Morgunblaðið - 12.12.2018, Side 25

Morgunblaðið - 12.12.2018, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2018 25 Smáauglýsingar Bækur Bækurnar að vestan slá í gegn! Hvaða nýju bækur skyldu þetta nú vera? Brautryðjendur fyrir vestan, Að fortíð skal hyggja, Fiskur að handan, 100 Vestfirskar gamansögur 2, Vest- firðingar til sjós og lands 2, Bolvíska blótið, Þar minnast fjöll og firðir. Og ótal margar fleiri. Alveg gomma! Þú ættir að skella þér inn á vestfirska.is. Þar sérðu Vestfjarðabækurnar í hnot- skurn. Fást í bókaverslunum um land allt. Upp með Vestfirði! Vestfirska forlagið jons@snerpa.is 456 8181 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu LOK Á POTTA HEITIRPOTTAR.IS HÖFÐABAKKA 1 SÍMI 777 2000 ÝmislegtBílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald Hreinsa þakrennur, fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Bækur til sölu Adventures og Huckleberry Finn 1884, 1. útg., Fornmannasögur 1-12 1825, (J.V.Havsteen), Árbækur Espolin, 1. - 12. 1821, 1. útg., Fréttir frá Íslandi 1871- 1890, Egilssaga 1809, Íslenskt málsháttarsafn, F.J. 1920, Almanak Þjóðvinafélagsins 1875-2006, Hvítir hrafnar, Þ. Þ. Lítil varningsbók, Jón Sigurðs- son, 1861, Íslenskt fuglatal, Dýrafræði, Steinafræði, Bene- dikt Grödndal, Brandsstaða- annáll, Tölvísi, Björn Gunnlaugs- son, 1865, Vesturfaraskrá, Föðurtún, Saga hraunhverfis á Eyrabakka. Upplýsingar í síma 898 9475. Raðauglýsingar Raðauglýsingar Nauðungarsala Auglýsing um álagningu vanrækslugjalds á árinu 2019 Sýslumaðurinn á Vestfjörðum Álagning vanrækslugjalds á eigendur (umráðamenn) þeirra ökutækja sem skráð eru í ökutækjaskrá hérlendis og ekki hafa verið færð til aðalskoðunar frá og með 1. október 2018 hefst 3. janúar 2019. Álagning gjaldsins byggir á 37. og 38. gr. reglu- gerðar nr. 8/2009 um skoðun ökutækja með síðari breytingum, sbr. 67. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum. Miðast álagning gjaldsins, með þeim undantekningum sem greinir hér að neðan, við endastaf á skráningarmerki ökutækis og leggst það á sem hér segir: • 3. janúar vegna ökutækja með 0 sem endastaf og færa átti til skoðunar í október 2018. • 2. apríl vegna ökutækja með 1 sem endastaf. • 1. maí vegna ökutækja með 2 sem endastaf. • 1. júní vegna ökutækja með 3 í endastaf. • 2. júlí vegna ökutækja með 4 í endastaf. • 1. ágúst vegna ökutækja með 5 í endastaf. • 1. september vegna ökutækja með 6 í endastaf. • 1. október vegna ökutækja með 7 í endastaf. • 1. nóvember vegna ökutækja með 8 í endastaf. • 3. desember vegna ökutækja með 9 í endastaf. • 1. ágúst vegna ökutækja með einkamerki sem ekki enda á tölustaf. • 1. október vegna fornbifreiða, húsbifreiða, bifhjóla, þar með talin fornbifhjól og létt bifhjól, hjólhýsa (fellihýsa) og tjaldvagna, sbr. 7. gr. reglugerðar um skoðun ökutækja. Vanrækslugjald leggst á vegna þeirra ökutækja sem ekki hafa verið færð til endurskoðunar, sbr. 13. gr. reglugerðar um skoðun ökutækja, þegar liðinn er mánuður frá lokum þess mánaðar er ökutækið skyldi fært til endurskoðunar samkvæmt ákvörðun skoðunarmanns. Leggst gjaldið á samkvæmt þessu þá daga sem að ofan greinir, en mánuðina febrúar og mars leggst það á sem hér segir: • 1. febrúar vegna ökutækja sem færð voru til skoðunar í nóvember 2018. • 1. mars vegna ökutækja sem færð voru til skoðunar í desember 2018. Tveimur mánuðum eftir álagningu vanrækslugjalds hefst innheimta þess hafi ökutækið ekki verið fært til skoðunar eða það skráð úr umferð og gjaldið greitt innan þess