Morgunblaðið - 20.12.2018, Page 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018
Holtagörðum-Lóuhólum-Akureyri-Selfossi-
Bolungarvík-Vestmannaeyjum
ÞÚ FÆRÐ
HJÁ OKKUR!
S; 537-5000 dyrarikid@dyrarikid.is
Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra
viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið.
4 dagar til jóla
Jólatónleikar verða í Edinborgar-
húsinu á Ísafirði í kvöld kl. 21 og
nefnast Jólin heima. Þar verða leik-
in hugljúf jólalög en setið verður
við borð og barinn á staðnum opinn.
Efnisskráin er fjölbreytt og spann-
ar allt frá lögum eftir Ingibjörgu
Þorbergs til Memphismafíunnar.
Húsið verður opnað kl. 20.30.
Flytjendur tónlistar eru söng-
konurnar Dagný Hermannsdóttir
og Svanhildur Garðarsdóttir og
tónlistarmennirnir Guðmundur
Hjaltason og Stefán Jónsson, sem
einnig munu taka lagið. Gestaspil-
ari á Cajon er Baldur Páll Hólm-
geirsson. Öll hafa þau getið sér gott
orð fyrir tónlistarflutning á Vest-
fjörðum og víðar um land. Sami
hópur verður á ferðinni með tón-
leika í Hólmavíkurkirkju annað
kvöld, 21. desember, kl. 20. Miða-
sala verður við innganginn á báðum
stöðum en einnig á tix.is fyrir
kvöldið í kvöld.
Jólatónleikar í Edinborgarhúsinu í kvöld
Vestfirðingar Tónlistarfólkið sem verður í
Edinbogarhúsinu og Hólmavíkurkirkju.
Friðrik Vignir Stefánsson organisti stendur fyrir orgel-
stund við kertaljós í Seltjarnarneskirkju á Þorláks-
messukvöld 23. desember kl. 22-23. Hann mun leika jóla-
tónlist eftir Bach, Buxtehude, Reger og aðra þekkta
jólasálma.
Það eru 30 ár liðin frá því Friðrik Vignir byrjaði á því
að vera með orgelstund að kvöldi Þorláksmessu. Sú
fyrsta var haldin í Grundarfjarðarkirkju á Þorláks-
messu árið 1988 og hefur orgelstundin verið haldin í Sel-
tjarnarneskirkju frá 2007. Síðustu ár hefur Eygló Rún-
arsdóttir messósópran sungið jólasálma og jólalög á
tónleikunum og verður kirkjan aðeins lýst upp með
kertaljósi. „Orgelstundin hefur verið vel sótt alla tíð og sumir gesta hafa
talað um að þetta sé nauðsynlegur hluti í byrjun jólahátíðarinnar að koma
saman og slaka á og njóta stundar saman. Allir eru velkomnir og geta kom-
ið og farið að vild, sumir stoppa allan tímann en aðrir skemur,“ segir í til-
kynningu um tónleikana en aðgangur er sem fyrr ókeypis.
Orgelleikur á Þorláksmessukvöldi í 30 ár
Friðrik Vignir
Stefánsson
Jólajazz verður leikinn í hádeginu á
morgun, föstudag, á Kexhostel,
Skúlagötu 28, frá kl. 12:15 til 13:15.
Söngkonan Marína Ósk Þórólfs-
dóttir og gítarleikarinn Mikael
Máni Ásmundsson skipa dúettinn
Marína & Mikael, sem stofnaður
var haustið 2014.
Þau sendu frá sér sína fyrstu
plötu árið 2017, Beint heim, og var
platan tilnefnd til Íslensku tónlist-
arverðlaunanna. Í desember hafa
þau haldið úti „Jólalaga-dagatali“ á
Facebook-síðu sinni þar sem þau
flytja eitt jólalag á dag fram að jól-
um.
Undirtektirnar hafa verið frá-
bærar og mæta þau nú á Kex hostel
með sín uppáhalds jólajazznúmer.
