Morgunblaðið - 15.12.2018, Síða 28

Morgunblaðið - 15.12.2018, Síða 28
Ærið oft heyrist orðalag á borð við tillagan dagaði uppi, ífleirtölu tillögurnar döguðu uppi. Eldri málvenja er aðnota þolfall frekar en nefnifall og hafa sögnina í eintölu:tillöguna dagaði uppi, tillögurnar dagaði uppi. Sagnir eins og daga uppi voru áður kallaðar ópersónulegar sagnir en á síðari árum aukafallssagnir af því að frumlagið er í aukafalli – raunar í þolfalli með þessari tilteknu sögn. Nefnifallið er hér nýjung sem ryður sér til rúms á kostnað þolfallsins. Stundum er þetta fyrirbæri kallað nefnifallssýki en „málfræðileg rétthugsun“ kýs heldur orðið nefnifalls- hneigð. Sögnin daga merkir ‘verða dagur, birta af degi’ en daga uppi þýðir allt ann- að. Þegar talað er um í þjóð- sögum að tröllskessu hafi dagað uppi merkir það að sólin hafi náð að skína á hana áður en hún komst heim í helli sinn svo að hún varð að steini. Þetta var al- gengt vandamál nátttrölla áður fyrr og kann líka að eiga við um nettröll í sam- tímanum, enda stunda þau iðju sem þolir ekki dags- ljósið. Yfirfærð merking daga uppi er ‘verða of seinn fyrir’, t.d. bóndann dagaði uppi með verkið. Að auki getur daga uppi fengið merkinguna ‘gleymast, verða afgangs’, t.d. hestana dagaði uppi á fjall- inu. Þaðan er stutt í notkun með óhlutbundnum nafnorðum: frumvörpin og tillögurnar dagaði uppi, þ.e. ‘gleymdust í kerfinu’. En aftur að nefnifallssýkinni – hvernig gerist þessi breyting? Fyrir utan þá staðreynd að nefnifall er algengasta og virkasta fallið í íslensku má ætla að tvíræðni skipti líka máli. Í setningu eins og tröllið dagaði uppi verður ekki ráðið af forminu sjálfu hvort tröllið er í þolfalli eða í nefnifalli. Til að gera aðstæðurnar áþreifanlegri skulum við hugsa okk- ur móður og dóttur sem búa einar á afskekktum sveitabæ. Í máli móð- urinnar stýrir sögnin daga uppi þolfalli. Breytingin kviknar þegar barn- ið, fulltrúi nýrrar kynslóðar, „misskilur“ setninguna tröllið dagaði uppi. Þótt setningin sé formlega eins hjá mæðgunum túlkar dóttirin hana á annan hátt en móðirin, með nefnifalli í stað þolfalls. Dóttirin færir svo þennan skilning yfir á önnur nafnorð og segir þá tröllskessan dagaði uppi (með nefnifalli) í staðinn fyrir tröllskessuna dagaði uppi (með þol- falli). Þegar stúlkan vex úr grasi, flytur á mölina og fer að vinna hjá hinu opinbera gæti hún farið að segja tillagan dagaði uppi o.s.frv. Þann- ig stuðlar tvíræðnin að því að nefnifallið sigrar hjá sumum málhöfum, jafnvel þótt þeir hafi alist upp í vernduðu umhverfi þar sem talað var „rétt mál“. Þessi nýja málfræði getur svo „smitað út frá sér“ þannig að annað fólk sem þessi einstaklingur umgengst taki hana upp. Smám saman breiðist breytingin út uns svo kann að fara að samfélagið viður- kenni nýjungina sem eðlilegt mál. Hvað sem öðru líður skulum við vona að enga mikilvæga málaflokka dagi uppi á alþingi áður en þingmenn fara í jólafrí. Nefnifallssjúka tröllið Tungutak Þórhallur Eyþórsson tolli@hi.is Skyldi nettröllið daga uppi? 28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018 DRAUMAEIGN Á SPÁNI Nánar á www.spanareignir.is ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR Aðalheiður Karlsdóttir Löggiltur fasteignasali adalheidur@spanareignir.is Sími 893 2495 Ármúla 4-6, Reykjavík Karl Bernburg Viðskiptafræðingur karl@spanareignir.is Sími 777 4277 Ármúla 4-6, Reykjavík FLOTTAR EIGNIR - GÓÐAR STAÐSETNINGAR FJÖLBREYTT ÚRVAL - EITTHVAÐ FYRIR ALLA Flamenca Village, Playa Flamenca Arenales del Sol, Los Arenales Mare Nostrum, Guardamar Gala, Villamartin Muna, Los DolsesAllegra, Dona Pepa Ásdís Halla Bragadóttir er miskunnarlaus viðsjálfa sig í Hornauga, bók, sem er eins konarframhald á þeirri áhrifamiklu og átakanlegufjölskyldusögu, Tvísögu, sem út