Morgunblaðið - 12.12.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.12.2018, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2018 ✝ IngibjörgKristín Ólafs- dóttir fæddist 3. október 1929 á Sveinsstöðum í Lýt- ingsstaðahreppi í Skagafirði. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Lög- mannshlíð á Akur- eyri 6. desember 2018. Foreldrar henn- ar voru Guðlaug Egilsdóttir, f. 7. ágúst 1905, d. 3. maí 1982, og maður hennar, Ólafur Kristjánsson, f. 15. júní 1884, d. 15. nóvember 1958. Ingibjörg átti hálfsystur sam- feðra, Ólínu Ragnheiði, f. 20. mars 1915, d. 22. júní 2007. Ingi- björg stundaði nám við hús- mæðraskólann á Löngumýri og einnig á Laugum í Reykjadal. björgu. 2) Jón Óli, f. 28. nóv- ember 1955, giftur Sigurbjörgu Óladóttur, f. 24. september 1957. Börn þeirra eru Stefán Ólafur, f. 13. apríl 1976, Óli Þór, f. 6. október 1979, og Inga Krist- ín, f. 1. nóvember 1983. Stefán Ólafur er kvæntur Jönu Rut Friðriksdóttur, börn þeirra eru Elvar Máni, Eiður Logi, Birta sem er látin og Bríet Sara. Óli Þór er kvæntur Eydísi Hörpu Ólafsdóttur, börn þeirra eru Óli- ver Ísak, Iðunn María og Ása Þórey. Inga Kristín er í sambúð með Atla Þrastarsyni, f. 6. jan- úar 1981, börn þeirra eru Hildur Björg og Emma Guðrún. 3) Kristín María, f. 3. febrúar 1964, gift Sigurði Guðna Gunnarssyni, f. 11. desember 1951. Ingibjörg og Ólafur bjuggu allan sinn búskap á Akureyri. Ingibjörg starfaði lengst af hjá Sambandsverksmiðjunum og vann við saumaskap á Heklu. Útför Ingibjargar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 12. desember 2018, og hefst athöfn- in klukkan 10.30. Hún giftist Stefáni Ólafi Jónssyni frá Skjaldarvík í Eyja- firði og eignuðust þau þrjú börn. 1) Erna Guðlaug, f. 17. október 1954, d. 30. desember 1987. Erna og hennar maður, Sigurður Guðni Gunnarsson, f. 11. desember 1951, eignuðust tvo syni, þá Gunnar Óla, f. 2. september 1974, og Arnar Björn, f. 4. júlí 1979. Kona Gunnars Óla er Ragnheið- ur Ólafsdóttir og börn þeirra eru Erna Guðlaug og Unnur Ösp, fyrir átti Ragnheiður dótturina Tinnu Björt. Arnar Björn er í sambúð með Herdísi Ósk Baldvinsdóttur og á Herdís Ósk dótturina Emblu Ingi- Komið er komið að kveðju- stund. Það er sárt að kveðja þann sem manni þykir vænt um þegar vitað er að samverustund- irnar verða ekki fleiri. Þegar sorgin hellist yfir er gott að eiga minningar til að hugga sig við. Við erum þakklát fyrir að hafa átt mömmu sem studdi okkur alla tíð og var til staðar þegar þurfti. Mamma var góð fyrirmynd því hún vann verk sín oftar en ekki í hljóði og barst ekki á. Þeir sem henni voru samferða á lífs- leiðinni nutu þess að eiga hana að. Mamma átti trú sem var henni dýrmæt og gaf henni styrk til að takast á við erfiðleika þeg- ar á reyndi. Pabba missti hún allt of fljótt en hún stóð sterk við hlið hans þegar alzheimersjúkdómurinn fangaði hann en hann lést eftir löng og erfið veikindi þegar mamma var aðeins 61 árs. Einn- ig var það mömmu mikið áfall þegar systir okkar lést í bílslysi aðeins 33 ára gömul. En ham- ingjustundir voru líka margar í hennar lífi og naut hún lífsins sem betur fer. Það var mikið lán í hennar lífi þegar hún eignaðist vin, hann Stefán Þórisson frá Hólkoti í Reykjadal, en saman áttu þau tíu góð ár. Mamma og Stefán ferðuðust saman bæði innan lands og utan meðan heilsa þeirra leyfði. Þau nutu þess að vera saman og var vinskapur þeirra einlægur og gleðistund- irnar margar. Börn Stefáns tóku mömmu opnum örmum og ein- stök var þeirra umhyggja