Fréttablaðið - 06.03.2019, Side 4
K JARAMÁL Stéttarfélagið Ef ling
kveðst hafa upplýsingar um tilfelli
þar sem atvinnurekendur á félags-
svæði Ef lingar hafi haft óeðlileg
afskipti af þátttöku félagsmanna
í atkvæðagreiðslum um verkfalls-
boðun. Um er að ræða tilfelli bæði
í hótelrekstri og hjá hópbifreiða-
fyrirtækjum.
Samkvæmt tilkynningu frá Ef l-
ingu hefur Sólveig Anna Jónsdóttir,
formaður Ef lingar, sent almennt
erindi til hótelrekenda og for-
svarsmanna hópbifreiðafyrirtækja
vegna þessa. Viðar Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Ef lingar, hefur
haft samband við framkvæmda-
stjóra nokkurra fyrirtækja í hótel-
og hópbifreiðageiranum vegna
kvartana frá félagsmönnum og
minnt á réttindi þeirra.
„Hér er því miður um ákveðið
mynstur að ræða,“ segir Viðar. „Við
söfnum upplýsingum um þessi til-
vik og munum svo vega og meta til
hvaða aðgerða verður gripið.“
Samkvæmt kvörtunum félags-
manna eiga yfirmenn að hafa í ein-
hverjum tilfellum boðað til funda
með starfsmönnum og haft uppi
hótanir um að verkfallsaðgerðir og
jafnvel kosningaþátttaka geti haft
skaðlegar efnahagslegar af leið-
ingar fyrir starfsmennina. Slíkar
yfirlýsingar brjóta gegn lögum um
stéttarfélög og vinnudeilur að mati
Ef lingar.
Það er sorglegt að atvinnurek-
endur skuli standa í vegi fyrir því
að félagsmenn Ef lingar geti tekið
afstöðu í löglega boðaðri atkvæða-
greiðslu,“ segir Sólveig Anna. „Ef l-
ing tekur allar tilraunir til að beita
félagsmenn okkar óeðlilegum
þrýstingi alvarlega.“ – smj
Félagsmenn Eflingar beittir þrýstingi
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
MENNTAMÁL Frá og með næsta hausti
mun nemendum á lokaári meistara-
náms til kennsluréttinda á leik- og
grunnskólastigi standa til boða laun-
að starfsnám. Einnig munu sömu
nemendur geta sótt um námsstyrk.
Styrkurinn er 800 þúsund krónur
og greiðist í tvennu lagi. Þessar
aðgerðir eru hluti aðgerða sem Lilja
Alfreðsdóttir, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra, kynnti í gær
til að efla nýliðun kennara. Frétta-
blaðið greindi frá þessum áformum
14. janúar síðastliðinn.
Fram kemur í tilkynningu frá
ráðuneytinu að aðeins 28 prósent
stöðugilda í leikskólum eru mönnuð
leikskólakennurum og að það vanti
leikskólakennara í 1.800 stöðugildi
til þess að uppfylla ákvæði laga um
hlutfall fagmenntaðra leikskóla-
kennara. Á síðasta ári útskrifuðust 22
leikskólakennarar og 77 grunnskóla-
kennarar frá Háskólanum á Akureyri
og Háskóla Íslands.
Á tíu ára tímabili, frá 2008 til 2018,
fækkaði nýnemum í leik- og grunn-
skólafræðum um 40 prósent. Leið-
beinendum í grunnskólum hefur
aftur á móti fjölgað verulega á síðustu
árum, úr 272 árið 2016, 443 árið 2017
í 507 á þessu skólaári, 2018/19. – smj
Nemendur fái
laun og styrk
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Lilja Alfreðs
dóttir, mennta
og menningar
málaráðherra.
ORIGINAL KENNÝ
HEILBRIGÐISMÁL Landlæknir og
skimunarráð leggja til breytingar
á skipulagi skimunar fyrir krabba-
meinum. Markmið tillagna sem
kynntar voru fyrir Svandísi Svav-
arsdóttur heilbrigðisráðherra í gær
er að færa skipulagið nær því sem
mælt er með í leiðbeiningum ESB
um skimanir.
Meðal tillagnanna er að Land-
lækni verði falið að skilgreina
þau krabbamein sem skima skal
fyrir. Þá er lagt til að sett verði á fót
stjórnstöð skimunar sem taki yfir
það starf sem Leitarstöð Krabba-
meinsfélags Íslands sinnir nú sem
og rekstur Krabbameinsskrár.
Thor Aspelund, formaður skim-
unarráðs og prófessor í líftölfræði
við Háskóla Íslands, leggur áherslu
á samvinnu allra þeirra aðila sem
koma að málum. „Það er auðvitað
mjög gott starf unnið með Krabba-
meinsskrána núna og það er hægt
að byggja upp í kringum það. Það
þarf ekki endilega að kollvarpa öllu
en það þarfa að styrkja allar þessar
einingar sem eru að vinna þetta,“
segir Thor.
Hann segir mikilvægt að halda
vel utan um allar skráningar á skim-
unum. „Við þurfum að bæta okkur
þegar kemur að skráningum. Við
þurfum að vita meira hvernig okkur
gengur með skimununum.“
Í tillögunum er einnig lögð
áhersla á aðkomu heilsugæslunnar.
