Morgunblaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018
Ármúla 24 • S. 585 2800
www.rafkaup.is
MANOLA
ljósakróna
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
ÚR BÆJARLÍFINU
Reynir Sveinsson
Sandgerði
Nú er endanlega búið að
finna nafn á hinu nýja sveitarfélagi
sem varð til við sameiningu Sand-
gerðis og Garðs. Sameiningarferlið
hefur tekið langan tíma og haldnir
voru margir kynningarfundir í báð-
um sveitarfélögunum þar sem sér-
fræðingar kynntu kosti samein-
ingar. Ekki voru miklar umræður á
kynningarfundunum og virðast
flestir vera sáttir við sameininguna.
Þá var bara að finna nafn á nýja
bæjarfélagið.
Í fyrstu fór fram rafræn könn-
un um nafn og var þátttaka mjög
léleg. Eftir að sameiningarnefnd
hafði skoðað málið var boðað til
skriflegra kosninga um þrjú nöfn og
hlaut nafnið Suðurnesjabær áber-
andi mest fylgi. Þó að nafnið sé
komið er heilmikil vinna eftir við að
skrifa nýja bæjarmálasamþykt og
fá hana samþykkta. Það verður ekki
fyrr en á næsta ári sem formlega
verður notast við nafnið.
Á undanförnum mánuðum
hefur verið unnið við að reka niður
nýtt stálþil við suðurgarð Sandgerð-
ishafnar. Nýja þilið er ca. 70 cm ut-
an við eldra þil sem er að verða 40
ára gamalt. Það var komin mikil
tæring í eldra þilið og göt, sem varð
þess valdandi að efni skolaðist út og
þekja bryggjunnar seig. Steypt
verður ný þekja og skipt um allar
lagnir og rafmagnsbúnað. Þessar
framkvæmdir kosta um 115 millj-
ónir. Í upphafi áttu þessar fram-
kvæmdir að vera búnar 1. október
2018, en miklar tafir hafa orðið á
verklokum sem verða snemma
næsta árs.
Í sumar hafa staðið yfir
miklar framkvæmdir við Hvals-
neskirkju sem er orðin 132 ára
gömul. Skipt var um alla glugga
sem sumir hverjir voru farnir að
leka. Að þessu sinni var sett slétt
gler í stað hamraðs glers sem var
fyrir og sást ekki út um. Gólf kirkj-
unnar var víða sigið en burðarbitar
í gólfi eru mjög öflugir, úr banda-
ríska timburflutningaskipinu Jemec
Town sem rak mannlaust upp í
fjöru sunnan við Stafnes árið 1881.
Skipið var þriggja mastra seglskip
um 100 metra langt með fullfermi
af úrvalstimbri sem að hluta var
rauðviður. Gólfbitarnir í kirkjunni
eru úr rauðvið, þeir voru hvergi
festir við grunn kirkjunnar heldur
hvíldu þeir á grjóti sem hafði verið
hlaðið undir gólfbitana. Gólfklæðn-
ing var úr skipinu og var það mikil
vinna að skafa það upp og olíubera,
við þessar framkvæmdir þurfti að
fjarlægja alla bekki, ofna og altari
úr kirkjunni og var geymt í gám þar
til framkvæmdum lauk.
Á þessu ári eru 90 ár frá því
að slysavarnasveitin Sigurvon var
stofnuð og er hún elsta sveit innan
SVFÍ. Sigurvon var stofnuð í kjölfar
sjóslyss við Stafnes 1928 er togarinn
Jón forseti RE strandaði þar og 15
menn fórust en 10 tókst að bjarga.
Árið 1929 kom björgunarbáturinn
Þorsteinn til Sandgerðis. Hann er
nú geymdur í Björgunarskýlinu sem
var byggt yfir hann er hann kom til
Sandgerðis. Starfsemi Sigurvonar
hefur lengstum verið öflug, núver-
andi björgunarstöð sem er nýleg
bygging er á hafnarsvæðinu.
Það hefur lifnað yfir húsbygg-
ingum á árinu sem er að líða. Nú
eru um 30 íbúðir í byggingu á mis-
jöfnu byggingarstigi. Aðeins 8 lóðir
eru á lausu um þessar mundir. Unn-
ið er að hönnun og skipulagi á nýju
hverfi sunnan við Sandgerðisveg of-
an við íþróttasvæðið. Þar er gert ráð
fyrir 398 íbúðum. Hverfið verður
byggt í áföngum og stefnt er að því
að lóðum verði úthlutað á næsta ári.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Endurbætur Skipt hefur verið um glugga í Hvalsneskirkju sem orðin er 132 ára gömul. Þá var gólf olíuborið.