í henn- ar garð sem varði alla tíð. Eftir andlát Stefáns flutti mamma á hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð en þar dvaldi hún í tvö ár eða þar til yfir lauk. Í Lögmannshlíð eignaðist hún góða vini og naut umönnunar frábærs starfsfólks. Elsku mamma, minning þín mun lifa með okkur um ókomin ár. Við kveðjum þig með ljóði sem þú hafðir mikið dálæti á og þér fannst segja það sem segja þurfti. Ég veit ekki hvort þú hefur, huga þinn við það fest. Að fegursta gjöf sem þú gefur, er gjöfin sem varla sést. Ástúð í andartaki, augað sem glaðlegt hlær, hlýja í handartaki hjarta sem örar slær. Allt sem þú hugsar í hljóði heiminum breytir til. Gef þú úr sálarsjóði, sakleysi fegurð og yl. (Úlfur Ragnarsson) Kristín María og Jón Óli. Fallin er frá elskuleg tengda- móðir mín, Ingibjörg Ólafsdóttir. Okkar fyrstu kynni voru fyrir fjörutíu og fjórum árum þegar ég kynntist Ernu dóttur hennar og varð þeirrar gæfu njótandi að eignast Ingu sem tengdamóður og tengjast hennar fjölskyldu. Fjölskyldan var Ingu mikils virði og studdi hún alla eins og hún mögulega gat því allt gekk út á það að hugsa um aðra. Hún hjálpaði okkur Ernu mikið þeg- ar eldri drengurinn okkar fædd- ist, en þá vorum við að ljúka námi í Reykjavík og hefja bú- skap. Það var alltaf gott að koma til Ingu og Óla á Sólvellina og þar leið okkur vel, dekrað var við okkur á allan hátt og syn- irnir Gunnar Óli og Arnar Björn eiga þaðan góðar minningar. Fyrstu búskaparárin okkar vor- um við alltaf fyrir norðan á jól- unum og þegar við áttum frí, Sólvellirnir urðu okkar annað heimili. Þannig liðu árin en svo breyttist allt þegar Erna eig- inkonan mín lést í bílslysi langt fyrir aldur fram. Kletturinn í öll- um þessum þrengingum og sorg var Inga sem af æðruleysi hjálp- aði okkur að takast á við lífið við þessar breyttu aðstæður. Örlög- in eiga sér engin takmörk því Dídí yngri systir Ernu kom inn á heimilið til að hjálpa okkur feðgum, hún varð síðan seinni eiginkona mín og ól drengina upp sem móðir þeirra. En til marks um umhyggjusemi Ingu annaðist hún bæði móður sína og tengdaforeldra þegar elli og sjúkdómar sóttu að. Einnig veiktist Óli tengdafað- ir minn af erfiðum sjúkdómi rúmlega sextugur og annaðist Inga hann þar til yfir lauk en hann lést á sjötugasta aldursári sínu. Þannig var nú lífið hennar Ingu sem stýrði mannmörgu heimili yfir í að vera orðin ein eftir á heimilinu. Það var því okkur fjölskyldunni mikið gleði- efni þegar Inga kynnist Stefáni í Hólkoti en mjög kært var á milli þeirra og varð hann mikill vinur okkar. Þau fóru nokkrar ferðir sam- an til útlanda, ferðuðust um landið og dvöldu stundum í bú- staðnum okkar á Syðri-Reykj- um. Stefán tók alltaf með sér harmonikkuna og ef veður var gott settist hann stundum út á veröndina og spilaði fyrir ná- grannana líka. Þetta voru skemmtilegar stundir og gaman að sjá hvað þeim leið vel saman. En svo fór heilsunni að hraka með hækkandi aldri hjá þeim báðum og ekki hægt að ferðast saman eins og þau gerðu. Á hverjum degi töluðu þau saman í síma og var það partur af tilveru þeirra að vera í símasambandi. Það var því mikið áfall fyrir Ingu þegar Stefán lést og ekki lengur hægt að hringja og heyra röddina hans. Núna eru að verða tvö ár síð- an Inga flutti í hjúkrunarheim- ilið Lögmannshlíð. Þar er að- staðan til fyrirmyndar og leið Ingu vel á þessum stað. Það er ekki orðum aukið að segja að starfsfólkið er yndislegt og virki- lega vel var um hana hugsað. Elsku Inga, nú er komið að kveðjustund