Morgunblaðið - 12.12.2018, Side 10

Morgunblaðið - 12.12.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2018 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Útlit er fyrir að rúmlega 1.500 hótel- herbergi bætist við markaðinn í Reykjavík á næstu tveimur árum og rúmlega 90 hótelíbúðir. Samanlagt eru þetta til dæmis um átta sinnum fleiri herbergi en öll herbergi á Hótel Sögu. Slíkur fjöldi kallar á hundraða manna starfslið. Það gæti aftur laðað að erlent vinnuafl. Miðað er við verkefni sem eru hafin. Fleiri verkefni kunna að vera í pípunum. Á móti kunna einhver verkefnin að tefjast í uppbyggingu. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að horfur væru á rúmlega 2,3 millj- ónum erlendra ferðamanna með flugi í ár. Samtök ferðaþjónustunnar spá 3-5% vexti í greininni á næsta ári. Miðað við 5% vöxt samsvarar það 115 þúsund ferðamönnum. Við þetta bætast farþegar Norrænu. Um 145 þúsund farþegar skemmti- ferðaskipa eru ekki taldir hér með. Ólafur Torfason, stjórnarformað- ur Íslandshótela, segir aðspurður að slík fjölgun ferðamanna kalli á meira gistirými. Verið sé að taka á leyfis- lausri gistingu sem kunni að leiða til fækkunar slíkra íbúða í miðborginni. Hótel með 100 herbergi sé ekki mikil viðbót á markaði í slíkum vexti. Jafngildir 333.000 gistinóttum Hann rökstyður það með einföldu dæmi. Fjölgi ferðamönnum til dæm- is um 125 þúsund á næsta ári, og gisti í fjórar nætur, 1,5 í herbergi að meðaltali, samsvari það 333 þúsund gistinóttum. Til samanburðar selji 100 herbergja hótel 36.500 gistinæt- ur á ári, eða 25.550 gistinætur miðað við 70% nýtingu. Það leiðir af þess- um útreikningum að bæta þarf við um 1.300 herbergjum á næsta ári til að anna eftirspurn. Þetta er ímynd- að dæmi og gengið út frá því að allir nýir ferðamenn séu hér á landi sam- tímis og á nýjum hótelum. Ólafur reiknar aðspurður með að veiking krónunnar muni örva eftir- spurn í ferðaþjónustu á næsta ári. „Nú eru menn að veðja á að veik- ing krónu gagnvart evru hafi góð áhrif á eftirspurnina. Maður vonar að gengi evru verði á þessu bili. Það yrði gott fyrir hótelin.“ Íslandshótel er að byggja 125 her- bergja hótel í miðbæ Reykjavíkur og í farvatninu er stækkun á Grand Hóteli á næstu árum. Félagið hefur áformað að bæta við 130 herbergj- um og yrðu þau þá 440-450. Fyrirhugað er að stækka Hótel Ísland í Ármúla. Þar gætu orðið allt að 200 herbergi eftir stækkunina. Í næsta húsi er verið að stækka City Park Hótel í Ármúla 5. Þar er verið fjölga herbergjum um 27 í alls 84. Árni Valur Sólonsson, eigandi Capital Hotels-hótelkeðjunnar, sem City Park Hótel heyrir undir, segir áformað að taka nýju herbergin í notkun í vor. Jafnframt verði inn- gangur hótelsins færður til. Sá nýi muni snúa að Hallarmúla. Síðar bætist við 3 herbergi. Hann reiknar með óbreyttri nýtingu á hótelinu eftir stækkun. Eftirspurnin sé mikil. „Horfurnar á markaðnum eru góðar. Það er þörf fyrir ný hótel og gistirými. Nú vinnur allt með okkur. Gengið er búið að leiðrétta sig og olían er að lækka, sem heldur aftur af hækkun flugfargjalda,“ segir Árni Valur og bendir á að verið sé að taka á leyfislausri gistingu í borginni. Með því muni slíkum leiguíbúðum að óbreyttu fækka, sem aftur muni auka eftirspurn hjá hótelum. Árni Valur segir umræðu um hækkun virðisaukaskatts á gistingu á Íslandi hafa, ásamt öðrum þáttum, dregið úr eftirspurn frá vissum markaðs- svæðum. Þá meðal annars frá Þýskalandi. Tóku Ísland af sölulistanum „Sumar þýskar ferðaskrifstofur, sem skipuleggja ferðir langt fram í tímann, tóku Ísland út af sölulist- anum. Það er að koma fram á árinu 2018,“ segir Árni Valur. Með því að hætt var við hækk- unina í fyrra séu áhrifin að ganga til baka. Það taki þó nokkurn tíma. Sú þróun geti aukið eftirspurn frá Þýskalandi og öðrum Evrópu- ríkjum. Sú aukning geti vegið þungt, enda dvelji evrópskir ferðamenn jafnan lengur á Íslandi en banda- rískir. 1.500 herbergi að koma á markað  Fjöldi gististaða verður tekinn í notkun í miðborginni 2019-20  Hóteleigendur bjartsýnir á næsta ár 1 1312 14 15 16 4 17 18 19 11 5 6 3 7 8 9 10 2 Dæmi um áformuð hótel og hótelíbúðir í Reykjavík 2019-2020 Fjöldi Staðsetning hótels herbergja Fjöldi íbúða 1 Lúxushótel Austurvelli 145 2 City Park Hótel, Ármúla 5 (stækkun) 27 3 Hótel Ísland, Ármúla 7* (stækkun) 55 4 Brautarholt 2 23 5 Bríetartún 9-11 38 6 Hörpureitur (Marriott Edition) 253 7 Grandagarður 2 95 8 Grensásvegur 16a 80 9 Hverfisgata 78 16 10 CenterHotel Plaza Ingólfstorgi (stækkun) 54 11 Laugavegur 55 52 12 Laugavegur 56 16 13 CenterHotel Laugavegi 95-99 102 14 Íslandshótel Lækjargötu 12 122 15 CenterHotel Héðinsreit (Seljavegur 2) 153 16 Skipholt 1 84 17 Skipholt 29a 64 18 Radisson Red Skúlagötu 195 19 Vegamótastígur 7-9 39 Samtals 1.520 93 Alls herbergi og íbúðir 1.613 *Rætt er um 55-74 herbergi. Herbergjum á Hótel Íslandi fjölgar með þessu í tæplega 200. Heimildir: Fulltrúar hótelanna, greinasafn Morgunblaðsins. Verkefni kunna að breytast í vinnslu. 6 18 8 9 1 14 Ark Studio ALARK T.ark arki tekt ar T.ark arki tekt ar Atelier arki tekt ar THG Arkitektar 3 THG Arkitektar i Hreinsum sófaáklæði og gluggatjöld STOFNAÐ 1953 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin 1988 - 2018 Til jóla fyrir dömur og herra Silkislæður, hanskar, töskur, skart, herratreflar og ilmir Eigum alltaf vinsæl bómullar- og velúrgallana í mörgum litum. Einnig stakar svartar velúrbuxur. Stærðir S-4XL u Atvinna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.