Morgunblaðið - 12.12.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2018
búðin | 1. hæð Kringlunni
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert kjarkmikil/l og sækir fast það
sem þú vilt. Gættu þess að særa samt engan
í atganginum. Líf þitt tekur nýja stefnu á
næsta ári.
20. apríl - 20. maí
Naut Maður er manns gaman og það getur
verið reglulega ánægjulegt að eyða dagstund
í góðra vina hópi. Búðu þig undir ánægju-
legan dag þar sem allt fer samkvæmt áætlun.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vertu ekki með stöðugar áhyggjur
af því hvað öðrum kann að finnast um þig. Þú
hefur jákvæð áhrif á samstarfsmenn þína
með því að sýna þeim vinsemd og umhyggju.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gefðu þér nægan tíma, því enginn ár-
angur næst með því að beita aðra þving-
unum. Nýttu tækifærið til þess að koma
miklu í verk en ekki til þess að kúga aðra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Einhverjar glæringar eru í loftinu svo þú
skalt hafa hægt um þig og segja sem minnst.
Hlustaðu í einlægni og umhyggjusemi á fólk,
alveg eins og þú vilt að aðrir hlusti á þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur engar efasemdir varðandi
markmið þín og átt því auðveldara með að fá
fólk til samstarfs við þig. Fólk er hjálplegt og
samvinnuþýtt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Láttu úrtölur vinnufélaga ekki draga úr
þér kjarkinn, þú ert á réttri leið. Í stað þess
að einblína á trén sérðu loks skóginn. Stattu
fast á þínu máli.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hafðu þá staðreynd í huga að
það er erfiðara að taka við gagnrýni en að
gagnrýna. Settu skýr mörk og vertu viss um
að aðrir velkist ekki í vafa um hvað þú mein-
ar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er eins og þú eigir eitthvað
erfitt með að einbeita þér og þess vegna fer
ýmislegt framhjá þér. Fólk er með þrjósksta
móti og því munu öll samskipti reyna á.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ný ævintýri geta birst þér ef þú
hefur kjark til þess að brjóta upp venjur
hversdagsins. Þú ert á eilífum þönum og
verður lítið úr verki þess vegna.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það mun reyna verulega á þig í
dag, en þú ert tilbúin/n í slaginn og hefur ráð
til þess að sjá fram úr erfiðleikunum. Allt sem
þú tekur þér fyrir hendur eykur tekjur þínar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú mátt alveg búast við stormi, þegar
þú ert í samstarfi við geðríkt fólk. Taktu eftir
persónunni sem glóir í návist þinni – og taktu
eitt skref í áttina til hennar.
Í ritdómi í Skírni um Ljóðmæli eft-ir þær systur Ólínu og Herdísi
Andrésdætur birtir Árni Pálsson
þessar stökur um ferskeytluna eftir
Ólínu:
Þótt sumum háum lítist lág
leið þín, ná þeir hvergi,
en standa hjá, er stiklarðu á
stuðla háu bergi.
Á ey og bala öldu falls
áttu sali kunna.
Þú ert dala dís og fjalls,
dóttir alþýðunnar.
Árni segir að þær systurnar séu
sjálfar dætur alþýðunnar og ljóða-
kver þetta ágætt dæmi þess, hve
listasmekkur og tungumenning er á
háu stigi sums staðar meðal ís-
lenskrar alþýðu. – „Mál vort ætti
ekki að vera í hættu meðan íslenskar
konur geta tekið undir með Herdísi:
Hvín í hnjúkum helfrosnum,
hrannir rjúka á firðinum;
ligg ég sjúk af leiðindum,
læt þó fjúka í kviðlingum.
Þegar frændi þeirra systra séra
Matthías dó kastaði Ólína fram þess-
ari stöku:
Gleðin smækkar, hryggðin hækkar,
hróður brást um andans völl,
skáldum fækkar, landið lækkar,
loksins sjást hér engin fjöll.“
Breiðfirskra kvenna, sem hún
þekkti í æsku sinni, minntist hún á
þessa leið:
Faldasunna sál var heið,
þær saumuðu, spunnu, stýrðu skeið,
þeim var kunnug láar leið
lögð yfir grunna svæðin breið.
