Morgunblaðið - 28.11.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 28.11.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2018 SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Í blaðinu verður kynnt fullt af þeim möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak og bættan lífsstíl. PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir fimmtudaginn 20. desember fylgir Morgunblaðinu miðvikudaginn 2. janúar 2019 Heilsa& lífsstíll Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Sagan um Skarphéðin Dungal sem setti fram nýjar kenningar um eðli alheimsins er sögð í bundnu máli með stuðlum, höfuðstöfum og rími. Sagan fjallar um fluguna Skarphéð- in Dungal sem hefur einhverjar hugmyndir um að það sé líf á fleiri hrossataðshraukum en þeim sem hann býr á,“ segir Hjörleifur Hjart- arson, rithöfundur og tónlistar- maður, um nýútkomna barnabók sína. Í fyrra kom út bók hans Fugl- ar sem myndskreytt er af Rán Fly- genring rétt eins og sú nýja. Sú bók var tilnefnd til Barnabókmennta- verðlauna Reykjavíkurborgar, 2018 bæði fyrir texta og myndskreytingu og hlaut Rán verðlaun fyrir bestu myndskreytingu barnabókar. „Stefnan er að endurtaka leikinn í ár,“ segir Hjörleifur sem telur að bókin eigi ekki síður að höfða til full- orðinna. Engin tengsl eru milli Fuglanna og Sög- unnar um Skarphéð- in að sögn Hjörleifs, önnur en þau að Hjörleifur er höf- undur bókanna og Rán myndskreytir. Hjörleifur segir að samstarfið við Rán sé skemmtilegt og þeim gangi vel að vinna saman. „Myndskreyting Ránar í sögunni um Skarphéðin Dungal er verulega falleg og gerir bókina miklu skemmti- legri. Textinn og mynd- irnar vinna mjög vel saman. Það er ekki sama hvernig mynd- skreytingar eru og lit- irnir sem þær Rán og Birna Geir- finnsdóttir völdu undirstrika þá uppgötvun sem fram kemur í bók- inni að heimurinn er ekki svart/ hvítur heldur í lit og fjölbreyttari en flugurnar í sögunni gat órað fyrir, hvað þá að það væru til fleiri hrossa- skítshaugar en sá sem þær búa á,“ segir Hjörleifur. Hann segir að það sé einhver galdur falinn í ljóðstöfum og þuluforminu sem geri það m.a. að verkum að textinn lærist. Rím geti líka stuðlað að kómískari texta. Bókin líka fyrir fullorðna Hjörleifur segir að engin fyrir- mynd sé af flugunni Skarphéðni Dungal, en hugsanlega geti ein- hverjir fundið sig í hlutverki þess sem líða þurfi fyrir skoðanir sínar eða hafa komið fram með hug- myndir sem ekki voru almannaróm- ur. „Það má finna þarna hinar og þessar skírskotanir án þess að ég vilji fara nánar út í það en það ligg- ur ljóst fyrir að Skarphéðinn er í heimspekilegu ferðalagi sem sýnir honum fram á að heimurinn er svo miklu stærri og flóknari en litlar flugur hafa möguleika á að skilja og við erum öll frekar litlar flugur í því stóra samhengi,“ segir Hjörleifur og bætir við að boðskapur bókar- innar gæti verið að börn og full- orðnir þurfi að vera með opinn huga, hugsa út fyrir boxið og vera forvitin. Sagan um Skarphéðin sem setti fram nýjar kenningar um eðli al- heimsins er gefin út af Angústúra sem einnig gaf út Fugla. Hjörleifur segir samtarfið við Maríönnu Rán og Öglu Magnúsdóttur hjá Angú- stúru mjög gott enda séu þær metn- aðarfullar og geri allt vel. Áður hef- ur Hjörleifur skrifað bækurnar Veðurtepptur og Krosshólshlátur. Heimspekileg ferð flugu  Hjörleifur Hjartarson skrifaði bók í bundnu máli um fluguna Skarphéðinn Dungal og Rán Flygering teiknaði myndirnar  Líf á fleiri hrossataðshraukum Morgunblaðið/Hari Samvinna Texti, myndir og litir vinna mjög vel sam- an í, Sögunni um Skarphéð- in Dungal því heimurinn er ekki svart/ hvítur heldur í lit og fjöl- breyttur. Morgunblaðið/Ómar