Morgunblaðið - 12.12.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.12.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2018 Snorrabraut 56, 105 Reykjavík Sími 588 0488 | feldur.is BÁRA 5.900 BÖRKUR 7.600 GOLA 16.800 MÓA 11.500 STEINN 38.200 KELDA 23.800 EIR úlpa 158.000 Jólagjafir sem ylja Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Þegar við Dóra vorum 10 og 11 ára barnaþrælar á fjölum Þjóðleikhússins að leika allar helgar í Óvitum sem er barnaleikrit um heimilisofbeldi og af- leiðingar þess þá spurðist sú frétt út innan leikhópsins að verið væri að sýna bíómynd í Háskólabíói þar sem börn lékju fullorðna alveg eins og í Óvitum. Þá fjölmenntum við barnaleikhópurinn á Bugsy Malone og sáum þar Jodie Foster á sama reki og við leika vændis- konu að nafni Talúlah. „My name is Talulah,“ söng hún seiðandi … Og nú þessum 40 árum seinna renna slóð- irnar saman og Jodie vill vera memm … Mér finnst satt að segja eng- in betur til þess fallin en Jodie Foster að leika fjallkonuna Höllu hennar Hall- dóru. Ég get tekið hattinn ofan fyrir öllu því sem hún hefur staðið fyrir. Hún er baráttukona og um leið íkon. Og við í föruneyti Konunnar sem fór í stríð erum blessuð af þessari samfylgd. Og ferðin er ekki á enda runnin.“ Þannig sagði leikstjórinn Benedikt Erlingsson frá á Facebook skömmu eftir að frétt fór um netið þess efnis að bandaríska leikkonan og leikstjórinn Jodie Foster hygðist endurgera kvik- mynd hans Kona fer í stríð. Endurgerðin mun heita Woman at War, sama nafni og kvikmynd Bene- dikts gengur undir á ensku. Halldóra Geirharðsdóttir fer með aðalhlutverkið í Kona fer í stríð, hlutverk Höllu sem grípur til þess ráðs að vinna skemmd- arverk til að vernda náttúruna. „Já, ég er alveg sammála því“ „Þetta er bara búið að vera í ferli, hófst með herferð okkar eftir að Ísland tilnefndi kvikmyndina sem framlag til Óskarsverðlauna, þá sýndum við aka- demíumeðlimum hana og m.a. Jodie Foster. Það eru líka ákveðin persónu- leg tengsl milli Jodie og fólks í mínu teymi. Þannig að Jodie kom á fyrstu sýninguna sem ég var viðstaddur og við töluðum saman þá strax,“ segir Benedikt þegar hann er spurður að því hvenær legið hafi fyrir að hin marg- verðlaunaða leikkona og leikstjóri vildi endurgera kvikmyndina hans. – Þá hefur strax verið ljóst að hún hefði áhuga á að endurgera hana? „Já, ég meira að segja stakk upp á því sjálfur, sagði að ef einhverjum myndi detta í hug að endurgera myndina þætti mér hún best til þess fallin að leika Höllu. Þá sagði Jodie: „Já, ég er alveg sammála því.“ Þannig að það fór ekkert á milli mála.“ Íslensk kvikmyndagerð á flugi Benedikt minnir á að íslensk kvik- myndagerð sé að ná miklu flugi og það sé meðal annars hægt að meta út frá endurgerðum. Á annan veg hafi verið endurgerð og einnig verið samið um endurgerðir Undir trénu og Hrúta. „Munurinn er að við gerum samn- inginn strax við stjörnuna sem ætlar að leika í myndinni og leikstýra henni og hún er íkon. Þannig að við erum komin nokkur skref áfram. Stundum tekur þetta tíma, að finna sér stjörnu og leikstjóra þannig að þetta er gífur- lega ánægjulegt. Líkurnar eru alla vega miklar á því að þetta verði gert,“ segir Benedikt. – Þá ætti í raun ekki að líða það langur tími þar til tökur hefjast? „Nei, og það er hægt að segja við þá íslensku áhorfendur sem treystu sér ekki til að sjá myndina í kvikmynda- húsum að núna geti þeir alla vega séð endurgerðina í íslenskum kvikmynda- húsum, upp á amerísku.“ – Heldurðu að aðsókn muni aukast að myndinni erlendis í kjölfar frétta af bandarísku endurgerðinni? „Jú, jú, en það sem skiptir mestu máli er að þetta vekur athygli á mynd- inni í þessum Óskarsslag, líkurnar aukast kannski á því að akademíumeð- limir sjái og kjósi hana. En Óskars- slagurinn er eins og amerískur fót- bolti, menn þurfa vöðvaafl og að þrýsta sér yfir línu eftir línu. Fagur- fræðin er ekki alltaf það sem ræður úrslitum í þessum slag, þannig er þessi tilnefningaslagur.“ Amerískur vagn Benedikt er spurður að því hversu nákvæmlega Foster þurfi að fylgja handriti þeirra Ólafs Egils Egilssonar. „Við erum með einhverjar grunnfor- sendur þar en í grunninn vil ég bara að Jodie sé höfundur þessarar amerísku myndar. Ég vil ekkert blanda mér í það, hún mun þýða myndina yfir á am- erísku, ameríska menningu og aðstæð- ur og það sem ég er þakklátur fyrir er að „mission“ þessarar myndar hefur fengið nýjan vagn, inn í ameríska áhorfendur, það veitir ekki af.