Morgunblaðið - 28.11.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2018
www.tonastodin.is
Landsins mesta
úrval af trommum
faglega þjónustu,
Í tíð vinstri stjórnarinnar á ár-unum 2009-2013 var fylgt for-
dæmi frá Evr-
ópu og ýtt
undir notkun
dísilbíla. Í þeim
skattahækk-
unum sem bíla-
eigendur fengu
yfir sig á þeim
árum voru
skattarnir
stilltir þannig
af að dísilbílar
yrðu hagstæðari en bensínbílar.
Þetta var gert þrátt fyrir ábend-ingar um að dísilbílar meng-
uðu ekki minna heldur meira en
bensínbílar.
Almenningur brást við eins ogætla mátti og keypti frekar
dísilbíla en bensínbíla með þeim af-
leiðingum að mengun jókst, þó að
ástæða hækkunarinnar væri sögð
sú að dísilbílar væru umhverfis-
vænni en bensínbílar.
Nokkrum árum seinna var nýríkisstjórn við völd og þá voru
gjöld á dísil hækkuð meira en á
bensín til að leiðrétta vitleysuna,
með þeim afleiðingum auðvitað að
dísilbílarnir sem fólk hafði verið
hvatt til að kaupa urðu dýrari í
rekstri og minna virði.
Nú berast fréttir af því frá Evr-ópusambandinu að mengun
frá bílum kosti heilbrigðiskerfið
þar að minnsta kosti 70 milljarða
evra á ári. Um 75% mengunarinnar
stafa af dísilbílum.
Þessi þróun viðhorfa til dísilnotk-unar í bílum er ágæt áminning
um hve varasamt getur verið að
hlaupa hugsunarlaust á eftir dill-
unum frá Evrópusambandinu.
Nauðsynlegt er fyrir Íslendinga að
leggja á þær sjálfstætt mat.
Dísildillan
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Töluvert magn
lyfja berst út í
umhverfið hér,
samkvæmt nið-
urstöðum rann-
sóknar sem Um-
hverfisstofnun
(UST) gerði í
sumar. Tekin
voru sýni í sjón-
um við Kletta-
garða í Reykjavík,
í Varmá neðan við Hveragerði og í
Mývatni við Reykjahlíð.
Hér fundust fjögur af 16 efnum
sem eru á vaktlista Evrópusam-
bandsins (ESB), það eru Clarithom-
ycin, Diclofenac og Erythromycin
sem finnast í sýkla- og bólgueyðandi
lyfjum. Einnig fannst kynhormónið
estrógen. Á sænska vaktlistanum eru
20 efni og fundust 15 þeirra í sýn-
unum. Þau finnast m.a. í geðlyfjum,
hjarta- og blóðþrýstingslyfjum,
sýklalyfjum, verkjastillandi og lyfjum
sem tekin eru við sveppasýkingum og
kynsjúkdómum. Þetta bendir til þess
að töluvert mikið af lyfjum berist út í
umhverfið með frárennsli. UST bend-
ir á mikilvægi þess að lyfjum sé skilað
í apótek til eyðingar í stað þess að
sturta þeim niður.
Aðalbjörg Birna Guttormsdóttir,
verkefnastjóri hjá UST, sagði að lyf
gætu borist út í umhverfið ef fólk
sturtaði þeim í salernið í stað þess að
láta farga þeim. Hin leiðin er að fólk
skili efnunum frá þvagi eða hægðum.
Auk þess eru til lyfjakrem með virk-
um efnum sem fólk þvær af sér.
Estrógenið getur komið úr pillunni
eða lyfjum sem notuð eru við tíða-
hvörf eða kynskiptaaðgerðir. Virkt
efni sem þekkt er í júgurbólgulyfi og
gefið er búfé fannst í töluverðum
styrk í Mývatni. Það bendir til að það
sé komið frá landbúnaði.
Aðalbjörg sagði að svo virtist sem
við værum á svipuðum slóðum í þess-
um efnum og nágrannaþjóðirnar.
Hér eru færri íbúar og þess vegna er
styrkur efnanna minni en t.d. í Sví-
þjóð. Ferðamenn virðast hafa áhrif
því við Mývatn mældust efnin í meiri
mæli en ætla mætti miðað við fjölda
íbúanna. Styrkur efna var töluverður
í Varmá neðan við Hveragerði.
Aðalbjörg sagði að lyfjaleifar í um-
hverfinu væru tiltölulega nýupp-
götvuð ógn. Innan ESB er nú unnið
að áhættugreiningu og má eiga von á
að á grundvelli hennar verði sett ör-
yggismörk fyrir þessi efni í umhverf-
inu. gudni@mbl.is
Lyfjaleifar fund-
ust í náttúrunni
Ekki er gott að sturta lyfjunum í salernið
Aðalbjörg Birna
Guttormsdóttir
Stjórnvöld og heildarsamtök á
vinnumarkaði hafa komið sér saman
um átakshóp um aukið framboð á
íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta
stöðu á húsnæðismarkaði í kjölfar
12. samráðsfundar stjórnvalda og
aðila vinnumarkaðarins sem haldinn
var á föstudaginn var.
Forsætisráðherra, félags- og jafn-
réttismálaráðherra og fjármála- og
efnahagsráðherra kynntu sameigin-
lega tillögu á ríkisstjórnarfundi í
gær. Formenn hópsins verða Anna
Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðar-
forstjóri Íbúðalánasjóðs, og Gísli
Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóa-
hafna. Auk þeirra verða í nefndinni
þrír fulltrúar frá ríki, tveir frá sveit-
arfélögum og þrír frá heildarsam-
tökum á vinnumarkaði.
Hópnum er ætlað að hafa samráð
við aðra starfshópa um húsnæðis-
mál. Skila á niðurstöðu til stjórn-
valda og samtaka vinnumarkaðarins
eigi síðar en 20. janúar á næsta ári.
Íbúðalánasjóður mun vinna með
hópnum ásamt öðrum sérfræð-
ingum.
Fram kemur í tilkynningu forsæt-
isráðuneytisins að á árunum 2013-
2017 fjölgaði íbúðum hér á landi um
6.500. Að mati Íbúðalánasjóðs hefði
íbúðum þurft að fjölga mun meira,
eða um hátt í 16 þúsund til þess að
mæta að fullu þeirri þörf fyrir íbúðir
sem skapaðist á tímabilinu.
Átakshópur af stað í húsnæðismálum
Ætlað að skila heildstæðum tillögum til stjórnvalda fyrir 20. janúar 2019
Morgunblaðið/Hari
Fasteignir Fjölga þarf íbúðum.