Morgunblaðið - 12.12.2018, Qupperneq 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2018
Dauðinn og súrefni komavið sögu strax í byrjunKrossfiska, áhugaverðr-ar og mjög vel skrifaðrar
skáldsögu Jónasar Reynis Gunnars-
sonar. Hvort tveggja er til umræðu á
fyrstu síðum bókarinnar, í þeim
hluta sem nefnist „Martraðir“ en þar
segir af draumi sögumannsins Daní-
els, þar sem hann lendir á kafi í snjó-
flóði og í stað þess að hjálpa honum
upp úr snjónum fara bekkjarsystkini
hans að moka of-
an á hann. Og
súrefni, eða
skortur á þeim
nauðsynlega líf-
gjafa, kemur aft-
ur við sögu í lok
bókar þegar
höfundurinn lok-
ar sögunni vel og
faglega. Það er
eftir furðulegt
ferðalag um síður bókarinnar, þar
sem Daníel er sem svefngengill í líf-
inu og ferðast líka um draumheima
nærri dauðanum, að hann gerir sér
grein fyrir því að lífið er ólýsanleg
tilfinning: „Lífið var ekki eitthvað
sem hægt var að rekja, láta sig
dreyma um eða skrifa niður í ævi-
sögu. Það var bara ein tilfinning,
sem innihélt allt.“ Og þá tekur hann
ákvörðun, eða lætur loksins vaða –
hvort sem er þá borgar sig ekki að
upplýsa neitt um það en látið nægja
að segja að sögunni, og í raun
hringnum, er afar vel lokað.
Krossfiskar er fjórða bókin sem
Jónas Reynir sendir frá sér á tveim-
ur árum. Í fyrra komu tvær fínar
ljóðabækur – fyrir aðra hlaut hann
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guð-
mundssonar – og einnig skáldsagan
Millilending. Allar hlutu mikið lof og
það verðskuldað. Það er því ekki
lengur hægt að kalla Jónas Reyni
efnilegan því hann er þegar einn at-
hyglisverðasti höfundur sinnar kyn-
slóðar – og ekki missir hann damp-
inn hér í sinni annarri skáldsögu.
Sögupersónan Daníel er algjört
dauðyfli sem lætur sig reka gegnum
lífið, afstöðu- og ábyrgðarlaus, og
treystir sér vart til að vera í sam-
bandi við annað fólk. Hann hættir til
að mynda í hverju ástarsambandinu
á fætur öðru, segir: „Alltaf þegar ég
byrja með stelpu líður mér eins og
ég hafi platað hana. Það er þetta
með að hlutir hætti að skipta máli.“
Hann hafði unnið sem fyrirsæta en
flosnað upp úr því og þegar sagan
hefst er hann hættur í námi, býr í
íbúð móður sinnar og nær sér í leigu-
greiðslur með því að stunda smá-
vægilegt tryggingasvindl, sem er
tilviljanakennt, eins og annað í lífi
hans. Og hann er meðvitaður um
hvað líf hans er marklaust, eins og
sést þegar hann segir að sú „hug-
mynd að byrja að drekka kaffi var
líklega það merkilegasta í lífi mínu í
langan tíma“.
Líf Daníels tekur að breytast þeg-
ar gamall skólabróðir, sem Daníel
man ekkert eftir, hefur samband og
er með ósveigjanlegar kröfur auk al-
varlegra ásakana. Lesandinn kynn-
ist líka fyrrverandi skólasystur
Daníels sem og einni af unnust-
unum; þær taka höndum saman um
að fá hann til að taka sig á og fyrir
tilstilli þeirra og eins konar prests
lendir Daníel óumbeðið í furðulegum
aðstæðum, og lesandinn hverfur
með honum inn í heim furðudrauma,
sem hafa þó alltaf textalegar teng-
ingar inn í þann heim raunveruleik-
ans sem lesandinn hefur þegar
kynnst.
Við lestur Krossfiska þykist þessi
lesandi sjá ýmiskonar áhrif, til að
mynda frá stíl Gyrðis Elíassonar og
ekki síður heimi sagna hans (hring-
laga formið og tveir heimar sög-
unnar minna á meistaraverkið
Gangandi íkorna Gyrðis), og æði
ólíkur höfundur, Murakami, kom
einnig upp í hugann. Þá má til að
mynda heyra í draumaköflum bók-
arinnar athyglisverðan enduróm
þeirra heima sem höfundurinn skóp
í ljóðabókum sínum. Og þessi verk
og áhrif speglast bara með fallegum
hætti í formgerð og söguheimi, enda
eiga öll góð listaverk í einhvers kon-
ar samtali við önnur.
Hvernig sem á það er litið er
Krossfiskar vel skrifað og athyglis-
vert verk. Það eru mörg lög í þessari
sögu, hún er fyndin og nöturleg í
senn og persónusköpunin vel lukk-
uð. Það teygist nokkuð á draum-
heimum í seinni hlutanum en í lokin
er frásögnin tekin traustum tökum
og siglt af öryggi í höfn, til móts við
krossfiskana.