Öllum stundum starfsamar,
sterkum mundum konurnar,
ýttu á sundin áramar,
öxluðu og bundu sáturnar.
Hér koma tvær stökur eftir Her-
dísi:
Það er strangra þrauta blak
þjóð ef angri slegin
er að ganga aftur á bak
endilangan veginn.
Og þessi:
Til þess hefur hugur minn
hlakkað mest um jólin
að hýrni og bláni himinninn
og hækki á lofti sólin.
Ritdómnum lýkur Árni með því að
segja, að hér séu engar hversdags-
konur á ferðinni.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Stökur eftir Ólínu og
Herdísi Andrésdætur
„SEGÐU MÉR ALLT UM HEIMSÓKN
SYSTUR ÞINNAR EINA FERÐINA ENN. ÞAÐ
AUÐVELDAR MÁLIN.”
„Ég sagÐI þér í símtalinu aÐ viÐ myndum
sjósetja nýja bátinn minn. “
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þú snertir ekki
jörðina.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
MÉR
LEIÐIST
GERUM EITTHVAÐ
SKEMMTILEGT!
ÞVÍ MIÐUR
ÉG HEF HELGAÐ
MIG LEIÐINDUM
FÉLAGAR, VIÐ LÁGUM ILLA Í ÞVÍ Í DAG …
HVAÐA LÆRDÓM MÁ DRAGA AF ÞESSU?
HÆTTUM AÐ LEITA NÝRRA
LIÐSMANNA Í MENNTASKÓLUNUM!
Allir þekkja tölvumúsina, ómiss-andi tæki til þess að þvælast
um á netinu og opna forrit og
skjöl. Notandinn færir músina og á
skjánum er bendill sem færist í
takti við hreyfingar hans.
x x x
Músin kom fyrst fram fyrirhálfri öld, var kynnt til sög-
unnar á ráðstefnu í San Francisco
9. desember 1968. Á netinu má
finna kynningarmyndskeið sem
þar var frumsýnt þar sem Douglas
Engelbart, vísindamaður við Stan-
ford-háskóla í Kaliforníu, kynnir
græjuna yfirlætislausri röddu.
Vinna við að þróa hana hafði tekið
fimm ár.
x x x
Músin hefur breyst í áranna rás.Í upphafi var kúla neðan á
henni og snúningur hennar réð för
bendilsins um skjáinn. Reglulega
þurfti að losa um kúluna og þurrka
burt kusk og ryk til þess að hún
virkaði eðlilega. Sú tækni er löngu
horfin. Ýmsir aðrir kostir eru
komnir til sögunnar til að athafna
sig í tölvum og má þar helst nefna
snertiskjáinn. En þeir hafa ekki
ýtt músinni til hliðar og enn er
hana að finna á flestum skrif-
borðum.
x x x
Þótt rúmur áratugur liði áttimúsin eftir að ryðja sér til
rúms svo um munaði. Þegar Eng-
elbart lést fyrir fimm árum sagði í
andlátsfréttum að músin hefði opn-
að almenningi dyrnar að hinum
stafræna heimi. Allt í einu urðu
flóknar skipanir, sem þurfti að slá
inn á skjáinn, sáraeinfaldar. Allt
sem þurfti var einn smellur.
x x x
Engelbart fékk aldrei neinareinkaleyfisgreiðslur fyrir upp-
finninguna þótt hún yrði mörgum
að féþúfu. Og nafngiftin? „Ég veit
ekki af hverju við kölluðum þetta
mús. Stundum biðst ég afsökunar
á því. Svona byrjaði þetta og við
breyttum því aldrei,“ segir Engel-
bart í myndskeiðinu góða, sem var
frumsýnt fyrir 50 árum.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Enginn er heilagur sem Drottinn, eng-
inn er til nema þú, enginn er klettur
sem Guð vor.
(1. Sam 2.2)