Morgunblaðið - 12.12.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.12.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2018 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Svartfuglinn er styggur ogað skjóta hann er talsverðkúnst,“ segir Sævar Guð-jónsson á Mjóeyri við Eskifjörð. „Fuglinn er aðeins örfá- ar sekúndur á yfirborðinu þegar hann kemur úr kafi og á því and- artaki þarf maður að vera snöggur til og grípa í gikkinn. Að auki eru bæði fuglinn og báturinn á hreyf- ingu. Hæfi skotið fuglinn liggur hann í sjónum og þá er gott að vera á liprum bát og með langan háf. Þetta er einfaldlega mjög skemmtilegur veiðiskapur.“ Vel vopnum búnir Þrátt fyrir hryssingslegt veð- ur og éljagang í grennd lét Sævar sér ekkert fyrir brjósti brenna þegar hann fór á svartfuglsveiðar við fjórða mann nú á mánudaginn. Það var heldur ekki langt að fara; skektunni var ýtt úr flæðarmáli á Mjóeyri sem er utarlega við Eski- fjörð og þaðan brunað út á Reyð- arfjörð. Þar vissu menn af svart- fugli ekki langt frá landi svo á vísan var að róa. Með Sævari í leiðangrinum voru Eskfirðingurinn Páll Leifs- son, gamalreyndur veiðimaður, og svo tveir yngri menn; þeir Guðjón Anton Gíslason frá Eskifirði, bróð- ursonur Sævars, og ofan af Jök- uldal Ívar Karl Hafliðason. Voru þeir félagar vel vopnum búnir, með þriggja skota haglabyssur sem reyndust vel. Með fullan maga af smáloðnu „Frænka mín í Nes- kaupstað er alltaf með svartfugl um hátíðarnar og löng hefð er fyrir því að ég afli þessa í jólamat- inn fyrir hana,“ segir Sæv- ar og heldur áfram: „Við ætluðum í þessum túr að ná í að minnsta kosti tuttugu fugla, en veið- in þennan dag var margfalt betri. Svartfuglsstofninn virðist raunar vera nokkuð sterkur um þessar mundir, að minnsta kosti við norðan- og austanvert landið. Þá var fuglinn að þessu sinni líka mjög vel haldinn; feitur og maginn fullur af smáloðnu. Þó er þekkt að lundinn, sem einnig er svartfugl, hefur átt í vök að verj- ast vegna ætisskorts, þá helst við sunnanvert landið.“ Dökkrautt kjöt með sjávarbragði Svartfuglskjöt er herramanns- matur segja þeir sem þekkja. Dökkrautt kjötið er með sterku sjávarbragði og minnir helst á hvalkjöt enda þótt samanburðar í þessu samhengi sé til lítils. Fuglinn má svo verka og matbúa með því að reyta hann og svíða svo úr fæst talsverður matur eða þá að fuglinn er hamflettur og bringan tekin úr, gjarnan um tvö hundruð grömm. „Sviðinn fugl er gjarnan soðinn en bringan er fínn matur steikt á pönnu, þá kannski eftir að hafa verið í hvítlaukslegi í eins og klukkutíma. Þegar fréttist af svartfuglaveiðum hringir stundum til mín til dæmis eldra fólk og biður um, enda vant því úr æsku að þetta væri nær eina nýmetið sem bauðst stóran hluta úr vetrinum, en löng hefð er fyrir svartfuglaveiðum á Aust- fjörðum. Og hér á Mjóeyri erum við alltaf öðru hvoru með svartfugl í matinn en þó alltaf rjúpa á að- fangadagskvöld.“ Sóttu svartfugl í jólamatinn Skotin hæfðu! Sterk hefð er fyrir svartfuglsveiðum á Austfjörðum og í vik- unni fóru fjórir Eskfirð- ingar til veiða úti á firði. Kjötið af fuglinum þykir herramannsmatur, hvort sem það er soðið eða steikt á pönnu. Ljósmyndir/Sævar Guðjónsson Félagar Ívar Hafliðason, til vinstri og Páll Leifsson en fyrir aftan þá við stýrið er Guðjón Anton Gíslason. Ágætt var í sjóinn í þessari ferð, þótt hryssingslegt væri og kalt og há fjöllin við firðina í grenndinni snævi þakin. Afli Gert að eftir góða ferð. Ýmist er fuglinn reyttur og svo sviðinn ella hamflettur, bringan hirt og kryddlegið kjötið síðan steikt á pönnu. Veiðimaður Sævar Guðjónsson. Samvera fyrir syrgjendur er í kvöld, 12. desember, klukkan 20 í Háteigs- kirkju. Sr. Sveinbjörg Katrín Páls- dóttir flytur hugvekju, Hamrahlíðar- kórinn syngur undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur, þá verður minningar- stund og loks er sungið Heims um ból. Þau sem standa að þessari sam- veru eru Landspítali, þjóðkirkjan, fé- lagasamtökin Ný dögun og Ljóns- hjarta. „Fyrir marga er erfitt að horfa fram til fyrstu jóla án ástvinar. Margt breytist og það verður áþreifanlegt að einn vantar í hópinn. Að hafa tæki- færi til að fara í kirkju og fá að vera syrgjandi getur bæði verið heilandi og kvíðastillandi. Þannig getur jóla- friður ríkt þrátt fyrir sorgina. Það getur verið gagnlegt að lesa bækling- inn Jólin og sorgin á sorg.is,“ segir í tilkynningu. Háteigskirkja í kvöld Morgunblaðið/Sigurður Bogi Háteigskirkja Kennimark í borginni. Samverustund syrgjenda Skötuveisla Magnúsar Inga Magnús- sonar veitingamanns á Sjávarbarnum í Grandagarði í Reykjavík er hafin og verður fram á Þorláksmessukvöld. Á hlaðborði má finna miskæsta skötu – milda, miðlungs og sterka – kæsta tindabikkju, skötustöppu, saltfisk, siginn fisk, plokkfisk, fiskbollur, síld- arrétti, grafna löngu og sviðasultu. Meðlætið er við hæfi, eins og soðnar kartöflur, rófustappa, rúgbrauð og smjör, hamsar og sérverkaður hnoð- mör. „Hægt er að fá skötu á öllum tím- um dags en hér er opnað klukkan 11 á morgnana og ekki lokað fyrr en seint að kvöldi. Aðsóknin eykst eftir því sem nær dregur jólum og á Þorláks- messu er hér standandi traffík allan daginn. Þetta er einn skemmtilegasti tími ársins,“ segir Magnús Ingi. Sjávarbarinn á aðventu Miskæst skata Morgunblaðið/Eggert Magnús Góða veislu gjöra skal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.