“ Kona fer í stríð hefur sópað að sér verðlaunum frá því hún var frumsýnd í vor og segir Benedikt að verðlaunin séu nú orðin fleiri en Hross í oss, fyrsta kvikmynd hans, hlaut á sínum tíma. „Ég er kominn upp í 22 eða 24 verðlaun og þar með er ég kominn yfir Hross í oss sem ég held að hafi fengið 21 verð- laun,“ segir Benedikt. Talið berst að lokum að því hvaða leikarar aðrir gætu mögulega leikið í endurgerðinni, ef af gerð hennar verður. „Menn geta t.d. fabúlerað um hvaða stjarna muni leika Jóa Sig,“ segir Benedikt og á þar við Jóhann Sigurðarson sem leikur bónda í Kona fer í stríð. „Sumir eru að veðja á Clint Eastwood,“ segir Benedikt kím- inn. Þá þurfi einnig að finna leikara í sama hlutverk og Jörundur Ragnars- son fer með. Blaðamaður nefnir Ryan Gosling og Benedikt líst vel á það val. – Tom Cruise fær ekki að vera með? „Nei en Mel Gibson gæti fengið að vera með af því að hann er góður vinur hennar.“ Ameríska fjallkonan Foster  Jodie Foster „vill vera memm“ og endurgera kvikmynd Benedikts Erlingssonar, Kona fer í stríð  Benedikt nefndi við Foster að honum þætti hún best í aðalhlutverkið væri kvikmyndin endurgerð AFP Kjarnakona Jodie Foster mun framleiða, leikstýra og leika í endurgerðinni á Kona fer í stríð. Ljósmynd/Pierre Caudevelle/57e Semaine de la Critique Öflug Halldóra Geirharðsdóttir og Benedikt Erlingsson í Cannes í maí á þessu ári. Kona fer í stríð hlaut þar SACD-verðlaunin á Critic’s Week, hliðarhátíð kvikmyndahátíðarinnar virtu sem haldin er í bænum árlega. Kraumsverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í gær en þeim og úr- valslista verðlaunanna, Kraumslist- anum, er ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita með því að verðlauna og vekja sérstaka athygli á þeim verkum sem þykja skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika, eins og segir á vef verðlaunanna. Þar segir einnig að þau snúist ekki um eina ákveðna verðlaunaplötu heldur að beina kast- ljósinu að Kraumslistanum í heild og þeim sex hljómplötum sem ár hvert hljóta Kraumsverðlaunin. Plöturnar sex sem verðlaunin hljóta í ár eru JÆJA með Bagdad Brothers; plata Auðar, Afsakanir; plata Kælunnar Miklu, Nótt eftir Nótt; Hvað ef með GDRN, Pottþétt Elli Grill, plata Ella Grill, og plata ROHT, Iðnsamfélagið og framtíð þess. Verðlaunahafar komu saman á Bryggjunni brugghúsi úti á Granda í gær þar sem verðlaunin voru kynnt og afhent og gerðu sér glaðan dag, auk þess sem boðið var upp á tónlist- aratriði. Morgunblaðið/Hari Gleði Verðlaunahafar samankomnir á Bryggjunni brugghúsi í gær. Sex plötur hlutu Kraumsverðlaunin Halldóra Geirharðsdóttir er hæst- ánægð með að Jodie Foster skuli ætla að feta í fótspor hennar og fara með sama hlutverk og hún fer með í Kona fer í stríð, hlutverk kór- stjórans, baráttukonunnar og að- gerðasinnans Höllu. „Bara geggjað. Það hlýtur að vera hrós fyrir mig,“ segir hún þegar hún er spurð hvernig þetta leggist í hana. „Þá hlýt ég að hafa gert söguna hans Benna þannig að Jodie Foster langi að gera hana líka.“ – Heldurðu að hún reyni að líkja eftir þér? „Nei, ég hugsa að hún reyni að gera þetta betur, hún hlýtur að hugsa það, annars væri hún ekki stórkostlegur listamaður og hún er stórkostlegur listamaður. Þannig að hún hlýtur að sjá möguleika í því að gera söguna stærri. Hún er nátt- úrlega með meira fjármagn og sér líka að sagan á erindi. Ég held að þetta sé rulla sem hentar henni frá- bærlega, af því þessi persóna er frekar róleg en samt með rosaleg- an vilja. Það er einbeittur brotavilji í aðalhetjunni.“ – Ég heyri að þú ert hrifin af henni sem leikkonu. „Jodie? Já, hún er algjör negla. Ég er rosa fegin að hún er að gera þetta,“ svarar Halldóra. „Þegar ég las þetta handrit hugsaði ég með mér að einhver amerísk stórstjarna ætti eftir að kaupa það af því það eru ekki til svona flottar rullur fyrir leikkonur á mínum aldri, sterkar leikkonur sem eru komnar með það mikla reynslu að þær vilja bera heila mynd. Það er erfitt fyrir þess- ar stjörnur að fá almennileg hlut- verk og ég er svo glöð að það er Jo- die Foster sem stökk á þetta en ekki einhver sem þarf að setja kvenleikann í forgrunn en ekki sög- una. Jodie Foster stendur alltaf fyr- ir það sem hún er að gera en ekki það sem hún lítur út fyrir að vera.“ „Hún er algjör negla“ HALLDÓRA FAGNAR ENDURGERÐ JODIE FOSTER

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.