kom fyrir tveimur árum. Raunar svo mjög að ég hef engum ein- staklingi kynnzt um dagana, sem sýnir sjálfum sér slíkt miskunnarleysi opinberlega. Það er ekki margt í lífinu, sem er erfiðara en það. Það er þetta miskunnarleysi, sem sækir á lesandann, alla vega þann, sem hér skrifar, eftir lestur hinnar nýju bókar. Hvaðan fær hún þetta þrek, sem hér skal fullyrt að fáir hafa. Frá hinum „kaldlyndu“ formæðrum sínum í föðurætt? Hvers vegna finnur hún til svo mikils skyld- leika við þær? Upplifir hún sjálfa sig sem kaldlynda? Um það segir hún sjálf: „Ekki var ég viss um, hvort Halldór áttaði sig á að þar sem ég var að halda á lofti málstað Sólrúnar og ömmu hans Ingibjargar var ég að flytja mína eigin varnarræðu.“ En hvað með hörkuna í Halldóri sýslumanni? Kemur hún hvergi við sögu í þessum efn- um? Með Tvísögu og Hornauga hef- ur Ásdís Halla Bragadóttir gert tvennt. Annað er að hún hefur brotið fjötra fortíðar af fjölskyldu sinni og afkomendum og þar með lagt grunn að far- sælla lífi fyrir þau öll til framtíðar. Til þess að ná slíkum árangri hefur hún þurft að kafa ofan í erfitt hlutskipti móðurfjölskyldu sinnar og finna blóðföður sinn og fjölskyldu hans en ekki sízt að fara í þá erfiðu vegferð að leita að sjálfri sér og skilja sjálfa sig. Þetta eitt út af fyrir sig er afrek. En um leið hefur hún gert annað: Hún hefur brugðið upp mynd af hinum erfiðari og dekkri hliðum okkar samfélags, sem þessi sundurlynda þjóð hefur sýnt ótrúlega samstöðu um að sópa undir teppi. Og með því að gera það hefur hún gert okkur sem samfélagi kleift að takast á við þau innanmein. Þetta hefur yfirleitt verið helzta samfélagslega fram- lag skálda enda má finna á texta bókarinnar, sem er af- ar vel skrifuð, að í höfundinum er skáldataug. Það er auðvitað margt, sem einkennir fámenn sam- félög eins og okkar, bæði jákvætt og neikvætt. Það já- kvæða blasir við. Um hitt er þagað. Hvað er það? Allir vita allt um alla, eins og sagt er. Og í framhaldi af því illt umtal, sem fyrr og síðar hefur verið notað markvisst á flestum ef ekki öllum sviðum samfélagsins í þeirri valdabaráttu, sem alls staðar er á ferð, hvort sem er í stjórnmálum, viðskiptalífi, menn- ingu, vísindum, eða annars staðar. Fram á síðustu ár hefur þögnin verið notuð til þess að fela þessi neikvæðu einkenni samfélagsins og þeirri þögn hefur fylgt annar þáttur mannlífsins, sem er hræsni. Með svonefndum samskiptamiðlum hefur hið illa umtal fundið sér nýjan farveg. Kannski mætti lýsa þessum þáttum samfélags okkar sem „illa þrútnum graftarkýlum“, sem er orðalag, sem Ólöf Skaftadóttir, leiðarahöfundur Fréttablaðsins, not- aði af öðru tilefni í blaði sínu í fyrradag. Nú hefur Ásdís Halla stungið á slíkum graftarkýlum með tveimur bókum á þann veg að svipta hulunni af erfiðri sögu þeirra fjölskyldna, sem að henni standa. En við vitum öll að þær fjölskyldur eru ekki einar á bát. Það er þung undiralda á ferð í flestum ef ekki öllum lýðræðisríkjum Vesturlanda og mikil gerjun í fram- haldi af henni. Sú undiralda og sú gerjun nær líka til okkar samfélags hér á þessari eyju í Norðurhöfum. Það er inn í slíkt andrúm, sem þessar tvær bækur Ásdísar Höllu koma. Og þess vegna hitta þær beint í mark. Og þess vegna eru þær mikilvægt framlag til samfélags- legrar endurnýjunar. Á öllum öldum hafa þeir, sem hafa verið í aðstöðu til, nýtt sér þá aðstöðu á kostnað annarra. Einu sinni voru þeir þjóðfélagshópar kallaðir „aðall“. Á okkar tímum eru það ekki sízt stjórnmálastéttin og aðstoðarmenn henn- ar í „kerfinu“, sem eru að nýta sér sína aðstöðu, sjálfum sér til framdráttar. Slíka hópa kallaði Milovan Djilas „Hina nýju stétt“ í samnefndri bók fyrir nokkrum ára- tugum og var að lýsa ástandinu í kommúnistaríkjunum. Ítalskur stjórnmálamaður á hægri kantinum lýsti „gulu vestunum“ í Frakklandi fyrir nokkrum dögum sem „þeim, sem hafa verið skildir eftir“. Ásdís Halla er í bókum sínum að hluta til að lýsa hlutskipti þeirra í okkar samfélagi „sem hafa verið skildir eftir“. Og það er ekki nóg með að þeir hafi verið skildir eftir heldur fá þeir á sig sem slíkir þjóðfélagslegan stimpil til æviloka. Ekki sjáanlegan stimpil eins og gyðingar í Þýzkalandi Hitlers forðum daga heldur þann ósýnilega stimpil, sem fylgir neikvæðu umtali um fólk í fámenni. Ásdís Halla hefur þurrkað þann stimpil út af sínu fólki. Hver eða hverjir ætla að taka að sér að þurrka þann stimpil út af öðrum? Pólitísk velgengni Ingu Sæland byggist á því að hún kom óvænt fram og gerðist talsmaður „þeirra sem skildir hafa verið eftir“. Það er fram undan mikið uppgjör í okkar samfélagi, þótt ráðamenn þjóðarinnar hafi ekki enn áttað sig á því. Það uppgjör snýst ekki bara um félagsmenn í ein- stökum verkalýðsfélögum heldur fleiri þjóðfélagshópa, sem Ellert B. Schram minnti á í ræðustól Alþingis, þegar hann sneri þangað óvænt aftur á dögunum. Þótt með öðrum hætti sé eru bækur Ásdísar Höllu áminning um stöðu þeirra þjóðfélagshópa. Þess vegna eru þær svo mikilvægt framlag til sam- félagslegrar endurnýjunar. Miskunnarlaus við sjálfa sig Mikilvægt framlag til sam- félagslegrar endurnýjunar Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Af sérstöku tilefni var rifjað upp ádögunum að eftir árás Rauða hersins á Finnland í árslok 1939 var þingmönnum Sósíalistaflokksins út- skúfað því að þeir neituðu ólíkt öðrum þingmönnum að fordæma árásina og mæltu henni jafnvel bót. Virtu aðrir þingmenn þá ekki viðlits og gengu út þegar þeir héldu ræður. Þorri al- mennings og þingmanna hafði ríka samúð með smáþjóðinni sem átti hendur sínar að verja. Í leynilegum viðauka við griðasáttmála þeirra Stal- íns og Hitlers í ágúst 1939 hafði verið kveðið á um skiptingu Mið- og Aust- ur-Evrópu á milli þeirra og féll Finn- land í hlut Stalíns. Í Sósíalistaflokkn- um höfðu kommúnistar hollir Stalín tögl og hagldir. Einar Olgeirsson, formaður Sósíal- istaflokksins og þingmaður hans, andmælti því í leiðara Þjóðviljans 6. febrúar 1940 að Finnar væru frænd- þjóð okkar Íslendinga. „Finnar eru eins fjarskyldir okkur og Kongo- negrar,“ skrifaði hann. Brynjólfur Bjarnason, þingmaður Sósíalistaflokksins, smíðaði háðsyrðið „Finnagaldur“ um samúð þorra ís- lensku þjóðarinnar með Finnum og skrifaði grein í 1. hefti tímaritsins Réttar 1940 undir þeirri fyrirsögn. Þar sagði hann meðal annars: „Flest- ir munu nú hafa áttað til fulls á því, að þessi styrjöld var ekki stríð milli Finnlands og Rússlands út af fyrir sig, heldur var hér um að ræða styrj- öld milli Sovétríkjanna og Vest- urveldanna, sem voru að búa sig und- ir árás á Rússland og notuðu finnsku hvítliðana sem verkfæri. Atburðirnir hafa síðan sannað, svo sem best verð- ur á kosið, að Sovétlýðveldin áttu í varnarstríði, sem þeim bar skylda til að heyja fyrir land sitt og hinn al- þjóðlega sósíalisma.“ Þrátt fyrir þessa frumlegu kenn- ingu Brynjólfs börðust Finnar einir og óstuddir gegn hinu rússneska of- urefli, en urðu loks um miðjan mars 1940 að leita samninga. Eftir að þetta spurðist til Íslands fór Hermann Jón- asson forsætisráðherra óvirðulegum orðum um þingmenn Sósíal- istaflokksins í einum hliðarsal Alþing- is. Vatt Brynjólfur Bjarnason sér þá að honum og kvað hann landsfrægan fyrir heimsku og ósannsögli. Her- mann sneri sér hvatskeytlega að Brynjólfi og laust hann kinnhesti með flötum lófa. Þegar Brynjólfur kvart- aði við þingforseta, svaraði Hermann því til að það væri íslenskur siður að löðrunga óprúttna orðastráka. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Þingmönnum útskúfað 1939

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.