Morgunblaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Bókaútgáfan fær viðspyrnu
Frumvarp um stuðning við útgáfu íslenskra bóka hlaut þverpólitískan stuðning
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Alþingi samþykkti í gær frumvarp
um stuðning við útgáfu bóka á ís-
lensku með 52 atkvæðum, þrír voru á
móti. Þar með er búið að koma á fót
stuðningskerfi sem heimilar endur-
greiðslu 25% beins kostnaðar vegna
útgáfu bóka á íslensku. Lögin taka
gildi frá og með 1. janúar 2019.
Í tilkynningu frá mennta- og
menningarmálaráðuneytinu er vitn-
að í Lilju Alfreðsdóttur, ráðherra,
sem lýsir gleði sinni yfir samstöð-
unni sem skapaðist um þessa tíma-
mótaaðgerð. „Við
viljum efla útgáfu
á íslensku vegna
menningarlegs
mikilvægis bóka-
útgáfu fyrir þró-
un tungumálsins
okkar og þetta
skref er hið fyrsta
í heildstæðum að-
gerðum okkar til
stuðnings ís-
lenskunni,“ er haft eftir Lilju. Hún
kveðst vera viss um að þetta muni
marka þáttaskil fyrir íslenskar bæk-
ur og hafa jákvæða keðjuverkun í för
með sér, til hagsbóta fyrir lesendur,
rithöfunda og alla þá sem koma að
útgáfu hér á landi.
„Ég held að þetta sé einn mesti
stuðningur ríkisins við bókaútgáfu í
landinu sem sögur fara af,“ sagði
Heiðar Ingi Svansson, formaður Fé-
lags íslenskra bókaútgefenda. „Þetta
er risastórt mál fyrir okkur. Félag
íslenskra bókaútgefenda hefur lengi
barist fyrir afnámi virðisaukaskatts
af bókum og öðrum stuðningi við út-
gáfu íslenskra bóka. Í þessu máli
kristallast vilji stjórnvalda og viður-
kenning á því hlutverki sem bókaút-
gáfa gegnir í landinu.“
Heiðar Ingi sagði að sá stuðningur
sem nú er lögfestur yrði mjög mik-
ilvæg viðspyrna fyrir íslenska bóka-
útgefendur og gerði þeim kleift að
sækja fram í stað þess að hopa. Þá
sagði hann að breið þverpólitísk
samstaða um málið væri mjög mik-
ilvæg.
Gert er ráð fyrir að framlag vegna
endurgreiðslna verði um 400 millj-
ónir króna á ári frá og með næsta ári.
Bókaútgefendur þurfa að sækja um
endurgreiðslur vegna útgáfu bóka.
Heiðar Ingi sagði eftir að útfæra
reglugerð og tíminn mundi leiða í
ljós hvaða áhrif stuðningurinn hefði.
Heiðar Ingi
Svansson
Guðrún Ögmundsdóttir, formaður
trúnaðarnefndar Samfylkingarinnar,
líkaði við Facebook-færslu Ágústs
Ólafs Ágústssonar, þingmanns Sam-
fylkingarinnar, þar sem hann greindi
frá því að hann hefði ákveðið að taka
sér launalaust leyfi eftir að hafa verið
áminntur af trúnaðarnefndinni, með
því að setja við hana hjarta.
Guðrún sagði í samtali að um
ósjálfráð mannleg viðbrögð hefði ver-
ið að ræða. „Ætli ég hafi ekki bara
brugðist við með mennskunni og vilj-
að óska honum góðs gengis í sínu,“
sagði Guðrún.
Hún sagðist sjá það núna, að það
hefði ekki verið viðeigandi fyrir hana,
sem formann nefndarinnar, að sýna
slík viðbrögð við færslunni. Þetta
hefði verið gert í hvatvísi.
Í umræddri færslu greindi Ágúst
Ólafur frá því að hann hefði verið í
óviðeigandi í samskiptum við konu
sem hann hefði hitt í miðbæ Reykja-
víkur og farið með á vinnustað henn-
ar. Sagðist hann meðal annars hafa
reynt að kyssa konuna en hún ýtt
honum frá sér. Hann hefði brugðist
við með særandi ummælum.
Konan sendi síðar frá sér yfirlýs-
ingu því Ágúst Ólafur hefði gert
minna úr málinu en tilefni væri til.
