Fréttablaðið - 06.03.2019, Síða 6
INDÓNESÍA Tapanuli-órangútanar,
sú tegund órangútana sem er í
einna mestri útrýmingarhættu,
eiga nú dauðann vísan eftir að
indónesískur dómstóll úrskurð-
aði fyrirhugaða byggingu stíf lu í
Batang Toru-skógi á indónesísku
eynni Súmötru löglega. Þetta
hafði BBC eftir indónesískum dýra-
verndunarsinnum í gær.
Talið er að einungis 800 tap-
anuli-órangútanar séu eftir í heim-
inum. Allir búsettir á þessu sama
svæði. Tapanuli-órangútanar voru
ekki skilgreindir sem sérstök teg-
und fyrr en árið 2017 en samkvæmt
sérfræðingi við réttarhöldin þýðir
bygging stíf lunnar nær örugglega
útrýmingu tegundarinnar. Að auki
búa til dæmis súmötrutígrisdýr og
gibbonapar í skóginum.
Dagblaðið Jakarta Post hefur
greint frá því að kínverska ríkis-
fyrirtækið Sinohydro muni reisa
stíf luna og kínverski ríkisbankinn
Zhōngguó Yínháng er einn af þeim
alþjóðlegu bönkum sem fjármagna
verkefnið. Stíf lan á að sjá íbúum og
fyrirtækjum í Norður-Súmötru-
fylki fyrir rafmagni og er stefnt að
því að ljúka byggingu hennar árið
2022.
Umhver f isver nd a r sa mtök in
Wahli höfðu kært byggingu stíf l-
unnar en eins og áður segir var
verkefnið metið löglegt. Wahli
ætlar að áfrýja úrskurðinum og
hefur kallað eftir því að Kínverjar
hætti við að fjármagna verkefnið.
BBC hafði eftir Serge Wich, sér-
fræðingi í verndun prímata, að
hann væri steinhissa á því að verk-
efni sem þetta væri yfirhöfuð á
dagskrá. „Þau ætla að byggja stíf l-
una á þeim stað sem f lestir órang-
útanar búa í skóginum. Þetta er
versta mögulega staðsetning,“
sagði hann. – þea
Stífla ógnar tilvist órangútanategundar
Wahli-liðar hafa mótmælt stíflunni fyrirhuguðu harðlega. NORDICPHOTOS/AFP
Aðeins 800 tapanuli-
órangútanar eru eftir í
heiminum. Tegundin er því í
bráðri útrýmingarhættu.
SÚPER KENNÝ
SKÓLAMÁL Jón Atli Benediktsson,
rektor Háskóla Íslands, segir mikil-
vægt að nemendur séu vel upplýstir
um þá möguleika sem þeir hafa að
loknu námi. HÍ hefur stigið skref til
að efla starfsráðgjöf og leitar leiða
til að styrkja tengsl milli náms og
starfsvettvangs.
Fram kom í skýrslu Vinnumála-
stofnunar fyrir janúarmánuð að
atvinnuleysi meðal háskólamennt-
aðra hefur aukist verulega á síðustu
mánuðum. Jón Atli segir í svari við
fyrirspurn Fréttablaðsins að mikil-
vægt sé að nemendur séu vel upp-
lýstir um þá möguleika sem þeir
hafa að loknu námi. Búið sé að efla
starfsráðgjöf Háskólans á undan-
förnum misserum, meðal annars
með tilkomu Tengslatorgs sem er
atvinnumiðlun fyrir stúdenta og
skipulagðri dagskrá Atvinnudaga
HÍ.
Eftirspurnin sveiflast eftir tíma-
bilum og fræðasviðum. „Það er mis-
jafnt eftir fræðasviðum og tímabil-
um hversu mikil eftirspurn er eftir
háskólamenntuðu fólki í samfélag-
inu. Þannig er t.d. mikil eftirspurn
eftir háskólamenntuðum kennur-
um um þessar mundir og við erum
að bregðast við því í samvinnu við
mennta- og menningarmálaráðu-
neytið,“ segir Jón Atli.
„Við viljum líka undirstrika að
háskólanám hefur gildi í sjálfu sér
og háskólamenntað fólk skapar
oft nýjar atvinnugreinar og þann-
ig eykst eftirspurn eftir háskóla-
menntuðu fólki. Við sjáum líka að
með fjölbreyttara hátæknisam-
félagi eykst þverfræðileg samvinna
milli ólíkra fræðasviða sem skapar
mörg ný tækifæri fyrir háskólafólk.“
Um síðustu helgi kynntu sjö
háskólar á Íslandi yfir 500 náms-
brautir sem standa nemendum til
boða í haust.