tíma. Ísafirði, 11. desember 2018. Sýslumaðurinn á Vestfjörðum. Tilkynningar Kjósarhreppur auglýsir afgreiðslu sveitarstjórnar samkvæmt 2. mgr. 32 gr. skipulagslaga nr: 123/2010 á Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2017-2029. Aðalskipulagstillagan var samþykkt í sveitarstjórn Kjósarhrepps þ. 04.12 2018 . Áður hafði verið brugðist við athugasemdum og ábendingum Skipulagsstofnunar. Í framhaldi af því er óskað eftir að Skipulagsstofnun staðfesti tillöguna og auglýsi í B-deild Stjórnartíðinda. Aðalskipulagstillagan var auglýst frá 31 maí 2018 með athugasemdafresti til 14 júlí 2018. Alls bárust 28 athugasemdir og 12 umsagnir á umsagnartímanum og tekið hefur verið tillit til þeirra og þeim svarað. Við afgreiðslu á athugasemdum þótti ekki ástæða til breyta í neinum meginatriðum samþykktri aðalskipulagstillögu og voru viðbrögð sveitarstjórnar við þeim samþykkt 02.10 2018. Jón Eiríkur Guðmundsson Skipulags- og byggingarfulltrúi Kjósarhrepps. Aðalskipulag Kjósarhrepps 2017-2029 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 - Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Foreldramorgnar kl. 9.30-11.30. ALLIR VELKOMNIR. Söngstund kl. 13.45. Kaffi kl. 14.30-15. Bókaspjall með Hrafni kl. 15. Góðir gestir koma í dag, rithöfundarnir Sverrir Jakobsson og Guðrún Eva Mínervudóttir lesa úr nýjum bókum sínum og Hr. Guðni Th. forseti vor kíkir í kaffi og spjall. ALLIR VEL- KOMNIR. Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl.12 og léttur hádegisverður á eftir fyrir þá sem það kjósa. Opið hús í safnaðarheimili kirkjunnar kl.13 til 16 þar sem heimspekingurinn, myndlistarmaðurinn og rit- höfundurinn Ragnar Helgi Ólafsson mun lesa upp úr nýútkominni bók sinni sem ber heitið Bókasafn föður míns. Allir hjartanlega velkomnir. Árskógum 4 Opin smíðastofa kl. 9-16. Handavinna með leiðb. kl. 9- 16. Bridge kl. 12.30. Jólasöngstund með nikkuspili kl. 14-15. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffsala kl. 15-15.45. Allir velkomnir. Sími 535 2700. Boðinn Jólasund kl. 13.30. Handavinnustofa opin frá kl. 9- 15. Leshópur kl. 15. Bólstaðarhlíð 43 Yngingar yoga kl. 9-9.50, allir velkomnir. Opin handverksstofa kl. 9-16. Bíómyndin síðasti bærinn í dalnum og Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg kl. 11. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Boccia kl. 10.40-11.20. Bónusrútan kemur kl. 14.40. Leshópur kl. 13. Opið kaffihús kl. 14.30. Friðar- og nágrannaboð fyrir hælisleitendur kl. 17-19. Bústaðakirkja Jólastund eldriborgarastarfsins verður í dag kl. 13.30, og hefst með stund í kirkjunni og hátíðarkaffi á eftir, heitt súkkulaði og kruðerí. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Starfsfólk Bústaðakirkju. Dalbraut 18-20 Verslunarferð í Bónus kl.14.40. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband kl. 9-13. Postulín kl. 9-12. Bókband kl. 13-17. Frjáls spilamennska kl. 13-16.30. Myndlist kl. 13.30.- 16.30. Dansleikur með Vitatorgsbandinu kl. 14-15. Ath. skráning sten- dur yfir í Jólaljósaferð til Reykjanesbæjar sem verður fimmtudaginn 13. des kl. 15.40. Verð 4000 kr. Innilfalið er rúta og kvöldverður á Kænunni í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar í síma 411 9450. Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. kl. 7.30/15. Kvennaleikf. Sjál. kl. 9.30. Liðstyrkur. Sjál. kl. 10.15. Kvennaleikf. Ásg. kl. 11.30. