Morgunblaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 30
g4 Rf6 sem hótar 30. … e4. En hann vildi fá sókn strax. 28. Rc4 g4 29. fxg4 Hann hefði betur sóst eftir drottningaruppskiptum og leikið. 29. Db6. 29. … fxg4 30. Hxf8+? Uppskipti á forsendum andstæð- ingsins eru oft varasöm. Best var 30. Hef2 og hvíta staðan er ekki lakari. 30.… Dxf8 31. He1 Tapar en 31. Kg1 er svarað með 31. … Hf7 o.s.frv. 31. … Df3+ 32. Kg1 Hf7 33. Db6 Valdar f2-reitinn en nú grípur riddarinn inn í. 33. … Rxg3 34. hxg3 Dxg3+ 35. Kh1 Dxe1+ 36. Kg2 Df1+ 37. Kg3 Hf3+ 38. Kh4 – og gafst upp um leið því næst kemur 38. … Dh3 mát. Ólympíumót skákmanna 16ára og yngri, sem lauk íborginni Konya í Tyrk-landi í byrjun desember, er kröfuharðasta verkefni sem liðs- menn íslensku sveitarinnar hafa tekið að sér á þessu ári og kemur þar margt til. Þetta ólympíumót er haldið ár hvert og við vorum síðast með í Slóvakíu fyrir tveimur árum og náðum þar ágætum árangri. Fyrirkomulagið er þannig að ein stúlka a.m.k. er í hverri sveit og hún verður að tefla þrjár skákir hið minnsta. Nansý Davíðsdóttir, sem er 16 ára gömul, var auðvitað fyrsta val okkar en árstíminn hent- aði henni ekki vel vegna prófa í MR og Batel Goitom, sem er 11 ára gömul, kom í hennar stað, stóð sig vel en gat ekki teflt til jafns við piltana í sveitinni sem allir eru tals- vert hærri að elo-stigum. Með Batel í sveit í borðaröð voru Vignir Vatnar Stefánsson, Stephan Briem, Birkir Ísak Jóhannssson og Arnar Milutin Heiðarsson. Sá síð- astnefndi kom í liðið á síðustu stundu þegar ljóst var að hvorki Alexander Oliver Mai né Óskar Víkingur Davíðsson gátu teflt í Konya og sýndi baráttuvilja og gott hugarfar. Fyrirfram var sveitinni raðað í 33. sæti af 48 sveitum og hafnaði í 34.-38. sæti sem sem er eilítið lak- ara en ætlaður árangur. En þrátt fyrir allt og með hlið- sjón af því að allir í sveitinni, að Birki Ísak undanskildum, voru 15 ára eða yngri og eiga keppnisrétt aftur að ári var megintilgangurinn sá að öðlast reynslu á þessum vett- vangi. Ein niðurstaðan var sú að engin sveit var auðveld viður- eignar, önnur að elo-stig voru nán- ast ómarktæk viðmiðun og mikil gæði hjá þeim bestu, t.d. sigurveg- urunum frá Úsbekistan, Indlandi, Kína og Íran. Greinarhöfundur var fararstjóri og liðsstjóri í Tyrklandi. Það var athyglisvert að þrátt fyrir erfitt gengi, seinheppni og mistök í tíma- hraki þá óx mönnum ásmegin eftir því sem leið á mótið. Það átti ekki síst við hinn unga Stephan Briem sem tefldi á 2. borði og vann sinn besta sigur í næstsíðustu umferð í viðureigninni við Alsír: Ól. 16 ára og yngri; 8. umferð: Nes. Boubendir – Stephan Briem Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be2 e5 7. Rb3 Be7 8. Be3 Be6 9. 0-0 Rbd7 10. Kh1 b5 11. f3 0-0 12. a3 Þessi uppbygging hvíts að leika – f3 og – a3 í Sikileyjarvörn hefur aldrei þótt sérstaklega beitt en þó getur reynst erfitt fyrir svartan að skapa sér færi. 12. … Dc7 13. Dd2 Hfd8 14. Rd5 Bxd5 15. exd5 Rb6 16. Bxb6 Dxb6 17. Bd3 a5 18. a4 b4 19. Bb5 g6 20. Had1 Rh5 21. g3 f5 22. Dd3 Bg5 23. Hde1 Hf8 24. He2 Ha7 25. Bc6 Bh6 26. Db5 Dd8 27. Rd2 g5?! Eftir þreifingar á báðum vængj- um þar sem svartur hefur haldið vel á spilunum hefði Stephan leikið best 27. … Bxd2 28. Hxd2 f4! 