Morgunblaðið - 12.12.2018, Side 21

Morgunblaðið - 12.12.2018, Side 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2018 GEFÐUGJÖF SEM GEFUR Þegar þú gefur L‘OCCITANE gjöf, gefurðu gersemar Provence; grípandi hlýjuna, hreinleika náttúrunnar og töfrandi fegurð. Í öllu sem við gerum leggjum við áherslu á að styðja við fólk og vernda líffræðilegan fjölbreytileika náttúrunnar. Kringlan 4-12 | s. 577-7040 Óumdeilt er að kjör þeirra aldraðra sem minnst hafa handa á milli eru í engu sam- ræmi við almenn lífs- kjör í landinu. Ellilíf- eyrir hefur dregist jafnt og þétt aftur úr launum og samkvæmt frumvarpi á grunnlíf- eyrir almannatrygg- inga einungis að hækka um 3,4% á næsta ári og ömurlegri ríkisstjórn í lófa lagið hvenær á árinu það verður. Það þýðir að laun til ein- staklinga hækka um ca. 7-8 þúsund á mánuði. Ætli þeir kumpánar Halldór Benjamín hjá SA og Bjarni fjár- málaráðherra myndu sætta sig við minna en 34% hækkun á sínar millj- ónir á mánuði. Þess má hér geta að að ellilífeyrisþegi fær minna í laun samanlagt á heilu ári en sagt er að laun Halldórs Benjamíns séu á mán- uði og það sem verra er að Katrín forsætisrápherra leggur blessun sína yfir svívirðuna. Það nær auðvitað ekki nokkurri átt að í öllu góðærinu og uppganginum í þessu landi skuli ellilífeyrisþegar deyja drottni sínum vegna lélegs aðbúnaðar og að hafa skrimt undir fátækramörkum í ell- inni í boði Bjarna fjármálaráðherra og Katrínar forsætisráðherra. Það er enginn af þessu gamla fólki að biðja um neitt ríkidæmi aðeins að fá að lifa lífinu lifandi það, sem eftir er. Það tekur enginn sér í munn lengur orða tiltækið „Búum öldruðum áhyggju- laust ævikvöld.“ Ummæli Katrínar Fyrir um einu ári, eða í tíð Bene- dikts Jóhannssonar þá fjármála- ráðherra, skrifaði Katrín pistil í Fréttablaðið þar, sem hún segir m.a.: „En við eigum fátækt fólk í öllum aldurshópum, þar nægir að horfa á tölur um lægstu laun, örorkubætur og ellilífeyri og bera þær saman við framfærsluviðmið velferðarráðu- neytisins, þar sést ber- lega að af þessum lægstu greiðslum er vandlifað.“ Og seinna í sömu grein: „Fátækt er blettur á ríku sam- félagi eins og Íslandi. Stjórnvöld ættu að hafa skýra sýn og að- gerðaáætlun um út- rýmingu hennar og vera reiðubúin að sækja þá fjármuni, sem til þarf að styrkja vel- ferðarkerfið og bótakerfið, við vitum öll að þeir eru til. Ég hef óskað eftir sérstakri umræðu á vettvangi þings- ins við fjármálaráðherra og hvað hann hyggst gera í þessum efnum. Um þetta ættu allir stjórnmála- flokkar að geta sameinast.“ Svo mörg voru þau orð þá, árið 2017 þeg- ar Katrín var í stjórnarandstöðu en ekkert hefur komið út úr stóru orð- unum. En nú er þessi sama Katrín orðin forsætisráðherra og í lófa lagið að gera gangskör að því að standa við stóru orðin og útrýma fátækt svo t.d. ellilífeyrisþegar og öryrkjar geti far- ið að lifa mannsæmandi lífi. Nú er lag, Katrín forsætisráðherra, og láttu nú ekki herma það upp á þig að þú sért bara ómerkileg bullkerling og ekkert sé að marka sem þú segir og engar viðbárur þó ég þykist vita að lítilmennið Bjarni fjármálaráð- herra verði þér óþægur ljár í þúfu. Stattu þig nú svo þú standir undir nafni og titli. Þeir Engeyjarfrændur eru engin lömb að leika við, ómerki- legir báðir tveir. Krafa ellilífeyrisþega er 330 þús- und kr. á mánuði skattfrjálst því það er hægt. Skömm og svívirða Eftir Hjörleif Hallgríms Hjörleifur Hallgríms »Krafa ellilífeyris- þega er 330 þúsund kr. á mánuði skatt- frjálst, því það er hægt. Höfundur er eldri borgari á Akureyri. an fyrir valinu á teiknara sú að teiknistíllinn féll textahöfundi vel í geð. Myndir og texti geta fallið sam- an í heild sem lyftir verkinu í æðra veldi. Þess vegna er svo nauðsyn- legt að textahöfundum sem ekki eru sjálfir sérstaklega myndfróðir sé veitt traust leiðsögn. Það er nefnilega hægt að hafa fagþekk- ingu á myndum. Þar kemur margt fleira til en smekkur – og er reynd- ar að litlu leyti háð smekk. Góður myndaritstjóri velur saman myndir og texta sem, svo algeng myndlík- ing sé notuð, eru á sömu blaðsíðu. Þannig hefði myndaritstjóri átt að hjálpa textahöfundi Láru-bókanna að skoða hvort ekki