Morgunblaðið - 20.12.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018
*M
ið
að
vi
ð
u
p
p
g
ef
n
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
d
a
u
m
el
d
sn
ey
ti
sn
o
tk
u
n
íb
lö
n
d
u
ð
u
m
ak
st
ri
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
0
7
1
4
www.renault.is
RENAULT KANGOO, DÍSIL
1,5 L. VÉL, 90 HESTÖFL
Verð:2.411.000 kr. án vsk.
2.990.000 kr.m. vsk.
Eyðsla 4,3 l/100 km*
RENAULT TRAFIC, DÍSIL
1,6 L. VÉL, 120 HESTÖFL
Verð frá:3.218.000 kr. án vsk.
3.990.000 kr.m. vsk.
Eyðsla frá 6,5 l/100 km*
RENAULTMASTER, DÍSIL
2,3 L. VÉL, 125 HESTÖFL
Verð frá:4.024.000 kr. án vsk.
4.990.000 kr.m. vsk.
Eyðsla 7,8 l/100 km*
Öflugir vinnufélagar
Kíktu í kaffi og reynsluakstur
TIL AFGREIÐSLU STRAX
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Við reynum eftir bestu getu að
gera jólin eins bærileg og mögu-
legt er en erum meðvituð um að
mönnum líður alveg sérstaklega
illa á þessum tíma árs,“ segir Páll
Winkel fangelsismálastjóri. Vísar
hann í máli sínu til þeirra sem
sitja bak við lás og slá nú þegar
jólin eru að ganga í garð. Að hans
sögn eru jólin sá tími sem reynist
föngum og aðstandendum þeirra
erfiðastur ár hvert. „Það fer ekki
fram hjá neinum sem vinnur í
þessum bransa að þessi tími er
erfiðastur. Við erum yfirleitt mjög
fegin þegar jólin eru búin enda er
þetta enginn gleðitími fyrir skjól-
stæðinga okkar. Við vitum það
sem eigum fjölskyldu að þetta er
sá tími sem maður vill eyða með
ættingjum sínum,“ segir Páll.
Fangar eru einir
á aðfangadag
Spurður um hvað sé gert til að
stytta föngum stundir í aðdrag-
anda jóla segir Páll að reynt sé
eftir fremsta megni að halda jólin
eins hátíðleg og hægt er. „Það er
guðsþjónusta í fangelsum í að-
draganda jóla fyrir þá sem hafa
áhuga á því. Þess utan fá fangar
senda pakka auk þess sem boðið
er upp á góðan mat. Þeir sem
ákveða að elda sjálfir leggja mikið
upp úr því að gera það vel og
þannig hafa stundina hátíðlega,“
segir Páll og bætir við að á að-
fangadag séu heimsóknir ekki
leyfðar. Föngum standi þó til boða
að hitta aðstandendur sína aðra
daga í kringum hátíðirnar. „Það
má segja að á aðfangadag séu
menn hressilega minntir á það að
þeir geti ekki verið til staðar fyrir
börn og fjölskyldur. Ég held að ég
geti talað fyrir hönd allra minna
starfsmanna þegar ég segi að við
finnum afar mikið til með skjól-
stæðingum okkar á þessum tíma,“
segir Páll.
Margir leita í fíkniefni
Að sögn Páls er afar algengt að
fangar leiti deyfingar í fíkniefnum
á erfiðum tímum líkt og um jól.
„Við reynum hvað við getum að
koma í veg fyrir fíkniefnaneyslu á
aðfangadag en þetta er einn af
þessum dögum sem menn vilja
deyfa sig. Við reynum að gera
skjólstæðingum okkar þennan
tíma bærilegan en eins og ég segi
þá er þetta gríðarlega erfitt,“ seg-
ir Páll.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fangelsi Að sögn Páls Winkels fangelsismálastjóra geta jólin reynst föngum afar erfið. Margir þeirra reyna að leita sér deyfingar í fíkniefnum.
Þungt yfir föngum í kringum hátíðirnar
Margir fangar
reyna að leita sér
deyfingar í fíkni-
efnum
Aukin áhersla Fangelsismálastofnunar ríkisins á AA-
starf innan veggja fangelsa hér á landi hefur gefið góða
raun það sem af er vetri. Þetta segir Páll Winkel fangels-
ismálastjóri í samtali við Morgunblaðið.
Nokkur ár eru síðan Fangelsismálamálastofnun hóf að
hleypa starfsfólki AA-samtakanna inn í fangelsin með
það fyrir augum að aðstoða fanga sem glíma við fíkni-
vanda. Fyrr í haust var þó ákveðið að leggja enn frekari
áherslu á málaflokkinn og var það gert að frumkvæði
forsvarsmanna AA-samtakanna.
„Það hefur gefið góða raun að hleypa fólki á vegum
samtakanna inn í fangelsin. Þau hafa verið áhugasöm
um að gera enn betur í þessum málum og þannig ná
betri tengingu við skjólstæðinga okkar. Þetta hefur gef-
ist mjög vel hingað til,“ segir Páll sem kveðst gríðarlega
þakklátur starfsfólki samtakanna. „Þetta er fólk sem
gerir þetta í eigin tíma og fyrir sitt eigið fjármagn. Þau
gera þetta af góðum hvötum einum og þar að auki nafn-
laust. Maður er að sjálfsögðu mjög þakklátur,“ segir Páll.
aronthordur@mbl.is
Aukið AA-starf í fangelsum reynist vel
MIKIL ÁHERSLA HEFUR VERIÐ LÖGÐ Á AÐ AÐSTOÐA FANGA MEÐ FÍKNIVANDA