Morgunblaðið - 15.12.2018, Qupperneq 22
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra segir tillögu um varnarlínu
vegna fjárfestingarstarfsemi banka
sem er að finna í hvítbók um fjár-
málakerfið, dæmi um tillögu sem
hægt er að setja í undirbúning nú
þegar.
Efnislega snýr tillagan að því að ef
„eiginfjárþörf vegna beinnar og
óbeinnar stöðutöku kerfislega mik-
ilvægra banka nái 10-15% hjá ein-
hverjum bankanna hafi viðkomandi
banki tvo valkosti, annaðhvort að
draga úr umræddri starfsemi eða
stofna um hana sérstakt félag,“ að
því er segir í hvítbókinni.
Ráðherrann segist meta það svo
að tillagan sé dæmi um mál þar sem
fátt er til fyrirstöðu að fara að hefja
undirbúning og að frumvarp gæti
komið fram í haust. Hann vísar til
þess að niðurstöður höfunda hvít-
bókarinnar eru á sömu leið og nefnd
um skipulag bankakerfisins komst
að varðandi fjárfestingarstarfsemi
banka. Þá segir hann þetta skýrt
dæmi um mál sem þarf að setja strax
í farveg.
Tillagan sem gengur undir nafn-
inu „varnarlína,“ er sögð í hvítbók-
inni öryggisventill sem gæti virkað
þegar önnur varnarúrræði duga ekki
til þess að draga úr áhættusækinn
vöxt. Þá er nefndar auknar eiginfjár-
kröfur vegna áhættusækinnar starf-
semi og breytingar á reglugerðum
er varða fjármálamarkaði.
Stöðutökur
Inntur álits á tillögum höfunda
hvítbókarinnar þess efnis að fjár-
festingarsjóðum verði veitt aukið
frelsi til þess að taka skortstöður og
að viðskiptavakt bankanna verði efld
með auknum heimildum fyrir stöðu-
tökur, segist Bjarni taka undir með
skýrsluhöfundum mikilvægi þess að
verðbréfamarkaður eflist. Hann úti-
lokar ekki að frumvarp um breyt-
ingar á umgjörð verðbréfamarkað-
arins verði sett í ferli eða jafnvel
kynnt í vor, en vill ekkert fullyrða
um það.
Hvítbókin er ekki aðgerðaráætlun
að sögn Bjarna, heldur umræðu- og
stefnuskjal. „Það er kannski fullmik-
ið að segja að við ætlum að stökkva
strax í að hrinda tillögunum öllum í
framkvæmd. Ég er samt byrjaður að
vinna með skjalið og við ætlum að
efna til umræðu í þinginu á vettvangi
efnahagsnefndar og setja þetta til
umsagnar í samráðsgáttina.“
„Ég fagna þessari ábendingu og
vona að það sé hægt að koma hreyf-
ingu á málið,“ segir Páll Harðarson,
forstjóri Kauphallarinnar, um tillög-
urnar í hvítbókinni um stöðutökur.
„Allt þetta umhverfi varðandi skort-
stöður hefur verið með allt öðrum
hætti en tíðkast í nágrannalöndun-
um og þessum mörkuðum sem við
berum okkur saman við, þannig að
ég held að þessi tillaga sé mjög
góðra gjalda verð,“ segir Páll.
Fjárfestavernd
Hann bendir á að líta beri á málið í
samhengi við gæðaúttekt sem Kaup-
höllin fór í hjá FTSE-vísitölufyrir-
tækinu þar sem Kauphöllin stóðst að
fullu á fimm mælikvörðum, fimm að
hluta og einn ekki. „Fimm af þessum
mælikvörðum sem taldir voru ekki
standast nógu vel miðað við markaði
í hæsta gæðaflokki snéru einmitt að
aðstöðu til verðbréfalánaskorts og
skortsölu. Þannig að þetta er ekki
bara eitthvað sem Kauphöllin hefur
verið að tala fyrir heldur samdóma
álit óháðra aðila sem eru að mæla
markaðsgæðin að þetta sé atriði sem
þurfi að kippa í liðinn,“ segir Páll.
