Morgunblaðið - 12.12.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.12.2018, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2018 Elma Björk Bjartmarsdóttir viðskiptafræðingur fagnar fjörutíuára afmæli sínu í dag. Hún er sérfræðingur í viðskiptastýringuhjá VÍS og sér um sölu á tryggingum og ráðgjöf til stærri fyrir- tækja. „Það er bara rosa gaman að vinna við tryggingar. Ég er búin að vera hjá VÍS í eitt og hálft ár en var þar áður fimm ár hjá Verði.“ Lífið snýst að öðru leyti mikið um fótbolta, segir Elma. „Ég á öflugan fótboltastrák sem spilar með Breiðabliki og yngri börnin mín eru líka byrjuð í boltanum svo það fer mikill tími í að sinna íþróttum barnanna. Ég reyni að vera eins virk í foreldrafélögum sem tengjast fótboltanum og skólanum hjá krökkunum og ég get og er reyndar ótrúlega góð í að koma mér í öll foreldrafélög sem hugsast getur. Elma æfði sjálf ekki fótbolta. „Ég ólst upp í Breiðholti og þar var bara voða lítill fótbolti í gangi þegar ég var að alast upp en ég var öflug í fim- leikum hjá Gerplu og æfði þar til ég varð fullorðin.“ Elma ólst upp við mikla tónlist á heimilinu en pabbi hennar er Bjartmar Guðlaugsson tón- listarmaður. Hún vildi þó ekki gera mikið úr tónlistarkunnáttu sinni, helsta afrekið var að vera rekin úr skólakór Ölduselsskóla fyrir að syngja of hátt en hún hefur þó fengið stefgjöld því hún samdi texta við eitt lag eftir föður sinn og heitir það Foreldrar og franskar. Eiginmaður Elmu er Orri Pétursson, sjómaður á Viðey hjá HB Granda. Börn þeirra eru fótboltakappinn Tristan Máni 11 ára, Sara Mist 7 ára og Styrmir Orri 5 ára. „Í tilefni dagsins reikna ég með mínum nánustu í heimsókn til mín í kvöld en við stöndum í flutningum núna svo frekari veisluhöld verða að bíða þar til eftir áramót.“ Fjölskyldan er að flytja sig nær íþróttasvæði Breiðabliks svo það eru kannski engar ýkjur að lífið snúist um fótbolta. Fjölskyldan Elma og Orri ásamt börnunum um síðustu jól. Lífið er fótbolti Elma Björk Bjartmarsdóttir er fertug í dag S veinn Magnússon fæddist í rúmi ömmu sinnar í Hafnarfirði 12.12. 1948 og ólst upp þar í bæ. Á framhaldsskólaárunum sinnti hann ýmsum störfum á sumr- in, var handlangari hjá múrara, vann á lyftara, vann við að steypa Kefla- víkurveginn og í mörg sumur var hann aðstoðarmaður við jarðlaga- rannsóknir hjá Orkustofnun. Sveinn varð stúdent frá VÍ 1969, lauk embættisprófi í læknisfræði við HÍ 1976, var kandidat í Vest- mannaeyjum, Borgarnesi, á Borgar- spítala og Landspítala, stundaði sér- nám í Uppsölum og starfaði þar samfellt til 1983 og af og til næstu árin á eftir og heilt ár 1992-93. Sveinn var síðan sérfræðingur í heimilislækningum og lyflækn- ingum í Svíþjóð og á Íslandi. Hann hóf störf við Heilsugæsluna í Garða- bæ 1983 og var þar yfirlæknir og framkvæmdastjóri nánast óslitið til 1998. Hann var héraðslæknir Reykjaneshéraðs 1991-2002, réðst að heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu 1998, síðar velferðar- ráðuneytinu, og er þar skrifstofu- stjóri, síðustu árin á skrifstofu ráðuneytisstjóra og hefur verið stað- gengill hans. Sveinn hefur starfað á Héraðsvakt höfuðborgarsvæðisins frá 1983, sem kemur m.a. að mannslátum og alvar- legum lögreglumálum, og situr í stjórn Neyðarlínunnar. Sveinn var kosinn í stjórn Alþjóða- heilbrigðisstofnunarinnar í Evrópu (WHO) 2015-2018 og sat í stjórn Evr- ópsku smitsjúkdómastofnunarinnar í Stokkhólmi 2005-2018. Hann hefur verið fulltrúi ráðuneytisins í ýmsu al- þjóðlegu samstarfi og m.a. leitt sam- starfsnefnd þess gagnvart Fær- eyjum og Grænlandi, var ráðgjafi færeyska heilbrigðisráðherrans 2016 um skipulag sjúkrahúsmála í Fær- eyjum og hefur setið í fjölda nefnda á vegum ráðuneytisins á innlendum og erlendum vettvangi. Sveinn sat í stjórn Læknafélags Íslands 1985-96, er heiðursfélagi frá 2018, var fyrsti formaður Norræna læknaráðsins 1992-94, starfaði mikið að málum heimilislækna, sat í stjórn Hjartaverndar og Krabbameins- félags Reykjavíkur og hefur beitt sér mikið á sviði tóbaksvarna. Sveinn hefur mikinn áhuga á nátt- úrufræði og jarðfræði, hefur sótt námskeið og fyrirlestra á þessum sviðum og les mikið um þessi fræði. Hann hefur áhuga á útivist, hefur Sveinn Magnússon, læknir og skrifstofustjóri – 70 ára Fjölskyldan við Stanford-háskóla árið 2016 Sonardóttirin Tinna, þá 10 ára, tók myndina og stillti hópnum upp. Lífsglaður og sprækur náttúruskoðandi Barnabörnin Tinna Marin, Brynja Kristín, Katla Kristín, Sveinn og Sölvi. Reykjavík Elías Dór Símonarson fæddist 25. mars 2018 kl. 19.00. Hann vó 3.755 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Lilja Dóra Björnsdóttir og Símon Grét- ar Rúnarsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.