Tilvalið að renna niður ljúffengum
hádegismat úr Kex eldhúsinu með
jólajazzinum. Aðgangur er ókeyp-
is,“ segir í tilkynningu.
Jólajazz Dúettinn Marína Ósk Þórólfs-
dóttir og Mikael Máni Ásmundsson.
Jólajazz á Kexhostel
í hádeginu á morgun
Eins og undanfarin jól standa Bind-
indissamtökin IOGT á Íslandi, Æsk-
an barnahreyfingin og Núll prósent
ungmennahreyfingin að átakinu
Hvít jól. Um er að ræða for-
varnarátak sem miðar á áfengis-
neyslu fullorðinna á jólunum.
Fulltrúar átaksins verða á ferð-
inni, á götum og torgum, fram að
jólum með kynningar og spjall við
gesti og gangandi.
Hægt er að skrá sig á heimasíðu,
www.hvitjol.is, og gerast þannig
fulltrúar átaksins.
Hvatt til bindindis
yfir jólahátíðina
Kakó og smákökur í anda jólanna verða á boðstólum
þegar listakonan Dóra Sigurðardóttir í Vatnsdalshólum
í A-Húnavatnssýslu opnar vinnustofu sína laugardaginn
22. desember kl. 14. Í Listakoti Dóru verður starfrækt
innrömmunarþjónusta og vinnustofa listamannsins en
hluti af rýminu verður notaður til þess að taka á móti
gestum. Einnig verður aðstaða fyrir gestakennara.
Dóra hefur unnið að list sinni undanfarin ár undir
listanafninu Listakot Dóru. Hún málar málverk, kerti,
kort og fleira. Ýmislegt fleira kemur frá henni á nýja
árinu sem nú er á þróunarstigi, að því er fram kemur í
frétt á vefnum Húni.is.
Kakó og kökur í Listakoti Dóru
Dóra
Sigurðardóttir
Opið verður á veitingastaðnum
Réttinni í Úthlíð um hátíðirnar frá
kl. 16-21, að undanskildum að-
fangadegi. Þá verður lokað kl. 16.
Gerð verður undantekning þegar
fótboltaleikir eru á skjánum og eitt-
hvað fleira skemmtilegt í gangi.
segir í tilkynningu. Fimmtudaginn
27. desember verður árleg jóla-
messa Úthlíðarkirkju. Hefst athöfn-
in kl. 16 og að lokinni messu verður
kirkjukaffi í Réttinni.
Morgunblaðið/RAX
Úthlíð Messað í kirkjunni þriðja í jólum.
Opið í Réttinni
í Úthlíð um jólin
Nokkur munur er á forgangsröðum
landshlutasamtaka sveitarfélaganna
vegna samgönguáætlunar 2019 til
2033 og áætluninni sjálfri sem er til
umfjöllunar í umhverfis- og sam-
göngunefnd Alþingis. Þetta kemur í
ljós þegar skoðað er minnisblað sem
samgöngu- og sveitarstjórnarráðu-
neytið sendi þingnefndinni að hennar
ósk. Mjög mörg verkefni sem lands-
hlutasamtökin telja brýn eru þó á
áætluninni og sum að komast á fram-
kvæmdastig. Hér eru nefnd nokkur
óskaverkefnanna sem ýmist eru ekki
á áætlun eða ekki verður hafist handa
um fyrr en eftir fimm ár eða lengri
tíma.
Samtök sveitarfélaga á Vestur-
landi (SSV) vilja að hafinn verði und-
irbúningur að lagningu Sundabraut-
ar. Engin fjárveiting er til verk-
efnisins en verið er að skoða kosti
þess að vegagerðin verði samstarfs-
verkefni ríkis og einkaaðila. SSV tel-
ur brýnt að ljúka framkvæmdum við
Uxahryggjaveg ekki síðar en 2020.
