Morgunblaðið - 15.12.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018
Vogir sem sýna verð
á vörum eftir þyngd
Löggiltar fyrir Ísland og
tilbúnar til notkunar
ELTAK sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
VERSLUNAR-
VOGIR
Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur
saman, sýnir stuðning og samhug
eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is
90 ára afmæli
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
JÓLASÖFNUN
Jólagjöf gr i l lmeistarans
L
Fjöldi grilla á Jólatilboði
Núerhægtaðgrilla
allt árið
Grillbúðin
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400
www.grillbudin.is Opið alla daga til jóla
15”
Spaði og
skeri fylgja
Fyrir grill og ofna
Þráðlaus kjöthitamælir
JÓLATILBOÐ
3.990
VERÐ ÁÐUR 4.990
Pítsusteinn
KjúklingastandurLED ljós á grillið
Stilltu á
tegund og steikingu
Mælirinn lætur þig vita
þegarmaturinn er tilbúinn
Fyrir grill ogofna
Fyrir grill
ogofna
JÓLATILBOÐ
5.990
VERÐ ÁÐUR 7.990
JÓLATILBOÐ
4.990
VERÐ ÁÐUR 6.990
JÓLATILBOÐ
1.990
VERÐ ÁÐUR 2.990
Opið alla
daga til jóla
JÓLATILBOÐ
63.900
VERÐ ÁÐUR 79.900
Frá Þýskalandi
Niðurfellanleg
hliðarborð
Vefv
ersl
un
ww
w.g
rillb
udin
.is
meirihlutaeigandi að félaginu þar sem
reglugerð Evrópuþingsins og Evr-
ópuráðsins kveður á um að evrópskir
aðilar verði að eiga meira en helm-
ingshlut í félögum sem rekin eru á
grundvelli flugrekstrarleyfis sem
veitt er innan Evrópska efnahags-
svæðisins. Í fréttatilkynningunni
kemur fram að fjárfesting Indigo sé
háð samþykki skuldabréfaeigenda
WOW air um skilmálabreytinga bréf-
anna. Þar er meðal annars kallað eftir
því að fallið verði frá öllum ákvæðum
sem heimila gjaldfellingu skuldabréf-
anna og að skuldabréfið verði gert
upp eftir fimm ár í stað þriggja. At-
kvæðagreiðslu skuldabréfaeigenda
lýkur 17. janúar.
Grunnleiðakerfi
WOW helst óbreytt
Indigo Partners setur allt að 9,3 milljarða í WOW air
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugfélag Indigo Partners mun setja allt að 9,3 milljarða í WOW air gegn
ákveðnum skilmálum. Grunnleiðakerfi WOW air mun haldast óbreytt.
Sveinn Þór-
arinsson,
sérfræð-
ingur hjá
Landsbank-
anum, áætl-
ar að erlend-
um ferða-
mönnum
„gæti fækk-
að“ um á
þriðja
hundrað þúsund vegna niður-
skurðar WOW air. Haft var eftir
Skúla Mogensen, forstjóra
WOW air, í Morgunblaðinu gær
að farþegum mundi fækka úr
3,5 millj. í ár í 2,1 milljón 2019.
Sveinn segir að miðað við að
WOW air hafi flutt 600-700 þús-
und þeirra 2,3 millj. erlendu
ferðamanna sem koma til lands-
ins í ár megi áætla að boðaður
niðurskurður WOW air leiði til
þess að erlendum ferðamönn-
um fækki um 180-280 þús. á
næsta ári, eða um 6-12%.
„Þetta er versta hugsanlega
útkoma. Við vitum enda ekki
hvort breytingarnar hjá WOW
air hafi meiri áhrif á fjölda
ferðamanna eða skiptifarþega,“
segir Sveinn og rifjar upp áform
Icelandair um að auka framboð
á flugi um 35% á næsta ári.
Hagfræðideild Landsbankans
áætli að það aukna framboð
geti nánast jafnað út það sem
tapast vegna niðurskurðar
WOW air. Sú áætlun miðist hins
vegar við að áformin gangi að
öllu leyti upp hjá Icelandair.
„Við getum hins vegar ekki
fullyrt hvort Icelandair mun
auka framboðið svo mikið. Þá
gætu önnur félög aukið fram-
boðið. Það er heldur ekki fast í
hendi.“ baldura@mbl.is
WOW AIR SKER NIÐUR
Sveinn
Þórarinsson
Reiknar með
skelli í byrjun
næsta árs
Eigandi ferðaþjónustufyrirtækis segir fulltrúa WOW air hafa boðið
nokkrum starfsmönnum sínum umtalsvert betri laun. Þeir hafi þegið
boðið og söðlað um til WOW air.
