Morgunblaðið - 20.12.2018, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018
Laugavegi 77 | 101 Reykjavík | Sími: 551 3033 Flottir
í fötum
Allt á herrann
– mikið úrval!
ÚTSÖLUSTAÐIR:
JB ÚR&SKART - MICHELSEN ÚRSMIÐIR
GÞ SKARTGRIPIR OG ÚR - MEBA
GEORG V. HANNAH
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Dyngjan áfangaheimili hélt upp á
þrjátíu ára starfsafmæli sitt í nóvem-
ber. Áfangaheimilið er fyrir konur
sem hafa lokið áfengis- og vímuefna-
meðferð. Aldís Höskuldsdóttir, for-
stöðukona Dyngjunnar, segir að rými
sé fyrir 14 konur hverju sinni á Dyngj-
unni. Meðalaldur íbúa á Dyngjunni sé
35 til 45 ára og geta konur í ákveðnum
tilfellum haft börn sín hjá sér. Viðvar-
andi bið hefur verið eftir plássi á
Dyngjunni undanfarin ár.
„Það er fráflæðisvandi hjá okkur og
konur sem eru tilbúnar að takast á við
lífið eftir dvöl á Dyngjunni hafa tak-
markaða möguleika á húsnæði því
framboð á félagslegu húsnæði er af
skornum skammti. Staða flestra
kvennanna er þannig að þær hafa ekki
tök á að fara á almennan leigumarkað.
Eftir tvö ár á áfangaheimili er það svo
að vistin er farin að vinna á móti kon-
unum,“ segir Aldís og bendir á að áður
hafi hámarkstími á Dyngjunni verið
10 mánuðir.
„Á Dyngjunni eru húsreglur sem
konur kynna sér fyrir dvölina. Við höf-
um sólarhringsvakt í húsinu, fasta
fundi þrisvar í viku og skýra ramma
og reglur. Áfengis- og vímuefnaneysla
á Dyngjunni er bönnuð og það er eng-
in undantekning á þeirri reglu,“ segir
Aldís sem bendir á að konurnar komi
úr meðferð frá Vík, Hlaðgerðarkoti,
Krísuvík og Landspítalanum og end-
urhæfingu sæki þær á mismunandi
staði. Aldís segir neyslumynstur hafi
breyst mikið hjá konum.
Börn með mæðrum sínum
„Konur sem eiga börn fá að hafa
þau hjá sér eins og hægt er. Um
skeið bjó hér móðir með tvíbura. Oft-
ast fá konurnar að hafa börn sín yfir
helgi og í sumum tilfellum lengist
tímabilið smátt og smátt. Aðallega á
þetta við um yngri börnin,“ segir Al-
dís og bætir við að þetta væri ekki
hægt nema af því að aðrar konur á
heimilinu sýni þessum heimsóknum
skilning.
„Það eru allar jafnar á Dyngjunni
og bera virðinu hver fyrir annarri.
Fyrir sumar konur getur þetta verið
mjög erfitt til að byrja með, sérstak-
lega þær sem hafa ekki átt heimili
eða átt í eðlilegum samskiptum í
langan tíma.“
Að sögn Aldísar hefur árangur
Dyngjunnar verið mjög góður. Um
1.500 konur hafa dvalið þar frá upp-
hafi og nýting plássa á ársgrund-
velli verið 98%.
„Reykjavíkurborg á húsnæði
Dyngjunnar og leigir okkur á mjög
hagstæðum kjörum. Heimiliskonur
borga 90.000 kr. á mánuði fyrir hús-
næði, þvottaaðstöðu, mat og allt
sem þarf til heimilishalds. Mismun-
inn reynum við að brúa með styrkj-
um. Við fáum árlega styrk frá vel-
ferðarráðuneytinu og
Reykjavíkurborg ásamt styrk frá
Hvítabandinu sem hefur verið
styrktaraðili Dyngjunnar frá upp-
hafi. Einnig fáum við styrki fá vel-
ferðarsjóðum, einstaklingum og fé-
lögum,“ segir Aldís og bendir á að í
tilefni 30 ára afmælisins hafi verið
gefin út bókin Að breyta því sem ég
get breytt. Bókin er seld á Dyngj-
unni í fjáröflunarskyni.
„Það þarf að fjölga félagslegum
úrræðum fyrir konur sem koma af
Dyngjunni. Margar hverjar eiga
ekki í nein hús að venda. Það hlýtur
að vera hagkvæmara fyrir þjóðfé-
lagið á allan hátt að þær séu ekki í
neyslu,“ segir Aldís og lýsir því
hversu fallegt það sé að sjá konurn-
ar blómstra í Dyngjunni og halda út
í lífið þegar þær fá tækifæri til.
Komast ekki af áfangaheimilinu
14 konur á Dyngjunni Börn gista hjá mæðrum sínum þegar hægt er Skortur á félagslegu hús-
næði teppir pláss Breytt neyslumunstur hjá konum Afmælisrit í tilefni 30 ár afmælis Dyngjunnar
Áfangaheimili Á Dyngjunni hafa 1.500 konur búið á 30 árum. Konurnar flytja á Dyngjuna að lokinni áfengis- og
vímuefnameðferð. Íbúar greiða til heimilisins og það sem upp á vantar er fjámagnað með styrkjum frá velunnurum.
Gerð aðaluppdrátta nýrra höfuð-
stöðva Landsbankans er lokið og
hefur bankinn sótt um byggingaleyfi
til byggingafulltrúans í Reykjavík.
Afgreiðslu málsins var frestað.
„Sótt er um leyfi til að byggja
steinsteypt 5 hæða verslunar- og
skrifstofuhús, einangrað að utan og
klætt blágrýti, með tveggja hæða
bílgeymslu fyrir 102 bíla undir hluta
húss á reit 6 á lóð nr. 2 við Aust-
urbakka,“ segir í umsókn Lands-
bankans.
Fram kemur í umsókninni að
heildarstærð hússins með bílakjall-
ara verði 21.497 fermetrar.
Miðað er við að fyrstu verkþættir
hússins, sem rísa mun við hlið
Hörpu, verði boðnir út á fyrri hluta
næsta árs og framkvæmdir hefjist
fljótlega í kjölfarið. Arkþing ehf. og
C.F. Møller teikna húsið og Efla hef-
ur komið að vinnu við hönnun.
Fram hefur komið í fréttum að
byggingarkostnaður hússins er
áætlaður tæpir 9 milljarðar króna,
að lóðarverði meðtöldu.
sisi@mbl.is
Sótt um byggingaleyfi
Mynd/Arkþing ehf. og C.F. Møller
Kletturinn Vinningstillagan að nýjum höfuðstöðvum Landsbankans.