Morgunblaðið - 15.12.2018, Page 18

Morgunblaðið - 15.12.2018, Page 18
Gert er ráð fyrir að veitt verði tvö ný leyfi til veiða á sæbjúgum til að skapa svig- rúm fyrir nýja aðila. Fjórum skilgreindum veiðisvæðum verður bætt við þau sem fyrir eru, í drögum að nýjum reglugerðum. Sjávarútvegs- ráðuneytið hefur óskað eftir um- sögnum um þessi drög og verða þau aðgengileg til umsagnar á samráðsgátt til og með 21. desem- ber. Þar kemur fram að gert er ráð fyrir að þeir bátar sem stundað hafa sæbjúgnaveiðar á undanförn- um þremur fiskveiðiárum fái út- hlutað aflahlutdeild í sæbjúgum á skilgreindum veiðisvæðum (A, E, F og G) á grundvelli þriggja ára veiðireynslu. Þá er lagt til að Fiskistofa úthluti leyfum á skil- greindum nýjum veiðisvæðum (B, C, D og H). Gert er ráð fyrir að Hafrannsóknastofnun komi með sérstaka veiðiráðgjöf á hverju þessara fjögurra nýju veiðisvæða. Ábyrgar veiðar Þeir níu aðilar sem nú þegar eru með leyfi til veiða í sæbjúgum fá úthlutað leyfi til veiða á þeim svæðum auk þess sem Fiskistofa úthlutar tveimur nýjum leyfum til viðbótar. Alls verða því ellefu leyfi virk til veiða á svæðum B, C, D og H. Hinir tveir nýju leyfishafar munu fá eins mánaðar forgjöf til veiða á þessum svæðum. Lagt er til að einnig verði hægt að sækja um tilraunaveiðileyfi til veiða á sæbjúgum utan skilgreindra veiði- svæða. Markmiðið með reglugerðunum er m.a. að koma í veg fyrir óheftar veiðar og þannig stuðla að ábyrg- um veiðum. aij@mbl.is Aflahlut- deild og tvö ný leyfi Sæbjúga Mikið er selt til Kína.  Ný svæði skilgreind til veiða á sæbjúgum Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Niðurstaðan er ásættanleg,“ segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, um lög um veiðigjald sem Alþingi samþykkti nýverið. Hann segir að aukinn afsláttur með breytingum á frítekjumarki skipti sköpum fyrir marga smábátaeigendur. „Ég tel að veiðigjald nálgist þann stað að hægt sé að tala um sanngirni í þeim efn- um,“ segir Örn. Fyrir aðra um- ræðu á Alþingi um frumvarp um veiðigjald lagði meirihluti at- vinnuveganefnd- ar m.a. fram breytingatillögu í þá veru að frí- tekjumark næmi 40% af fyrstu sex mill. kr. álagningar hvers árs. „Að mati meiri hlutans þarf að styrkja frítekjumarkið enn frekar og er með þessari breytingartillögu sérstak- lega brugðist við erfiðri rekstrar- stöðu lítilla og meðalstórra fyrir- tækja sem njóta ekki stærðarhag- kvæmni stórútgerðarinnar en skapa mikla byggðafestu í sínu byggðar- lagi. Minni útgerðir eru mun háðari afkomusveiflum og hefur það leitt til samþjöppunar og fækkunar starfa og byggðaröskunar,“ sagði í nefnd- aráliti meirihlutans. 40% afsláttur á allt gjaldið Örn Pálsson segir að fyrir smá- bátasjómenn verði veiðigjald um helmingi lægra á næsta ári heldur en það hefur verið í ár. Samkvæmt eldri lögum hafi verið veittur 20% afsláttur að 4,5 milljónum og síðan 15% afsláttur upp að níu milljónum. Þá lækki veiðigjöld á næsta ári vegna lakari afkomu á viðmiðunar- árinu heldur en á árinu sem miðað var við í álagningu fyrir þetta ár. „Veiðigjald hjá smábátaútgerðum verður að meðaltali um 50% lægra 2019 heldur en það var 2018,“ segir Örn. „Afslátturinn gagnast þeim mest sem hafa minnstar tekjur og flestar smábátaútgerðanna greiða lægra veiðigjald en sem nemur sex milljónum og fá því 40% afslátt á allt gjaldið.“ Örn segir að smábátasjómenn hafi viljað sjá þrepaskipt veiðigjald og í ályktun aðalfundar LS í haust segir meðal annars: „Aðalfundur LS krefst tafarlausrar lækkunar veiði- gjalda og að þau taki mið af afkomu einstakra útgerðarflokka en ekki meðaltalsafkomu í sjávarútveginum. Fundurinn brýnir forystu félagsins til að berjast með kjafti og klóm fyr- ir stórfelldri lækkun veiðigjalda. Þá skorar fundurinn á Alþingi að hækka frítekjumark í 40% af fyrstu 5 m.kr. veiðigjaldsins og 20% af næstu 5 m.kr. þess.