Morgunblaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 36
Gullbrúðlaup foreldranna í ágústmánuði árið 2015 Talið frá vinstri: Jónas Þór Þorvaldsson, Ingibjörg Elín Þor- valdsdóttir, Margrét Ármannsdóttir, Þorvaldur Jónasson, Böðvar Bjarki Þorvaldsson og Ármann Þorvaldsson. Á rmann Harri Þorvalds- son fæddist á fæðingar- deild Landspítalans í Reykjavík 15.12. 1968. Hann átti fyrst heima í Safamýrinni en fjölskyldan flutti í Vesturberg í Breiðholti er Ármann var fjögurra ára og þar ólst hann upp. Hann æfði og keppti í knattspyrnu með yngri flokkum Leiknis og var í handbolta í glímufélaginu Ármanni. Ármann gekk í Hólabrekkuskóla og útskrifaðist þaðan 1984, lauk stúd- entsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti 1989, lauk BA-prófi í sagn- fræði frá Háskóla Íslands 1992, stundaði nám í Boston 1992-94 og út- skrifaðist úr Boston University með MBA próf árið 1994. Ármann starfaði hjá Kaupþingi, í Reykjavík 1994-2003, og í London 2003-2008. Hann var yfirmaður fjár- festingarbankasviðs til 2005 og for- stjóri Kaupthing Singer & Fried- lander 2005-2008. Ármann var sjálfstætt starfandi og var fjárfestir 2008-2015. Hann var yf- irmaður Fyrirtækjaráðgjafar Virð- ingar 2015-2017 og er forstjóri Kviku frá 2017. Ármann hefur skrifað þrjár bækur en tvær þeirra voru á ensku og ís- lensku. Þetta eru bækurnar Saga Tennis- og badmintonfélags Reykja- víkur; Ævintýraeyjan (Frozen Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka – 50 ára Ætlaði fyrst að kenna sögu í framhaldsskóla Úr brúðkaupi Ingibjargar Afmælisbarnið, Atli Ármannsson, Margrét Ár- mannsdóttir, Þórdís Edwald, Solveig Óskarsdóttir og Bjarki Ármannsson. 36 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018 Snorrabraut 56, 105 Reykjavík Sími 588 0488 | feldur.is BELGINGUR mokka hanskar 6.200 BÁRA leðurhanskar 5.900 ÞYTUR prjónahúfa 9.200 SKJÓL leðurhúfa m/refaskinni 35.800 Velkomin í hlýjuna EIR úlpa m/refaskinni 158.000 ÞOKA ennisband 12 900. Opið frá kl 11-22 í dag laugardag Þetta er búin að vera löng meðganga,“ segir Anna J. Eðvalds-dóttir ljósmóðir um fyrstu bókina sína sem kom út á dögunum.Anna á 60 ára afmæli í dag og fagnar afmælinu með mann- inum sínum úti á Tenerife. „Við fórum í fjölskylduferð til Flórída núna í haust en svo ákváðum við tvö ásamt vinafólki að skella okkur hingað út. Afmælisdagurinn er óvissudagur, ég veit ekkert hvað við erum að fara að gera og spennan er í hámarki.“ En aftur að bókinni, sem heitir Fyrstu mánuðirnir – Ráðin hennar Önnu ljósu. „Hún er búin að vera í bígerð í 20 ár. Ég hef á þessum tíma verið að taka saman ráð sem ég hef haft handa foreldrum og hafa virkað vel og svo varð úr að bókin fæddist. Bókin spannar tím- ann rétt áður en barnið kemur í heiminn, hvernig foreldrar geta búið sig undir fæðinguna og heimkomu barnsins og síðan næstu mánuðina á eftir. Ég held ég geti fullyrt að í bókinni séu svör við nánast öllum spurningum sem foreldrar hafa verið með og bókin er líka góð fyrir afa og ömmur.“ Anna hefur verið með heimaþjónustu frá 1994. „Ljósmæður eru verktakar hjá Sjúkratryggingum Íslands og sinna nýbökuðum for- eldrum. Þær sem eru ekki að fæða sitt fyrsta barn geta farið heim fjórum til tólf tímum eftir fæðinguna ef allt hefur gengið vel en svo eru aðrar sem geta verið í umsjá okkar inni á spítala í allt að þrjá daga eftir fæðingu og samt fengið fimm til sjö vitjanir frá ljósmóð- urinni sem annast þau.“ Eiginmaður Önnu er Gísli Ágúst Guðmundsson, sjálfstætt starfandi byggingatæknifræðingur, og synir þeirra eru Eðvald Ingi tölvunar- fræðingur, Fannar umhverfisverkfræðingur, Garðar jarðeðlis- fræðingur og Pálmar sem er meistaranemi í rafmagnsverkfræði. Barnabörnin eru orðin fimm. Á Flórída Anna ásamt eiginmanni og sonum frá því í haust. Lengsta meðgangan Anna Eðvaldsdóttir er sextug í dag Nýr borgari Reykjavík Einar Örn Stefánsson fæddist 30. apríl 2018 kl. 23.13. Hann vó 3.200 g og var 48 cm langur. Foreldrar hans eru Súsanna Helgadóttir og Stefán Arnar Einarsson. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.