29. Kröfuhart verkefni í Konya Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Kjartan Briem Stephan og Vignir Vatnar við taflið í Tyrklandi. 30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018 Vantar þig ráðleggingar við sölu eignar þinnar? s 893 6001 Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is Guðbergur Guðbergsson Löggiltur fasteignasali og leigumiðlari Var þessi afsökunarbeiðni þá dauð og ómerk? Varst þú ekki að biðjast afsökunar fyrir hönd þingsins? Maður fer ekki að lögsækja þann sem maður biður fyrirgefningar. Var þjóðin ekki beðin afsökunar? Eða er Bára Halldórsdóttir ekki hluti af þjóðinni!? * Og umræddir þingmenn þá ekki hluti af þinginu!? Elísabet Jökulsdóttir Fyrirspurn til forseta Alþingis Höfundur er skáld. Nokkuð er farið að bera á því í opinberri umræðu, sem við mátti bú- ast, að menn fara að ræða aðferðina sem Klausturmálið spratt upp af, þ.e. taka upp ummæli manna að þeim óvörum. Vissulega er „ljótt“ að hlera það sem aðrir segja, hvað þá taka upp á band, en stundum brýtur nauðsyn lög og það á við um þetta mál. Vildu menn heldur að ummælin hefðu legið í þagnargildi? Hvert hefði þá framhaldið hugs- anlega orðið? Hinir brottreknu þing- menn Flokks fólksins hefðu líklega á vel völdu augnabliki flutt sig yfir í Miðflokkinn sem þar með hefði orðið þriðji stærsti flokk- urinn á alþingi og jafnframt stærsti stjórnarandstöðu- flokkurinn. Hefðu Miðflokks- menn haldið áfram talsmáta sínum, slett fúkyrðum á samstarfsfólk sitt á þingi, kannski fólk sem þeir hafa unnið með í nefndum e.t.v. að málefnum sem breið samstaða væri um? Hefðu þeir haldið áfram að heilsa samstarfsfólki sínu í þingsöl- um og bjóða góðan dag að morgni en rakka sama fólk niður að kvöldi á Klausturbarnum, brugðið því um heimsku og daðrað við bjánalega neðanmittisbrandara? Mundi slíkt bæta starfsandann á alþingi? Mundu Miðflokksmenn og þeirra nótar hafa haldið áfram niðrandi tali um öryrkja og samkynhneigða, bæði almennt og með háðsglósum um til- tekna einstaklinga? Væru viðlíka ummæli og t.d. voru viðhöfð um ör- yrkja þetta kvöld líkleg til að menn tækju málefni þeirra alvarlega og væru þau vitnisburður um að menn hefðu einlægan og góðan vilja til að bæta hlut þeirra? Ekki held ég það. Ef ummælin hefðu ekki verið tekin upp og ekki komist á flug hefðu þá Miðflokksmenn einhvern tíma í vetur „hjólað í“ Lilju Alfreðsdóttur og beitt einhverjum þeim bolabrögðum sem talað var um þetta ömurlega kvöld? Væri það þjóð- þrifaverk? Það er jafnan dapurlegt þegar upp kemst um mis- ferli eða „ósiðlegt“ athæfi af ein- hverju tagi, ekki síst fyrir aðstand- endur þeirra sem hlut eiga að máli, og auðvitað þarf að taka á slíku af yf- irvegun. Þegar grefur einhvers stað- ar í manni er besta lækningin að ýfa upp sárið og hleypa greftrinum út, getur stundum orðið sárt en er nauðsynlegt. Á sama hátt eru ærið mörg graftrarkýli á þjóðarlík- amanum, sem þörf væri á að krafsa í. Bára Halldórsdóttir stakk á einu slíku kýli kvöldið góða á Klaust- urbarnum, þökk sé henni. Eftir Jón Torfason » Þegar grefur ein- hvers staðar í manni er besta lækningin að ýfa upp sárið og hleypa greftrinum út, getur stundum orðið sárt en er nauðsynlegt. Jón Torfason Höfundur er skjalavörður. grenimelur31@simnet.is Margir kjósa ekki orð á sig

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.