“ Verði ekki dæmdir úr leik Örn segir að stjórnvöld verði þeg- ar að bregðast við makríldómi Hæstaréttar og tryggja verði að önnur skip en uppsjávarskip með aflareynslu á árunum 2008-2010 fái áfram að veiða makríl. Ekki gangi að dæma fjölda skipa í ýmsum útgerð- arflokkum úr leik og finna verði við- unandi lausn á stöðunni. „Þessi dóm- ur getur haft gífurlegar afleiðingar og því verður ekki tekið þegjandi og hljóðalaust ef aðrir fá ekki að koma að veiðunum en uppsjávarskip sem voru á veiðum 2008-2010,“ segir Örn. Hann segir að fyrrnefnd viðmið- unarár hafi fáir smábátar verið byrj- aðir makrílveiðar og hafi því ekki átt rétt á aflahlutdeild frekar en fjöldi annarra skipa. Þessi skip hafi síðan sannað sig á makrílveiðum. Styrki ákvæði til bráðabirgða „Þegar makríllinn fór að gefa sig á grunnslóðinni sáu mínir menn að við gátum veitt þennan fisk,“ segir Örn. „Þeir fjárfestu í búnaði og breyttu bátum og við vorum komnir með um 100 báta sem voru að mokveiða í september 2014 þegar veiðarnar voru stöðvaðar. Ekki tók betra við því þá var ákveðið að kvótasetja makríl hjá smábátum sem leiddi til þess að margar af útgerðunum sem voru búnar að græja sig með ærnum tilkostnaði voru dæmdar úr leik. Tvö þúsund tonna leigupottur hefur þó bjargað miklu fyrir smábátaútgerð- ina. Að mínu mati er hægt að bjarga stöðunni í kjölfar Hæstaréttardóms- ins með því að Alþingi styrki núver- andi ákvæði til bráðabirgða við lög um stjórn fiskveiða. Áður en afla- heimildum verður úthlutað 2019, samkvæmt nýrri aflahlutdeild sem dómur Hæstaréttar segir að eigi að byggjast á veiðum árin 2008, 2009 og 2010, verði dregið frá útgefnum heildarafla það sem færi til þeirra sem hófu veiðar eftir aflareynsluárin og eru því án aflahlutdeildar sam- kvæmt dómnum. Til að gera þessa leið færa þarf Alþingi að breyta lög- um og auka verulega það magn sem dregið er frá heildarafla áður en kemur til skiptingar afla samkvæmt aflahlutdeild. Veiðimagn sem tryggi áframhaldandi veiðar þessara báta og skipa. Málið verður að leysa og þetta er eitt af því sem stjórnvöld gætu skoð- að. Ég geri mér hins vegar grein fyrir því að málið er viðkvæmt og er enn í fersku minni þegar átti að hlut- deildarsetja makrílinn 2015. Þá rigndi inn mótmælum og enn er sama kvikan í þjóðfélaginu.“ Veiðigjald nálgast þann stað að hægt sé að tala um sanngirni  Niðurstaðan um veiðigjald ásættanleg  Þegar verði brugðist við makríldómi Morgunblaðið/Alfons Ólafsvík Afsláttur af veiðigjöldum kemur útgerðum minni báta til góða. Örn Pálsson 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018 Samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra hefur staðfest tillögur um verkefnastyrki sem veittir eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar 2018-2024. Að þessu sinni var 10 milljónum út- hlutað til að efla verslun í strjál- býli í ár en alls voru gefin fyr- irheit um styrki að upphæð 25,7 milljónir 2018-21. Stærsti styrkurinn er vegna verslunar í Norðurfirði og fær Ár- neshreppur 7,2 milljónir króna til þriggja ára eða 2,4 milljónir á ári 2019-2021. Hríseyjarbúðin ehf. fær 6,3 milljónir sem dreifast þannig að 300 þúsund eru vegna þessa árs, en tvær milljónir árlega 2019- 2021, að því er fram kemur á heimasíðu Byggðastofnunar. Styrkir til að efla verslun í strjálbýli Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is Mikið úrval af íslenskri hönnun á frábæru verði! Mikið úrval af: • úlpum • kápum • kjólum • buxum • skóm • skarti Kápa Verð 14.990

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.