Morgunblaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018 Jens Garðar Helgason, formaðurSamtaka fyrirtækja í sjávar- útvegi, ræddi á dögunum við 200 mílur um sjávarútvegsmál og sagði: „Þeir sem starfa í sjávarútvegi eru vanir því að eiga við náttúruöflin og samkeppni á erlendum mörkuðum, en það er í raun ótrú- legt að okkar helsta áskorun sem atvinnu- greinar sé pólitísk óvissa og óstöðug- leiki. Nánast á hverju ári hefur greinin mátt sitja undir óvissu um hvernig ríkið ætlar að skattleggja greinina.“    Þetta er sannarlegaótrúlegt og ekki síður það sem einnig bar á góma í viðtalinu, en það voru sjónarmið sem Logi Einarsson, formaður Sam- fylkingarinnar, hefur haft um sjáv- arútveg.    Í umræðum um sjávarútveg á Al-þingi fyrr á þessu ári spurði Logi hvort ekki væri „allt í lagi þó að eitt- hvað af útgerðarfyrirtækjunum fari á hausinn og við leitum í hagkvæm- asta reksturinn þannig að þjóðin fái á endanum afgjaldið?“    Jens Garðar benti á að sérkenni-legt væri að stjórnmálamenn tali í einu orðinu um að halda landinu í byggð en tali á hinn bóginn um að skattleggja sjávarútveg þannig að hann standi ekki undir sér.    Við þetta bætist svo vilji þessarasömu manna til að taka af þeim sem starfa í sjávarútvegi atvinnu- réttinn.    Hvernig stendur á því að sam-fylkingarflokkarnir hamast þannig gegn sjávarútveginum? Er einhver skýring á því? Einhver skýring á fjandskapnum? STAKSTEINAR Logi Einarsson Jens Garðar Helgason Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Þorsteinn Hjaltested, bóndi og fjárfestir á Vatnsenda við Elliða- vatn, lést á heimili sínu aðfaranótt 12. desem- ber síðastliðinn. Hann varð 58 gamall. Þorsteinn fæddist í Reykjavík 22. júlí 1960, sonur Magnúsar Hjaltested, bónda á Vatnsenda og konu hans Kristrúnar Ólafar Jónsdóttur. Kristrún lifir son sinn. Þorsteinn ólst upp á Vatnsenda. Hann var matreiðslumeistari. Lærði mat- reiðslu í Veitinga- og matreiðsluskóla Íslands og vann námstímann á Hótel Loftleiðum þar til hann útskrifaðist árið 1984. Eftir það gerðist hann yfir- matreiðslumaður í verslunum Víðis. Einn- ig rak hann Sundakaffi um tíma, annaðist veit- ingarekstur í golfskála Golfklúbbs Reykjavík- ur og var matsveinn á Edduhótelinu á Kirkju- bæjarklaustri nokkur sumur. Þá var Þor- steinn hluthafi í Veislu- turninum í Kópavogi og ýmsum fyrirtækjum. Jafnframt rak Þor- steinn bú með sauðfé og hross á Vatnsenda og ýmist leigði út eða seldi byggingarland. Hann átti sæti í stjórn Veiðifélags Elliðavatns. Kona Þorsteins var Kaire Hjalte- sted. Þau skildu. Synir þeirra eru Magnús Pétur og Björn Arnar. Andlát Þorsteinn Hjaltested bóndi á Vatnsenda Flestir myndu kjósa Sjálfstæðis- flokkinn ef gengið yrði til kosninga í dag. Samfylkingin er sá flokkur sem næstflestir myndu kjósa og Vinstrihreyfingin – grænt framboð kemur þar á eftir. Fylgi Miðflokks- ins minnkar um meira en helming og Píratar bæta við sig. Þetta kem- ur fram í nýrri könnun MMR. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 22,1%, sem er lítilsháttar aukn- ing frá síðustu könnun sem gerð var 21. nóvember. Fylgi VG er 12,9%, en það var 10,3% í nóv- ember, og fylgi Framsóknarflokks mælist 12,5% sem er talsverð aukn- ing frá síðustu könnun þegar það var 7,5%. Samkvæmt þessu eru ríkisstjórn- arflokkarnir því með 47,5% fylgi. Flokkur fólksins með minna Samfylkingin mælist með 16,9%, sem er svipað og í síðustu könnun, og fylgi Pírata er nú 14,4%, en var 11,3% í könnuninni sem gerð var í nóvember. Fylgi Viðreisnar mælist 8,5% sem er svipað og í síðustu könnun og fylgi Miðflokksins minnkar úr 13,1% í 5,9% eða um rúm sjö pró- sentustig. Fylgi Flokks fólksins minnkar sömuleiðis úr 7,6% í 4,2%. Könnunin var gerð dagana 5.-11. desember og svöruðu 975 ein- staklingar henni. Miðflokksfylgi minnkar um helming  Ríkisstjórnarflokkarnir þrír með 47,5%  Framsókn og Píratar bæta við sig Morgunblaðið/Hari Alþingi Talsverðar sveiflur hafa verið á fylgi stjórnmálaflokkanna. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.