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl. 13. Gjábakki Kl. 9, handavinna, kl. 9, Boccia, opinn tími, kl. 9.30 glerlist, kl. 13 Félagsvist, kl. 13 postulínsmálun. Guðríðarkirkja Félagsstarf eldri borgara jólasamvera í dag kl. 13.10. Helgistund í kirkjunni, jólasálmar sungnir. Síðan verður farið í saf- naðarheimili og spjallað og drukkið heitt súkkulaði með rjóma og meðlæti kr. 500.- Þetta er síðasta samveran á þessu ári. Hlökkum til að sjá ykkur. Gullsmári Myndlist kl 9. Postulínsmálun/Kvennabridge/Silfursmíði kl 13. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Útskurður með leiðbeinanda, kl. 9-12, 500kr skiptið, allir velkomnir. Opin handavinna kl. 9-14. Hádegismatur kl. 11.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9, útvarpsleikfimi kl. 9.45, zumba og leikfimi með Carynu kl. 10 og hádegismatur kl. 11.30. Handavinna kl. 13, liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50. Við byrjum daginn við hringborðið, kaffi á boðstólum. Skreytum jólagreinar, hressum upp á gamlar jólaskreytingar sem fólk kemur með. Ljóða - og upplestrar- hópur Soffíu kl. 9.45-11.45, línudans kl. 10-11. Núvitundarstund 10.40, hádegismatur kl. 11.30. tálgun með Valdóri kl. 13-16. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir. Nánari upp. í s. 411 2790. Korpúlfar Ganga kl. 10 frá Borgum og inni í Egilshöll. Aðventufundur Korpúlfa kl. 13 í dag, hefst kl. 12.30 með því að skólahljómsveit Graf- arvogs spilar jólalög til kl. 13. Síðan hefst hátíðardagskrá með jólahugvekju, jólasögu, jólaguðspjalli, jólasöngvum og jóladansi. Þá mun hljómsveitin Piparkorn flytja okkur sanna jólastemmingu með söng og gleði. Súkkulaði með rjóma og smákökur í lok fundar. Neskirkja Krossgötur kl. 13. Samvera á aðventu. Söngur, sögur og súkkulaði. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleik- fimi 2. hæð kl. 9.45, lesið upp úr blöðum kl. 10.15, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, bókmenntahópur kl. 11, félagsvist kl. 14, bónusbíllinn kl. 14.40. Uppl. í síma 411 2760. Seltjarnarnes Gler og glerbræðsla neðri hæð félagsh. við Suður- strönd kl. 9. og 13. Leir, Skólabraut kl. 9. Botsía, Skólabraut kl 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timbur- menn, Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna, Skólabraut kl. 13. Vatnsleik- fimi í sundlauginni kl. 18.40. Munið ferð í Listasafnið á morgun fimm- tudag og Jólin koma. Farið frá Skólabraut kl. 13.30. Allir velkomnir. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13. Bóka- bíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 – 15.00. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568 2586. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Göngu-hrólfar ganga frá Ásgarði, Stangarhyl 4, kl. 10. Söngfélag FEB, kóræfing kl. 16.30 stjórnandi Gylfi Gunnarsson. Félagslíf Samkoma kl. 20 í Kristniboðssalnum. Ræðumaður Kristján Þór Sverrisson. Jólasöngvar. Allir velkomnir. Fundir/Mannfagnaðir Vörður fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík Jólagleði Varðar Nú fer óðum að styttast í hátíðirnar og af því tilefni býður Vörður–fulltrúaráð sjálfstæðis- félaganna í Reykjavík til jólagleði á morgunn fimmtudaginn 13. desember, í Valhöll frá klukkan 18 til 20. Eyþór L. Arnalds, oddviti borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins, verður heiðursgestur. Bjarni Karlsson, sjálfstætt starfandi prestur, flytur jólahugvekju. Ásdís Halla Bragadóttir les upp úr nýjustu bókinni sinni, Hornauga. Léttar veitingar og fljótandi veigar í boði. Allir velkomnir. Með jólakveðju, stjórn Varðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.