Myndskreytirinn Hjörleifur segir myndir Ránar Flygenring gera bók- ina bæði skemmtilegri og fallegri. Rithöfundurinn Hjörleifur segir boðskap Sögunnar um Skarphéðin Dungal vera þann að allir hafi gott af því að skoða hlutina með opnum huga, hugsa út fyrir boxið og vera forvitnir. Það eigi bæði við um börn og fullorðna. Spænski stórsöngvarinn Placido Domingo fagnaði um helgina ein- stæðu söngafmæli við eitt af merk- ustu óperuhúsunum en um þessar mundir er hálf öld síðan hann kom fyrst fram á sviði Metropolitan- óperunnar í New York og hefur hann allan þann tíma verið einn af vinsæl- ustu listamönnunum sem reglulega koma þar fram. Domingo, sem er 77 ára gamall, öðlaðist heimsfrægð á tíunda ára- tugnum sem einn af „tenórunum þremur“ sem fylltu íþróttaleikvanga af söngunnendum en þá hafði hann þó lengi verið einn vinsælasti tenór óperuheimsins. Hann kom fyrst fram við Metropolitan árið 1968 og hefur sungið þar á hverju ári síðan. Fyrir nokkrum árum, þegar röddin var far- inn að missa talsvert af fyrri ljóma, tók hann – í stað þess að setjast í helg- an stein – að syngja mörg vinsælustu baritónhlutverk óperubókmenntanna og er enn að. Þá gerir hann talsvert af því að stjórna óperuhljómsveitum. Um helgina kom Domingo fram á fyrstu sýningu leikársins í Metro- politan á Il Trittico, þrískiptri gaman- óperu eftir Puccini, og söng aðal- hlutverkið, Gianni Schicchi. Rýnir The New York Times hrósar frammi- stöðunni og segir einstakt í óperusög- unni að söngvari fari með aðal- hlutverk í óperum í hálfa öld. Domingo var hylltur í hléi á sýning- unni. Eftir að myndbrotum með söngvaranum í hinum ýmsu hlut- verkum í húsinu hafði verið varpað upp á tjald, steig Domingo fram á sviðsbrúnina og þáði að gjöf bút af sviði óperhússins, auk gylltrar útgáfu af búningum sem hann hefur klæðst þar í aðalhlutiverki óperunnar Óþelló. Meðal gesta í salnum voru, auk fjöl- skyldu söngvarans, stjörnur sem hann hefur sungið með á glæstum ferlinum, þar á meðal Martina Arroyo, Sherrill Milnes, James Morr- is og Teresa Stratas. Hefur sungið í Met í hálfa öld AFP Hylltur Placido Domingo var fagn- að eftir að hann kom fram eftir sýn- ingu á Trittico í New York. Hljómsveitin Mo- ses Hightower hefur stutta tón- leikaferð í aðdrag- anda aðventunnar með tónleikum í Frystiklefanum á Rifi í kvöld, mið- vikudag, og hefj- ast þeir klukkan 21. Í framhaldinu leikur hljóm- sveitin í Edinborgarhúsinu á Ísafirði annað kvöld, klukkan 21, og á Græna hattinum á Akureyri á föstudags- kvöld en þeir tónleikar hefjast klukk- an 22. þann 30. nóvember. Í tilkynningu segir að hljómsveitin hafi í um áratug verið „einn helsti kyndilberi sálarskotinnar dægur- tónlistar á klakanum“. Útsetningar, hljóðheimur og spilamennska hafi verið sótt í sálartónlist 7. og 8. áratug- ar, en frá upphafi þóttu textarnir „minna á íslenskt lopapeysupopp frá sama tímabili, ekki síst Spilverk þjóð- anna“. Plötur Moses Hightower hafa notið vinsælda, rýna jafnt sem almennings, og munu vinsælustu lögin af þeim hljóma á tónleikunum. Moses á ferðalagi Moses Hightower Tvær af helstu goðsögnum dægurtónlist- arinnar, Bob Dylan og Neil Young, troða upp á British Summer Time-tónlistar- hátíðinni í Hyde Park í London næsta sumar, 12. júlí. Hin hefð- bundna hljómsveit Dylans, sem styður við hann á tónleikaferðum, mun leika með honum. Á árinu hefur Dylan ferðast um Evrópu, Ástralíu og Bandaríkin og kemur þessa dagana fram á röð tónleika í New York. Young kemur fram með hljómsveitinni Promise of the Real en hún leikur með hon- um á síðustu tveimur plötum hans. Dylan og Young leika í Hyde Park Neil Young

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.