mætti endur- spegla hversdagsraunsæið í mynd- unum. Þeir sem lítið vita um mynd- ir falla oft í þá gryfju að velja það sem algengast er í umhverfinu. Myndskreytingarnar í þessum bókaflokki eru einmitt þannig: skil- getin afkvæmi iðnaðar-teikni- mynda og annarrar fjölda- framleiddrar barnavöru. Lára litla býr ekki á Íslandi í dag – hún býr í sýndarveröld alþjóðlegs barnaiðn- aðar. Nú, en vilja börnin ekki einmitt það sem þau þekkja best? Ekki endilega – ef aðrir valkostir eru fyrir hendi. Börn sem alast upp við fjölbreytni í myndgerð verða vand- fýsnari á myndir, alveg eins og þau sem hafa aðgang að góðum textum fara að velja þá. Fjölbreytni er góð í fæðuvali, um það hljóta allir að vera sammála. Ekki gefum við börnunum okkar sykurpúða eða sleikjó í kvöldmatinn, það er hætt við að þau fái leiða á slíku fæði og þrífist illa. Bækur sem skilja lítið eftir sig eru kannski skaðlitlar, nema að því leyti að þær taka upp pláss og tíma. Tíminn til lestrar er takmörkuð auðlind og um að gera að nýta hann sem best með lestri og skoðun áhugaverðra og fallegra bóka sem vekja umhugsun, þroska fegurðarskyn og innsæi. Sú tegund myndefnis sem mest er áberandi í fjölþjóðlegu skemmtiefni er hönn- uð fyrir stóran markað. Myndirnar mega ekki bera menningarbundin sérkenni, þær þurfa að vera litrík- ar og auðmeltar og falla að gild- andi staðalmyndum. Þær eru yf- irborðslegar og sýna engin merki um frumleika eða leit að listrænum lausnum. Þannig er stór hluti þess myndefnis sem að börnunum er rétt í formi teiknimynda, auglýs- inga, skreytinga á fötum og leik- föngum, en líka í formi bókaskreyt- inga. Staðalmyndir sem haldið er að börnum smjúga djúpt inn í meðvit- und þeirra og verða jafnvel sterk- ari en upplifun þeirra af flóknum veruleikanum. Staðalmyndir ganga oft aftur í myndgerð barnanna sjálfra, rétt eins og þegar flest börn teikna hús með hallandi þaki og krossgluggum en búa fæst í þannig húsi sjálf. Staðalmyndir skipta máli. Þær skapa viðmið. Það skiptir máli þegar börn sjá daginn inn og út bleikar prinsessur með einhyrninga annars vegar og hressa fótboltastráka hins vegar. Það skiptir máli þegar „hjúkkan“ lítur út eins og Nurse Barbie. Hún er svona í bókinni minni – þá er hún þannig. Og þegar ég er orðin stór, þá ætla ég að vera svona sæt hjúkrunarkona og hjálpa lækn- inum. Ég get augljóslega ekki orð- ið læknir, þeir eru gamlir kallar með skegg … Í Láru-bókunum, eins og í stórum hluta myndefnis fyrir börn, eru barnsleg útlitseinkenni ýkt þannig að höfuð og augu eru í yfir- stærð. Þetta er einkenni á ungviði bæði mannkyns og annarra dýra- tegunda og kallar fram verndandi tilfinningu. En þessi stærðar- hlutföll sjást líka oft hjá full- orðnum kvenpersónum á myndum og í formi leikfanga. Þær eru með stór höfuð, risastór augu, grannar axlir og ofurgranna líkama. Það þarf augljóslega að passa þær! Karlkyns persónur eru oft í eðli- legri hlutföllum hvað höfuð og augu snertir, en þá eru axlir gjarn- an ýktar. Þeir eru sterkir, traustir. Ég hvet lesendur til að skoða til dæmis prinsessur og prinsa úr Disney-verksmiðjunni með þetta í huga. Litavalið er líka hluti af stað- alímyndunum; ljósir, mildir litir fyrir konur og stelpur, dekkri litir fyrir karla og stráka. Myndbygging og línuflæði endurtekur stefið: mjúkar línur og hringform fyrir kvenkynið, hvassar skálínur fyrir karlkynið. Mýkt og eftirgjöf er sýnd kvenlæg, kraftur og áræði karllægt. Þetta er innræt- ing um eðli kynjanna sem læðist inn með myndum og tekur sér bú- setu í vitund barnsins – og hefur ef til vill dýpri áhrif en nokkur orð. Það er semsagt tvennt sem þarf að skoða í myndum ekki síður en í texta: ekki bara hvað er sýnt og sagt heldur líka hvernig. Til þess að við nýtum nú okkar örsmáa bókamarkað til þess að gefa út bækur sem skilja meira eftir sig heldur en sykurfrauð á laugardegi, þá hvet ég útgefendur til að vanda sig betur við myndaritstjórnina … eða kannski einfaldlega að taka upp faglega myndaritstjórn. Og við sem kaupum bækur handa börn- unum megum líka hugsa okkur um við valið. Því myndir skipta máli. Höfundur er rithöfundur. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.