„Á haustmisseri 2018 voru vin-
sælustu greinarnar hjá nýnemum
í grunnnámi viðskiptafræði, sál-
fræði, hjúkrunarfræði, lögfræði,
tölvunarfræði, lífeindafræði og
félagsráðgjöf en í framhaldsnámi
opinber stjórnsýsla, lögfræði,
uppeldis- og menntunarfræði og
læknisfræði.“
arib@frettabladid.is
Misjafnt hversu mikil eftirspurn er eftir háskólamenntuðum
Jón Atli Bene-
diktsson, rektor
Háskóla Íslands.
HEILBRIGÐISMÁL Innf lutningur á
fersku kjöti til Íslands hefur sáralítil
áhrif á hvort hingað til lands berist
sýklalyfjaónæmar bakteríur. Þetta
segir doktor í líffræði.
Í dag rennur út frestur til þess
að skila umsögnum um frumvarp
landbúnaðarráðherra sem heimil-
ar innflutning á fersku kjöti. Með
frumvarpinu er afnumin 30 daga
frystiskylda. Í gær greindi Frétta-
blaðið frá könnun Zenter rannsókna
sem sýndi að meirihluti lands-
manna sé andvígur því að slakað
verði á reglum um innf lutning á
ferskum matvælum.
Þórunn Rafnar Þorsteinsdóttir,
doktor í líffræði sem starfar á Til-
raunastöð HÍ í meinafræði að Keld-
um, segir í samtali við Fréttablaðið
að það skipti litlu sem engu máli
hvort búið sé að frysta kjöt áður en
það er flutt til landsins þegar litið er
til sýklalyfjaónæmra baktería. Einu
áhrifin sem afnám frystiskyldunnar
gætu haft í för með sér er aukin
hætta á kampýlóbakter, bakt-
eríu sem finnst helst í alifuglakjöti.
„Frysting minnkar magn kamp-
ýlóbakter í kjötinu, það er það eina
sem sýnt hefur verið fram á að fryst-
ingin geri. Frysting hefur ekki áhrif á
aðrar bakteríur og ekki á ónæmið,“
segir Þórunn, en hún er sérfræðing-
ur í sýklalyfjaónæmum bakteríum.
Hingað til lands eru flutt nokkur
þúsund tonn af frystu kjöti á ári,
hátt í fjögur þúsund tonn árið 2017
en dróst saman í fyrra. Þórunn segir
erfitt að meta hvort sá innflutning-
ur, sem er í raun óheftur umfram
tollkvóta, hafi áhrif á fjölgun fjöl-
ónæmra baktería í mönnum hér á
landi. Nærtækara sé þó að benda á
aukna notkun sýklalyfja í mönnum
og ferðalög fólks heimshorna á
milli en á innf lutning á kjöti. „Ef
frystiskyldan verður afnumin þá
eru auknar líkur á að fólk smitist
af kampýlóbakter, sem gæti verið
ónæmur fyrir sýklalyfjum, en ef
fólk meðhöndlar matinn og eldar
rétt þá ætti ekki að vera nein hætta
á að smitast af kjötinu.“
Smithættan sé þá engin ef fólk
eldar kjúkling í gegn og heldur
óelduðu kjötinu fjarri grænmeti og
öðru sem er borðað hrátt. „Þegar
við eldum kjúklinginn eins og á að
gera, þá drepum við bakteríurnar,
líka þessar ónæmu.“
arib@frettabladid.is
Innflutningur á kjöti hefur lítil áhrif
Kampýlóbakter sem kemur til landsins í kjöti deyr ef kjötið er eldað í gegn. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Þegar við eldum
kjúklinginn eins
og á að gera, þá drepum við
bakteríurnar, líka þessar
ónæmu.
Þórunn Rafnar
Þorsteinsdóttir,
doktor í líffræði
Frestur til að senda inn
umsögn um frumvarp
sem heimilar innflutn-
ing á fersku kjöti rennur
út í dag. Meirihluti
landsmanna er á móti
tilslökunum á innflutn-
ingi. Doktor í líffræði
segir að þegar kemur að
bakteríum skipti litlu
sem engu máli hvort
kjöt sé fryst eða ekki.
6 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
D
-B
6
0
4
2
2
7
D
-B
4
C
8
2
2
7
D
-B
3
8
C
2
2
7
D
-B
2
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K