Þá segir hann að í umhverfi þar
sem möguleiki til skortstöðutöku sé
skertur, dregur úr möguleika þeirra
sem eru svartsýnir á verðþróun að
tjá skoðun sína á markaði. „Þess
vegna skapar þetta hættu á því,
meiri hættu en ella, að það myndist
verðbóla. Þess vegna hefur til dæmis
fjármálaeftirlitið í Bretlandi litið á
þetta sem mikilvæga fjárfesta-
vernd.“
Varnarlínan þarf að fara
strax í farveg, segir ráðherra
Samsett mynd
Varnarlína Fjármálaráðherra vill hefja undirbúning frumvarps sem takmarkar fjárfestingarstarfsemi banka.
Ráðherra útilokar ekki frumvarp sem heimilar stöðutökur í auknum mæli
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018
Mjög mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í tvíbýli.
Staðsett í hjarta Keflavíkur. Rólegt umhverfi.
Verð kr. 32.500.000.
Mánagata 3, 230 Reykjanesbæ
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Kynntu
þér
jólatilb
oðin se
m
eru í U
rðarap
óteki
fram a
ð jólum
.
Úrval
tilbúin
na
gjafap
akka.
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Jólin eru komin
hjá okkur
15. desember 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 122.94 123.52 123.23
Sterlingspund 155.57 156.33 155.95
Kanadadalur 92.0 92.54 92.27
Dönsk króna 18.727 18.837 18.782
Norsk króna 14.37 14.454 14.412
Sænsk króna 13.551 13.631 13.591
Svissn. franki 123.89 124.59 124.24
Japanskt jen 1.0828 1.0892 1.086
SDR 170.04 171.06 170.55
Evra 139.81 140.59 140.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.9565
Hrávöruverð
Gull 1244.45 ($/únsa)
Ál 1923.0 ($/tonn) LME
Hráolía 60.29 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Það virtist
stefna í nokkuð
mikla hækkun á
bréfum Icelandair
Group í Kauphöll-
inni í gær en félag-
ið hækkaði um tæp
11% í fyrstu við-
skiptum dagsins.
Eftir að fréttir bár-
ust um uppfærða
stöðu á fjárfest-
ingu Indigo Partners í WOW air breytt-
ist staðan aftur á móti töluvert og við
lokun markaðar stóð gengi Icelandair í
8,55 og lækkaði um 3,39% í 446 millj-
óna viðskiptum. Öll önnur félög í Kaup-
höllinni hækkuðu að HB Granda og
Marel undanskildum sem stóðu í stað.
Mest hækkaði gengi fasteignafélagsins
Heimavalla, eða um 3,6% í 34 milljóna
króna viðskiptum. Hlutabréf í Origo
hækkuðu um 3,4% í 64 milljóna króna
viðskiptum og þá hækkaði gengi Haga
um 3,3% í 117 milljóna viðskiptum.
Sveiflur á gengi
Icelandair Group
Kauphöll Gærdag-
urinn var grænn.
STUTT
● Opnað hefur verið fyrir tilnefningar
til upplýsingatækniverðlauna SKÝ. Að
þessu sinni verða einnig fjórir nýir verð-
launaflokkar auk heiðursverðlauna fyrir
framúrskarandi framlag til upplýsinga-
tækni á Íslandi. Um er að ræða verð-
laun fyrir stafræna þjónustu, tölvu-
leikjagerð, framúrskarandi fyrirtæki og
sprotafyrirtæki.
Hefðbundnar reglur eru við tilnefn-
ingar til heiðursverðlauna, en nokkuð
opið er varðandi tilnefningar í hina nýju
flokka, að sögn Arnheiðar Guðmunds-
dóttur, framkvæmdastjóra SKÝ.
„Krafa hefur verið um að hampa
einnig þeim sem hafa verið að gera eitt-
hvað flott á árinu.Við ákváðum að búa
til nokkra flokka og sjá hvort við getum
ekki gert eitthvað skemmtilegt úr því.
Félagið á 50 ára afmæli á þessu ári og
við höfum gert ýmsar breytingar og
þetta er kannski síðasti liðurinn í því.“
SKÝ hampar þeim sem gerðu flotta hluti á árinu