Morgunblaðið - 20.12.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018
Desember er annasamurmánuður hjá mörgum.Freistingum í mat og
drykk fjölgar á þessum árstíma
með jóla- og aðventuboðum af
ýmsu tagi. Það er auðvelt að fresta
öllum vangaveltum um heilsu-
samlegan lífstíl til áramóta og
hugsa sem svo að njóta eigi
jólanna og koma sér svo aftur á
rétta braut eftir áramót. Hugsanir
eins og maður njóti sín ekki um
jólin nema borða allt sem hugurinn
girnist, jólin séu bara einu sinni á
ári og að fylgja megi hefðinni
skjótast auðveldlega upp í hugann.
Slíkt truflar áform um heilsu-
samlegan lífstíl.
Sleppa smakki og nammi
Við hjá heilsugæslunni viljum
því minna á að mikilvægt er að
huga að heilsunni alla daga ársins.
Það er hvers og eins að velja
hvernig viðkomandi vill njóta að-
ventunnar. Rannsóknir sýna að
fólk þyngist að meðaltali um hálft
til eitt kíló á ári og að stór hluti
þeirrar þyngdaraukningar verður í
kringum jólahátíðina.
Að leiða hugann að skynsam-
legum matarvenjum og setja sér
markmið fyrir hátíðardagana getur
verið gagnlegt. Hátíðarmaturinn
er góður og tilheyrir hefðunum en
til þess að njóta þarf magnið ekki
að vera mikið. Oft borðum við af
því að matur er í boði en ekki endi-
lega af því að okkur langi í eða
finnum fyrir svengd. Gott dæmi
um einfalda hluti sem auðvelt er að
sleppa, er smakk og nammi sem er
á oft á boðstólum í búðum á þess-
um árstíma. Með því að slá ekki á
frest að hugsa um heilsuna fram
yfir áramót er líklegt að við verð-
um ánægðari og heilbrigðari í jan-
úarbyrjun. Þá verður auðveldara
að setja ný markmið og taka næstu
skref í átt að bættri heilsu.
Takast á við streituna
Með því að borða hægt, njóta
matarins, hafa skammta hóflega og
hlusta á magamerkin, það er
svengd og seddu, minnka líkur á að
jólamánuðurinn hafi neikvæð áhrif
heilsu. Það er vel hægt að njóta án
þess að borða yfir sig. Það má
breyta hefðum, búa til nýjar. Einn-
ig hafa samveruna í forgrunni og
gott að bæta við samveru úti þar
sem hreyfing kemur við sögu til
dæmis góðan göngutúr fjölskyld-
unnar áður en haldið er í næsta
jólaboð.
Á aðventu og jólum eru mörg
okkar í miklum önnum og finnum
fyrir álagi og streitu og þá eins og
alltaf er mikilvægt að reyna að
takast á við streituna með reglu-
legri hreyfingu og slökun. Góður
nætursvefn er ekki síður mikil-
vægur þar sem streita og svefn-
leysi auka líkurnar á að velja
skyndiorku frekar en staðgóðar
máltíðir.
Samvera við matarborðið snýst
um svo margt annað en að borða
góðan mat. Hægt er að gera
skemmtilegar æfingar í núvitund
við matarborðið þar sem t.d. lita-
dýrðin í matnum er skoðuð, sjá fal-
lega útskorin laufabrauð og hugsa
vel til þeirra sem lögðu metnað
sinn í að útbúa matinn fyrir okkur.
Á vefnum heilsuvera.is er hægt að
nálgast fræðslu m.a. um svefn og
hvíld, mataræði, hreyfingu og slök-
un.
Hóflegir skammtar og hlustað á magann
Morgunblaðið/Golli
Útivera Milli matarboða getur verið sniðugt að skreppa í góðan göngutúr.
Heilsuráð
Helga Sævarsdóttir hjúkrunarfr. og
Jón Steinar Jónsson heilsug.læknir
Helga
Sævarsdóttir
Jón Steinar
Jónsson
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Getty Images
Veisla Margir gera vel við sig í mat um jól, en skynsemin verður þó að ráða.
