Morgunblaðið - 12.12.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.12.2018, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Biðlistar afýmsumtoga eru heilbrigðiskerfinu til vansa. Þar ber ekki síst að nefna biðlistann eftir að komast á hjúkrunar- heimili. Sá listi hefur lengst undanfarin ár. Þeim sem bíða eftir hjúkrunarrými hefur fjölgað úr 226 í 362 á síðustu fimm árum eða um 60%. Þá hefur þeim sem þurftu að bíða lengur en 90 daga eftir hjúkr- unarrými fjölgað um 35%. Þetta kemur fram í svari Svandísar Svavarsdóttur heil- brigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins, og var efni þess rakið í frétt á mbl.is í gær. Í svarinu eru bornar saman tölur frá þriðju ársfjórðungum áranna 2014 og 2018 og kemur í ljós að meðalbiðtími hefur lengst úr 91 degi í 116 daga. Á þriðja ársfjórðungi 2014 höfðu 57 af þeim 186 einstaklingum sem fengu úthlutað pláss á hjúkrunarheimili beðið lengur en 90 daga. Á sama tíma á þessu ári höfðu 77 ein- staklingar af 175 sem fengu út- hlutað rými beðið lengur en 90 daga. Í svari heilbrigðisráðherra kemur fram að hjúkrunar- rýmum á höfuðborgarsvæðinu muni fjölga um tvö hundruð á næstu tveimur árum. Þá séu í bígerð hjúkr- unarheimili víða annars staðar á landinu með alls 142 nýjum rýmum. En dug- ar það til? Það segir kannski sína sögu um þá þróun sem er að verða í þessum efnum að mikið dró úr lengd biðlista á Suðurnesjum þegar þar var opnað nýtt hjúkrunarheimili í fyrra, en nú eru þeir farnir að lengjast aftur, eins og fram kemur í svarinu. Svarið ber því vitni hvað staðan í málefnum aldraðra er erfið. Stefnan hefur verið sú að gera fólki kleift að vera heima hjá sér eins lengi og hægt er. Sú stefna er vissulega góðra gjalda verð og ljóst að flestir vilja vera heima hjá sér á með- an unnt er. Það er hins vegar ekki gott þegar sú stefna snýst upp í að halda fólki heima hjá sér þegar það er ekki lengur fært um að sjá um sig. Þá bend- ir ýmislegt til þess að nálar- augað til að komast inn á bið- listana sé svo þröngt að þörfin fyrir hjúkrunarrými sé meiri en lengd þeirra segir til um. Það má líklega einnig geta sér þess til að þegar nafn loks kemst á biðlista sé þörfin orðin verulega brýn. Biðlistar lengjast og biðtíminn líka}Of fá hjúkrunarrými HæstirétturSpánar til- kynnti í gær eftir langa bið að hann hygðist taka fyrir mál 18 leiðtoga aðskilnaðarhreyf- ingarinnar í Katalóníu. Þeir hafa verið sakaðir um að hafa hvatt til uppreisnar í landinu. Forvígismennirnir 18 hafa mátt dúsa í fangelsi í rúm- lega 420 daga, án þess að nokkuð hafi verið gefið upp um það hvort eða hvenær réttað yrði í málum þeirra. Sjálf réttarhöldin eiga ekki að hefjast fyrr en í janúar. Þessi framganga öll hefur verið með miklum ólíkindum, og til þess fallin að auka stuðning við málstað aðskiln- aðarsinna í Katalóníu, sem hefur farið sífellt vaxandi á síðustu árum. Mannréttinda- samtök hafa vakið sérstaka athygli á máli tveggja hinna fangelsuðu, Jordi Sanchez, sem áður var forseti kata- lónska héraðsþingsins, og Jordi Cuixart, forstöðumanns Omnium, sérstakra menning- arsamtaka Katalóníuhéraðs. Málið á hendur þeim bygg- ist á því, að þeir hafi hvatt til uppreisnar gegn ríkinu með því að boða til mótmæla- fundar í sept- ember í fyrra, sem var að mestu leyti friðsamlegur. Munu þeir jafnvel hafa aðstoðað lög- regluna við að blása af mótmælin áður en þau breyttust í eitthvað ann- að og verra. Laun Spánar eru hins vegar vanþakklæti, og „Jordarnir tveir“ eins og þeir hafa verið nefndir eru nú orðnir að nokkurs konar písl- arvottum meðal aðskilnaðar- hreyfingarinnar