Morgunblaðið - 28.11.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2018
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
40 ár
á Íslandi
Snjóblátsarar í
öllum stærðum
og gerðum
Hágæða snjóblásarar frá
Stiga
ST5266 PB
Veður víða um heim 27.11., kl. 18.00
Reykjavík 3 alskýjað
Hólar í Dýrafirði 2 skýjað
Akureyri -8 heiðskírt
Egilsstaðir -4 skýjað
Vatnsskarðshólar 4 skýjað
Nuuk -2 léttskýjað
Þórshöfn 5 skúrir
Ósló -5 léttskýjað
Kaupmannahöfn -3 heiðskírt
Stokkhólmur -5 heiðskírt
Helsinki -4 skýjað
Lúxemborg 3 skýjað
Brussel 4 þoka
Dublin 8 léttskýjað
Glasgow 5 rigning
London 7 rigning
París 7 súld
Amsterdam 4 þoka
Hamborg 1 skýjað
Berlín 1 skýjað
Vín 0 skýjað
Moskva -4 snjóél
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 12 heiðskírt
Barcelona 14 heiðskírt
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 12 rigning
Aþena 18 rigning
Winnipeg -17 léttskýjað
Montreal 0 snjókoma
New York 6 rigning
Chicago -4 snjókoma
Orlando 12 þoka
28. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:38 15:55
ÍSAFJÖRÐUR 11:11 15:32
SIGLUFJÖRÐUR 10:55 15:14
DJÚPIVOGUR 10:14 15:18
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á fimmtudag Norðaustan 15-23 m/s, hvassast SA-
lands og snjókoma á N-verðu landinu.
Á föstudag Norðan 10-18 m/s og snjókoma, síðar
él á N-verðu landinu, en lengst af úrkomulaust.
Vaxandi norðaustanátt, 15-23 m/s síðdegis og hvassari í Öræfum í kvöld. Rigning með köflum
SA-til og slydda á Austfjörðum, annars víða snjókoma eða él og skafrenningur. Hlýnar heldur.
Strætó bs. tók formlega á móti fjórtán nýjum
Yutong-rafvögnum frá Kína í gær. Af því tilefni
settist Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra, við stýrið á einum
þeirra og lét vel af. Við hlið hans er Björg
Fenger, stjórnarformaður Strætó bs.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ráðherra við stýrið á kínverskum rafvagni
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Rætt var um húsnæðismál á við-
ræðufundi VR og Samtaka atvinnu-
lífsins í gær og gengu viðræðurnar
ágætlega að sögn
Ragnars Þórs
Ingólfssonar, for-
manns VR.
Lausnir í hús-
næðismálum eru
þau mál sem
minnstur ágrein-
ingur er um á
milli VR og SA.
,,Við erum sam-
mála um hvaða
leiðir eru til
lausnar, þannig að við fórum bara yf-
ir okkar áherslur og hugmyndafræði
og þeir yfir sína og þarna sýnist mér
vera mesti samhljómurinn um mál
sem er í rauninni leysanlegt ef það
verður ekki tekið og það drepið í ein-
hverjum nefndum á vegum hins op-
inbera. Það er það eina sem ég hef
áhyggjur af,“ segir Ragnar Þór.
Sammála um að auka framboð
Að sögn hans eru VR og SA t.d.
sammála um að auka þurfi framboð á
húsnæði til þess að lækka húsnæð-
iskostnað fólks. Allt skipti þetta
miklu máli svo fólk geti náð endum
saman og átt fyrir húsnæðiskostnaði
og nauðþurftum. Breytingar á skatt-
kerfinu, húsnæðismálin og vaxta-
stigið vegi þungt í því samhengi.
,,Við eigum að funda með þeim aft-
ur í [dag] klukkan tíu. Húsnæðismál-
in eru stærstu málin hér hjá okkur í
VR og við erum búin að ræða um
styttingu vinnuvikunnar. Ég tel að
það hafi náðst ákveðinn árangur og
samhljómur í þessum stóru málum
en síðan munum við fara að ræða
launaliðinn [í dag]. Það ætti þá að
fara að skýrast fljótlega hvort við
séum að fara að ná eitthvað saman
eða hvort við þurfum að vísa þessu til
ríkissáttasemjara,“ segir hann.
Að sögn Ragnars Þórs er aftur á
móti mörgum spurningum ósvarað
varðandi átakshópinn sem forsætis-
ráðherra kynnti í gær um aukið
framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir
til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði.
Skv. ráðuneytinu á hópurinn að skila
af sér ekki síðar en 20. janúar.
