Morgunblaðið - 15.12.2018, Page 25

Morgunblaðið - 15.12.2018, Page 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018 Það er kalt á toppnum Canada Gose hefur framleitt hágæða útivistar- fatnað í Kanada fyrir erfiðustu aðstæður síðan 1957 og er nú leiðandi á því sviði á heimsvísu. CANADA GOOSE FÆST Í NORDIC STORE LÆKJARGÖTU Allar Canada Goose dúnúlpur eru framleiddar úr bestu fáanlegu hráefnum á vistvænan hátt og þeim fylgir lífstíðarábyrgð. Okkar verð er sambærilegt eða betra en í flestum öðrum löndum. Lækjargötu 2 www.nordicstore.is Opið kl . 9 -22 alla daga Ladies pbi Expedition Parka 144.990 kr Woolford Coat 92.990 kr Trillium parka 113.990 kr Nordic Store er viðurkenndur söluaðili Canada Goose á Íslandi. Í verslun okkar í Lækjargötu 2 er mesta úrval af Canada Goose vörum fyrir herra og dömur á landinu. Ísraelski herinn leitaði í gær logandi ljósi á Vesturbakkanum að Palest- ínumanni sem myrti tvo ísraelska hermenn í fyrradag. 17 ára ungling- ur, Mahmoud Nakhla, var skotinn til bana í aðförum hersins, og kom víðsvegar til skæra, þar sem Palest- ínumenn vopnaðir slöngvivöðum grýttu hermenn og kveiktu í dekkj- um. Hermenn gerðu húsleitir í borg- inni Ramallah á Vesturbakkanum í bæði gær og fyrradag í leit að söku- dólgnum, en þetta var þriðja ban- væna árásin á Ísraelsmenn á Vest- urbakkanum á síðustu tveimur mánuðum. Leiddi árásin til mót- mæla meðal ísraelskra landnema á Vesturbakkanum gegn Benjamín Netanyahu forsætisráðherra. Fjöl- miðlar í Ísrael veltu í gær upp möguleikanum á að ný palestínsk uppreisn eða „intifada“ gegn land- nemabyggðunum væri í bígerð. Mótmæli sem Palestínumenn höfðu skipulagt í gær reyndust hins vegar fámennari en gert hafði verið ráð fyrir. Ísraelski herinn greindi frá því að hann hefði handtekið 40 Palestínu- menn, en flestir þeirra eru tengdir Hamas-samtökunum, en forvígis- menn þeirra hafa sagt samtökin ábyrg fyrir tveimur nýlegum skot- árásum í Ísrael, þar sem þrír létust, þar á meðal kornabarn. Þeir hafa hins vegar ekki lýst yfir ábyrgð á árásinni í fyrradag á hendur sér. AFP Átök Það sló í brýnu milli Ísraelsmanna og Palestínumanna í Ramallah. Átökin harðna á Vesturbakkanum  Leitað að árásarmanni í Ramallah Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hélt heim á leið frá leið- togafundi Evrópusambandsins í Brussel í gær með loforð um að frekari viðræður yrðu haldnar um samkomulagið um útgöngu Breta úr Evrópusambandinu, svo að það geti fengið náð fyrir augum breska þingsins. Leiðtogar hinna 27 Evrópusam- bandsríkjanna forðuðust þó að vekja máls á því að hægt yrði að semja um nokkurn hluta samkomu- lagsins upp á nýtt. Emmanuel Mac- ron, Frakklandsforseti, sagði til dæmis í gær að einungis yrði hægt að gera samkomulagið „skýrara“, en að því yrði ekki breytt. „Það er samkomulag, hið eina og besta sem mögulegt er, og við munum ekki semja um það upp á nýtt. En við getum skýrt það og hughreyst,“ sagði Macron við fjölmiðla eftir fundinn. Hefur enn mikið verk að vinna May sagði hins vegar að hún hefði enn verk að vinna, sem sneri að því að fá tryggingar fyrir því að þau at- riði samkomulagsins sem breskir þingmenn hafa lýst efasemdum yfir verði ekki beitt gegn Bretlandi. Landamæramál Írlands og Norð- ur-Írlands er þar efst á baugi, en samkvæmt samkomulaginu er í því „varnagli“, sem tekur gildi þar til samið er um viðskiptasamband Bretlands og Evrópusambandsins. Varnaglinn hefur hins vegar mætt mikilli mótspyrnu í Bretlandi, og ekki síst á Norður-Írlandi, þar sem hann felur í sér að Norður-Ír- land verði hluti af tollaumhverfi Evrópusambandsins, ólíkt Stóra- Bretlandi. Þá er einnig kveðið á um að samþykki ESB-ríkjanna þurfi til þess að binda enda á þetta fyrir- komulag, og hafa stuðningsmenn Brexit sagt að þannig verði hægt að halda Bretum í klóm sambandsins um aldur og ævi. Næsti leiðtogafundur sambands- ins verður haldinn 21. janúar næst- komandi, og segir May að þingið verði búið að kjósa um samkomulag- ið þá. Leiðtogar Evrópusambands- ins lýstu hins vegar efasemdum sín- um við May og spurðu hvernig hún ætlaði sér að fá samþykki breska þingsins fyrir samkomulaginu. Það sló tímabundið í brýnu á milli May og Jean-Claude Juncker, for- seta framkvæmdastjórnar Evrópu- sambandsins, á fundinum í gær, en hann hafði sagt afstöðu Breta óskýra. Heyrðist May sem að Junc- ker hefði kallað sig óskýra og brást illa við. Stillti Mark Rutte, forsætis- ráðherra Hollands, til friðar, en breskir fjölmiðlar líktu atvikinu við framgöngu Margaret Thatcher á leiðtogafundum sambandsins á ní- unda áratugnum. Lofar frekari viðræðum  Hvessti á milli May og Juncker á leiðtogafundinum  Macron segir einungis hægt að „skýra“ samkomulagið AFP Brexit Theresa May yfirgefur fréttamannafund sinn í Brussel í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.