Morgunblaðið - 15.12.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 15.12.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018 Misty Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14 Opið í dag, laugardag, til kl. 18 Stærðir 35-43 Verð 9.990 kr. Stærðir 36-44 Verð 13.950 kr. Stærðir 39-46 Verð 12.900 kr. Stærðir 40-48 Verð 11.900 kr. Stærðir 46-50 Verð 9.990 kr. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Tugir nýrra þjónustu- og veitingarýma munu koma á markað í Reykjavík á næstu árum. Hátt hlutfall þeirra verður á þéttingarreitum sem eru misjafnlega langt komnir í byggingu á Hverfisgötu, á Hafnartorgi, við Austurhöfn, við Höfðatorg og á Hlíðarendasvæðinu. Hluti af fyrirhuguðu framboði er hér sýndur á myndrænan hátt. Sex verkefni eru á undir- búningsstigi; Borgartún 24 og 34-36, Heklu- reitur, Byko-Steindórsreitur og Snorrabraut 54 og 60. Önnur verkefnin eru í byggingu eða þeim er lokið. Nokkuð er síðan stærsti hluti Hljóma- lindarreits var tilbúinn. Við þetta bætast jarðhæðir fyrirhugaðra hót- ela í miðborginni. Samkvæmt úttekt í Morgun- blaðinu sl. miðvikudag verða 15 hótel opnuð í Reykjavík 2019 og 2022. Þrettán þeirra tengjast ekki samantektinni hér. Af því leiðir að vel á fjórða tug verkefna er í pípunum í miðborginni þar sem áformað er að hafa þjónustu- eða veit- ingarekstur á jarðhæð. Verkefnin eru mögulega fleiri og einhver kunna að taka breytingum. Fjárfestingin í hótelum og þéttingarreitum er ekki undir 100 milljörðum. Því er mikið undir að ferðamönnum fækki ekki. Þegar verktakar voru spurðir um fjölda þjón- ustu- og veitingarýma var svarið gjarnan að fjöldinn hefði ekki verið ákveðinn. Það væri enda óljóst hvernig fermetrar skiptust. Af þeim sökum er hér látið ógert að áætla fjölda veit- inga- og þjónusturýma í húsunum. Krafa um lifandi jarðhæðir Hið aukna framboð af verslunar- og þjón- usturýmum í miðborginni er hluti af þeirri kröfu í skipulagi miðborgarinnar að jarðhæðir skuli vera „lifandi“ og aðgengilegar vegfarendum. Með uppbyggingunni sem nú er hafin, eða að hefjast, mun framboð á verslun og þjónustu aukast með stækkun miðborginnar til vesturs, suðurs og austurs. Verslunargötur munu liggja frá Byko-reitnum, framhjá Vesturbugt og svo Hafnartorgi og Austurhöfn og kvíslast um Kvosina og miðbæinn og svo áfram austur að Höfðatorgi og Heklureit og til suðurs eftir Snorrabraut að Hlíðarendabyggð. En hver er þörfin? Sérfræðingur í uppbyggingu á þéttingarreitum í miðborginni spáir offramboði af verslunar-, þjónustu- og veitingahúsnæði á jarðhæðum í miðborginni. Svo fámenn borg standi ekki undir slíku þjónustuframboði. Magnús Árni Skúlason, framkvæmdastjóri Reykjavík Economics, telur ekki ólíklegt að ein- hverjar verslanir muni flytja sig um set í mið- borginni og fara í ný rými, t.d. á Hafnartorgi og við Austurhöfn. Með því geti losnað um eldri rými sem skapi tækifæri fyrir annan rekstur. Daníel Þór Magnússon, sjóðsstjóri hjá Kviku, segir fyrirhuguð hótel í miðborginni skapa tæki- færi fyrir verslun og þjónustu. Þá séu margir að flytja í nýjar miðborgaríbúðir. 1 13 12 14 15 16 4 18 17 19 20 21 22 23 24 25 11 5 6 3 7 8 9 10 2 Dæmi um nýtt og fyrirhugað atvinnuhúsnæði í miðborginni Verslun og þjónusta á jarðhæð 1 Arnarhlíð - Hlíðarenda 2 Austurhöfn 3 Borgartún 24 4 Borgartún 34-36 5 Bríetartún 9-11 6 Brynjureitur 7 BYKO/Steindórsreitur 8 Frakkastígsreitur 9 Hafnartorg 10 Heklureitur 11 Héðinsreitur 12 Hlíðarfótur - Hlíðarenda 13 Hljómalindarreitur 14 Hverfisgata 85-93 15 Hverfisgata 88-92 16 Hverfisgata 94-96 17 Höfðatorg 18 Kirkjusandur 19 Laugavegur 4-6 20 Skúlagata 30 21 Snorrabraut 54 22 Snorrabraut 60 23 Tryggvagata 13 24 Vegamótastígur 7-9 25 Vesturbugt 1 2 3 6 25 8 9 10 11 12 14 7 1817 15 16 Myndir: Reykjavíkurborg/kynningarefni. 19 Mynd/PKdM Verslunarrýmið mun stóraukast  Tugir nýrra veitinga- og þjónusturýma munu bætast við í miðborg Reykjavíkur á næstu árum Fyrirhuguð viðbygging á Snorrabraut 60 er dæmi um nýbyggingu í mið- borginni þar sem atvinnustarfsemi er áformuð á jarðhæð. Tillaga að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar er nú í auglýsingu. Fram kemur í tillögunni að Snorrabraut sé „mikilvæg framtíðarborg- argata fyrir Reykjavík“ sem „tengir Laugavegs-Suðurlandsbrautarás, þróunar- og samgönguás borgarinnar, við Vatnsmýrarsvæðið“. Ný við- bygging við Snorrabraut 60 falli að áætlunum um mótun borgargötu. Þá segir í tillögunni að á götuhæð sé „krafa um „lifandi“ götuhliðar með verslun og þjónustu“. Þjónusta á götuhæð sé hugsuð sem hverfis- þjónusta. Allt að 49 íbúðir verði í húsinu. Steinsnar frá, á Snorrabraut 54, er fyrirhugað að byggja hótel með við- byggingu við gömlu Mjólkurstöðina, austan Sundhallarinnar. Þar verður veitingahús. Ofangreind skipulagslýsing bendir til að frekari uppbygging sé áformuð á Snorrabraut. Deiliskipulag Hlíðarenda gerir ráð fyrir að Snorrabraut geti mögulega farið um Arnarhlíð að Nauthólsvík, svo fari borgarlína yfir brú í Kársnes. Alls 6.900 fermetrar af atvinnuhúsnæði verða á jarðhæð á fjórum íbúðareitum á Hlíðarenda. Snorrabraut verði borgargata og tenging við Vatnsmýrina DÆMI UM FYRIRHUGUÐ ÞJÓNUSTURÝMI Ljósmynd/Kanon arkitektar Viðbygging Drög að nýrri viðbyggingu við Snorrabraut 60 í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.