í Katalóníu. Héraðið er nú á suðupunkti og spænsk stjórnvöld hótuðu í gær að senda þangað ríkis- lögreglulið sitt eftir að mót- mælendur höfðu ítrekað lokað vegum. Ekki er ólíklegt að enn hitni í kolunum þegar réttarhöldin hefjast og dómur fellur, enda framganga spænskra stjórnvalda vægast sagt aðfinnsluverð. Og allt gerist þetta innan Evrópu- sambandsins sem kvartar undan mannréttindabrotum í fjarlægum löndum og er mjög gagnrýnið á ríkisvaldið í ríkj- um austast í sambandinu, en sér ekkert athugavert við umgengni spænskra yfirvalda við réttarríki og mannrétt- indi. Evrópusambandið sér ekkert athuga- vert við mannrétt- indabrot á Spáni} Katalónía á suðupunkti B lásið hefur verið til sóknar í uppbyggingu hjúkrunarrýma. Ný hjúkrunarheimili í Hafnar- firði og á Seltjarnarnesi verða tekin í notkun snemma á næsta ári og framkvæmdir við byggingu hjúkr- unarheimilis í Árborg og við Sléttuveg í Reykjavík eru komnar vel á veg. Með þess- um framkvæmdum fjölgar hjúkrunarrým- um um tæp 200 innan tveggja ára. Að auki eru á áætlun og í undirbúningi uppbygging hjúkrunarheimila í Stykkis- hólmi, á Höfn í Hornafirði, Húsavík, Reykjanesbæ, Mosfellsbæ og á Akureyri sem munu leiða til fjölgunar um 180 hjúkr- unarrými á næstu fjórum árum. Í fjár- málaáætlun fyrir árin 2019-2023 kemur fram áætlun um enn frekari fjölgun hjúkr- unarrýma eða heildarfjölgun um alls 550 hjúkr- unarrými á landinu öllu á tímabilinu. Á næstu vikum mun Landspítalinn taka við rekstri nýs sjúkrahótels sem áætlað er að verði opnað 1. mars nk. Tilkoma sjúkrahótelsins er mikilvæg viðbót við heilbrigðisþjónustu hér á landi ekki síst fyrir þá sem búsettir eru utan höfuðborgarssvæðisins og þurfa að sækja læknisþjónustu af landsbyggðinni. Þá mun Landspítalinn geta gert ráð fyrir sjúkrahótelinu í heildarskipulagi sínu og má ætla að í einhverjum til- fellum geti fólk lokið sjúkralegu sinni á sjúkrahótelinu í stað þess að dvelja inni á deildum spítalans. Í fréttum undanfarna viku hefur verið fjallað um fráflæðisvanda á Landspítal- anum. Hluta þess vanda má rekja til þess að ekki hefur verið hægt að útskrifa fólk af spítalanum vegna skorts á hjúkrunar- rýmum. Þá er ljóst að sá mönnunarvandi sem glímt er við í hjúkrun hefur veruleg áhrif enda ekki hægt að nýta öll legurými ef ekki fást hjúkrunarfræðingar og sjúkra- liðar til starfa. Fjölgun hjúkrunarrýma og tilkoma sjúkrahótels mun til skamms tíma hafa áhrif og létta álagi á Landspítalanum. En ég bind ekki síður vonir við að hægt verði að bregðast hratt og örugglega við mönn- unarvanda í hjúkrun. Á vettvangi velferðarráðuneyt- isins hafa verið skoðaðar tillögur að aðgerðum til að bregðast við stöðunni. Í því samhengi er m.a. horft til starfskjara svo sem launa, vaktafyrirkomulags, starfsumhverfis og starfsþróunarmöguleika til að stuðla að því að starfsfólk í hjúkrun upplifi samhljóm í ábyrgð og vinnuálagi annars vegar og launakjörum hins vegar. Svandís Svavarsdóttir Pistill Sókn í uppbyggingu hjúkrunarrýma Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Síðustu fjögur ár hafa veriðtiltölulega róleg. Þetta erualls 18 tjónsatburðir á þeimárum en innan hvers at- burðar eru allt frá einu og upp í 56 tjón. Við reynum að nýta okkur þessa tíma, sem við köllum friðar- tíma, til að búa okkur tæknilega undir stóra atburði,“ segir Hulda Ragnheiður Árnadóttir, fram- kvæmdastjóri Náttúruhamfara- tryggingar Íslands (NTÍ), áður Við- lagatryggingar Íslands. Í ársskýrslu NTÍ fyrir 2017 má sjá að alls bárust 42 tilkynningar vegna sex minniháttar atburða sem urðu á árinu og falla undir