„Þetta skapaði spennu á vinnustaðnum. Hinir starfsmennirnir urðu við
þetta ósáttir við launin sín. Spurðu hvers vegna við gætum þá ekki líka
borgað hærri laun. Staðreyndin er hins vegar sú að WOW air stóð ekki
undir slíkum launagreiðslum. Það hefur komið í ljós að undanförnu,“
sagði heimildarmaðurinn sem taldi einsýnt að laun í íslenskri ferðaþjón-
ustu hefðu í mörgum tilvikum verið orðin of há í alþjóðlegum saman-
burði. Ferðaþjónustan sé í alþjóðlegri samkeppni. baldura@mbl.is
WOW yfirborgaði keppinauta
LAUNAHÆKKANIR FREISTUÐU
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Kristófer Oliversson, formaður
FHG – fyrirtækja í hótel- og gisti-
þjónustu, áætlar að erlendum
ferðamönnum
geti fækkað allt
að 10% vegna
niðurskurðar
WOW air. „En
miðað við þau
áform sem
kynnt hafa verið
sýnist mér að
áhrifin verði
mest á svokall-
aða tengifarþega
og þá mest frá
Bandaríkjunum. Það mun draga
úr áhrifunum. En við þurfum
einnig að gera ráð fyrir því að
WOW air takist ekki að sækja
fjármögnun. Þá gæti ferðamönn-
um fækkað um 20% á næsta ári.“
Yrði tímabundið högg
„Þetta er auðvitað mjög alvar-
legt. En þetta verður þá tíma-
bundið högg, einkum yfir vetr-
artímann meðan markaðurinn
jafnar sig. Það er vel sloppið ef
Wow air klárar sín mál í janúar,“
segir Kristófer. „Fram yfir ára-
mót verðum við hins vegar því
miður að gera ráð fyrir þeim
möguleika að ekki takist að loka
dæminu,“ segir Kristófer sem er
eigandi CenterHotel-keðjunnar.
Hann segist aðspurður ekki munu
hægja á uppbyggingu tveggja
nýrra hótela vegna þessara tíð-
inda. Þau verða á Laugavegi 95-99
og á Seljavegi í Vesturbænum.
Kristófer telur aðspurður að
önnur hótel muni heldur ekki
hægja á núverandi uppbyggingu
sinni.
„En það verður væntanlega
mun erfiðara að fjármagna ný
verkefni ef allt fer á versta veg,“
segir hann.
Hótelin standi
af sér storminn
Formaður FHG greinir stöðuna
Kristófer
Oliversson
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Við Hlemm CenterHotel Miðgarður
er eitt af CenterHotelunum.
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Fjárfestingafélagið Indigo Partners
mun fjárfesta í flugfélaginu WOW air
fyrir allt að 75 milljónir bandaríkja-
dala, sem nemur um 9,3 milljörðum
króna. Þetta kemur fram í fréttatil-
kynningu sem birtist á vefsíðu WOW
air í gær en fjárfestingin er háð ýms-
um skilmálum. Fyrirætlanir Indigo
Partners eru í fyrsta lagi háðar nið-
urstöðu áreiðanleikakönnunar sem
ekki er lokið en engin tímasetning er
komin á það hvenær vinnu við hana
muni ljúka. Hvorki Svanhvít Frið-
riksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW
air, né Carol J. Makovich, talskona
Indigo Partners, gátu tjáð sig um þau
mál. Spurð um leiðakerfi WOW air
segir Svanhvít aftur á móti að grunn-
leiðakerfi félagsins haldist óbreytt.
„Allar ferðir sem eru í sölu í janúar,
febrúar og mars munu ekki breytast,“
segir Svanhvít við Morgunblaðið en
líkt og fram hefur komið hefur vélum
félagsins verið fækkað úr 20 í 11 með
tilheyrandi fækkun áfangastaða.
Starfa áfram á íslensku leyfi
Í tilkynningunni kemur fram að In-
digo muni kaupa „einhver hlutabréf“ í
WOW air. Þar kemur einnig fram að
sérstakt félag muni halda utan um
eignarhald Indigo Partners í WOW
air sem stýrt verður af bæði Indigo og
öðrum hluthöfum í WOW air en í því
samhengi má benda á að Skúli Mog-
ensen er eini hluthafi WOW air í dag.
Í samtali við Morgunblaðið staðfesti
Svanhvít að WOW air muni áfram
starfa á grundvelli íslensks flug-
rekstrarleyfis. Á meðan svo verður er
ljóst að Indigo getur aldrei orðið