Morgunblaðið - 15.12.2018, Síða 1
Saga
er sjón
ríkari
Fór óvart íuppistand
Í stað þess að leggjast í depurðtók Valdimar Sverrissonákvörðun um að takast á viðnýtt líf með jákvæðnina oghúmorinn að vopni enhann missti sjónina íkjölfar aðgerðar, þar semgóðkynja æxli var fjarlægtúr höfði hans. Og prófahluti sem hann hafði aldreiþorað að gera áður, svosem söng og uppistand. 14
16. DESEMBER 2018SUNNUDAGUR
Býr spark ekkií myrkrinu?
Ebba
gama
segja
þjáist
jólast
og ho
Lemo
um jó
Koma andlegaveikir knatt-spyrnumennað luktumdyrum? 18
Sig. hefurn af því aðsögur. Húnekki afressi
rfir á
nade
lin. 2
Kattholt biðurfólk að fá sér ekkikött í skyndi 4
Margirleita aðloðnum
félaga
L A U G A R D A G U R 1 5. D E S E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 295. tölublað 106. árgangur
Pottaskefill kemur í kvöld
9
jolamjolk.is
dagar
til jóla
OF STÓR Í
SNIÐUM FYRIR
ÞJÓÐ Í HAFTI
LJÚF OG GÓÐ
STELPA ÚR
TRÖLLAHEIMI
SKÁLDSAGA UM RÍPU 40JÓN GUNNARSSON 41
WOW air áfram íslenskt
Grunnleiðakerfið helst óbreytt þrátt fyrir fækkun flugvéla úr 20 í 11 Formað-
ur FHG telur að ferðamönnum gæti fækkað um 20% takist fjármögnun ekki
allt að 9,3 milljarða í WOW, getur
aldrei orðið meirihlutaeigandi að fé-
laginu þar sem reglugerð Evrópu-
þingsins og Evrópuráðsins kveður á
um að evrópskir aðilar verði að eiga
meira en helmingshlut í félögum sem
rekin eru á grundvelli flugrekstrar-
leyfis sem veitt er innan Evrópska
efnahagssvæðisins
Samkvæmt tilkynningu á vef
WOW er fjárfesting Indigo háð ýms-
um skilyrðum, eins og niðurstöðu
áreiðanleikakönnunar sem ekki er
lokið, og samþykki skuldabréfaeig-
enda WOW air um skilmálabreyting-
ar bréfanna.
Ferðamönnun fækkað um 20%
Grunnleiðakerfi WOW helst
óbreytt, samkvæmt upplýsingum frá
félaginu, en vélum félagsins hefur
verið fækkað úr 20 í 11.
Kristófer Oliversson, formaður
FHG – fyrirtækja í hótel- og gisti-
þjónustu, telur að fari svo að WOW
takist ekki að sækja fjármögnun,
gæti ferðamönnum fækkað um 20%
á næsta ári.
Baldur Arnarson
Pétur Hreinsson
WOW air mun áfram starfa á grund-
velli íslensks flugrekstrarleyfis, að
sögn Svanhvítar Friðriksdóttur upp-
lýsingafulltrúa félagsins. Á meðan
svo er er ljóst að bandaríska fjárfest-
ingarfélagið Indigo Partners, sem í
gær var sagt ætla að fjárfesta fyrir MGrunnleiðakerfi WOW ... »10
Jólaljósin spegluðust í regnvotum götum höf-
uðborgarinnar þegar myndin var tekin. Veður
stofan spáir því að í dag verði skúrir víða um
landið en samfelld rigning um landið suðvestan-
vert fram undir hádegi. Þurrt verður að mestu
fyrir norðan.
Morgunblaðið/Hari
Jólaljósin
lýsa upp
skammdegið
„Þetta er stærsta uppgjör þjóðar-
innar í ofbeldismálum gegn börn-
um,“ segir Guðrún Ögmundsdóttir,
tengiliður vistheimila.
Í lokaskýrslu um framkvæmd á
greiðslu sanngirnisbóta fyrir mis-
gjörðir á stofnunum og heimilum
fyrir börn kemur fram að alls hafa
verið greiddar sanngirnisbætur til
1.162 einstaklinga. Nema bóta-
greiðslurnar um þremur milljörðum
króna. Ekki liggur fyrir hve margir
dvöldu á þessum stofnunum en
skýrsluhöfundar segja að ætla megi
að það hafi verið um fimm þúsund
einstaklingar.
„Þetta er búið að vera gríðarlega
þungt og flókið verkefni. Leiðar-
ljósin hjá mér hafa alltaf verið auð-
mýkt, sanngirni og skilningur sem
maður þarf til að mæta þessu fólki,“
segir Guðrún í samtali við Morgun-
blaðið. Í skýrslunni kemur fram að
hjá tengilið eru skráð um 3.500
símtöl og 1.500 tölvupóstar vegna
samskipta við umsækjendur. Eins
komu flestir þeirra í viðtal til Guð-
rúnar. „Það segir sig sjálft að það
var oft erfitt. Þetta var allt mjög
þungbært. Í aðstæðum sem þessum
er gott að vera vanur og að geta
faðmað fólk.“ »4
Þungt og
flókið
verkefni
Þrír milljarðar í
sanngirnisbætur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skýrsla Niðurstaða um sanngirnis-
bætur var kynnt í gær.
Þegar Valdimar Sverrisson ljós-
myndari missti sjónina eftir að góð-
kynja æxli var fjarlægt úr höfði
hans árið 2015 ákvað hann að mæta
nýjum áskorunum í lífinu með já-
kvæðni og húmor að vopni í stað
þess að leggjast í depurð. Strax í
endurhæfingunni, þar sem hann
þurfti meðal annars að læra að
ganga á ný, fór hann að velta fyrir
sér hvaða stefnu hann gæti tekið.
„Frá því að ég var unglingur
hafði mig langað til að vera með
uppistand. Lét þó aldrei slag
standa; í fyrsta lagi þorði ég ekki að
standa fyrir framan allt þetta fólk
og í annan stað fannst mér ég ekki
vera með nægilega gott efni. Það
var ekki fyrr en á Grensási sem ég
fór að leiða hugann að þessu fyrir
alvöru. Hugsaði með mér: Ég sé
ekki fólkið lengur og þarf fyrir vik-
ið ekki að hafa áhyggjur af þeim
þætti málsins. Eins fannst mér ég
vera kominn með býsna gott efni
sem að mestu leyti tengdist sjálfum
mér og veikindum mínum. Svartur
húmor, gæti einhver sagt, en það
var einmitt það sem hjálpaði mér
mest að stíga þessa öldu,“ segir
hann í Sunnudagsblaðinu.
Nú hefur Valdimar troðið víða
upp og einnig sungið opinberlega,
sem flögraði aldrei að honum áður.
Morgunblaðið/Hari
Hvergi banginn Valdimar Sverrisson hefur valið að hugsa frekar um kosti
en galla þess að vera blindur. Hann er með uppistand og syngur fyrir fólk.
Missti sjónina og varð uppistandari
Valdimar Sverrisson lætur
drauminn rætast eftir erfið veikindi