Ekki hefði verið um misheppnaða við-
reynslu að ræða heldur ítrekaða
áreitni og niðurlægingu.
„Mér þykir vænt um Ágúst Ólaf,“
sagði Guðmundur Andri Thorsson,
varaformaður þingflokks Samfylk-
ingarinnar, aðspurður hvers vegna
hann hefði einnig sett hjarta við
færslu Ágústs Ólafs.
Líkaði við færslu Ágústs
Ólafs með hvatvísu hjarta
Formaður trúnaðarnefndar brást við með mennskunni
Guðrún
Ögmundsdóttir
Ágúst Ólafur
Ágústsson
Kjaramálin voru
helsta umræðu-
efni reglulegs for-
mannafundar
Starfsgreina-
sambandsins
(SGS) í gær, að
sögn Björns Snæ-
björnssonar, for-
manns.
„Í þessari viku
höfum við verið að
taka stöðuna um hvernig viðræður
við Samtök atvinnulífsins (SA) hafa
gengið. Það var fundur í samninga-
nefndinni á þriðjudaginn var. Svo
fóru menn heim í félögin og könnuðu
hvernig fólkinu litist á stöðuna. Við
höfum verið að skoða vinnutímamál
og eins hefur verið rætt um hvort
vísa eigi viðræðunum til ríkissátta-
semjara fyrir jól eða ekki,“ sagði
Björn. Hann sagði að fundurinn í
gær hefði samþykkt að vísa deilunni
ekki til sáttasemjara fyrir jól, sjö fé-
lög vildu vísa en ellefu félög vildu
það ekki. Björn sagði að staðan yrði
skoðuð aftur strax eftir áramótin.
Hann sagði að ágætis viðræður
hefðu verið í hópum hinna ýmsu
starfsgreina og í undirhópum. Það
væri þó ekkert enn í hendi. „Ef ekk-
ert gengur í viðræðunum upp úr ára-
mótum er ljóst að deilunni verður
vísað til ríkissáttasemjara. Verði
þeir fundir árangurslausir þarf að
fara í aðgerðir,“ sagði Björn. For-
mannafundurinn í gær kaus að-
gerðanefnd sem mun skipuleggja
aðgerðir fyrir SGS. „Við erum að
undirbúa aðgerðir ef við þurfum á
þeim að halda,“ sagði Björn.
gudni@mbl.is
SGS
undirbýr
aðgerðir
Björn
Snæbjörnsson
Vísa ekki til sátta-
semjara fyrir jól
„Ég labba ofan úr Helgafelli eldsnemma á
morgnana og tek strætó númer 44 í Áslandinu í
Hafnarfirði,“ sagði Hurðaskellir. Hann hefur
verið fastur gestur í strætó á aðventunni allt frá
2009 og kætt farþegana með nærveru sinni.
Hurðaskellir færir sig á milli vagna allan dag-
inn og hefur gaman af að skoða höfuðborg-
arsvæðið. Farþegarnir taka honum mjög vel.
„Túristastelpa var svo glöð að sjá mig í dag að
hún hoppaði upp í fangið á mér og var yfir sig
kát. Ferðamennirnir eru mjög glaðir að sjá mig.
Ég fer venjulega heim um kvöldmat og þá er
Grýla búin að elda eitthvað gott,“ sagði Hurða-
skellir. Dagurinn er ekki þar með búinn því það
þarf að gefa í skó þægra barna langt fram á nótt.
Allir gleðjast við að sjá jólasveininn
Morgunblaðið/Eggert
Hurðaskellir ferðast vítt og breitt með strætó alla daga til jóla
Konu af Norðurlandi dreymdi vinn-
ingstölurnar í Víkingalottói og
voru hún og eiginmaður hennar
lukkuleg þegar þau komu með
vinningsmiðann frá 28. nóvember á
skrifstofu Íslenskrar getspár. Unnu
þau rúmar þrjár milljónir í þriðja
vinning.
„Frúna dreymdi tölurnar, dreif
sig á næsta sölustað og keypti 2
raðir í Víkingalottó fyrir aðeins 200
krónur,“ segir í frétt frá Íslenskri
getspá. Vinningurinn komi sér vel
því hjónin hafi verið farin að huga
að því að endurnýja fjölskyldu-
bílinn.
Dreymdi tölurnar
í Víkingalottóinu