Sveitarfélag fær loks nafn
Jólamarkaðurinn í Heiðmörk verður
opinn í Elliðavatnsbæ núna um
helgina. Þar er
boðið upp á bæði
handverk og
matvæli og má
ganga að því vísu
að þar sé alltaf
eitthvað nýtt í
boði af ýmiss
konar hand-
gerðum varningi
og innlendri
matarhefð.
Því til viðbótar
er viðamikil menningardagskrá á
jólamarkaðnum; rithöfundar verða
með upplestur á Kaffistofu klukkan
13 í dag og á morgun, sunnudag. Í
dag verður upplesturinn í höndum
Hugleiks Dagssonar og á morgun
verður þar Guðrún Bjarnadóttir.
Barnastund í Rjóðrinu hefst
klukkan 14 báða dagana og tónlist-
armenn spila á Kaffistofu klukkan
15:30. Þær Gyða og Kristín Anna
Valtýsdætur spila þar í dag og
Snorri Helgason á morgun.
Spákona verður á svæðinu og spá-
ir fyrir framtíð gesta og gangandi og
eldsmiður verður á planinu.
Í fréttatilkynningu segir að allir
séu hjartanlega velkomnir í vetrar-
paradísina sem er í korters fjarlægð
frá ysi og þysi miðborgar.
Fjölbreytt
dagskrá í
Heiðmörk
Markaður Verð-
ur um helgina.
Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra
viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið.
9 dagar til jóla
Bráðum koma blessuð jólin er yfir-
skrift jóladagskrár sem boðið verð-
ur upp á í Árbæjarsafni í Reykjavík
sunnudaginn 16. desember. Verður
þetta í annað og síðara skipti sem
jóladagskráin er í boði í ár.
Fram kemur í tilkynningu að
dagskráin sé á öllu safnsvæðinu og
geti ungir sem aldnir rölt á milli
húsanna og fylgst með undirbún-
ingi jólanna eins og hann var hér
áður fyrr.
Fastir liðir verða eins og venju-
lega, þar á meðal guðsþjónusta í
safnkirkjunni, sem hefst klukkan
14. Klukkan 15 verður dansað í
kringum jólatréð á torginu og
sungin jólalög og frá 14-16
skemmta jólasveinar gestum og
taka þátt í söng og dansi í kringum
jólatréð.
Jóladagskrá í Árbæjarsafni á sunnudag
Morgunblaðið/Eggert
Jólastemning Jólasveinar skemmta gest-
um í Árbæjarsafni í Reykjavík á sunnudag.
Tónlistarhópurinn Umbra,
sem hefur sérhæft sig í
flutningi fornrar og nýrr-
ar tónlistar, mun halda ár-
lega jólatónleika sína á
vetrarsólstöðum hinn 20.
desember í Háteigskirkju,
en á efnisskránni verða
meðal annars sjaldheyrð
jólalög frá miðöldum, ís-
lensk og erlend, eins og
Personent hodie og Green groweth the Holly, og önnur þekktari lög á borð
við Hátíð fer að höndum ein og Coventry Carol, allt í útsetningum Umbru.
Mörg laganna er að finna á nýrri jólaplötu hópsins, Sólhvörf, sem er ný-
komin út hjá útgáfufyrirtækinu Dimmu.
Umbra með nýja plötu og jólatónleika
Umbra Tónlistarhópurinn hefur sent frá sér nýja plötu.
Jólapakkaskákmót Hugins og
Breiðabliks verður haldið sunnu-
daginn 16. desember í Álfhólsskóla
í Kópavogi.
Mótið hefst kl. 13 og er ókeypis.
Mótið er fyrir börn og unglinga og
verður keppt í a.m.k. 6 aldurs-
flokkum. Tefldar verða 5 umferðir
með 10 mínútna umhugsunartíma á
mann. Jólapakkar eru í verðlaun
fyrir 3 efstu sætin í hverjum aldurs-
flokki fyrir bæði drengi og stúlkur.
Auk þess verður happdrætti fyrir
alla þátttakendur.
Jólaskákmót fyrir
börn á sunnudag
Kórinn Vocal Project heldur tón-
leika í dag, 15. desember, í Guðríð-
arkirkju í Grafarholti í Reykjavík
og hefjast þeir klukkan 17.
Í tilkynningu segir að lögin verði
nánast öll flutt án undirleiks,
blanda af popplögum og jólalögum í
krefjandi og skemmtilegum og út-
setningum eftir Gunnar Ben kór-
stjóra. Tekin verða lög með Cyndi
Lauper, George Michael og Radio-
head svo eitthvað sé nefnt, að
ógleymdum Sigurði Guðmundssyni
og Chris de Burgh.
Popp og jólalög í
Guðríðarkirkju