,,Reynsla okkar af starfshópum og
nefndum er ekkert alltof góð. Ef ég
vísa bara í starfshópinn um verð-
trygginguna, þá endaði öll sú mikla
vinna í neðstu skúffu viðkomandi
ráðuneytis og hefur ekki sést síðan.“
Ragnar Þór setur spurningar-
merki við hverju vinna átakshópsins
á að skila og hvað ríkisstjórnin ætlar
að gera við niðurstöður hans. Hvort
niðurstaða hópsins verður á ein-
hvern hátt bindandi fyrir ríkisstjórn-
ina svo henni beri að vinna eftir til-
lögunum o.s.frv.
„Við munum ekki bíða“
„Það eina sem ég get sagt er að
þetta mun ekki breyta neinu varð-
andi okkar nálgun. Ef nefndin skilar
af sér einhvern tíma um miðjan febr-
úar eða í mars þá er ekki ólíklegt að
það verði í bullandi átökum. Við
munum ekki bíða eftir því að nefndin
skili af sér. Við munum gera kröfu
um að hún skili af sér fyrir áramót,
enda er ekki þörf á lengri tíma til
þess. Það er ekkert sem þarf að
greina. Íbúðalánasjóður, greiningar-
deildir bankanna, greiningardeildir
okkar í verkalýðshreyfingunni og SA
erum með allar greiningarnar og
þetta er allt fyrir framan okkur. Það
eina sem við þurfum að koma okkur
saman um eru lausnirnar. Við þurf-
um ekki svo langan tíma til þess.“
Spurður um viðbrögð stjórnvalda
við kröfum verkalýðshreyfingarinn-
ar gagnrýnir Ragnar Þór seinagang
og hversu illa ríkisstjórnin hafi hald-
ið á spilunum gagnvart vinnumark-
aðinum. Lengi hafi legið fyrir að ráð-
ast verði í þjóðarátak í
húsnæðismálum en stjórnvöld ekki
svarað kallinu nema að litlu leyti.
Skili af sér fyrir áramót
Árangur og samhljómur hefur náðst á fundum VR og SA um húsnæðismál og
vinnutíma Ræða launaliðinn í dag Ríkisstjórnin haldið illa á spilunum
Ragnar Þór
Ingólfsson
Litlar breytingar
eru á úthlutun
byggðakvóta frá
síðasta ári, en
Kristján Þór Júl-
íusson sjávar-
útvegsráðherra
hefur úthlutað alls
14.305 tonnum í
sértækan og al-
mennan byggða-
kvóta. Samkvæmt
lögum um stjórn fiskveiða er 5,3% af
heildarafla í hverri fisktegund dregið
af leyfilegum heildarafla og varið til
ýmissa tímabundinna ráðstafana til
þess að auka byggðafestu.
Sértækur byggðakvóti Byggða-
stofnunar eykst um 94 tonn frá fyrra
fiskveiðiári og er 6.429 tonn fisk-
veiðiárið 2018/2019.
Almennur byggðakvóti nemur alls
7.876 tonnum, sem eru 6.168 þorsk-
ígildistonn. Alls er byggðakvóta út-
hlutað til 27 sveitarfélags og í þeim
fengu 45 byggðarlög úthlutun. Há-
marksúthlutun til byggðarlags er 300
þorskígildistonn og fá sex byggðarlög
það hámark. Þau eru Djúpivogur,
Ólafsvík, Sandgerði, Siglufjörður,
Skagaströnd og Tálknafjörður. Lág-
marksúthlutun er 15 þorskígildis-
tonn, eigi byggðarlag á annað borð
rétt til úthlutunar, og fá fjögur
byggðarlög þá úthlutun.
14.305 tonn-
um úthlutað í
byggðakvóta
Kristján Þór
Júlíusson
Forysta verka-
lýðshreyfing-
arinnar bíður
óþreyjufull eftir
frekari við-
brögðum frá
ríkisstjórninni
við kröfum sem
stéttarfélögin
hafa beint að
stjórnvöldum í tengslum við
endurnýjun kjarasamninga. ,,Við
erum orðin frekar langeyg eftir
því hvernig stjórnvöld ætla að
koma inn í kjaraviðræðurnar,“
segir Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Hún segir verkalýðshreyfinguna
hafa komið því skýrt á framfæri
hvað hún telur að þurfi að koma
til af hálfu stjórnvalda til þess að
leysa þær miklu deilur sem uppi
eru um stór samfélagsleg úr-
lausnarefni. ,,Það var verið að
stofna húsnæðishópinn, gott og
vel, en við erum að óska eftir við-
tali við stjórnvöld um viðbrögð
við okkar kröfum,“ segir hún.
Erum orðin
frekar langeyg
DRÍFA SNÆDAL
Drífa Snædal