Morgunblaðið/Golli
Höfundurinn „Hvernig sem á það er litið er Krossfiskar vel skrifað og at-
hyglisvert verk,“ segir rýnir um skáldsögu Jónasar Reynis Gunnarssonar.
Lífið var ekki eitthvað
sem hægt var að rekja
Skáldsaga
Krossfiskar bbbbm
Eftir Jónas Reyni Gunnarsson.
Partus, 2018. Innb., 188 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Árlegir tónleikar „Diddúar og drengjanna“ verða í Mos-
fellskirkju í Mosfellsdal í kvöld, miðvikudagskvöld, og
hefjast klukkan 20. Þar kemur sópransöngkonan Diddú –
Sigrún Hjálmtýsdóttir – fram ásamt sex blásurum en það
eru þeir Sigurður I. Snorrason og Kjartan Óskarsson á
klarínett, Brjánn Ingason og Björn Th. Árnason á fagott
og hornleikararnir Emil Friðfinnsson og Þorkell Jóelsson.
Hópurinn hefur nú haldið þessa árlegu tónleika í rúm
tuttugu ár, að sögn Diddúar, í dýrlegu umhverfi og hafi
tónleikagestir ætíð haldið heim að tónleikum loknum end-
urnærðir og tilbúnir að fagna hátíð jólanna. Efnisskráin á
tónleikunum er fjölbreytileg, hátíðleg lög og þekkt, íslensk
og erlend jólalög og þá er boðið upp á fjöldasöng sem ætíð
nýtur vinsælda.
Þar sem ekki er mikið til útsett fyrir þessa samsetningu
tónlistarmanna, sópran og blásara, hafa tveir „drengj-
anna“, klarínettuleikararnir Kjartan og Sigurður, útsett
alla tónlistina sem þau hafa flutt undanfarin rúm 20 ár.
Hafa sum laganna aldrei áður hljómað á tónleikum hér á
landi.
Morgunblaðið/Eggert
Diddú og drengirnir koma fram
Elly (Stóra sviðið)
Fim 13/12 kl. 20:00 181. s Sun 30/12 kl. 15:00 aukas. Lau 5/1 kl. 20:00 187. s
Lau 15/12 kl. 20:00 182. s Sun 30/12 kl. 20:00 aukas. Lau 12/1 kl. 20:00 188. s
Sun 16/12 kl. 20:00 183. s Fös 4/1 kl. 20:00 186. s Sun 13/1 kl. 20:00 189. s
Stjarna er fædd.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fös 14/12 kl. 20:00 24. s Sun 30/12 kl. 20:00 25. s Fös 4/1 kl. 20:00 26. s
Gleðileikur um depurð.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Lau 12/1 kl. 20:00 17. s
Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Sun 30/12 kl. 20:00 14. s Fös 18/1 kl. 20:00 aukas.
Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Fös 4/1 kl. 20:00 aukas. Lau 19/1 kl. 20:00 20. s
Fim 20/12 kl. 20:00 aukas. Lau 5/1 kl. 20:00 aukas. Fös 25/1 kl. 20:00 24. s
Fös 21/12 kl. 20:00 aukas. Sun 6/1 kl. 20:00 15. s Lau 26/1 kl. 20:00 25. s
Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Fös 11/1 kl. 20:00 16. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Tvískinnungur (Litla sviðið)
Sun 16/12 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðasta sýning!
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 15/12 kl. 13:00 7. s Lau 22/12 kl. 13:00 9. s
Sun 16/12 kl. 13:00 8. s Lau 22/12 kl. 15:00 aukas.
Aðeins sýnt á aðventunni.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Lau 29/12 kl. 20:00 Frums. Sun 6/1 kl. 20:00 3. s Fös 11/1 kl. 20:00 5. s
Fim 3/1 kl. 20:00 2. s Fim 10/1 kl. 20:00 4. s Mið 16/1 kl. 20:00 6. s
Ég, tveggja stafa heimsveldi
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 14/12 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðasta sýning!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s
Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s
Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s
Lífið er ekki nógu ávanabindandi
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn
Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn
Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn
Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn
Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn
Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn
Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas.
Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn
Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn
Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Mið 26/12 kl. 19:30 Frums Fös 11/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn
Fim 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 12/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn
Fös 28/12 kl. 19:30 3.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn
Lau 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn
Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 13.sýn
Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn
Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Lau 16/3 kl. 15:00
Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn
Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Sun 16/12 kl. 11:00 334.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s
Fös 14/12 kl. 19:00 330.s Sun 16/12 kl. 13:00 335.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s
Lau 15/12 kl. 11:00 331.s Sun 16/12 kl. 14:30 336.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s
Lau 15/12 kl. 13:00 332.s Lau 22/12 kl. 11:00 337.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s
Lau 15/12 kl. 14:30 333.s Lau 22/12 kl. 13:00 338.s
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
Insomnia (Kassinn)
Lau 12/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn
Brandarinn sem aldrei deyr
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 12/12 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Lifandi tónlist mbl.is/tonleikar