„Við leggjum til að skimanir verði
færðar meira út til heilsugæslunnar
og þar yrði byrjað á skimun fyrir
leghálskrabbameini. Annað myndi
kannski fylgja á eftir síðar en þetta
á ekkert að gerast allt í einu.“
Thor segir að Krabbameinsfé-
lagið muni áfram gegna mikilvægu
hlutverki en gert er ráð fyrir að
skimun fyrir brjóstakrabbameini
verði áfram í höndum félagsins. – sar
Leggja til breytingar á skimun fyrir krabbameinum
Lögð er til stofnun stjórnstöðvar
skimunar. NORDICPHOTOS/GETTY
HEILBRIGÐISMÁL Fjögur mislinga-
smit hafa verið staðfest í íslensku
heilbrigðiskerfi síðustu daga eftir að
erlendur smitberi sat í vél Icelandair
til landsins þann 14. febrúar síðast-
liðinn og áfram til Egilsstaða degi
seinna. Er þetta mesti fjöldi tilfella
smita síðan árið 1977. Mikill við-
búnaður er á Landspítalanum en
yfirlæknir bráðadeildar telur pláss-
leysi geta valdið erfiðleikum smitist
fleiri af mislingum.
Mislingar eru bráðsmitandi og
greindust síðast árið 2017 í barni sem
hafði dvalið erlendis lengi. Á árunum
1998 til 2017 höfðu aðeins þrjú
tilfelli komið upp. Því eru
fjögur staðfest tilvik nokk-
uð mikið stökk frá
því sem við höfum
þekkt hér á landi
vegna útbreiddrar
b ólu s e t n i ng a r
fyrir mislingum
í íslensku heil-
brigðiskerfi.
„Boðað var til
n e y ð a r f u n d a r
með sóttvarnalækni
vegna þeirrar stöðu sem
uppi er núna vegna misl-
ingasmita sem hafa verið
staðfest. Sóttvarnalæknir stýrir
ákveðnum aðgerðum til að bregðast
við og varna frekari útbreiðslu,“
segir Jón Magnús Kristjánsson, yfir-
læknir bráðadeildar Landspítalans.
„Ung börn að átján mánaða aldri auk
þeirra sem ekki hafa verið bólusettir
eru útsett fyrir þessari veirusýkingu.
Við getum vel tekist á við svona mál
en svo gæti farið að plássleysi valdi
okkur einhverjum erfiðleikum ef
margir smitast.“
Þ ó r ó l f u r
Guðnason sótt-
varnarlæknir segir
unnið að því að lág-
marka líkur á því að
mislingar geti breiðst út til f leiri.
„Nú er unnið eftir ákveðnu verklagi
en eins og staðan er núna er ekkert
sem bendir til þess að lítill faraldur
sé í vændum. Það gerist hins vegar
að smitberi kemur til landsins sem
sýnir okkur bæði hversu smitandi
mislingar eru og hversu mikilvægt
sé að sem flestir séu bólusettir fyrir
mislingum,“ segir Þórólfur.
Annað barnanna, sem greind
hafa verið með mislingasmit, var
á ungbarnaleikskólanum Hnoðra-
holti í Garðabæ. Þeim börnum sem
hafa verið á þessum leikskóla, og
eru óbólusett vegna aldurs eða ann-
ara ástæðna, hefur verið skipað að
halda sig heima í eins litlu samneyti
og hægt er við annað fólk í rúmar
tvær vikur.
Umdæmislæknir sóttvarna á
Austurlandi sendi frá sér tilkynn-
ingu í gær. Þar kemur fram að smit-
berar hafi farið víða um Austurland
og séu starfsmenn í vinnu við að
finna það fólk sem gæti hafa smitast
af þeim. „Nú hafa einstaklingar sem
voru í framangreindum vélum veikst
og staðfest er að um mislinga er að
ræða. Á þeim tíma sem þeir teljast
smitandi fóru þeir nokkuð víða
innan Fjarðabyggðar og Fljótsdals-
héraðs. Umdæmislæknir sóttvarna á
Austurlandi og aðrir starfsmenn HSA
vinna að því að finna þá sem helst
má reikna með að hafi orðið útsettir
fyrir smiti og ná sambandi við þá,“
segir í tilkynningu.
Hafa ber í huga að þau börn sem
hafa nú smitast af mislingum smit-
ast ekki vegna vanrækslu foreldra
og tregðu þeirra til að bólusetja börn
sín. Þau eru einfaldlega of ung til að
fá bólusetningu við mislingum sem
gerist við átján mánaða aldur hér á
landi. sveinn@frettabladid.is
Neyðarfundur sóttvarnalæknis
vegna fjögurra mislingasmita
Neyðarfundur var haldinn hjá sóttvarnalækni vegna mesta fjölda mislingatilvika síðan 1977. Um
dæmislæknir sóttvarna á Austurlandi segir smitbera hafa farið víða og verið sé að hafa uppi á þeim
sem gætu hafa smitast af þeim. Plássleysi gæti torveldað starf Landspítalans þurfi að leggja marga inn.
Viðbúnaður er á Landspít
ala vegna mislingasmita
sem staðfest hafa verið
undanfarna daga.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
6 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
D
-A
2
4
4
2
2
7
D
-A
1
0
8
2
2
7
D
-9
F
C
C
2
2
7
D
-9
E
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K