Morgunblaðið - 28.11.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.11.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2018 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ég hef oft ákveðið fyriraðventuna að ég ætli aðeiga rólega, ljúfa ogyndislega daga. Missa mig ekki í þessu eða hinu. Síðan koma spurningar um hvort ég sé búin að baka, þrífa, kaupa inn og svo framvegis og sannast sagt þá valda slíkar spurningar mér oft kvíða og áhyggjum. Ég veit samt að spurt er af kærleika og um- hyggju,“ segir Gunnhildur Stella Pálmars- dóttir IIN- heilsumarkþjálfi. Hún hefur unnið með fjölda fólks sem vill og þarf að stokka upp líf sitt og marg- víslegan fróðleik þar að lútandi má finna á vefsetri hennar á slóðinni einfaldaralif.is. Streitan sumum óbærileg En víkjum aftur að jólastress- inu og aðventunni. Eitt af því sem oft er nefnt á þessum tíma er að streitan sé og verði fjölda fólks nánast óbærileg. Áreiti kom úr öll- um og samfélagið geri kröfur sem erfitt sé að rísa undir. Þá sé sömu- leiðis þarft að kaupa þetta og hitt, sem líka bjóðist á kostakjörum. Í því tilliti nefnir Gunna Stella, eins og hún kýs að kalla sig, að fyrir helgina var Svartur föstudagur, eins og var auglýst grimmt með miklu áreiti. „Alls staðar var verið auglýsa afslætti og án þess að mig vantaði nokkurn skapaðan hlut þá var mér farið að líða eins og ég væri að missa af einhverju stórkostlegu. Ég fann hvernig hjartað sló örar og ég fór oft yfir það í huganum hvort ég væri að gera mistök. Ég bý á Sel- fossi en hugsaði með mér hvort ég ætti að fara til Reykjavíkur; Kringluna, Smáralindina eða Ikea? En sem betur fer stóðst ég áreit- ið,“ segir Gunna Stella og heldur áfram. „Um kvöldið fór ég á tónleika með góðri vinkonu og á leiðinni þangað ræddum við þetta mikla áreiti, sem hún upplifði með sama hætti og ég. Hún leit óvenju oft á Facebook þennan dag því hún upp- lifði sem svo að hún væri að missa af einhverju. Við vorum samt báðar sammála um að við hefðum ekki misst af neinu og föstudagurinn hefði bara verið fínn, þrátt fyrir allt.“ Fjölgar gæðastundum Ertu búin/n að öllu fyrir jólin? Spurningin er algeng og henni má svara á ýmsan máta – rétt eins og hugtakið allt er hægt að skilgreina á fleiri en einn veg. „Hjá mér er allt þegar ég er búin að búa til jóladagatal fyrir fjölskylduna sem fjölgar samveru- og gæðastundum og skapar góðar minningar. Hjá mér er allt þegar ég hef keypt jólagjafir á hagstæðan hátt og bakað jafnt og þétt yfir að- ventuna og leyft börnunum mínum og manninum mínum að gúffa kök- urnar í sig á ógnarhraða. Hjá mér er allt þegar ég hef átt tíma til að setjast niður í rólegheitunum og drekka kaffi með góðum vinum. Hjá mér er allt þegar ég hef getað sest niður og lesið góða bók. Hjá mér er allt þegar við höf- um skreytt jólatréð og skellum stórri flatsæng inn í stofu og sofum öll fjölskyldan í stofunni þá sömu nótt,“ segir Gunna Stella. Hún bætir við að sér þyki margt vera í höfn þegar jólainnkaupum er lokið og maturinn á aðfangadagskvöld tilbúinn. „Við fjölskyldan förum alltaf í kirkju á aðfangadag og því hef ég valið að hafa hátíðarmatinn einfald- an svo við séum ekki