„Þetta píanó hefur fallegan hljóm og
í raun er þetta algjört drauma-
hljóðfæri,“ segir Linda María Niel-
sen, deildarstjóri við Grunnskóla
Grundarfjarðar. Skólinn fékk nú á
þriðjudaginn, 18. desember, afhent
spánýtt píanó af gerðinni Kawai sem
notað verður við kennslu, undirleik í
söngnámi og annað eftir atvikum.
Hljóðfærinu var komið fyrir í
kennslustofu Lindu Maríu en svo
skemmtilega vildi til að þetta hún
átti afmæli þennan sama dag.
„Tónlistarlífið hér í Grundarfirði
hefur alltaf verið öflugt enda er vel
stutt við það. Hér eru góðir kennarar
og góður hljóðfærakostur. Hér er til
dæmis nýlega búið að kaupa málm-
blásturshljóðfæri og gítara og nú
bætist píanóið við,“ segir Linda
María sem kennir söng við tónlist-
ardeildina. Alls er 21 í söngnámi við
skólann og 15 eru að læra á píanó.
Tónlistarnemarnir eru alls um 60
eða 2/3 af nemendum grunnskóla.
„Mér finnst gaman að fylgjast
með nemendum þroskast og taka
framförum í námi. Uppgötva tónlist-
ina með öllum sínum töfrum,“ segir
Linda María sem hefur kennt í
Grundarfirði frá árinu 2009. Sjálf er
hún menntuð í klassískum söng; hóf
það nám í Stykkishólmi, þar sem
hún ólst upp, en fór seinna í söng-
skólann í Reykjavík og lauk burtfar-
arpróf þar fyrir níu árum.
„Já, það borgar sig svo sannar-
lega að fara í tónlistarnám. Kannski
eru peningarnir ekki alltaf miklir í
músíkinni en listin er ákaflega gef-
andi og andlega nærandi. Ég gæti
ekki hugsað mér skemmtilegri
starfsvettvang en að sinna tónlistar-
kennslu meðal nemenda sem eru
áhugasamir – eins og sannarlega er
raunin með fólk hér í Grundarfirði,“
segir Linda María.
Fallegur píanóhljómur í skólanum í Grundarfirði
Nýtt hljóðfæri og tónlistarstarf í bænum öflugt
Tónlist Linda María Nielsen við hljóðfærið sem komið var með vestur nú í vikunni.
Á morgun, föstudag, lýkur neyðarsöfnun Rauða krossins
vegna hungursneyðar í Jemen. Söfnunin hefur gengið vel
og safnast hefur upphæð sem dugar fyrir mat fyrir 14
þúsund börn í Jemen í heilan mánuð. Stefnan hefur verið
sett enn hærra og er nú stefnt að því að safna mat fyrir
20 þúsund börn sem jafngildir tæplega þriðjungi barna á
Íslandi undir 14 ára aldri.
Nú hefur verið gert vopnahlé meðal stríðandi fylkinga í
hafnarborginni Hodeida. Hléið er mikilvægt því stærstur
hluti matar og hjálpargagna fer þar í gegn. Vopnahlé tók
gildi á miðnætti mánudaginn 17. desember síðastliðinn og
nú eru vonir bundnar við að hægt verði að koma bráð-
nauðsynlegum hjálpargögnum inn í landið en talið er að
um 20 milljónir Jemena þurfi á aðstoð að halda.
Þá hefur Rauði krossinn ásamt öðrum hjálparsam-
tökum haft milligöngu um lausn Jemena sem haldið var í
gíslingu vegna átakanna.
Enn er hægt að styrkja hjálparstarf Rauða kross hreyf-
ingarinnar í Jemen um 2900 kr. með því að senda SMS-ið
HJALP í númerið 1900. Einnig má leggja inn á reikning
0342 - 26 -12, kt. 530269-2649. Sú upphæð dugar til þess
að þrjú börn í Jemen fái mat í einn mánuð.
Vopnahlé í Jemen en fjármuni vantar til hjálparstarfs því milljónir eru í neyð
Söfnun er að ljúka
AFP
Jemen Barist er á banaspjótum í landinu við Arabíuhafið.
Hitatækni
Skynjarar í miklu úrvali
Hitanemar | rakanemar | þrýstinemar | C02 nemar | hitastillar
www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi
Str.
38-58
Flott jólaföt, fyrir flottar konur
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna