Morgunblaðið - 20.12.2018, Page 2

Morgunblaðið - 20.12.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018 595 1000 Gran Canaria Frá kr. 99.995 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyrr irv ar a 3. janúar í 12 nætur Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Sviðsstjóri fjármála- og rekstrar Strætó bs. hefur kynnt niðurstöður úr athugun á því hvort fýsilegt væri fyrir Strætó að selja auglýsingar á vagna fyrirtækisins. Hefur stjórn Strætó falið Jóhannesi Svavari Rúnarssyni, framkvæmdastjóra Strætó bs., að vinna málið áfram. Hann segir „meiri líkur en minni“ á því að auglýsingar rati aftur á hliðar strætisvagna. „Við höfum verið í sambandi við nokkrar auglýsingastofur og fengið ráðgjafa til að vinna að þessu með okkur. Niðurstaða þeirrar vinnu sýnir allt frá því að auglýsingar gefi eitthvað af sér yfir í ekki neitt. Þetta fer bara allt eftir þeim forsendum sem notast er við,“ segir Jóhannes Svavar í samtali við Morgunblaðið. Spurður hvort ekki sé eftirsótt að auglýsa á hliðum farartækis sem ek- ið er um alla borg svarar hann: „Það ætti að vera það. Okkur finnst það og þess vegna erum við með þetta til skoðunar. En hversu mikið menn vilja borga – það er spurning sem enn er ósvarað.“ Þá segir Jóhannes Svavar til skoðunar að selja auglýs- ingapláss utan á strætisvögnunum og inni í þeim. Búast má við niður- stöðu í þessum athugunum í janúar á næsta ári. Koma auglýsingarnar aftur? Morgunblaðið/Sverrir Gamla útlitið Vagnar Strætó eru í dag breyttir frá því sem áður var, en margir muna eftir auglýsingaborðunum á hliðum og bakenda eldri vagna.  Pláss er utan á og inni í strætó Íslenskum laxaseiðum fargað  Afbrigði veiru sem algeng er á Íslandi fannst í seiðum í eldisstöð í Bandaríkjunum Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Afbrigði af veiru sem fannst í laxa- seiðum úr íslenskum hrognum í laxeldisstöð á vesturströnd Band- ríkjanna varð til þess að yfirvöld ákváðu að láta farga 800 þúsund seiðum. Umrædd veira, PRV, er al- geng í laxi um allan heim, þar á meðal á Íslandi, bæði í villtum laxi og eldisfiski, en hefur aldrei valdið sjúkdómum hér svo vitað sé. Stofnfiskur hefur selt Cooke-lax- eldisstöðinni í nágrenni Rochester í Washington-ríki hrogn í nokkur ár, síðast í vor. PRV-veira fannst í fiskinum í sumar, afbrigði sem ekki hefur áður verið greint á þessum slóðum. Þess vegna fyrirskipuðu stjórnvöld slátrun á seiðunum þótt þau væru heilbrigð. Ekki skilgreind hættuleg Í fréttatilkynningu sem Stofn- fiskur hefur sent frá sér vegna um- fjöllunar í erlendum fréttamiðlum um málið kemur fram að PRV- veiran hjá Cooke kunni að eiga uppruna sinn í hrognum frá Ís- landi. Bent er á að fyrirtækið bjóði kaupendum hrogna að leita að PRV-veiru í foreldrafiskum en það sé þeirra að ákveða hvort það sé gert. Í tilkynningunni er bent á að PRV-veiran finnist í eldislaxi og villtum laxi og er ekki skilgreind sem framandi veira í Evrópu. Hún er hvorki á lista Alþjóðadýraheil- brigðisstofnunarinnar (OIE) né yf- irvalda í Evrópusambandinu yfir hættulegar veirur. Aldrei valdið sjúkdómi hér Gísli Jónsson, dýralæknir fisk- sjúkdóma hjá Matvælastofnun, seg- ir að PRV-veiran hafi fyrst verið skilgreind fyrir átta eða níu árum og nú hafi að minnsta kosti fjögur afbrigði verið skilgreind. Segir Gísli að þessi veira sé út um allt, í villtum laxi og eldislaxi, hér og víða um heim. Telur hann að veiran hafi fylgt laxfiskum um aldir. PRV-veiran getur valdið sjúk- dómi sem kallaður er hjarta- og vöðvabólga en til þess þarf sér- stakar aðstæður. Segir Gísli að tal- ið sé að aðra veiru þurfi með til þess að sjúkdómur komi upp og einnig mikinn þéttleika sem eykur streitu og dregur úr mótstöðu fisksins. Sjúkdómurinn hafi aldrei komið upp hér á landi. Mest er um slík tilvik í Noregi og hann hafi einnig komið upp í Kanada, að sögn Gísla. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í gær kröfu fjögurra þingmanna Mið- flokksins um gagnaöflun og vitna- leiðslur fyrir dómi í Klausturmálinu svokallaða. Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árnadóttir lögðu kröfuna fram vegna fyrirhugaðrar málsóknar gegn Báru Halldórsdóttur sem hljóðritaði sam- skipti þeirra á Klaustri bar. „Ég var að vonast eftir þessari niðurstöðu,“ segir Bára í samtali við mbl.is Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Báru, setur spurningarmerki við það hvort þingmennirnir geti höfðað einkamál gegn henni á sama tíma og Persónuvernd myndi rannsaka málið. Þannig sæti Bára rannsókn og refsi- kröfum á tveimur mismunandi stöð- um á sama tíma. Kröfu þing- manna hafnað „Allt bendir til þess að jólin verði rauð. Spár segja að suðlægar áttir veði ráðandi, rigning á vesturhluta landsins og frostlaust á öllu landinu,“ segir Birta Líf Kristinsdóttir, veð- urfræðingur á Veðurstofu Íslands. Á spá- deildinni eru jólaljós komin í glugga og þeg- ar Morgunblaðið kom við í gærmorgun voru Birta Líf og Helga Ívarsdóttir veðurfræð- ingar að rýna í gervihnattamyndir, kort og útreikninga. Það er út frá slíkum upplýs- ingum sem veðurspár eru gerðar. Á aðfangadag gæti vindstyrkur á sunnan- og vestanverðu landinu orðið 13 til 18 metr- ar á sekúndu en stundum hægari. Víða verð- ur ausandi rigning og 5-8 stiga hiti. Fyrir norðan og austan má gera ráð fyrir hægari vindi, þurrviðri og að hitastig verði um frostmark. Jörð verður því auð og jólin rauð; eins og var árið 2012. Í önnur skiptin á síðustu tíu árum hefur alltaf verð snjór í Reykjavík á jóladagsmorgun, stundum föl en alhvít jörð og 18 sentimetra nýfallinn snjór árið 2014. Óvissa til staðar Ýmsir óvissuþættir eru þó enn til staðar um jólaveðrið því nú takast á tvenn reginöfl; hlýr geiri sem er langt suður í hafi og kulda- pollur yfir norðanverðum Grænlandsjökli. Því má búast við að á þriðja og fjórða degi jóla hellist él yfir stóran hluta landsins og um áramótin gæti jörð verið hvít. „Samkvæmt spá um rigningu um hátíð- arnar er regnfatnaður góð hugmynd að jóla- gjöf,“ segir Birta Líf. Þegar horft er hins vegar til allra næstu daga má fram á Þor- láksmessu búast hæglátu veðri víðast hvar og hita um frostmark. sbs@mbl.is Regnfatnaður er góð hugmynd að jólagjöf Morgunblaðið/Eggert Allar líkur á rauðum jólum, ausandi rigningu og hvassvirði um hátíðarnar, að sögn veðurfræðinga á Veðurstofu Íslands Veðurfræðingar Helga Ívarsdóttir og Birta Líf Kristinsdóttir með jólasveinahúfu rýna í kort. Rauði liturinn á skjá næst sýnir hita yfir landinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.