og ég sakna þín mikið. Ég veit að það verður vel tekið á móti þér og megi Guð geyma þig og varðveita. Sigurður Gunnarsson. Ömmu Ingu kynntist ég fyrst fyrir rúmum 20 árum þegar við Gunnar Óli fórum að vera sam- an. Á nánast hverju sumri eftir það fórum við í sumarfrí norður á Akureyri í heimsókn til henn- ar. Fyrst vorum við þrjú, síðan fjögur og í allmörg ár fimm. Æv- inlega var tekið vel á móti okkur með fullu borði af kræsingum, þar sem passað var upp á að ekki vantaði pönnukökur og mátulega soðin egg sem dætur okkar elskuðu að fá hjá lang- ömmu sinni. Við fórum m.a. í bíltúra þar sem keyrt var um Akureyri og nágrenni og alltaf var tekinn rúntur fram hjá Sólvöllunum. Hugur hennar var hjá okkur og okkar hjá henni þótt fjarlægðin á milli okkar gerði það að verk- um að við hittumst sjaldnar en við hefðum viljað. Hún átti það til að hugsa til okkar eða okkar nánustu með hjálp/hugsunum sem ná lengra en við skiljum. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég góða og trygga „ömmu“ með þakklæti fyrir góðar sam- verustundir og allt í gegnum ár- in. Ragnheiður. Þá ertu dáin amma mín eða amma Inga eins og ég kallaði þig alltaf. Ég veit að ég var þér sér- staklega kær enda annaðistu mig fyrstu mánuðina mína sem ungbarn, á meðan mamma mín var fyrir sunnan að klára námið sitt. Ég á margar minningar um þig frá barnæsku minni enda kom ég oft til þín, bæði með pabba og mömmu eða bara einn í pössun í skemmri eða lengri tíma og var ég heilu sumrin hjá þér einnig. Þú kenndir mér að vera kurteis og koma vel fram við náungann og klára matinn á disknum mínum. Ég hef svo oft hugsað til þess þegar ég er að borða að þá heyri ég rödd þína um að ekki megi henda mat. Þetta hef ég að mestu staðið við en því miður hef ég vanið mig á það að setja fullmikið á diskinn en það talaðir þú ekki um. Ég man hversu dugleg þú varst að taka til og þrífa, krjúpa úti í garði að vinna í beðunum. Ég man eftir þér með málning- arrúllu og pensil að mála íbúðina ykkar afa. Það var alltaf svo gaman að koma til þín og alltaf góðar móttökur. Börnum mínum hefur alltaf þótt gaman að koma og töluðu þær oft um pönnukök- urnar hjá þér og þér þótti svo vænt um það og passaðir upp á að hafa alltaf til pönnukökur þegar við komum til þín. Þú kenndir mér einnig um dauðann, ég man þegar Guðlaug mamma þín dó þá útskýrðir þú það fyrir mér að við andlát færi sál manns á annan stað og að mömmu þinni liði því í raun vel þrátt fyrir að hún væri dáin. Á sama hátt sýndir þú mikinn styrk og hjálp- aðir mér mikið þegar ég missti mömmu mína og þá varst þú að missa dóttur þína langt fyrir ald- ur fram. Það er mér því mikil huggun að vita það að þú ert sátt við að þinn tími er kominn og ég veit að þér líður vel. Þinn Gunnar Óli. Nú þegar við kveikjum öll jólaljósin sem færa okkur ynd- islega birtu í skammdeginu, þá hefur ljósið hennar elsku Ingu minnar slokknað. Mig langar í nokkrum orðum að minnast hennar og þess góða tíma sem við náðum að eiga samleið. Það var mikið gæfa fyr- ir pabba að finna hana og kynn- ast í einni ferðinni sem hann fór í til Gran Canaria. Með þeim tókst yndislegt vináttusamband sem þau fengu að njóta í mörg ár við góða heilsu. Það var ynd- islegt að fylgjast með þeim, pabbi heimsótti Ingu á Akureyri og dvaldi hjá henni nokkra daga í senn og framan af kom Inga líka til hans í sveitina og stopp- aði nokkra daga í einu. Þau ferð- uðust saman bæði innanlands og utan og áttu góðan tíma saman. Í allnokkur ár höfðu þau tæki- færi til