Það er ekki á dagskrá samgöngu-
áætlunar fyrr en á árunum 2024-
2028. SSV telur einnig brýnt að lagt
verði bundið slitlag á þann hluta
Snæfellsvegar um Skógarströnd sem
er með undirbyggingu. Það er á dag-
skrá í áföngum frá 2024 til 2033 og
síðar.
Vilja ljúka Bíldudalsvegi
Fjórðungssamband Vestfirðinga
(FV) vill ljúka við Bíldudalsveg um
leið og Dýrafjarðargöng 2020. Það er
á dagskrá áætlunarinnar í áföngum
frá 2024 til 2033. FV vill að strax verði
hafnar framkvæmdir við Strandaveg
um Veiðileysuháls. Frá 2022-2023
verða 400 milljónir settar í verkefnið
og 300 milljónir frá 2024-2028. FV vill
að Álftafjarðargöng fari í fram-
kvæmd 2019-2021. Ekki er gert ráð
fyrir fjárveitingum til framkvæmda í
áætlun. FV telur einnig að Kollagötu-
göng ættu að vera hluti vegagerðar
um Dynjandisheiði. Fjárveitingar
eru ekki til verkefnisins. Samtök
sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
(SSNV) vilja að hafnar verði rann-
sóknir á hagkvæmni þess að grafa
jarðgöng í gegnum Tröllaskaga milli
Hofsdals og Barkárdals. Þetta er
ekki tilgreint í samgönguáætlun. Þá
vilja samtökin ráðast í ýmsar fram-
kvæmdir í Sauðárkrókshöfn og á
Hofsósi sem ekki eru í áætluninni.
Samband sveitarfélaga í Eyjafirði
og Þingeyjarsýslum (Eyþing) segir
mikilvægt að ljúka norðausturvegi
um Brekknaheiði sem fyrst. Það er á
dagskrá 2023-2026. Einnig telur Ey-
þing brýnt að hefja framkvæmdir við
norðausturveg um Skjálfandafljót.
Það er á dagskrá 2024-2028. Þá vill
Eyþing að hafin verði uppbygging
Dysneshafnar. Það er ekki í sam-
gönguáætluninni.
Samband sveitarfélaga á Austur-
landi (SSA) telur jarðgöng á milli
Seyðisfjarðar og Héraðs forgangs-
verkefni. Það er á dagskrá 2028-2033
og síðar. SSA vill Axarveg uppbyggð-
an og hringveg um Suðurfirði. Það er
á dagskrá 2024 og síðar. Endurnýja
þurfi brú á Lagarfljóti. Það er á dag-
skrá 2024-2028.
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
(SAS) segja nýja brú á Ölfusá í for-
gangi. Verkefnið er á dagskrá 2024-
2028. Þá er bent á að veglína hring-
vegarins Fossálar-Hörgsá sé slæm,
þar sé blindhæð og vegurinn mjór og
með lélegt burðarþol. Framkvæmdir
eru á dagskrá 2024-2028. SAS nefna
einnig nauðsyn nýrrar brúar á Stóru-
Laxá. Sú framkvæmd er ráðgerð á
árunum 2024-2028. Samtökin vilja
ennfremur nýjan veg austan við
byggðina á Höfn. Það verkefni er
ekki á samgönguáætlun.
Samtök sveitarfélaga á Suðurnesj-
um vilja að vegarkaflanum á Reykja-
nesbraut frá Fitjum að Leifsstöð
verði lokið vegna mikillar umferðar.
Framkvæmdir eiga að hefjast 2024
og verður ekki lokið fyrr en 2029-
2033. gudmundur@mbl.is
Munur á forgangs-
röðun og áætlun
Ýmis forgangsmál sveitarfélaga ekki á samgönguáætlun
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vegamál Fjórðungssamband Vestfirðinga vill að Bíldudalsvegi verði lokið
um leið og Dýrafjarðargöngum sem eiga að vera tilbúin árið 2020.