. 20:00 179. s Sun 16/12 kl. 20:00 183. s
Lau 1/12 kl. 20:00 176. s Sun 9/12 kl. 20:00 180. s Sun 30/12 kl. 15:00 aukas.
Sun 2/12 kl. 20:00 177. s Fim 13/12 kl. 20:00 181. s Sun 30/12 kl. 20:00 aukas.
Fim 6/12 kl. 20:00 178. s Lau 15/12 kl. 20:00 182. s
Stjarna er fædd.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fös 30/11 kl. 20:00 22. s Fös 14/12 kl. 20:00 24. s
Fös 7/12 kl. 20:00 23. s Sun 30/12 kl. 20:00 25. s
Gleðileikur um depurð.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Fös 4/1 kl. 20:00 aukas.
Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fim 20/12 kl. 20:00 aukas. Lau 5/1 kl. 20:00 aukas.
Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Fös 21/12 kl. 20:00 aukas. Sun 6/1 kl. 20:00 15. s
Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Fös 11/1 kl. 20:00 16. s
Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Lau 12/1 kl. 20:00 17. s
Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Sun 30/12 kl. 20:00 14. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Tvískinnungur (Litla sviðið)
Sun 2/12 kl. 20:00 6. s Fim 6/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 Lokas.
Aðeins þrjár sýningar eftir!
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s Lau 22/12 kl. 13:00 9. s
Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Lau 15/12 kl. 13:00 7. s
Lau 8/12 kl. 13:00 5. s Sun 16/12 kl. 13:00 8. s
Aðeins sýnt á aðventunni.
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 30/11 kl. 20:00 69. s Lau 8/12 kl. 20:00 70.s Fös 14/12 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðustu sýningar!
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is