að dvelja eina viku í senn í Biskupstungunum í sumarbú- stað Dídíar og Sigga og þangað heimsóttum við Binni þau gjarn- an og nutum vel. Pabbi tók gjarnan lagið á harmonikkuna og við sáum um sönginn, mikil gleði og gaman þá. Þegar þau voru á sitt hvorum staðnum var síminn óspart notaður og þau heyrðust daglega, að lágmarki tvisvar, stundum þrisvar á dag, bara svona til athuga hvort allt væri ekki í lagi þó ekki væri annað. Ég veit að það varð Ingu minni mikið áfall þegar pabbi kvaddi okkur fyrir rúmum tveimur árum og fann ég það vel hversu mikil áhrif það hafði á hana. Í lokin ætla ég að rifja upp eitt ansi skemmtilegt atvik sem átti sér stað þegar bæði Inga og Binni minn voru nýkomin inn í líf okkar pabba. Það var hjóna- ball á Breiðumýri og við vorum að sjálfsögðu boðin. Þá var þeim Ingu og Binna sagt, að þegar þau kæmu inn, þyrftu þau að ganga hring í salnum til að kynna sig fyrir sveitungunum. Þetta skapaði smáfiðring en auð- vitað vorum við bara að grínast og mikið gátum við hlegið að þessu og gaman að rifja atvikið upp. Elsku Inga mín, komið er að kveðjustund, hafðu hjartans þökk fyrir allar yndislegu sam- verustundirnar sem við áttum. Ég vil votta Jóni Óla, Dídí og allri fjölskyldunni mína innileg- ustu samúð. Blessuð sé minning yndislegr- ar konu. Aðalheiður Stefánsdóttir. Ingibjörg Kristín Ólafsdóttir Eiginmaður minn og ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ERLINGUR ÓLAFSSON, fv. verslunarstjóri ÁTVR, lést á hjartadeild Landspítalans 6. desember. Útför fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 18. desember klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð hjartadeildar LSH. Reiknnr.: 513-26-22228, kt. 640394-4479 Arnþrúður Þóranna Eiríksdóttir Hildigunnur Erlingssdóttir Einar Hjörleifsson Guðrún Björg Erlingsdóttir Ingólfur Eldjárn Hildur Erlingsdóttir Ólafur Hjalti Erlingsson Berta Björk Heiðarsdóttir Margrét Guðnadóttir Hallgrímur Arnarsson barnabörn og barnabarnabörn Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, ALMA THORARENSEN, áður til heimilis í Skildinganesi 32, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 8. desember. Útför fer fram frá Garðakirkju mánudaginn 17. desember klukkan 15. Ragnheiður Erla Bjarnad. Helga Hrefna Bjarnadóttir Stefán Örn Bjarnason Sigrún Þórarinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, FRIÐBERGUR ÞÓR LEÓSSON, Dvalarheimilinu Nausti, Þórshöfn, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn 5. desember. Hann verður jarðsunginn frá Þórshafnarkirkju laugardaginn 15. desember klukkan 11. Halldóra Friðbergsdóttir Guðmundur Ari Arason Unnar Gamalíel Guðmundsson Ari Snær Guðmundsson Leó Hrafn Guðmundsson Anna Lára Friðbergsdóttir Halldór Rúnar Stefánsson Óskar Þór Halldórsson Grétar Stefán Halldórsson Friðbergur Smári Halldórsson Sigurbergur Gunnar Halldórsson Benedikt Jósef Halldórsson og aðrir aðstandendur Áskær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, GUÐNÝ DEBÓRA ANTONSDÓTTIR frá Sólheimum, Tálknafirði, lést í faðmi fjölskyldunnar á Hrafnistu, Reykjavík, mánudaginn 10. desember. Hún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. desember klukkan 14.00. Jarðsett verður í Stóra-Laugardal, Tálknafirði. Sesselja B. Jónsdóttir Páll Eyþór Jóhannsson Guðmundur Jónsson Margrét Kristbjörnsdóttir Anton Halldór Jónsson Jóhann Jónsson Hildur Ástþórsdóttir Guðjón Jónsson Pia Söderlund Vilhjálmur Gísli Antonsson Elísabet Pálsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.