í neinu stressi. Það er líka svo hátíðlegt að ganga til kirkju og líka mjög skemmtilegt,“ segir Gunnar Stella og bætir við að lokum: Næ að njóta lífandi stundar „Það er margt í jólaundirbún- ingnum sem fólk telur vera nauð- synlegt sem svo má missa sín þeg- ar allt kemur til alls. Mín hvatning til fólks í dag er að skoða vel og vandlega hvernig það geti notið að- ventunnar og líðandi stundar. Þú sjálfur verður að spyrja spurning- arinnar og svara hvort allt sé tilbú- ið; svarið við því er afstætt og und- ir hverjum og einum komið.“ Jólastressið er val hvers og eins Aðventan er annatími hjá mörgum. Margs þarfnast búið, en sumt má þó missa sín. Forgangsröðum, njót- um líðandi stundar. Lítum í bók, spjöllum við vini og kíkjum í kaffi, segir Gunna Stella heilsumarkþjálfi. Morgunblaðið/Eggert Mannlíf Fjölskyldufjör á Lækjartorgi um síðustu helgi þegar Jólakötturinn ljósum prýddur var settur í samband. Morgunblaðið/Ómar Skólavörðustígur Ljósadýrð loftin fyllir og hátíð verður í bænum. Gunna Stella Á Akureyri verður sýningin Bæjar- bragur: Í upphafi fullveldis opnuð næstkomandi laugardag, 1. desem- ber, klukkan 14. Þetta er sameiginleg sýning amtsbóka-, héraðsskjala- og minjasafns og er liður í dagskrá full- veldisafmælis Íslands. Á sýningunni verða ljósmyndir sem sýna bæjarbrag á Akureyri í upphafi fullveldis fyrir öld síðan ásamt upp- lýsingum sem unnar eru upp úr skjöl- um og bókum frá sama tímabili. Sýn- ingin sem minnist aldarafmælis fullveldis Íslands er samstarf þriggja safna og veitir íbúum og gestum bæj- arins tækifæri til að fræðast um sög- una, samfélagið og fullveldis- hugtakið. Sýningin er í húsi Amts- bókasafnsins að Brekkugötu 17 á Akureyri og hefst með ávarpi Berg- lindar Mari Valdemarsdóttur, verk- efnastjóra Amtsbókasafnsins á Akur- eyri, en síðan flytur Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, ávarp og opnar sýninguna formlega. Fullveldissýning á Akureyri verður opnuð 1. desember Bæjarbragur fyrir einni öld Ljósmynd/aðsend Akureyri Sýning á Amtsbókasafni. Hátíðartónleikar margra kóra á Suðurlandi verða í Skálholts- dómkirkju í tilefni 100 ára afmælis fullveldis Íslendinga og upphafs aðventu, þann 1. desember. Tón- leikarnir hefjast kl. 16 og þar verð- ur flutt fjölbreytt tónlist sem teng- ist á einn eða annan hátt tilefni dagsins. Fram koma kirkjukórar Breiða- bólstaðarprestakalls ásamt söng- fólki úr Landeyjum, kirkjukórar Stóra-Núps og Ólafsvallakirkna, Skálholtskórinn, Karlakór Selfoss og sönghópurinn Öðlingarnir sem er úr Ragnárvallasýslu. Kórarnir mynda hátt í 100 manna blandaðan kór og annan viðlíka stóran karla- kór - sem ætla verður að fylli út í hvert rúm kirkjunnar með sinni djúpu raust. Einsöngvari á tónleikunum er Oddur Arnþór Jónsson bassi. Jó- hann I. Stefánsson leikur á trompet og Matthías Nardeau leikur á óbó. Orgel- og píanómeðleik annast Jón Bjarnason og Guðjón Halldór Ósk- arsson. Séra Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti, flytur ávarp og stjórnendur eru Guðjón Halldór Óskarsson, Jón Bjarnason og Þorbjörg Jóhannsdóttir. Fullveldistónleikar í Skálholti Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.