trygg- ingavernd VTÍ. Þessir atburðir voru til að mynda vatnsflóð í Steinavötn- um, vatns- og aurflóð á Austfjörð- um, vatnsflóð á Austur- og Suður- landi í september þar sem mikið tjón varð á brúnni yfir Steinavötn og jarðskjálfti í Flóahreppi en reyndar þóttu tvær tilkynningar um tjón af hans völdum ekki bóta- skyldar. Athygli vekur að enn eru að berast tilkynningar um tjón af völdum Suðurlandsskjálftans í maí árið 2008. Tíu ára fyrningafrestur vegna tjóna af völdum Suðurlands- skjálftans rennur endanlega út um áramótin. Alls leiddu 37 tjónstilkynningar til greiðslu tjónabóta á árinu 2017. Heildarfjárhæð útborgaðra tjóna á árinu nam 197,5 milljónum króna. Stærsta einstaka tjónið varð á brúnni yfir Steinavötn en hún var ekki talin viðgerðarhæf. Hálfur milljarður á ári Í skýrslunni kemur fram að endurtryggingarsamningar ársins 2017 eru við 25 erlend endurtrygg- ingarfélög í tveimur samningum. Ið- gjöld og tjónabætur skiptast í sam- ræmi við aðild að samningnum. Annar samningurinn er fyrir tjón á bilinu 10-25 milljarða og hinn fyrir tjón yfir 25 milljörðum, allt að 40 milljörðum. Ennfremur segir að fyrri endurtryggingasamningur hafi virkað þannig að ef eldgosa- atburður hefði orðið sem myndi kosta 6 milljarða og jarðskjálfti sem myndi kosta 13 milljarða hefði NTÍ borið kostnað upp á 16 milljarða og endurtryggjendur 3 milljarða. Nú- verandi endurtryggingarvernd sé hinsvegar þannig að NTÍ myndi bera 10 milljarða og endurtryggj- endur 9 milljarða. Þó að óvissa fylgi slíkum útreikningum megi búast við stærri en 10 milljarða atburði, af völdum jarðskjálfta, að meðaltali á 70-80 ára fresti, stærri en 25 millj- arða á um 230 ára fresti og stærri en 40 milljarða á 340 ára fresti. Sam- kvæmt lögum sé bótaábyrgð í ein- stökum atburði takmörkuð við 1% af samanlögðum vátryggingarfjár- hæðum. Það jafngildi um 116 millj- örðum króna miðað við vátrygging- arfjárhæðir í gildi í árslok 2017. „Við kaupum endurtryggingar fyrir um hálfan milljarð á ári. Verðið til endurtryggjenda er mjög næmt fyrir markaðsaðstæðum og breyt- ingum á þeirri áhættu sem liggur fyrir. Við verðum því að hafa mjög góðar upplýsingar um áhættuna hverju sinni, á því byggist iðgjaldið okkar,“ segir Hulda Ragnheiður en síðustu ár hefur starfsumhverfi hjá NTÍ verið bætt til muna. „Við höfum fært okkur yf- ir í nútímalegri upplýsinga- tækni og það hefur tekist að búa okkur tæknilega undir stóra atburði. Hér er stöðugt verið að vinna þarfagreiningu fyrir upplýsingakerfin. Þannig bætum við þjónustu, höldum yfirsýn og tryggj- um flæði upplýs- inga á hverjum tíma.“ Búa sig tæknilega undir stærri hamfarir Í ágúst 2018 nam verðmæti vá- tryggðra húseigna, lausafjár og mannvirkja hjá Viðlagatrygg- ingu Íslands samtals 12.028 milljörðum króna, eða 12 billj- ónum, samkvæmt upplýsingum frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Þar af eru fasteignir um 73%, innbú og lausafé nema um 19,5% og veitur og önnur mannvirki um 7,5%. Sér- stök áhersla hefur verið lögð á það að auka tryggingar á inn- viðum, svo sem fráveitukerf- um, síðustu ár. Aukning verð- mæta á milli áranna 2016 og 2017 nam 4,2%, sam- anborið við 6% aukn- ingu á milli áranna á undan. Árleg iðgjöld af vá- tryggðum fasteignum og lausafé eru 0,25 prómill af vátryggingarfjárhæð. Árleg iðgjöld af vá- tryggðum opinberum mannvirkjum er aftur á móti 0,20 prómill. Rúmar 12 billjónir MIKIL VERÐMÆTI TRYGGÐ Hulda Ragnheiður Árnadóttir Morgunblaðið/Eggert Tjón Brúin yfir Steinavötn skemmdist í vatnavöxtum síðla árs 2017.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.